Morgunblaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MARS 2019
TILBOÐSDAGAR
50%
AFSLÁTTU
R
ALLT AÐ
3.356
Áður: kr. 4.795
3.356
Áður: kr. 4.795
1.998
Áður: kr. 3.995
1.498
Áður: kr. 2.995
998
Áður: kr. 1.995
4.196
Áður: kr. 5.995
-30%
-30%
-30% -50%
-50%
-50%
Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | Sími: 585 2888
OPIÐ ALLA DAGA
Mán. til fös. kl. 9–18.
Laugard. kl. 10–16.
Sunnud. kl. 12–16
Hvað er norræn tónlist?
Morgunblaðið/Hari
GDRN Guðrún Ýr Eyfjörð kallar sig GDRN og var plata hennar ein þeirra sem tilnefndar voru til verðlaunanna.
Að þessu sögðu verð ég að lýsa
yfir vonbrigðum með sigurvegara
ársins. Með fullri virðingu fyrir
þessu tilkomumikla verki Robyn.
En listamaður sem hefur fyrir
löngu öðlast alþjóðlegan sess og er
að gera tónlist sem er ekki að
brjótast inn á neinar nýjar lendur –
þannig séð – á ekkert erindi upp á
þennan pall. Valið gekk þvert á
yfirlýst markmið verðlaunanna, að
byggja undir sérkenni Skandinavíu
í poppheimum og hvetja áræðna og
minna þekkta tónlistarmenn áfram
í sínu starfi. Það er eins og það sé
rof á milli okkar heimamanna og
„alþjóðlegu“ dómnefndarinnar
sem hefur áður orðið uppvís að
taktleysi sem þessu. Við vorum að
tala um það, í tilfinningahitanum,
ég og finnski dómarinn (að sjálf-
sögðu erum við blóðbræður) að
nær væri að fá tékkneska, mexí-
kóska, litháíska og nýsjálenska
dómara til þess arna, fólk sem deil-
ir að einhverju leyti jaðarsetningu
á poppmörkuðum, en verðlaun-
unum er ætlað að koma norrænni
tónlist á framfæri á alþjóðavísu,
þar sem Bretar og Ameríkanar eru
með tögl og hagldir. Ég skil upp-
runalegu pælinguna, að fá „lá-
varðadeildina“ til að meta það sem
er í boði, en það er eins og áherslur
og markmið hafi skolast eitthvað
til. Fyrir utan einsleitnina í dag er
það líka kaldhæðið að Bretarnir
sem fylla dómnefndina eru að
missa þessi völd sín að einhverju
leyti (Brexit).
Jú jú, það mætti segja að
poppið hennar Robyn sé einmitt
eitt af einkennum skandinavískrar
tónlistar en valið einkenndist þó
mest af leti/metnaðarleysi, eins og
fólk velji einfaldlega fyrsta nafnið
sem það þekkir. Og, eins og rakið
hefur verið er það ekki tilgangur
verðlaunanna.
En allt um það. Norrænt hlað-
borð af hugarfóði, gerið þið svo
vel. Tveir fulltrúar frá Íslandi
prýddu sjálfa tónlistarhátíðina (en
áttu að sjálfsögðu að vera fleiri) og
barði ég Kæluna miklu og Árstíðir
augum. Sú fyrrnefnda rokkaði
staðinn Blå með yndislegu gota-
poppi sínu á meðan Árstíðir seiddu
fólk til sín í Vulkan Arena.
» Þess má geta aðríflega 85% fram-
lagsins voru úr ranni
kvenna (tíu plötur).
Þetta er í fyrsta skipti
sem ég upplifi slíkt og
alveg ný hlustunar-
reynsla að renna öllum
plötunum …
Norrænu tónlistar-
verðlaunin (Nordic Mu-
sic Prize) voru afhent í
liðinni viku og hefur
pistilritari ýmislegt við
framkvæmd þeirra og
útfærslu að athuga.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Verðlaunaafhendingin fórfram á by:Larm tónlistar-og ráðstefnuhátíðinni í
Osló, sem er helsta samkunda nor-
ræna tónlistarbransans. Hin
sænska Robyn fór heim með hnoss-
ið (fyrir plötuna Honey) en alls
voru tólf plötur frá Norðurlöndum
tilnefndar. Fyrir hönd Íslands þetta
árið voru þær Gyða Valtýsdóttir (G
Y D A) með plötuna Evolution og
GDRN með plötuna Hvað ef.
