Morgunblaðið - 27.04.2019, Síða 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2019
Í hvert sinn sem við
verslum erum við ekki
bara að viðurkenna
virði vörunnar sem við
kaupum, heldur líka
virði seljandans. Hvati
seljandans er þannig
tvöfaldur. Hann er bæði
að selja vöru og við-
skiptavild. Sú gagn-
kvæma virðing sem
fylgir viðskipta-
tengslum byggir þannig
smám saman upp traust og jafnvel
vináttu milli ólíkra einstaklinga sem
ella hefðu aldrei átt samleið. Með vax-
andi viðskiptum eykst jafnframt vel-
ferð og með aukinni velferð fjölgar
þeim sem hafa einhverju að tapa ef
viðskiptahagsmunum er ógnað. Þessi
friðarhvati sem fylgir kapítalisma er
vel þekktur og var t.d. ein af megin-
röksemdum fyrir stofnun Evrópu-
sambandsins.
Andstætt þessu þá er þekkt að
slæmt efnahagsástand eru aðstæður
sem lýðskrumarar nota til að ala á
fordómum og hatri, sem oft leiðir til
blóðsúthellinga. Þannig komu bæði
franska byltingin og októberbyltingin
í kjölfar slæms efnahagsástands og
þegar Hitler komst til valda var þriðji
hver Þjóðverji atvinnulaus.
Í dag er um 30% atvinnuleysi í Pal-
estínu sem gerir það að því landi í
heiminum þar sem atvinnuleysi er
hvað mest. Þar af er ástandið á Gasa
verst þar sem atvinnuleysið er yfir
50%. Slíkar vonleysisaðstæður eru
einmitt umhverfi þar
sem hatursfullar öfgar
eiga hvað auðveldast
með að ná fótfestu.
Hvert atvinnutækifæri
sem býðst býr til mót-
vægi gegn öfgunum og
er því gríðarlega mik-
ilvægt. Þar af eru störf
þar sem Palestínumenn
vinna við hlið Ísraela
einna mikilvægust, því
þau fjölga þeim Palest-
ínubúum sem hafa
mestan hag af frið-
samlegri sambúð við
Ísraela. Þetta sjá þó ekki allir.
600 missa vinnuna
á Vesturbakkanum
Árið 2015 lokaði Sodastream verk-
smiðju sinni á Vesturbakkanum
vegna þrýstings frá BDS-samtök-
unum (Boycott, Divestment and
Sanctions) sem berjast fyrir snið-
göngu á vörum framleiddum á
Vesturbakkanum. Ekki er hægt að
hugsa sér vanhugsaðra lýðskrum, því
með störfunum sem töpuðust jókst
enn á þá neyð sem er undirrót
margra þeirra öfga sem ríkja á svæð-
inu.
Framlag Íslands í Eurovision í ár
er nokkuð sérstakt, því ekki verður
betur séð en að þar sé á ferð úthugs-
aður áróðursgjörningur á vegum
þessara samtaka. Hljómsveitar-
meðlimir hafa talað fyrir sniðgöngu
Ísraels, í atriðinu eru allir klæddir
BDSM-klæðnaði og hafi einhver efast
um tengslin þá hvarf sá efi þegar
hljómsveitarmeðlimir þóttust auglýsa
Sóda Dream-drykk á úrslitakvöldinu.
Allt er þetta kynnt til sögunnar sem
einhvers konar listrænt grín, en erfitt
er að sjá húmorinn í þeirri illkvittni
að hlakka yfir atvinnumissi fátækra
Palestínubúa.
Fulltrúar Íslands á Eurovision eru
að hvetja til sniðgönguherferðar gegn
gestgjöfunum í nafni Íslands.
Fríverslun fyrir frið
Íslensk stjórnvöld þurfa hins vegar
ekki að láta öfgasamtök stýra sam-
skiptum okkar við vinaþjóðir. Í stað
þess að bæta á vanda svæðisins með
áróðri sem ýtir undir atvinnuleysi þá
ættum við að verða hluti af lausninni
og reyna að efla atvinnulíf í Palestínu.
Íslensk stjórnvöld ættu því strax að
hefja viðræður um að víkka út núver-
andi fríverslunarsamninga við Ísrael
og Palestínu með það að markmiði
auka viðskiptin. Með athyglinni sem
hinn vanhugsaði Eurovisiongjörn-
ingur gæfi, þá væri aldrei að vita
nema fleiri þjóðir fylgdu í kjölfarið,
sem gæti þar með orðið upphafið að
nýrri nálgun við lausn þessarar
flóknu deilu. Fríverslun fyrir frið þar
sem allir græða.
Fríverslun fyrir frið
Eftir Jóhannes
Loftsson
Jóhannes
Loftsson
» Ísland ætti frekar að
auka verslun við
Ísrael en að hvetja til
viðskiptaþvingana á
Eurovision.
