Morgunblaðið - 09.03.2019, Side 25

Morgunblaðið - 09.03.2019, Side 25
MESSUR 25Á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MARS 2019 AKURINN kristið samfélag | Samkoma kl. 14. Biblíufræðsla, söngur og bæn. ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Kristný Rós Gústafsdóttir djákni leiðir sam- verustund sunnudagaskólans og séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Ás- kirkju syngur, organisti Bjartur Logi Guðnason. Safnaðarfélag Áskirkju selur kaffi og vöfflur með rjóma í Ási eftir messu. Passíusálmarnir eru lesnir á föstunni í Áskirkju á þriðjudags- morgnum til föstudagsmorgna kl. 10.30, tveir sálmar i senn. Opið hús eldri borgara í Ás- og Laugarnessóknum í Áskirkju á fimmtudögum kl. 12-15. ÁSTJARNARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11. Kirkjukór og barnakór kirkjunnar syngja undir stjórn Keiths Reed. Fræðsla er í höndum Bjarka Geirdals Guðfinnssonar. Prest- ur er Kjartan Jónsson. Hressing og samfélag á eftir. BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í Brekkuskógum 1 kl. 11. Umsjón hafa Sigrún Ósk, Guðmundur Jens og Þórarinn Kr. BREIÐHOLTSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Steinunn Þorbergsdóttir og Steinunn Leifs- dóttir stjórna. Alþjóðlegi söfnuðurinn í Breið- holtskirkju ICB kl. 12. Prestur Toshiki Toma. Skaftfellingamessa kl. 14. G. Stígur Reyn- isson, sóknarprestur á Höfn, prédikar. Sig- urður Kr. Sigurðsson, fyrrv. sóknarprestur, og Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur þjóna fyrir altari. Söngfélag Skaftfellinga syngur undir stjórn Friðriks Vignis Stefánssonar organista. Kaffisala Söngfélags Skaftfellinga eftir messu. BÚSTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Daníel Ágúst, Sóley Adda, Jónas Þórir og Pálmi leiða samveruna. Foreldrar og afar og ömmur hvött til þátttöku með börnunum. Guðsþjón- usta kl. 14. Kór Bústaðakirkju syngur, Jónas Þórir við hljóðfærið. Messuþjónar aðstoða. Prestur Pálmi Matthíasson. Heitt á könnunni og spjall eftir messu. DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Sig- urður Kr. Sigurðsson. Organisti Sólveig Sigríð- ur Einarsdóttir. Kammerkór Digraneskirkju syngur. Einsöngvarar: Una María Bergmann og Sandra Þorsteinsdóttir. Sunnudagaskóli á neðri hæð á sama tíma. Veitingar í safnaðarsal eftir messuna. Dómkirkja Krists konungs, Landakoti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er vigilmessa. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11 og barnastarf á kirkjuloftinu. Prestur Elínborg Sturludóttir, Dómkórinn og Kári Þormar dómorganisti. Bíla- stæði við Alþingishúsið gegnt Þórshamri. EGILSSTAÐAKIRKJA | Taizé-íhugunarmessa í Safnaðarheimilinu kl. 10.30. Kór Egilsstaða- kirkju og Torvald Gjerde leiða bæna- og íhug- unarsöngva kenndum við Taizé-klaustrið í Frakklandi. Prestur Þorgeir Arason. Meðhjálp- ari Guðlaug Ólafsdóttir. Sunnudagaskóli í kirkj- unni á sama tíma í umsjón sr. Ólafar og leið- toganna. FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar og predikar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Sunnudagaskóli á sama tíma. Kaffi og djús eftir stundina.Dýrfirðingamessa kl. 14. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar, Ósk El- ísdóttir flytur hugvekju. Organisti Guðmundur Óskarsson. