Morgunblaðið - 27.04.2019, Page 36

Morgunblaðið - 27.04.2019, Page 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2019 Ágústi kynntist ég fyrst í Berlín – reyndar að honum fjarstöddum. Eins og svo margir fékk ég að gista í íbúð í Stephanstrasse sem hann hélt í áratugi. Háir staflar af bók- um og tímaritum gáfu til kynna að hér færi maður með breiðan áhuga á samfélaginu, stjórnmál- um og stjórnskipan, sögu og sam- tíma. Nokkrum árum síðar urðum við samstarfsmenn við Háskól- ann á Akureyri. Þá hófst tímabil náinna kynna sem stóð yfir í nærri fimmtán ár. Fljótlega kom í ljós að titlaflóran úr Stephan- strasse var ekki tilviljun því hann reyndist vera vel heima á mörg- um sviðum. Hann gegndi lykil- hlutverki í uppbyggingu laga- náms við HA og síðar við nám í heimskautarétti. Og um langt skeið hélt hann utan um svoköll- uð félagsvísindatorg og lögfræði- torg, opna vikulega hádegisfyrir- lestra. Í því þverfræðilega umhverfi sem einkenndi starfið í HA var hann réttur maður á rétt- um stað. Hann var í góðum tengslum við bæði fræðimenn og ráðamenn sem nýttist skólanum vel. Hann var alla tíð virkur í al- þjóðlegu starfi. Norðurlöndin voru honum alltaf hugleikin en í áratugi tók hann t.a.m. virkan þátt í Norræna sumarháskólan- um. Á síðustu árum áttu ferðirn- ar til Færeyja og Grænlands eftir að verða tíðar. En þótt hann væri víðförull voru tengslin við Þýska- land þó ákveðið grunnstef í lífi hans. Sem fréttamaður hafði hann tekið viðtöl við þarlent áhrifafólk, t.d. Helmut Kohl og Willy Brandt. Og um þýsk mál- efni ræddi hann í viðtölum og fyrirlestrum, auk þess að sýna Þjóðverjum Ísland. Það kom því ekki á óvart að hann skyldi vera gerður að ræðismanni Þýska- lands á Akureyri árið 2009. Gústi var upptekinn maður, líklega vegna þess að hann kunni ekki að segja nei. Hann hafði allt- af tíma fyrir stærri og smærri viðvik og virtist njóta þess að geta orðið fólki að liði. Einnig gerði hann mikið af því að kynna aðra, t.a.m. með útvarpsþáttum og með því að fá fólk til þess að halda erindi um hugðarefni sín. Á Akureyrarárum sínum var Gústi stöðugt á ferðinni. Hann sótti opinbera viðburði af miklum móð og skrifaði t.a.m. leikhús- gagnrýni um árabil. Í miðbænum greip hann kaffi, settist niður með fólki en var svo ósjaldan þot- inn á vit nýrra hugmynda eða við- vika. Á köflum var jafnvel torvelt að greina hve margir boltar væru á lofti. Sem bæjarbúi var hann einnig með hugann við nærum- hverfi sitt og beitti sér stundum svo um munaði. Nefna má að árið 2007 þegar til stóð að rífa Hafnarstræti 98 varð hann að andliti hatrammrar baráttu fyrir varðveislu hússins sem á elleftu stundu var svo friðað. Fræðimaður, Þýskalandsvinur og hjálparhella. Þessi orð vísa að- eins til lítils hluta þess sem Gústi stóð fyrir. E.t.v. mætti orða þetta þannig að hann hafi einfaldlega verið virkur háskólaborgari. Hann veiktist á þeim vikum sem hann eyddi í Berlín í desember síðastliðnum. Hann hélt þó sínu striki. Þar til yfir lauk dvaldi hann á heimili sínu í Hrafnagils- stræti – innan um staflana af bók- um og tímaritum – og með sínum nánustu. Þeim sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Páll Björnsson. Ágúst Þór Árnason ✝ Ágúst ÞórÁrnason fædd- ist 26. maí 1954. Hann lést 11. apríl 2019. Útför Ágústs Þórs fór fram 26. apríl 2019. Vorið 2002 var ég nýfluttur aftur heim til Akureyrar þegar Björgvin Ólafsson hringdi og spurði hvort ég vildi leigja vini sínum forstofu- herbergið í íbúð sem ég hafði tekið á leigu í Hafnarstræti. Ég tók það ekki í mál. Eftir stuttar fortölur féllst ég þó á að hitta manninn á Bláu könnunni. Það tók Ágúst Þór Árnason kortér að eignast trúnað minn og daginn eftir var hann fluttur inn. Við tók ógleymanlegt sambýli þar sem brosandi augu, fallegt bros og sefandi orð jöfnuðu allan ágreining. Til varð einlæg vinátta sem entist til hinsta dags. Gústi var fluggáfaður og skarpskyggn en átti það til að vasast í heldur of mörgu. Hann var sífellt að skipuleggja eitthvað og hafði unun af því að fela fólki heilladrjúg verkefni. Hálfum mánuði fyrir andlátið kallaði hann mig til sín og sagði að það væri tvennt sem sig langaði að biðja mig að gera. „Ekki meira? Ertu eitthvað að linast?