Höfundur er formaður
Frjálshyggjufélagsins.
lififrelsid@gmail.com
Við þekkjum öll frá-
sögnina af boðorð-
unum tíu sem reynst
hafa góðar vísireglur
um árþúsundin.
Við upphaf olíu-
vinnslu Norðmanna
(árið 1972) samþykkti
norska Stórþingið
samhljóða tíu megin-
reglur sem gilda
skyldu um hagnýtingu
þeirrar auðlindar. Meginreglur
sem oft hafa verið kallaðar norsku
olíuboðorðin.
Fyrsta meginreglan var að Nor-
egur skyldi hafa eftirlit og stjórn á
allri starfsemi á norska land-
grunninu. Sumar meginreglurnar
voru almenns eðlis, eins og sú tí-
unda sem segir að finnist stórar
olíulindir geti það leitt til nýrra
verkefna í norskri utanríkisstefnu.
Aðrar voru nokkuð afmarkaðar og
vöktu sérstaka athygli, eins og sú
fimmta sem lagði að meginreglu til
bann við opinni brennslu á gasi,
oft nefnt „flaring“. Slík iðja var þá
mjög algeng, en Norðmenn ákváðu
strax að nýta auðlindina betur en
svo. Þó það væri e.t.v. ekki fjár-
hagslega hagkvæmt í byrjun, þá
var það umhverfislega skynsam-
legt og eftir því sem tækninni
fleygði fram, þá reyndist það fjár-
hagslega skynsamleg stefna.
Við Íslendingar ræðum nú orku-
mál af miklum móð. Tilefnið er
innleiðing þriðja orkupakkans.
Það er fagnaðar-
efni, að við sem þjóð
séum að ræða mik-
ilvæg atriði er tengj-
ast hagnýtingu orku-
auðlinda okkar. Ég
viðurkenni, að ég tel
hana eiga betur heima
í þeirri vinnu sem nú
er í gangi á vegum
stjórnvalda um mótun
orkustefnu fyrir Ís-
land heldur en í um-
ræðu um innleiðingu
10 ára gamalla reglna
ESB. En að málið sé
rætt, skiptir auðvitað mestu og því
verður ekki mótmælt að umræðan
hefur leitt til þess að fleiri örygg-
isventlar verða settir, gangi hug-
myndir ríkisstjórnarinnar fram um
innleiðingu þriðja orkupakkans.
Það hefur verið vandað til verka
og réttmætri gagnrýni verið mætt
eða óvissu eytt.
Voru það mistök að hafa orku-
mál sem hluta af EES-samn-
ingnum? Hefur orðið stefnubreyt-
ing hjá ESB í orkumálum eftir
gerð EES-samningsins sem rétt-
lætir að við leitum leiða til að
Eftir Hilmar
Gunnlaugsson
Hilmar
Gunnlaugsson
»Enda höfum við þeg-
ar leitt í lög – óháð
öllum orkupökkum – að
ríki og sveitarfélög
mega ekki selja slíkar
auðlindir með varan-
legum hætti.
Orkustefna Íslands
og boðorðin tíu
Prótín eru ýmist
vatnsuppleysanleg eða
ekki. Kollagenið er
aðalbindiefni vefja lík-
amans og óuppleys-
anlegt. Mannkynið
fann upp á að bæta
eitthvað úr prót-
ínskorti með því að
sjóða kjöt en við það
ummyndast kollagen í
gelatín sem er upp-
leysanlegt prótín. En
kollagen er víðar en í vöðvum, það
er líka í æðakerfinu. Eftir 25 ára
aldur minnkar kollagenið og við eld-
umst eins og best sést á húðinni.
Talið er að æðarnar harðni og
springi og opni fyrir kólesteróli og
fitu auk kalks í sárið. Kólesterólin
koma frá lifrinni og hjálpa við að
flytja fitu í blóðinu.
Fyrir rúmum 100 árum voru æða-
og hjartasjúkdómar sjaldgæfir en
eru faraldur í dag. Útfellingarnar í
æðaveggina þrengja þær og hækka
blóðþrýsting. Þá myndast loks hörsl
eða blóðtappar og geta þeir borist
með blóðrásinni og valdið stíflum í
kransæðum hjartans eða í æðum
heila og valdið dauða. Það virðist
vera umhverfið með lífsstíl þar sem
bæði fæðan og hreyfingin hafa
breyst. Neytt er prótíns margfalt
meira en þörf er á og vöntun á lífs-
nauðsynlegum bætiefnum og hreyf-
ingu til að losna við úrgangsefnin.