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl. 13. Kríla- og barnakór- ar kirkjunnar syngja. Örn Arnarson og Erna Blöndal leiða stundina ásamt Einari Eyjólfs- syni. Guðsþjónusta á Sólvangi kl. 15. Kór kirkj- unnar leiðir sönginn. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl. 14. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson safn- aðarprestur leiðir stundina. Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina ásamt Gunnari Gunnarssyni organista. Ferming- arbörn og fjölskyldur þeirra eru hvött til að mæta. GLERÁRKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11.30. Sameignlegt upphaf í messu. Sr. Stefanía G. Steinsdóttir þjónar. Kór Gler- árkirkju leiðir söng undir stjórn Valmar Väljaots. Umsjón með sunnudagaskóla: Sunna Kristrún djákni. GRAFARVOGSKIRKJA | Útvarpsguðsþjón- usta kl. 11. Fjallað um erkitýpur og ofurkonur í Biblíunni og í veröldinni. Sr. Guðrún Karls Helgudóttir, sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir og Krist- ín Gunnlaugsdóttir listakona prédika og þjóna ásamt fermingarbörnum og messuþjónum. Ás- geir Jón Ásgeirsson spilar á gítar, kór kirkj- unnar syngur ásamt Særúnu Harðardóttur sópran. Organisti er Hákon Leifsson. Sunnu- dagaskóli á neðri hæð kirkjunnar á sama tíma. Umsjón hefur Pétur Ragnhildarson. GRAFARVOGUR - KIRKJUSELIÐ Í SPÖNG | Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir leiðir messu og Helga Bragadóttir guðfræðinemi prédikar. Hilmar Örn Agnarsson er organisti og Vox Po- puli syngur. GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Bisk- upsvisitasía. Biskup Íslands, frú Agnes M. Sig- urðardóttir, prédikar. Með henni þjóna sr. María Ágústsdóttir og messuþjónar safnaðar- ins ásamt ungmennum úr fermingarhópi vors- ins. Organisti er Ásta Haraldsdóttir og Vox fem- inae annast söng. Kaffi og meðlæti á undan og eftir messu. Guðsþjónusta Kirkju heyrn- arlausra kl. 14. Sr. Kristín Pálsdóttir þjónar ásamt biskupi. Fermingarfræðsla á laugardag kl. 10.30-13.30. Starf eldri borgara heimsækir Bústaðakirkju á miðvikudag kl. 13-16. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðsþjónusta í umsjón Félags fyrrum þjónandi presta kl. 14 í hátíðasal Grundar. Prestur er Gunnar Kristjánsson. Grundarkórinn leiðir söng undir stjórn Kristínar Waage organista. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðs- þjónusta og barnastarf kl. 11. Prestur Leifur Ragnar Jónsson. Organisti Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju syngur. Barnastarf í umsjá Böðvars og Bryndísar Böðvarsdóttur. Kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir og með- hjálpari Guðný Aradóttir. Kaffisopi í boði eftir messuna. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Þorvaldur Karl Helgason messar. Hilmar Örn Agnarsson leikur á orgel og félagar í Barbörukórnum syngja. Bylgja Dís, Sigríður og Jess sjá um dagskrá í sunnudagaskólanum. Hressing á eftir. HALLGRÍMSKIRKJA | Fræðslumorgunn kl. 10. Þórsteinn Ragnarsson ræðir um prédikanir sr. Ragnars Fjalars Lárussonar. Messa og barnastarf kl. 11. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar að- stoða. Félagar úr Schola cantorum syngja. Org- anisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón barnastarfs Inga Harðardóttir, Ragnheiður Bjarnadóttir og Karítas Hrundar Pálsdóttir. Opnun myndlistarsýningar Guðrúnar S. Har- aldsdóttur við messulok. Tónleikar kl. 17. Rómantísk kór- og orgeltónlist. