Morgunblaðið - 27.04.2019, Qupperneq 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2019
✝ Sigurður Finn-björn Mar, vél-
fræðingur og fyrr-
verandi deildar-
stjóri á Iðntækni-
stofnun, fæddist í
Reykjavík 10. nóv-
ember 1933. Hann
lést á Landspítalan-
um við Hringbraut
2. apríl 2019.
Foreldrar hans
voru hjónin Cæsar
Benjamín Hallbjörnsson Mar,
skipstjóri, verkstjóri, verslunar-
maður og rithöfundur, f. 1897, d.
1978, og kona hans, Jóhanna
Margrét Guðfinnsdóttir Mar,
gengilbeina og húsmóðir, f. 1904,
d. 1994.
Systkini Sigurðar: Elías Mar,
f. 1924, d. 2007, Ágústa Kristín
Mar Smith, f. 1926, d. 2019,
Ragnar Mar, f. 1927, d. 2010,
Óskar Árni Mar, f. 1930, d. 2015
og Vilma Mar, f. 1940.
Sigurður kvæntist árið 1958
Svanhildi Salbergsdóttur, f.
1937, d. 1977. Þeirra dætur eru
Kristín Ingibjörg, f. 1958, Birna,
f. 1960, og Steinunn, f. 1965.
Dætur Kristínar Ingibjargar eru
Brynja, f. 1980, og Þórdís Halla,
f. 1993. Börn Birnu eru Elías, f.
1984, og Svanhildur Sigríður, f.
m.a. á skilvindur og loftpressur
hjá Alfa-Laval Separator og sá
svo um uppsetningar, viðgerðir
og viðhald á þeim tækjum víða
um land. Sigurður var ráðinn
framkvæmdastjóri hjá Almenn-
um verktökum hf. á svæði Ísals,
við byggingu álversins í
Straumsvík frá 1968-1972, þegar
hann sneri aftur til Landssmiðj-
unnar. Árið 1973 réðst hann til
starfa á Rannsóknarstofnun iðn-
aðarins, sem síðar varð Iðn-
tæknistofnun, og þar vann hann
við sérfræðistörf í málmiðnaði
fram til starfsloka árið 2003. Á
þeirra vegum fór hann í sér-
fræðinám víða erlendis vegna
eftirlits með suðuvinnu málma
með röntgenmyndatökum,
hljóðbylgjumælingum og ýmsum
sprunguleitaraðferðum, auk
annars. Sigurður sinnti öryggis-
eftirliti á vegum Iðntæknistofn-
unar við virkjanir og ferðaðist
mikið um Ísland í tengslum við
þessi störf. Hann var formaður í
stjórnum starfsmannafélags
Landssmiðjunnar og Rann-
sóknarstofnunar iðnaðarins/Iðn-
tæknistofnunar. Sigurður starf-
aði í Oddfellowreglunni frá árinu
1971, var þar kosinn til margra
trúnaðarstarfa og hlaut marg-
víslegar viðurkenningar innan
reglunnar.
Útför Sigurðar fór fram í
kyrrþey að ósk hins látna 11.
apríl síðastliðinn frá Bústaða-
kirkju. Jarðsett var sama dag í
kirkjugarðinum við Úlfljóts-
vatnskirkju.
1995. Sonur Stein-
unnar er Anton
Ingi, f. 1990. Lang-
afabörn Sigurðar
eru fimm.
Seinni kona Sig-
urðar er Sæunn
Gunnþórunn Guð-
mundsdóttir, f.
1933. Hennar dætur
og stjúpdætur Sig-
urðar eru Jóhanna
Laufey, f. 1956,
Steinunn Fjóla, f. 1957, Guðrún
Katrín, f. 1959, og Berglind Eva,
f. 1970. Barnabörnin eru ellefu
og barnabörnin fimm.
Sigurður ólst upp í Reykjavík
og gekk í Austurbæjarskólann
og síðar í Héraðsskólann í Reyk-
holti í Borgarfirði 1947-1950.
Hann lauk prófi í vélvirkjun frá
Landssmiðjunni og Iðnskólanum
í Reykjavík árið 1955 og hlaut
meistararéttindi árið 1969. Hann
var í Vélskólanum í Reykjavík
1957-1960, lauk þaðan prófi sem
vélstjóri árið 1959 og frá raf-
magnsdeild Vélskólans 1960 og
hlaut viðurkenningar fyrir góð-
an námsárangur. Hann starfaði
hjá Landssmiðjunni frá 1951-
1957 og 1960-1968 og fór til náms
á þeirra vegum bæði til Svíþjóðar
og Danmerkur. Þar lærði hann
Takk fyrir að sitja hjá mér.
