Morgunblaðið - 27.04.2019, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2019
Fallegt sumarhús með 3 svefnherbergjum á fallegum grónum
stað með glæsilegu útsýni.
Fallegur og fjölskylduvænn bústaður með 3 svefnherbergjum.
Hagstætt verð. Selst með öllu innbúi. Verð 14,8 mkr.
Nánari upplýsingar veitir Bárður Hreinn Tryggvason
sölustjóri, í síma 896-5221, tölvupóstur bardur@gimli.is
Hringdu eða sendu tölvupóst til að bóka skoðun.
Birkiskógar 15, 311 Borgarnes 54 m2
Fallegt og vel við haldið sumarhús/heilsárshús. Lóðin liggur að
Skorradalsvatni (vatnalóð) og er ein af þeim fallegri á þessu
svæði. Fagurt útsýni er yfir vatnið og mikil fjallasýn. Skjólgóður
garður og fjarlægð við næstu bústaði gerir staðsetninguna ein-
staka. Stór sólpallur með heitum potti (soft-tub). Verð 27,9 mkr.
Nánari upplýsingar: Halla Unnur Helgadóttir Löggiltur fast-
eignasali, í síma 6594044, tölvupóstur halla@gimli.is.
Vatnsendahlíð 29, 311 Borgarnes 57 m2
Notalegt 55,3 m2 sumarhús á þessum vinsæla stað. Sólpallur/
verönd er á 3 hliðar. Húsið stendur hátt með skemmtilegu
útsýni yfir vatnið og er sérstaklega vel staðsett með tilliti til
sólar. Lóðin er 3.901 m2 leigulóð. Verð 17,9 mkr.
Nánari upplýsingar: Halla Unnur Helgadóttir Löggiltur
fasteignasali, í síma 6594044, tölvupóstur halla@gimli.is.
Hringdu eða sendu tölvupóst til að bóka skoðun.
Vatnsendahlíð 6, 311 Borgarnes 55 m2
Sumarhúsalóð / eignarlóð á fallegu svæði örstutt frá Soginu í
Grímsnes- og Grafningshreppi. 2,0 millj. áhvílandi og möguleiki að
taka bifreið uppí. Staðsetning er í hlíðum Búrfells með einstöku
útsýni. Heitt/kalt vatn og rafmagn er komið að lóðarmörkum. Allir
vegir í hverfinu eru frágengnir. Verð 3,5 mkr.
Allar upplýsingar / bókun á skoðun á skrifstofu sími 570 4800
eða Sigþór Bragason lögg.fasteignasali s 899 9787 sb@gimli.is
Lyngbrekka 14, 801 Selfoss 5.693 m2
Virkilega fallegt og vel við haldið heilsárhús með gestahúsi,
skráð samtals 91,2 m2. Þrjú rúmgóð svefnherbergi og svefnloft,
heitur pottur og gróðurhús. Stór pallur og falleg og gróin lóð.
Ljósleiðari. Flest húsgögn og smáhlutir fylgja. Verð 28,7 mkr.
Nánari upplýsingar: Halla Unnur Helgadóttir Löggiltur
fasteignasali, í síma 6594044, tölvupóstur halla@gimli.is.
Hringdu eða sendu tölvupóst til að bóka skoðun.
Löngudælaholt 22, 801 Selfoss 92 m2
Sumarhúsalóðir á sólríkum stað í landi Böðmóðsstaða, 801 Self.
Staðsettar rétt austan Apavatns. Aðkoma er frá afleggjara að
Böðmóðsstöðum um 15 mín akstur frá Laugarvatni.
Lóðirnar eru frá 5.100 m2 - 14.000 m2 að stærð. Heitt og kalt vatn
er í boði á svæðinu.
Allar upplýsingar / bókun á skoðun á skrifstofu sími 570 4800
eða Sigþór Bragason lögg.fasteignasali s 899 9787 sb@gimli.is
Sumarhúsalóðir Böðmóðsstöðum 5100 m2
s 570 4800
gimli@gimli.is
www.gimli.is
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali
halla@gimli.is
Skoðum eignir á suður- og vesturlandi næstu vikurnar, endilega hringdu í okkur ef þú ert í söluhugleiðingum
Helgi Bjarnason
Hjörtur J. Guðmundsson
Áhöfnin á TF-SIF, flugvél Landhelgisgæsl-
unnar, hefur undanfarna
daga staðið skipverja
þriggja fiskibáta að meintu
ólögmætu brottkasti fisks.