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Eldri félagar í Karlakór Reykjavíkur syngja undir stjórn Frið- riks S. Kristinssonar og Una Haraldsdóttir leik- ur á orgelið. Prestur er Eva Björk Valdimars- dóttir. Við minnum á Biblíulestra á föstu í Safnaðarheimili Háteigskirkju, 2. hæð á fimmtudögum fram að páskum kl 17.30- 18.30. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl. 11. Kór Hjallakirkju leiðir söng undir stjórn Krist- ínar Jóhannesdóttur. Prestur er Sunna Dóra Möller. Sunnudagaskóli á sama tíma í safn- aðarheimilinu, Markús og Heiðbjört leiða hann. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam- koma kl. 11. Translation into English. Sam- koma á spænsku kl. 13. Reuniónes en esp- añol. Samkoma á ensku kl. 14. English speaking service. ÍSLENSKA KIRKJAN í Kaupmannahöfn | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14 í Skt. Pauls kirkju. Kvennakórinn í Kaupmannahöfn syngur. Stjórnandi: María Ösp Ómarsdóttir. Barnakór- inn í Kaupmannahöfn syngur. Kórstjórn og org- elleik annast Sólveig Anna Aradóttir. Prestur er Ágúst Einarsson. Messukaffi í Húsi Jóns Sig- urðssonar eftir guðsþjónustu í umsjón Kvenna- kórsins í Kaupmannahöfn. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl. 13 með lofgjörð og fyrirbænum. Börnin byrja inni á sal með foreldrum/forsjáraðilum, en á meðan samkoman varir verður sérstök fræðsla fyrir þau. Halldóra Ásgeirsdóttir predikar. Kaffi að samverustund lokinni. KEFLAVÍKURKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11. Barnakór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista og Freydísar. Súpa og brauð í boði. Frjáls framlög í baukinn renna til verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Kaffi- húsamessa kl. 16 með þátttöku ferming- arbarna. Að lokinni messu selja fermingarbörn kaffi, kakó og heimabakað á 500 kr. Ágóði rennur í verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar til styrktar byggingu steinhúsa fyrir munaðarlaus börn í Úganda. Sr. Fritz og sr. Erla leiða mess- urnar. Kirkja heyrnarlausra | Messa í Grens- áskirkju kl. 14. Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, biskupsritari og prófastur heim- sækja söfnuðinn og mun biskupinn prédika. Sr. Kristín Pálsdóttir þjónar fyrir altari. Tákn- málskórinn syngur undir stjórn Hjördísar Önnu Haraldsdóttur. Organisti er Ásta Haraldsdóttir. Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu eftir mess- una. KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sigurður Arnarson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkj- unnar. Sunnudagaskóli á sama tíma í safn- aðarheimilinu Borgum. LANGHOLTSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Léttur hádegisverður eftir messu. Fé- lagar úr Kór Langholtskirkju syngja undir stjórn Magnúsar organista, Guðbjörg sóknarprestur þjónar ásamt messuþjónum. Sara og Hafdís taka á móti börnunum í barnastarfinu. LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Kamm- erkór Reykjavíkur og Arngerður María Árnadótt- ir organisti. Sr. Hjalti Jón Sverrisson þjónar fyrir altari og prédikar. Sunnudagaskóli á meðan. Kaffi og samvera á eftir. Helgistund kl. 13 Betri stofunni Hátúni 12. með sr. Hjalta Jóni og Arngerði Maríu. 12. 3. Kyrrðarbæn kl 20. 13. 3. Helgistund kl. 14 Félagsmiðstöðinni Dalbraut 18-20 með sr. Davíð Þór og Arngerði Maríu. 14. 