Hann pabbi sagði þessi orð við
mig dag nokkurn í mars þegar ég
var á leið út úr dyrunum á sjúkra-
stofunni þar sem hann dvaldi síð-
ustu vikurnar. Ég hafði setið þar
og lesið meðan hann blundaði, svo
vaknaði hann af og til og við
spjölluðum um eitt og annað,
liðna daga og lífið í núinu. Mér
fannst samt akkúrat á þeirri
stundu að í þessari einföldu setn-
ingu fælist miklu meira en bara
þakklæti fyrir að sitja hjá honum
þarna, mér fannst eins og hann
væri að þakka mér fyrir að vera
hjá sér alltaf. Og þannig var það.
Pabbi var góður maður. Hann
var maður leiksins og galsans, ég
man þegar við systur vorum litlar
og hann gerði sér far um að út-
færa töfrabrögð og leikþætti, allt
til að gleðja okkur. Hann var vin-
sæll meðal barna í hverfinu því
hann var alltaf til í að glettast við
þau. Stundum kom hann með
heim úr vinnu sinni í Landssmiðj-
unni með kostagripi sem hann
fékk að láni þar, til dæmis stór
segulstál. Svo fengum við að strá
skrúfum á trékoll og með því að
færa segulstálið til undir kollinum
lyftust skrúfurnar og dönsuðu
um, börnum til undrunar og gleði.
Hann kom heim frá útlöndum
með lokaðar skeljar sem við sett-
um í vatn, eftir smástund opnuð-
ust þær og út komu litrík papp-
írsblóm fest með örfínum þráðum
í skeljarnar. Allt voru þetta undur
og stórmerki í lífi barna á sjöunda
áratug síðustu aldar.
Pabbi var maður söngsins og
tónanna, hann naut þess að heyra
tónlist og hafði afar fallega söng-
rödd. Hann sagðist alltaf hafa séð
eftir því að læra ekki söng en
fyrst svo varð ekki gerði hann sér
bara far um að sækja tónleika og
syngja í góðra vina hópi. Hann
var hagyrðingur og eftir hann
liggja ótal margar vísur og falleg
ljóð.
Íslensk náttúra skipaði stóran
sess í lífi pabba. Í minningakist-
unni leynast myndir af okkur fjöl-
skyldunni í ótal ferðalögum, ým-
ist á lánuðum bílum eða pínu-
litlum NSU Prins. Í þann bíl var
pakkað tjaldi og viðlegubúnaði og
svo haldið af stað út í sveit, pabbi
þekkti landið eins og lófann á sér
strax þarna og átti síðar meir eft-
ir að ferðast vítt og breitt um
landið í tengslum við vinnu sína.
Hann var stálminnugur og lagði
sig fram um að kynna sér stað-
hætti, þekkti fjöll og flóa, grös og
steina og fræddi okkur um þetta
allt saman. Önnur mynd kemur
upp í hugann, við fjölskyldan að
leita að steinum í grjóthrúgum
þar sem nú er Sundahöfn. Þar
var verið að dýpka og dæla upp
grjóti og náttúruvininum pabba
fannst tilvalið að fara með fjöl-
skylduna þangað í leit að falleg-
um steinum. Góðar minningar.
En pabbi var líka maður mik-
illa tilfinninga og bar í brjósti
sáran harm. Mamma lést skyndi-
lega langt fyrir aldur fram og sá
atburður hafði mikil áhrif á allt
hans líf. Hann varð ekkill með
þrjár dætur og þetta voru erfiðir
tímar. Seinna kynntist hann Sæ-
unni og þau giftu sig, Sæunn átti
þá fjórar dætur. Saman bjuggu
þau sér líf á grunni væntumþykju
og virðingar. Nú hefur leiðir skil-
ið en minningarnar lifa í hjörtum
okkar allra.
Takk fyrir að sitja hjá mér,
pabbi minn.
Kristín Ingibjörg Mar.
Fallinn er frá elskulegur Sig-
urður Mar stjúpi minn, stjúpafi,
stjúplangafi og stjúplangalang-
afi.
Gleðigjafinn, fræðimaðurinn,
náttúruunnandinn, vísnaskáldið
með hjartað fullt af þakklæti og
umhyggju.
Sem ungur fjölskyldumaður
missti hann konu sína frá þrem
ungum dætrum sem var þeim svo
mikill harmur og fylgdi honum
alla tíð, en hann treysti á forsjón
máttarvalda.
Síðar kom hann inn í líf okkar
fjölskyldunnar þegar mamma og
hann kynntust. Fjallmyndar-
legur maðurinn sem bauð henni
upp í dans og spurði hana svo eft-
ir dansinn hvort hann mætti
bjóða henni á síðkjólaball tveim
dögum síðar.
Mamma sagði já, settist við
saumavélina og saumaði sér fal-
legan síðkjól og við dætur hennar
tókum þátt í eftirvæntingunni.