Náðust bæði ljósmyndir og
myndbönd sem sýna hin
meintu brot. Eftir því sem
næst verður komist er þar
um að ræða báta á grá-
sleppuveiðum, báta sem
ekki hafa kvóta í öðrum
tegundum. Málið er til með-
ferðar hjá viðkomandi lög-
regluembættum og Fiski-
stofu.
Fram kemur í tilkynn-
ingu Landhelgisgæslunnar
að myndirnar hafi náðst við
reglulegt eftirlit á Íslands-
miðum. Jafnframt kemur
fram að Landhelgisgæslan
og Fiskistofa hafi tekið
þessi mál til sérstakrar
skoðunar að undanförnu
vegna gruns um að tiltekin
skip stundi ólöglegt brottkast.
Um borð í TF-SIF er öflugur myndavéla-
búnaður sem gerir áhöfninni fært að sinna
eftirliti með fiskveiðum úr töluverðri hæð.
Myndefnið verður greint
Myndefninu og upplýsingum verður komið
til Fiskistofu og lögreglu en lögreglan mun
hafa tekið á móti bátunum þegar þeir komu
inn til löndunar.
„Við munum fara yfir gögnin og leggja mat
á myndirnar. Reyna að átta okkur á umfang-
inu og hversu skýrt þetta er. Eftir það munum
við ákveða hvort við hefjum stjórnsýslumál á
hendur viðkomandi útgerð. Verði það gert
verður veittur andmælaréttur og svo tekin
ákvörðun um hvort viðurlögum verði beitt,“
segir Eyþór Björnsson fiskistofustjóri. Hann
tók fram að ekki hefðu allar upplýsingar bor-
ist.
Ef Fiskistofa hefur stjórnsýslumál mun það
beinast að útgerðum og hugsanleg viðurlög
eru þá svipting veiðileyfis.
Venjan er einnig að tilkynna slík mál til lög-
reglu. Rannsókn hennar og hugsanleg ákæra í
almennu brotamáli mun þá beinast gegn við-
komandi skipstjóra.
Aðför að auðlindinni
„Landhelgisgæslan lítur málið alvarlegum
augum enda er brottkast með öllu ólíðandi þar
sem um er að ræða grófa aðför að sameigin-
legri auðlind okkar Íslendinga,“ segir í til-
kynningu Landhelgisgæslunnar.
„Við gerum ráð fyrir því að í stétt sjómanna
séu menn almennt löghlýðnir. Við viljum ekki
halda því fram að þetta sé útbreitt og algengt
en það eru dæmi um þetta og það er alvar-
legt,“ segir Georg Lárusson, forstjóri Land-
helgisgæslunnar, og tekur fram að hvert slíkt
tilvik sé þannig alvarlegt.
Eyþór segir að það mikill sveigjanleiki sé í
kerfinu að enginn eigi að þurfa að henda fiski.
Útgerðir geti keypt eða leigt sér kvóta eða
landað með aflanum án refsingar í svokallaðan
VS-sjóð.
Fleiri mál í gangi
Eyþór segir að nokkur önnur mál sem snúa
að meintu ólöglegu brottkasti séu til meðferð-
ar hjá Fiskistofu. Þau byggist öll á myndefni
sem stofnunin hafi aflað.
Brottkastsmál Kleifabergs er eitt af þeim
málum sem Fiskistofa hefur til meðferðar.
Svipti Fiskistofa skipið veiðileyfi sem varði í
tólf vikur í upphafi ársins á grundvelli mynd-
efnis sem fyrrverandi skipverji afhenti stofn-
uninni. Atvikin eru frá árunum 2008, 2010 og
2016. Útgerðarfélag Reykjavíkur kærði
ákvörðunina til atvinnuvegaráðuneytisins,
sem frestaði réttaráhrifum hennar á meðan
málið er til meðferðar. Málið er enn til athug-
unar í ráðuneytinu.
Brotin mynduð úr flugvél
Landhelgisgæslan stóð þrjá grásleppubáta að meintu ólögmætu brottkasti Málin til meðferðar hjá
Fiskistofu og lögreglu Fleiri mál sem snúa að brottkasti, byggð á myndefni, tekin fyrir hjá Fiskistofu
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Brottkast Ljósmyndir og myndskeið sýna meint brottkast afla á grásleppubátunum þremur.
Eyþór
Björnsson
Georg Kr.
Lárusson