Morgunblaðið - 09.03.2019, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MARS 2019
Mótettukór Hallgrímskirkju heldur
tónleika í samvinnu við Listvina-
félag Hallgrímskirkju á morgun,
sunnudag, kl. 17 undir yfirskrift-
inni „Rómantísk kór- og org-
eltónlist“ undir stjórn Harðar Ás-
kelssonar. „Rómantíska tímabilið
sem hófst skömmu eftir 1800 og
lauk um aldamótin 1900 gat af sér
ótrúlega falleg og innlifuð tónverk
sem hafa staðist tímans tönn. Á
tónleikunum verða flutt nokkur
tónverk frá þessu tímabili, bæði
verk án undirleiks og í samleik
með Klais orgelinu. Má þar nefna
mótetturnar Richte mich Gott og
Herr nun lässest Du eftir Mendels-
sohns, ásamt tveimur mótettum
eftir Brahms- „Warum ist das
Licht gegeben“ og „Geistliches
Lied“, sem verður flutt með Klais-
orgelinu. Kórinn flytur einnig tvær
af þekktustu mótettum Bruchners,
Locus iste og Christus factus est,“
segir í tilkynningu. Þar kemur
fram að Ásta Marý Stefánsdóttir
sópran, sem vann fyrstu verðlaun í
söngkeppninni Vox Domini 2018,
syngur einsöng í Hör mein Bitten
eftir Mendelssohn ásamt kórnum
og orgelinu. Einnig leikur Björn
Steinar Sólbergsson orgelsónötu
nr. 6 eftir Mendelssohn, sem er til-
brigði um sálmalagið Faðir vor,
sem á himnum
ert.
Fyrr um dag-
inn eða við
messulok kl.
12.15 verður list-
sýningin Birting-
armyndir opnuð í
forkirkju Hall-
grímskirkju á
vegum Listvina-
félags Hallgríms-
kirkju, en um að ræða minningar-
sýningu um Guðrúnu Sigríði
Haraldsdóttur. Sýningastjórar eru
Rósa Gísladóttir, Þórunn Sveins-
dóttir og G. Erla Geirsdóttir. Guð-
rún Sigríður fæddist 28. febrúar
1956 á Hvanneyri í Borgarfirði en
lést langt um aldur fram í Lund-
únum 5. október 2018,“ segir í til-
kynningu. Þar kemur fram að hún
hafi verið byrjuð að undirbúa sýn-
inguna í Hallgrímskirkju fyrir
rúmu ári og þá skrifaði hún eft-
irfarandi texta: „Verkin sem ég er
að vinna að eru öll að skoða mann-
lega tilvist – human existence – og
hvernig við tökumst á við hana –
bæði persónulega og alhliða. Fyrir
form og hlutföll verkanna leitast ég
við að sækja innblástur í kirkju-
umhverfið, s.s. gluggana og steinda
glerið í hurðinni. Samkvæmt til-
kynningu frá sýningarhaldara var
Guðrún Sigríður stórhuga og ætl-
aði sér ekki aðeins anddyri kirkj-
unnar, heldur einnig kirkjuskipið.
Birtingarmyndir og rómantík
Listsýning og
kórtónleikar í
Hallgrímskirkju
Kór Mótettukór Hallgrímskirkju kemur fram á tónleikum á morgun kl. 17.
Guðrún Sigríður
Haraldsdóttir
Nú um helgina er hin árlega
„Safnahelgi á Suðurnesjum“ en
söfn á Suðurnesjum bjóða í ellefta
sinn upp á sameiginlega dagskrá.
Markmiðið hefur frá byrjun ver-
ið að kynna heimamönnum sem og
öðrum landsmönnum hin fjöl-
breyttu söfn og sýningar sem sveit-
arfélögin á Suðurnesjum bjóða upp
á. Þetta er liður í menningar-
ferðaþjónustu svæðisins og hvetja
aðstandendur íbúa höfuðborg-
arsvæðisins til að renna í bíltúr
suður eftir og upplifa eitthvað af
því fjölmarga sem er á dagskrá.