Síðan hafa þau verið saman í 40
hamingjurík ár.
Það voru forréttindi að kynn-
ast manni eins og Sigurði. Um-
hverfi hans mótaðist af léttleika
og glaðværð og honum þótti gam-
an að gefa af sér, enda einstak-
lega fróður og lesinn maður.
Hann söng oft fyrir okkur með
sinni fallegu tenórrödd, las kvæði
með tilþrifum og þá sérstaklega
kvæðin eftir Einar Benediktsson
skáld en þau kunni hann mörg
hver utanbókar.
Hann fræddi okkur um lit-
brigði steinanna, læddist með
okkur að fuglahreiðrum, lagðist
með okkur út í brekku í sumar-
bústaðnum í myrkrinu með
stjörnubjörtum himninum til að
lesa í stjörnurnar. Svo margar
skemmtilegar minningar sem nú
ylja og við munum sakna hans
endalaust.
Rúm og tími
reynast blekking,
ef reynt er takmark hvors að ná.
Aldrei mun vor mannleg þekking
mega uppsprettu ljóssins sjá.
(Guðmundur Jóhannesson frá Króki,
Grafningi)
Sigurður
Finnbjörn Mar
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
FALLEGIR LEGSTEINAR
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Á góðu verði
Verið velkomin
Opið: 10-17 alla virka daga
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓN HANNESSON,
Ásbúð 63,
Garðabæ,
lést á Landspítalanum í Fossvogi 16. apríl.
Útför hans fer fram frá Vídalínskirkju
fimmtudaginn 2. maí klukkan 13.
Hannes Jónsson Guðlaug K. Jónsdóttir
Jón Gunnar Hannesson
Unnur Ösp Hannesdóttir
Arnar Atli Hannesson
Guðmunda K. Hauksdóttir
Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
KRISTJÁN ÁRNASON,
Bláskógum 11, Hveragerði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
miðvikudaginn 24. apríl.
Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Aðstandendur
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
KJARTAN GÍSLASON,
Grandavegi 47,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
þriðjudaginn 16. apríl.
Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 2. maí
klukkan 13.
Ólöf S. Jónsdóttir
Erna Guðríður Kjartansdóttir Þorbjörn Geir Ólafsson
Ingibjörg Rós Kjartansdóttir Björgvin Freyr Vilhjálmsson
Jón Ólafur Kjartansson Anna Kristín Vilbergsdóttir
og barnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
LILJA K. KRISTINSDÓTTIR,
Múlavegi 17, Seyðisfirði,
lést á Landspítalanum Fossvogi
miðvikudaginn 24. apríl.
Magnús S. Stefánsson
Kristinn G. Magnússon Linda Mae Kirker
Stefán H. Magnússon
Ágúst T. Magnússon Arna Magnúsdóttir
og barnabörn
Faðir okkar og afi,
ATLI HEIMIR SVEINSSON
tónskáld,
lést laugardaginn 20. apríl á
hjúkrunarheimilinu Grund. Útför hans fer
fram frá Hallgrímskirkju mánudaginn 6. maí
klukkan 13.
Teitur Atlason Bryndís Bjarnadóttir
Auðunn Atlason Sigríður Ragna Jónsdóttir
Illugi Auðunsson Kristjana Zoëga
Auður Teitsdóttir
Þorkell Auðunsson
Bessi Teitsson
Ólafía Kristín Auðunsdóttir
Leó Teitsson
Ásta Sóllilja Auðunsdóttir
Elskuleg systir okkar,
BRYNDÍS MAGNÚSDÓTTIR,
Vallarbraut 3,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn
3. apríl.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Snorri Magnússon
Jóhanna Magnúsdóttir
og fjölskyldur
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SVAVA ÁRNÝ JÓNSDÓTTIR,
Baðsvöllum 7, Grindavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
laugardaginn 20. apríl.
Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju föstudaginn 3. maí.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Slysavarnadeildina
Þórkötlu.
Benóný Þórhallsson
Þórhallur Ágúst Benónýsson
Sigríður Fjóla Benónýsdóttir Hólmar Már Gunnlaugsson
Berglind Benónýsdóttir Ómar Davíð Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
HILMAR HAFSTEINN JÚLÍUSSON
kælivélvirki,
Strandvegi 12,
Garðabæ,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
þriðjudaginn 30. apríl klukkan 13.
Erla Sigrún Lúðvíksdóttir
Hildur K. Hilmarsdóttir Sigurjón A. Guðmundsson
Hafdís B. Hilmarsdóttir Friðvin Guðmundsson
Brynjar Á. Hilmarsson Sólveig D. Larsen
Orri H. Hilmarsson Guðný J. Kristinsd.
barnabörn og barnabarnabörn