Morgunblaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 33
DÆGRADVÖL 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MARS 2019 Með Firmavörn+ geta stjórnendur fylgst með og stýrt öryggiskerfi, myndeftirliti og snjallbúnaði fyrirtækisinsmeð appi í símanum hvar og hvenær sem er. Stjórnstöð Securitas er á vaktinni allan sólarhringinn, alla daga ársins. www.firmavorn.is HVAR SEM ÞÚ ERT Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Láttu það líka eftir þér að bregða svolítið á leik. Víkkaðu sjóndeildarhring þinn ef það býðst. Þú lætur einhvern fá reisupassann. 20. apríl - 20. maí  Naut Ef þú ætlar að koma einhverju í verk í dag þarftu að forðast alla truflun. Reyndu að gera þér grein fyrir orsökum þess að lítið miðar í heilsuátakinu. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Gríptu tækifærið og skipuleggðu frí eða skemmtanir. Nú er rétti tíminn til að framkvæma hugmyndir sem komu upp í hugann í gær. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Ný nálgun á fortíðina gæti hjálpað þér við að ná betri tökum á nútíðinni. Samband sem er byggt á sandi ætti að enda strax. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er einhver óróleiki á ferðinni í kringum þig. Hver er sinnar gæfu smiður og það á við jafnt í starfi sem leik. Leitaðu ráða hjá traustum vini ef þú þarft að leysa vandamál sem upp koma. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Komið gæti til lítils háttar ágrein- ings við vin í dag um peninga. Þú hefur alltaf ráð undir rifi hverju og átt auðvelt með að sjá það jákvæða í öllu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þér líður vel og það gefur hæfileikum þínum tækifæri til að dafna. Fólki hættir til ósannsögli til þess að forðast rifrildi (þér líka). 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Á degi sem þessum er gott að staldra við og líta fram á veg. Vertu samkvæm/ur sjálfum þér hvað sem á dyn- ur. Reyndu að gera gott úr því sem mætir þér. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Gleymdu því að vera hagsýn/n í dag. Smá dekur skemmir ekki. Þú ert vakin/n og sofin/n yfir heilsu ættingja. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er af og frá að þú þurfir að vera sammála öllum bara til þess að allt sé slétt og fellt á yfirborðinu. Andinn er yfir þér núna, nýttu tækifærið. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er hætt við spennu í sam- bandi þínu við maka þinn næsta mán- uðinn. Mundu að það skiptir ekki máli hvaðan góð ráð koma. 19. feb. - 20. mars Fiskar Ekki er ólíklegt að þú þurfir að kljást við fortíðardraug í dag. Vertu óhrædd/ur við að láta reyna á nýtt ást- arsamband. Gátan er sem endranær eftir Guð-mund Arnfinnsson: Viðarbolur vera kann. Vera þessi skelfir mann. Lítinn stein í flekk ég fann. Fjarska latur þykir hann. Helgi R. Einarsson svarar og varð þessi lausn til þegar hann var í sturtunni: Það sem á er imprað hér, eins og letihaugur, allt að sama brunni ber. „Barnið“ það er draugur. Helgi Seljan leysir gátuna þannig: Viðarbol má vísast kalla draug, vont er draug að mæta er hrellir taug. Illt var stein í flekkinn minn að fá, fjárans letidraugur maður sá. Guðrún Bjarnadóttir leysir gát- una þannig: Draugur viður var hér fyrr. Vofudrauginn alltaf hræðst. Í flekk um drauginn stein