Athygli er vakin á því að ókeypis
er inn á öll söfnin af þessu tilefni og
um leið á þá dagskrá sem er í boði
á hverjum stað.
Meðal dagskrárliða má nefna að
Guðjón Ketilsson mydlistarmaður
verður kl. 15 í dag, laugardag, með
leiðsögn á sýningu sinni, „Teikn“, í
Listasafni Reykjanesbæjar, ásamt
Aðalsteini Ingólfssyni sýningar-
stjóra. Um er að ræða eina athygl-
isverðustu sýninguna sem sjá má í
söfnum landsins um þessar mundir
en á henni eru verk sem fjalla öll
með einum eða öðrum hætti um
tákn, táknmerkingu og „lestur“ í
víðasta skilningi þessara orða.
Meðal annarra athyglisverða
dagskrárliða má nefna að sérstök
opnun Safnahelgarinnar fer fram í
Rokksafni Íslands í Hljómahöllinni
í dag kl. 11.30. Þar verður flutt brot
af því besta úr dagskrá Söngva-
skálda á Suðurnesjum.
Klukkan 13 og 16 í dag leikur
Félag harmonikkuunnenda á
Suðurnesjum sjómannalög hjá
bátasafni Gríms Karlssonar í Duus-
húsum og kl. 14 verður Eiríkur P.
Jörundsson með leiðsögn um sýn-
inguna „Við munum tímana
tvenna“ í Gryfjunni í Listasafni
Reykjanesbæjar. Í Bíósalnum má
sjá ljósmyndaverk úr safneign
Listasafns Reykjanesbæjar og í
Stofunni er athyglisverð sýning,
„Fólk í kaupstað“, með sýnis-
hornum af ljósmyndum í eigu
Byggðasafns Reykjanesbæjar.
Þema sýningarinnar er fólk og fjöl-
breytt mannlíf í kaupstaðnum
Keflavík og nágrannabænum
Njarðvík á árunum 1944 til 1994.
Dagskrá Safnahelgar á Suður-
nesjum má annars sjá alla á vefn-
um safnahelgi.is. efi@mbl.is
Fjölbreytileg Safnahelgi
Morgunblaðið/Einar Falur
Snjall Guðjón Ketilsson verður með
leiðsögn um sýningu sína, Teikn.
Kvæðamanna-
félagið Iðunn
stendur fyrir
kvæðalagaæf-
ingu sem sér-
staklega er
hugsuð fyrir
barnafjöl-
skyldur í Gerðu-
bergi í dag,
laugardag, milli
kl. 14 og 16.
Þar gefst viðstöddum kostur á að
læra og flytja saman ýmis kvæða-
lög úr fórum félagsins. Saman-
tekt efnis er í höndum Báru
Grímsdóttur, Rósu Jóhann-
esdóttur og Kristínar Lárus-
dóttur. Sérstök kvæðahefti verða
tilbúin á staðnum sem viðstaddir
geta nýtt sér.
Aðgangur er ókeypis. Sam-
kvæmt upplýsingum frá skipu-
leggjendum hentar viðburðurinn
jafnt stórum sem smáum. Í hléi
verður hægt að kaupa sér hress-
ingu á kaffistofunni í Gerðubergi.
Kvæðalagaæfing í
Gerðubergi í dag
Bára
Grímsdóttir
Anna Jónsdóttir sópransöngkona og
Sophie Soonjans hörpuleikari beina
athyglinni að ferðalagi frá myrkri til
ljóss á hádegistónleikum í Hann-
esarholti kl. 12.15 á morgun, sunnu-
dag. Þær munu flytja íslenska þjóð-
lagið Grafskrift, dauðaaríu Dídóar
og glettið ástarlag eftir Purcell.
Einnig vonarneista enska þjóðlags-
ins Sumer Is Icumen In. Og allt þar á
milli eins og segir í tilkynningu.
Grafskrift, dauðaaría og glettið ástarlag
Tónlistarkonur Sophie Soonjans og Anna
Jónsdóttir eiga langt samstarf að baki.