Þessi verðlaun voru veitt í
fyrsta sinn árið 2011 (fyrir plötur
gefnar út 2010) en þá hreppti Jónsi
okkar hnossið fyrir plötu sína Go.
Svipar verðlaununum til Mercury-
verðlaunanna bresku þar sem
áhersla er á listrænt innihald frem-
ur en hve markaðsvænar plöturnar
eru. Samnorræn, fimm manna
dómnefnd (sem ég tilheyri) sá um
að velja plöturnar tólf en alþjóðleg
dómnefnd (sem er reyndar ein-
göngu skipuð Bretum í dag!) sker
svo úr um loka-sigurvegarann.
Tólf platna listinn í ár var
sterkur. Mikið um verulega fram-
sækna tónlist (þar sem hin danska
Astrid Sonne fór með himin-
skautum, og fékk hún sérstaka við-
urkenningu fyrir frábæra plötu
sína, Human Lines) og þess má
geta að ríflega 85% framlagsins
voru úr ranni kvenna (tíu plötur).
Þetta er í fyrsta skipti sem ég upp-
lifi slíkt og alveg ný hlustunar-
reynsla að renna öllum plötunum
(graðar gítarsveitir voru
hvergi …).
G Y D A Gyða Valtýsdóttir var tilnefnd fyrir Evolution. Kælan mikla Hljómsveitin rokkaði á hátíðinni.
Franski djasspíanóleikarinn og tón-
skáldið Jacques Louissier er látinn,
84 ára að aldri. Hann sló í gegn
ásamt tríói sínu seint á sjötta ára-
tug síðustu aldar er hljóðritanir fé-
laganna á verkum eftir Johannes
Sebastian Bach í djassútgáfum
komu út og hafa þær plötur selst í
fleiri milljónum eintaka. Fyrsta
platan, Play Bach Trio, kom út
1959 og hafa um sjö millónir ein-
taka af henni verið seldar og nær
jafn mikið af plötunni þar sem Lo-
ussier og félagar flytja Goldberg-
tilbrigðin.
Jacques Loussier kom til Íslands
ásamt tríóinu árið 2002 og hélt tón-
leika í þéttskipuðu Háskólabíói.
Hörðum aðdáendum klassískrar
tónlistar ofbauð mörgum þegar
sveiflukennd og spunnin nálgun
Louissiers á meistaraverkum
Bachs tók að hljóma á sínum tíma
og urðu deilurnar hatrammar. Þá
voru margir djassgeggjarar ekki
síður argir og þótti ekki hæfa að
beita djassinum, sem spratt úr
blús- og sálmatónlist bandarískra
blökkumanna, á gamla tónlist
hvítra manna frá Evrópu. Gagn-
rýnendur virtra fjölmiðla kölluðu
það „lágkúru“ að djassa Bach upp
en aðdáendur Loussiers og félaga
urðu þó fjölmargir. Í upphaflega
tríóinu voru auk hans þeir Pierre
Michelot á bassa og Christian Gar-
ros á trommur og störfuðu þeir fé-
lagar saman í um tvo áratugi, léku
víða um lönd og hélt Louissier
áfram að koma fram á tónleikum
þar til fyrir nokkrum árum.
Þrátt fyrir að túlkun Louissiers
á Bach hafi ætíð verið vinsælust af
viðfangsefnum hans, þá var hann
hámenntaður píanóleikari og fékkst
við ýmiskonar tónlist þótt stutt
væri ætíð í djassinn og sveifluna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vinsæll Jacques Loussier hélt tón-
leika hér á landi árið 2002 ásamt
tríói sínu og sat þá fyrir á mynd.
Bach-djassarinn Jac-
ques Louisser látinn