er styrr. Í stelpudraug er letin æðst. Sigmar Ingason svarar: Viðarbútinn víst má kalla draug. Vont þykir draug í kvöldhúmi að mæta. Í heyinu steinn ber heiti sitt af draug. Heyannir letidrauginn varla kæta. Sjálfur skýrir Guðmundur gátuna þannig: Draugur viður vera má. Veldur ótta draugur. Draug í flekk einn dag ég sá. Draugur er letihaugur. Þá er limra: Hún Tobba var þrekinn þjarkur og þótti hinn mesti svarkur. Þegar hún flaug á Þorfinn draug, þvarr honum óðar kjarkur. Og síðan kemur ný gáta eftir Guðmund: Guðar á minn glugga sól, glaður fór ég strax á ról, gátu samdi, sem er hér, sú vefst ekki fyrir þér: Í ástarmálum marglyndur. Mun þar liggja steindauður. Býsna þunnur borðviður. Bátur er sá farkostur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Fáir eru draugar dagljósir Í klípu „FULLKOMIÐ.” eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞETTA ER ÞÉR AÐ KENNA! ÞÚ LEYFÐIR HONUM AÐ HORFA Á BACHELOR.” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hvetja hann til að fara í læknisskoðun. ALLIR TILBÚNIR FYRIR BÍÓKVÖLD? OG EINN OG TVEIR OG … MYND KVÖLDSINS: „POLKA, POLKA, POLKA! HIN ÓSAGÐA SAGA HARMONIKKUNNAR.” HEI, ALLIR! SETJIÐ DRYKKINA Á MIG!! UNDARLEG ÓSK, EN SKEMMTILEG! ÁN EITUREFNA LÍFRÆNT Ekki er langt síðan fjallað var umsjálfakandi bifreiðar eins og þær væru hinum megin við hornið. Innan skamms yrðu bílstjórar óþarfir vegna þess að gervigreindartæknin væri svo langt á veg komin að bílar gætu farið leiðar sinnar án þess að mannshöndin kæmi þar nálægt. Þá væri með réttu hægt að segja bíllinn ók í staðinn fyrir bílnum var ekið án þess að málfarslöggur gætu fingur fett. Þá yrði dauðsföllum í umferð- inni nánast útrýmt sem yrði sér- stakt fagnaðarefni því að nú verður banaslys á 24 sekúndna fresti. Einkabíllinn færi sömu leið, sjálf- akandi bílar færu um, sæktu fólk og skiluðu af sér. Vöru-, leigu-, rútu- og strætóbílstjórar yrðu að leita að nýrri vinnu. x x x Nú er komið í ljós að sennilega erívið lengra í sjálfakandi bíla en talið var. Tilraunir með slíka bíla hafa ekki gengið sem skyldi. Tækninni eru enn talsverð takmörk sett. Það kom í ljós þegar leigubíla- fyrirtækið Uber setti í umferð sjálf- akandi bíl, sem varð vegfaranda að bana. Tilrauninni var hætt. Fyrir- tækið Apple hóf metnaðarfulla áætl- un um þróun slíkra bíl. Nú hefur verulega verið dregið úr og starfs- önnum fækkað um 200. x x x Google stofnaði fyrirtækið Waymoutan um þróun sjálfakandi bíla. Waymo tengist ekki lengur Google, en heldur áfram af metnaði. Það er með reynsluakstursbraut skammt frá Phoenix í Arizona í Bandaríkj- unum þar sem aðstæður eru nánast fullkomnar til aksturs, rigning er fá- tíð og hálka enn sjaldgæfari. x x x Óljúgfróðir segja að þróun bílannagangi mjög erfiðlega og þeir eigi jafnvel við þessar aðstæður í vandræðum með að skipta um ak- reinar og beygja inn á afreinar. Bíl- stjórar þurfa iðulega að grípa inn í. Mestir eru erfiðleikarnir í snjó- komu og úrhelli. Þá blindast skynj- ararnir. Þá eiga bílarnir erfitt með að greina ísingu á vegum. Sjálf- akandi bíllinn virðist eiga langt í land. vikverji@mbl.is Víkverji Fræð hinn unga um veginn sem hann á að halda og á gamals aldri mun hann ekki af honum víkja. ( Orðskviðirnir 22.6) Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.