Er ég var að læra um fitu hjá
prófessor Olav Notevarp lagði hann
áherslu á að gleyma kólesterólinu
en leggja áherslu á að fitu fæðunnar
sem kæmi strax fram í blóðinu og
æskilegt væri að þriðjungur væri
mettaðar fitusýrur, annar þriðj-
ungur einómettaðar og svo restin
fjölómettaðar fitusýrur. Þá þyrftu
um 2% af þeim síðustu að vera 4 til
6 ómettaðar fitusýrur en þá brenn-
um við fitunni eðlilega. Hann sagði
við mig að hjá mér þyrfti ekki að
mæla fitusýrur því ég
tæki lýsi með miklu af
þessum 2%.
Ég hef alltaf hrifist
af C-vítamíni, sem
næstum allur gróður og
allt lifandi getur mynd-
að eftir þörfum nema
maðurinn. Hér hafa
stökkbreytingar gert
það óþarft því líklega
hefur verið meira en
nóg í fæðu af því á sín-
um tíma og líkaminn
bara hagrætt. Þetta
efni er myndað af líf-
hvötum úr glúkósa og er einfalt en
mjög fjölhæft og ekki allt enn vitað
um starfsemi þess í fjölda efna-
hvarfa líkamans. En það virðist líka
hafa með myndun kollagens eða
endingu að gera. Dýrin virðast ekki
fá æða- og hjartasjúkdóma nema C-
vítamín skorti. Fyrir bráðum 50 ár-
um tókst að framkalla þessa kvilla í
m.a. hundum og það sem meira er
um vert lækna hann aftur með
miklu C-vítamíni. C-vítamín
skemmist við hita, geymslu og fer
út í soðvatnið. Húsráð er t.d. að
drekka soð af nýjum kartöflum til
að lækna blöðrubólgu. Fljótlega eft-
ir að ég var orðinn 25 ára byrjaði ég
að taka bætiefnið C-vítamín sem er
jafngott og náttúrulegt og hefur
vegnað vel á lýsi og C-vítamíni í
rúm 50 ár og mælst í lagi. Bein-
þynning og æða- og hjartasjúk-
dómar hafa ekki hrjáð mig, en ég
fékk þó beinkröm (beinþynning
barna) á stríðsárunum, líklega
vegna C-vítamínskorts!
Kjöt og kollagen
Eftir Pálma
Stefánsson
Pálmi
Stefánsson
» Fyrir rúmum 100 ár-
um voru æða- og
hjartasjúkdómar sjald-
gæfir en eru faraldur í
dag.
Höfundur er efnaverkfræðingur.
Á árinu 2018 var
byrjað á byggingu 2.525
íbúða á landinu, sem er
u.þ.b. það sem þarf til
að halda í horfinu á
landinu samkvæmt okk-
ar mati hjá Hannarr
ehf., í venjulegu árferði.
Þetta er 311 íbúðum
færra en árið á undan.
Lokið var við 2.303
íbúðir, 535 fleiri en árið
á undan.
Mat okkar hjá Hannarr ehf. er að
árleg þörf fyrir nýjar íbúðir á landinu
sé um 2.300 á ári þannig að skort-
urinn er óbreyttur, eða sem nemur
6.000 íbúðum. Ekki eru horfur á
breytingu á því á þessu eða næsta ári
þar sem munur á fjölda íbúða í bygg-
ingu er svipaður bæði árin 2017 og
2018, eða 4.323 og 4.545.
Árið 1994 var heildarfjöldi íbúða á
landinu 96.892 samkvæmt Þjóðskrá
og árið 2018 voru þær 140.600. Hlut-
fall íbúða á höfuðborgarsvæðinu af
heildarfjölda íbúða á landinu hefur
verið nánast óbreytt frá síðustu alda-
mótum, ca. 62%. Í Reykjavík hefur
þetta hlutfall hins vegar lækkað á
sama tíma. Hallaði á borgina um
5.000 íbúðir á síðasta ári sem hefði
dugað til að mæta uppsafnaðri þörf
þá á landinu, eða hátt í það.
Reykjavíkurborg hefur í mörg ár
látið bjóða í þann takmarkaða fjölda
lóða sem hún hefur til úthlutunar og
með litlu lóðaframboði hefur hún
fengið hátt verð fyrir lóðirnar. Með
því og með mikilli þéttingu byggðar
hefur borgin haldið uppi háu fast-
eignaverði í borginni. Með þessu er
borgin að hrekja það fólk úr borginni
sem vill eignast íbúð, til sveitarfélaga
utan höfuðborgarsvæðisins, þar sem
boðið er upp á lægri lóðagjöld. Þetta
hefur auðvitað í för með sér mikla
umferð til og frá höfuðborgarsvæðinu
sem þýðir að þetta fólk þarf að lengja
vinnudag sinn um 1-2 klst. með setu í
bílum sínum og með tilheyrandi
mengun og sliti á gatnakefinu á leið
til borgarinnar. Þetta er örugglega
ekki þeim til ánægju
sem þurfa að keyra.