Skólahljómsveit Kópavogs heldur
vortónleika sína kl. 14 á morgun,
sunnudag, í Háskólabíói. Nemendur
sveitarinnar eru um 170, og skipt í
þrjár hljómsveitir eftir aldri og kunn-
áttu á hljóðfærið sitt. Í A-sveit eru þau
yngstu, eldri í B-sveit og elst í C-sveit.
A-sveit flytur lög úr frægum teikni-
myndum, B-sveit býður m.a. upp á
plánetur og blóðheitan spænskan
dans og C-sveit m.a. verkið Abraca-
dabra og hressa syrpu úr West Side
Story og Lord of the Rings.
Vortónleikar Skólahljómsveitar Kópavogs
Opnir tónleikar Tónleikar Skóla-
hljómsveitar Kópavogs eru öllum opnir.
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn Sun 12/5 kl. 13:00 58.sýn
Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn Sun 12/5 kl. 16:00 59.sýn
Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn Sun 19/5 kl. 13:00 60.sýn
Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn Sun 19/5 kl. 16:00 61.sýn
Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 28/4 kl. 13:00 54.sýn Sun 26/5 kl. 13:00 Auka
Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Sun 28/4 kl. 16:00 55.sýn Sun 2/6 kl. 13:00 Auka
Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Sun 5/5 kl. 13:00 56.sýn Lau 8/6 kl. 13:00 Auka
Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Sun 5/5 kl. 16:00 57.sýn
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Lau 9/3 kl. 19:30 17.sýn Fös 29/3 kl. 19:30 19.sýn Lau 13/4 kl. 19:30 21.sýn
Lau 23/3 kl. 19:39 18.sýn Fös 5/4 kl. 19:30 20.sýn Lau 4/5 kl. 19:30 22.sýn
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið)
Fös 15/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 3/5 kl. 19:30 9.sýn
Lau 16/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 7.sýn
Fös 22/3 kl. 19:30 5.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 8.sýn
Fyndinn og erótískur gamanleikur
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn Lau 23/3 kl. 17:00 18.sýn Sun 31/3 kl. 17:00 23.sýn
Lau 9/3 kl. 17:00 Auka Sun 24/3 kl. 15:00 19.sýn Lau 6/4 kl. 15:00 24.sýn
Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn Sun 24/3 kl. 17:00 20.sýn Sun 7/4 kl. 15:00 25.sýn
Sun 17/3 kl. 17:00 16.sýn Lau 30/3 kl. 15:00 21.sýn
Lau 23/3 kl. 15:00 17.sýn Sun 31/3 kl. 15:00 22.sýn
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn)
Lau 16/3 kl. 19:30 Frums. Fim 28/3 kl. 19:30 6.sýn Mið 10/4 kl. 19:30 Aukas.
Mið 20/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 7.sýn Fim 11/4 kl. 19:30 9.sýn
Fim 21/3 kl. 19:30 3.sýn Mið 3/4 kl. 19:30 Aukas. Fös 12/4 kl. 19:30 10.sýn
Fös 22/3 kl. 19:30 4.sýn Fim 4/4 kl. 19:30 8.sýn
Mið 27/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 Aukas.