3. Foreldrasamvera kl. 9.30 - 11.30 á Kaffi Laugalæk. Kyrrðarstund og opið hús í Ás- kirkju kl. 12. . LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl. 20. Fermingarbörn úr Vatnsendaskóla syngja og spila á hljóðfæri, lokaviðureign Spurningakeppni ferming- arbarna í Lindakirkju, hljómsveitin Omotrack leikur og flutt verður hugvekja. NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju syngja. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur Skúli S. Ólafsson. Sunnudagaskóli. Umsjón Katrín Helga Ágústsdóttir, Gunnar Tómas Guðnason og Ari Agnarsson. Að lokinni messu verður ljósmyndasýning Guðmundar Ingólfsson opnuð á Torginu. Samfélag og kaffi- sopi. NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-Njarðvík | Sunnudagaskóli í safnaðarheimilinu kl. 11. Umsjón hafa Regína Rósa Harðardóttir og Heiðar Örn Hönnuson. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Galdraguðsþjón- usta og Bjarkarkaffi kl. 14. Pétur Þorsteinsson sýnir töfrabrögð og þjónar fyrir altari. Messu- gutti, Petra Jónsdóttir og Ólafur Kristjánsson tekur á móti öllum. Hot Eskimoes leikur tónlist fyrir og eftir messu og undir með Óháða kórn- um og söfnuðinum undir stjórn Kristjáns Hrannars. Hlaðborð til styrktar Bjargarsjóði. 2.000 kr. fyrir alla eldri en 14 ára, 1.000 kr. fyrir yngri kynslóðina, frítt fyrir allra yngstu börnin. Ekki posi á staðnum. SALT kristið samfélag | Sameiginlegar sam- komur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnudaga í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð. Lok kristniboðsviku. Yfirskrift: Rétta leið- in í lífinu? Ræðumaður: Björn-Inge Furnes Aur- dal. Karlakór KFUM syngur. Hljómsveit KSS leiðir söng. Barnastarf. Túlkað á ensku. SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11 með söng, ávaxtahressing í lokin og nýr límmiði í Jesúbókina. Guðsþjónusta kl. 14. Þorgils Hlyn- ur Þorbergsson guðfræðingur prédikar og sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju syngur og Tómas Guðni Eggertsson leikur á orgel, messukaffi í lokin. SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorg- unn kl. 10. Ari Páll Kristinsson rann- sóknaprófessor talar um tungutakið í kirkjunni eða orðin sem við notum innan kirkjunnar. Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sókn- arprestur þjónar og organisti kirkjunnar spilar. Kammerkórinn syngur og leiðtogar sjá um sunnudagaskólann. Fermingarbörn fá Biblíuna að gjöf frá söfnuðinum. Kaffiveitingar og sam- félag eftir athöfn í safnaðarheimilinu. SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Stöðvamessa kl. 11 með áherslu á kristna íhug og bæn og alt- arisgöngu. Kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir söng, organisti og kórstjóri er Rusa Petriashvili, með- hjálpari er Jóhann Grétar Einarsson og prestur er Sigríður Rún Tryggvadóttir. Kaffi og kökur í safnaðarheimili eftir messu. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Egill Hallgrímsson sóknarprestur annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason. SÓLHEIMAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson annast prestsþjón- ustuna. Organisti er Ester Ólafsdóttir. SÓLHEIMAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14, prestur Valgeir Ástráðsson og organisti Ester Ólafsdóttir. VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Henn- ing Emil Magnússon predikar og þjónar fyrir alt- ari ásamt messuþjónum. Félagar í kór Vídal- ínskirkju syngja og Jóhann Baldvinsson er organisti. Sunnudagaskóli á sama tíma sem Jóna Þórdís Eggertsdóttir