Þessa dagana voru
að koma fram áður-
nefndar tölur um það
hversu mikið var byggt
af íbúðarhúsnæði árið
2018. Þetta er seinna en
á síðasta ári, sem var
seinna en árið þar á
undan. Þeir sem
stjórna þessum mála-
flokki og fjalla um hann
hljóta að þurfa á því að
halda að hafa aðgang að
slíkum upplýsingum
jafnóðum, t.d. mánaðarlega, sem ætti
ekki að vera erfitt á þeim tímum
tækni sem við lifum nú á.
Íbúðabyggingar eru ein stærsta og
mannfrekasta atvinnugrein landsins
og ein sú mikilvægasta fyrir afkomu
hvers Íslendings. Hún er að auki nú
um stundir hluti af samningum
vinnumarkaðarins og hins opinbera,
eins og áður hefur verið á tímabilum.
Að láta hana vera á sjálfstýringu
mánuðum saman, sérstaklega á slík-
um tímum, getur varla talist góð
stjórnsýsla. Ætla aðilar vinnumark-
aðarins kannski að skoða útkomu
ársins 2019 þann 20. apríl árið 2020,
til að sjá hvernig staðið er að sam-
komulagi þeirra við hið opinbera?
Skoðun á útgefnum tölum nú gefur
tilefni til að tortryggja þær tölur, því
miður, og sýna þær að líklega er
skortur íbúða meiri en þær sýna. Ef
bornar eru saman útgefnar tölur yfir
fullgerðar íbúðir frá aldamótum og
þær íbúðir sem byrjað var á, þá segja
þær að fullgerðar íbúðir séu 2.428
færri en þær sem byrjað var á (Hag-
stofa Íslands). Séu bornar saman töl-
ur yfir fullfrágengnar íbúðir og
breytingar á heildarfjölda íbúða á
landinu, þá er munurinn 2.341 fleiri
íbúðir samkvæmt heildarfjöldanum
(Hagstofa Íslands og Þjóðskrá).
Engar tölur er að finna yfir íbúðir
sem rifnar hafa verið eða teknar und-
ir aðra starfsemi, sem hefði átt að
sýna fleiri íbúðir fullbúnar, en ekki
öfugt. Sá fjöldi hefur án efa verið um-
talsverður t.d. í Reykjavík, eða a.m.k.
nokkur hundruð á ári vegna þétt-
ingar byggðar þar.
Í nýlegri samantekt Íbúðalána-
sjóðs (2018/2019) má lesa að 5.300
íbúðir séu þá í byggingu á höfuð-
borgarsvæðinu og 6.600 íbúðir alls á
kjarna- og vaxtarsvæðum. Tölurnar
séu byggðar á upplýsingum frá SSH
og SI aðallega. Þessar tölur passa illa
við áðurnefndar tölur eins og sést hér
á undan og munar þar einhverjum
þúsundum. Spurningin er í hvaða til-
gangi slíkar tölur eru birtar, þar sem
greinilega er lítið á þeim að byggja.
Skýringin er líklega áðurnefndur
seinagangur í söfnun og birtingu
upplýsinga og því ekki nefndum að-
ilum um að kenna. Þetta undirstrikar
hins vegar brýna þörf á endurskoðun
á öflun upplýsinganna og birtingu
þeirra.
Einnig má benda á að algengt hef-
ur verið að lesa um háar tölur yfir
íbúðir í byggingu sem Reykjavíkur-
borg hefur birt undanfarin ár, en lítið
hefur bólað á.
Hættum að safna röngum upplýs-
ingum og búa til rangar spár (hver
sem tilgangur þess er), hver í sínu
horni og af vangetu vegna fyrir-
komulagsins nú, eða í einhverjum
ónefndum tilgangi.
Brettum upp ermar og komum
þessum málum í lag sem fyrst. Fyrr
verða byggingarmálefni landsins
ekki í lagi, sem er alltof sársaukafullt
fyrir marga einstaklinga og alltof
dýrt fyrir þjóðina í heild.
Það verður vafalaust ekki gert
nema að færa ábyrgðina til eins aðila,
sem hefði yfirumsjón með og bæri
ábyrgð á öflun upplýsinganna og
birtingu þeirra.
Engin breyting á
íbúðaskortinum
Eftir Sigurð
Ingólfsson
» Fyrir þremur árum
áætlaði Hannarr
ehf. að um 4.000 íbúðir
vantaði á landinu og nú
er skorturinn um 6.000
íbúðir og ekki horfur á
breytingum.
Sigurður
Ingólfsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Hannars ehf.