Nýtt og bráðfyndið leikrit, fullt af "gnarrískum" húmor
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 13/3 kl. 20:00 Mið 27/3 kl. 20:00 Mið 10/4 kl. 20:00
Mið 20/3 kl. 20:00 Mið 3/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 9/3 kl. 19:30 Fös 15/3 kl. 22:00 Lau 23/3 kl. 19:30
Lau 9/3 kl. 22:00 Fim 21/3 kl. 21:00 Lau 23/3 kl. 22:00
Fim 14/3 kl. 21:00 Fös 22/3 kl. 19:30
Fös 15/3 kl. 19:30 Fös 22/3 kl. 22:00
Dimmalimm (Brúðuloftið)
Lau 16/3 kl. 14:00 Lau 23/3 kl. 14:00 Lau 30/3 kl. 14:00
Ástsælasta ævintýri þjóðarinnar
Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 17/3 kl. 20:00
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Matthildur (Stóra sviðið)
Þri 12/3 kl. 19:00 Fors. Sun 24/3 kl. 19:00 8. s Sun 14/4 kl. 19:00 20. s
Mið 13/3 kl. 19:00 Fors. Mið 27/3 kl. 19:00 9. s Þri 16/4 kl. 19:00 21. s
Fim 14/3 kl. 19:00 Fors. Fim 28/3 kl. 19:00 10. s Mið 24/4 kl. 19:00 22. s
Fös 15/3 kl. 19:00 Frums. Sun 31/3 kl. 19:00 12. s Fim 25/4 kl. 19:00 23. s
Lau 16/3 kl. 19:00 2. s Mið 3/4 kl. 19:00 13. s Fös 26/4 kl. 19:00 24. s
Sun 17/3 kl. 19:00 3. s Fös 5/4 kl. 19:00 15. s Sun 28/4 kl. 19:00 25. s
Mið 20/3 kl. 19:00 4. s Sun 7/4 kl. 19:00 16. s Þri 30/4 kl. 19:00 26. s
Fim 21/3 kl. 19:00 5. s Mið 10/4 kl. 19:00 17. s Fim 2/5 kl. 19:00 27. s
Fös 22/3 kl. 19:00 6. s Fös 12/4 kl. 19:00 18. s Mið 8/5 kl. 19:00 29. s
Lau 23/3 kl. 19:00 7. s Lau 13/4 kl. 13:00 19. s Fim 9/5 kl. 19:00 30. s
Frumsýning 15. mars.
Elly (Stóra sviðið)
Lau 9/3 kl. 20:00 208. s Lau 27/4 kl. 20:00 212. s Fös 24/5 kl. 20:00 216. s
Lau 30/3 kl. 20:00 209. s Sun 5/5 kl. 20:00 213. s Fös 31/5 kl. 20:00 217. s
Lau 6/4 kl. 20:00 210. s Sun 12/5 kl. 20:00 214. s Lau 8/6 kl. 20:00 218. s
Lau 13/4 kl. 20:00 211. s Fös 17/5 kl. 20:00 215. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas.
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Fös 29/3 kl. 20:00 15. s Fim 4/4 kl. 20:00 16. s Fim 11/4 kl. 20:00 Lokas.
Síðustu sýningar komnar í sölu.
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Lau 9/3 kl. 20:00 48. s Fim 14/3 kl. 20:00 51. s Sun 17/3 kl. 20:00 Lokas.
Sun 10/3 kl. 20:00 49. s Fös 15/3 kl. 20:00 52. s
Mið 13/3 kl. 20:00 50. s Lau 16/3 kl. 20:00 53. s
Síðustu sýningar komnar í sölu.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Lau 9/3 kl. 20:00 42. s Lau 23/3 kl. 20:00 44. s
Fös 15/3 kl. 20:00 43. s Lau 30/3 kl. 20:00 45. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Kæra Jelena (Litla sviðið)
Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s
Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s
Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s
Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s
Kvöld sem breytir lífi þínu.
Club Romantica (Nýja sviðið)
Sun 10/3 kl. 20:00 4. s Lau 16/3 kl. 20:00 5. s Fös 22/3 kl. 20:00 6. s
Hvað varð um konuna?
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Lau 13/4 kl. 20:00 aukas.
Aukasýning komin í sölu.
Bæng! (Nýja sviðið)
Fös 26/4 kl. 20:00 Frums. Mið 8/5 kl. 20:00 4. s Fim 23/5 kl. 20:00 7. s
Sun 28/4 kl. 20:00 2. s Fim 9/5 kl. 20:00 5. s Sun 26/5 kl. 20:00 8. s
Fös 3/5 kl. 20:00 3. s Fim 16/5 kl. 20:00 6. s Fim 30/5 kl. 20:00 9. s
Alltof mikið testósterón
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas.
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!