leiðir ásamt fræð- urum sunnudagaskólans. Djús og kaffi eftir messu. Sjá gardasokn.is VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Guðsþjón- usta kl. 11. Kirkjuferð frímúrara. Sr. Kristján Björnsson vígslubiskup prédikar. Félagar úr Kór Víðistaðasóknar leiða söng undir stjórn Helgu Þórdísar organista. Sunnudagaskóli kl. 11. YTRI-Njarðvíkurkirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Baldur Rafn Sigurðsson þjónar og kirkjukórinn leiðir söng undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar organista. Meðhjálpari er Pétur Rúðrik Guðmundsson. Orð dagsins: Freisting Jesú. (Matt. 4) Morgunblaðið/ÓmarÓlafsvíkurkirkja Í fjölmiðlum, ekki síst í Morgunblaðinu, hefur farið fram mikil og oft á tíðum mjög upplýsandi umræða um orkustefnu Evr- ópusambandsins. Í þessari umræðu hafa kunnáttumenn úr orkugeiranum útskýrt hvað felist í svoköll- uðum „orkupökkum“ ESB, en samkvæmt áætlun ríkis- stjórnarinnar hefur staðið til að Ís- lendingar samþykki „þriðja orku- pakkann“ á yfirstandandi þingi. Ekki er þó útséð um það því Guð- laugur Þór Þórðarson utanríkis- ráðherra vill skoða málið nánar. Það er vel. Áleitnar spurningar um framtíð orkugeirans Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköp- unarráðherra gefur þessari um- ræðu hins vegar ekki háa einkunn á nýafstöðnum ársfundi Landsvirkj- unar þar sem hún greindi frá þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að hefja viðræður um kaup ríkisins á eignarhlutum í Landsneti. Landsnet, sem er í meiri- hlutaeigu Landsvirkjunar, á og rek- ur allar meginflutningslínur raf- magns hér á landi. Aðrir eignaraðilar eru einnig í almanna- eign, þ.e. RARIK, Orkuveita Reykjavíkur og Orkubú Vestfjarða. Meiningin er semsagt að almenn- ingur selji almenningi, það er að segja sjálfum sér. Eflaust er það, þröngt skoðað, hið besta mál verði það til þess að tryggja með skýrum hætti að Landsnet sé grunnþjón- usta í eigu og á vegum almennings, aðskilið því sem er rekið á for- sendum einkaeignarréttar. Þegar hér er komið sögu gerast hins veg- ar áleitnar ýmsar spurningar um framtíðaráform varðandi eign- arhald á Landsvirkjun. Lágt orkuverð eða mikil arðsemi? Svo er nefnilega að skilja, að það sjónarmið sé að verða ofan á, að ávinningur almennings af orkunni eigi ekki að felast í lágu orkuverði í gegnum eignarhaldið, heldur arð- inum af markaðsbúskap með orkuna sem þá hugsanlega renni í fyrirhugaðan Þjóðarsjóð. Þar með væri búið að tengja hvata til að framleiða sem mesta orku sem seld yrði á sem hæstu verði til kaup- enda. Þjóðin myndi síðan hagnast af arði og skattlagningu. Svo er að sjá að verið sé að kortleggja þessa framtíð. Varla hugnast íslenskum garðyrkjubændum hún né um- hverfis- og verndunarsinnum. Mbl.is greinir frá Umræða um þessi efni segir iðn- aðarráðherra, samkvæmt mbl.is hinn 28. febrúar, „hefur farið út um víðan völl. Þó væru menn að byrja að átta sig á samhengi hlutanna: „Orkupakkarnir voru ekkert annað en markaðspakkar, og sá þriðji er það líka,“ sagði ráðherra og bætti við að samkeppni á raforkumarkaði hefði aukist frá samþykkt fyrri pakkanna. Þórdís Kolbrún sagðist hafa heyrt af því að hópur fólks sem ætlaði að berjast gegn samþykkt þriðja orkupakkans á Alþingi ætl- aði að fara fram undir slagorðinu „Okkar orka“ og sagðist hún túlka þau skilaboð sem svo að þessi hópur teldi orkuauðlindina af sama meiði og fiskinn í sjónum, þ.e. í sameign þjóðarinnar. Svo er ekki, sagði ráð- herra, og lagði áherslu á að vatnsafl og jarðvarmi og nýtingarréttur af þeirri auðlind væri í hendi landeig- enda“. ACER aftengir lýðræðið Það er vissulega rétt hjá ráðherr- anum að orkupakkarnir eru fyrst og fremst „markaðspakkar“ og þriðji pakkinn færir fyrirhugaðan raforkumarkað undir samevrópskt eftirlit sem nefnist ACER, Agency for the Coo- peration of Energy Regulators, sem hefur á hendi úrskurðarvald um ágreining á raf- orkumarkaði. ACER er ætlað að aftengja allt sem heitir lýðræði ákvörðunum á mark- aði. Út á það gengur þriðji orkupakkinn! Lægst orkuverð á Íslandi – ennþá Og á evrópskum markaði er raf- orkuverð lægst á Íslandi. Það kæmi hins vegar ekki að sök, fylgir sög- unni, því hagnaðurinn endaði á end- anum í Þjóðarsjóðnum eða í skatt- hirslum ríkisins. Það er mikilvægt að við gerum okkur fulla grein fyrir þessu, að með tengingu Íslands við evrópskan orkumarkað væru liðnir dagar lágs orkuverðs á Íslandi. Ekki er þó sjálfgefið að við tengj- umst evrópskum markaði með sæ- streng eða öðrum hætti í bráð þótt við féllum undir ACER. En forræði okkar væri farið eins og reyndar hefur verið að gerast smám saman með fyrri „pökkum“. Það er rétt hjá iðnaðarráðherranum. Barátta og málþóf þokaði okkur áfram En varðandi útleggingar ráð- herrans á eignarhaldi orkunnar þá er þetta nú ekki alveg svona einfalt, alla vega eins og ég skil það. Er það ekki svo að drjúgur hluti þjóðar- innar hefur verið að reyna að koma auðlindunum í þjóðareign, þar á meðal hópurinn sem ráðherrann talar niður til, „Orkan okkar“? Þetta er ekki auðveld barátta en hún hefur engu að síður verið háð af hálfu þeirra sem vilja horfa vítt yfir völlinn. Um aldamótin var tek- ist á um eignarhald á vatni. Nið- urstaðan varð ekki ákjósanleg en um sumt varð ávinningur í jaginu fram og til baka, endalausu „mál- þófi“ á Alþingi góðu heilli! Þannig var sett inn í vatnalögin árið 2011 klásúla sem segir: „Ríki, sveit- arfélögum og fyrirtækjum sem al- farið eru í eigu þeirra er óheimilt að framselja beint eða óbeint og með varanlegum hætti rétt til umráða og hagnýtingar á því vatni sem hef- ur að geyma virkjanlegt afl umfram 10 MW.“ Þarna vildi löggjafinn sjá við því sem áður hafði verið fest í lög að vatnsréttindi fylgdu án takmarkana eignarhaldi á landi sem selt er. Hafi ríkið eða aðrir handhafar almenn- ings á annað borð öðlast eignarhald á landi þá var með þessari lagasetn- ingu kominn inn varnagli varðandi vatnið. Til þessa varnagla þarf m.a. að horfa þegar lög um eignarhald á landi verða endurskoðuð. Orkan verði okkar Þetta er samfélagið að takast á um og fagna ég sérstaklega um- ræðunni sem sprottin er frá hinum óformlegu en þverpólitísku sam- tökum „Orkunni okkar“. Þar á bæ rýna menn í smáatriði tilskipana og reglugerða sem varða orkupakka Evrópusambandsins jafnframt því sem horft er vítt yfir. Hvort tveggja þarf að gera. Við afvegaleiðumst ef við reynum ekki að sjá hvert stefn- ir, hvert förinni er heitið. Þess vegna þarf umræðan að fara um víðan völl. Annars verður þess skammt að bíða að orkan verði ekki okkar. Orkan okkar Eftir Ögmund Jónasson »Við afvegaleiðumst ef við reynum ekki að sjá hvert stefnir, hvert förinni er heitið. Þess vegna þarf umræðan að fara um víðan völl. Ögmundur Jónasson Höfundur er fyrrverandi innanríkisráðherra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.