“ spurði ég og svo hlógum við dátt eins og börn. Margt bar til tíðinda meðan við bjuggum saman í Hafnar- strætinu. Minnisstæðar eru næt- urnar þegar Gústi stóð í samn- ingaviðræðum við drykkju- manninn á neðri hæðinni um það klukkan hvað þyrfti að slökkva á Gylfa Ægissyni. Minnisstæðir eru morgnarnir þegar ég skrölti fram í stofu og Gústi sat með mjólkurglas og sólskinsbros við eldhúsborðið að flokka dagblöð. Ógleymanleg var sjónin þegar ég kom niður til hans og hann var búinn að troða svo miklu af úr- klippum undir rúmið sitt að fætur þess námu ekki lengur við gólf og það vaggaði eins og bátur á sjó. Sambýlið færði okkur djúpan skilning hvor á öðrum. Samræð- ur um sannleikann og réttlætið, tilfinningar og mannlegt eðli, voru alla tíð mannbætandi. Mér leið stundum eins og ég væri að tala við spegilinn þegar ég bar þrautir mínar upp við Gústa. Ég vissi hvað þyrfti að gera en ég þurfti á því að halda að hann segði mér það. Síðustu vikurnar hóaði hann oft í mig og við urðum enn nánari. Hann horfði á mig með þessum brosandi augum og sagði falleg orð. Ég hélt um máttfarna höndina og lét hann finna hversu óskap- lega mér þótti vænt um hann. Um það bil tveimur vikum fyr- ir endalokin sagði ég honum að mig langaði að hafa 11 ára dóttur mína með í páskaferð til Madr- ídar, Flórens og London en hefði varla ráð á því. Hann kom mér strax í skilning um að ég hefði vel ráð á því og að það kæmi ekkert annað til greina en að ég tæki Aðalheiði Önnu með í ferðina. „Vegna þess að í stóra samhenginu skipta pening- ar ekki máli. Það sem skiptir máli er að búa til góðar minningar. Lífið er of stutt. Hún mun búa að minningum um ferðina alla tíð.“ Ég trega það mjög að geta ekki verið við útför Gústa. Nú sitjum við Aðalheiður Anna hljóð í útlöndum, höldumst í hendur og hugsum til horfins vinar. Við njótum ferðarinnar sem hann vildi að yrði farin. Hann kom því til leiðar að ég ynni það verkefni sem kannski er mest um vert; að upplifa og njóta með þeim sem er manni kærastur. Því lífið er of stutt. Ég endurtek orðin sem ég muldraði beygður við sjúkrabeð hans hinsta daginn: Takk, elsku Gústi, takk fyrir allt. Ragnar Hólm og Aðalheiður Anna. Ágúst Þór Árnason talar frá Berlín, hljómaði oft í eyrum okk- ar föður hans í Ríkisútvarpinu á fyrstu árum okkar sambúðar. Einhverju sinni fannst Árna son- urinn segja of oft sko, það orð þoldi hann ekki sjálfur í íslenskri tungu. Ég verð að benda syni mínum á að þessa hörmung, sagði hann og það gerði hann. Gústi þakkaði fyrir ábendinguna og eftir það hljómaði þetta orð ekki oft í okkar eyrum. Þetta voru eiginlega fyrstu kynni mín af Gústa. Ég á margar góðar minningar um skemmtilegar samræður milli okkar Gústa síðustu áratug- ina. Við höfðum bæði skoðanir á mönnum og málefnum, en alltaf urðum við nokkuð sammála að lokum og aldrei minnist ég þess að okkur yrði sundurorða. Þess- ar stundir er gott að eiga í minn- ingunni í dag, nú þegar þær verða ekki fleiri í bili að minnsta kosti. Mannréttindamál voru Gústa mjög hugleikin og því var oft mjög fræðandi að ræða þau við hann, sem við gerðum í ófá skipti. Fyrst og síðast mun ég samt alltaf minnast Gústa sem glað- lynds og fjölhæfs einstaklings sem alltaf fylgdi hvatning. Nú ertu kominn inn í sumarlandið, Gústi minn, þar sem dagar Guðs líða aldrei að kveldi. Innilegar samúðarkveðjur til Margrétar Elísabetar og allrar fjölskyld- unnar. Takk fyrir allt og allt. U. Eygló Sigurjónsdóttir. Stundum er sagt að það sé sérstakt gáfumerki að þekkja hvernig fyrirbæri heimsins virka hvert um sig. Það má til sanns vegar færa. Hitt er þó sýnu mik- ilvægara, að átta sig því hvernig þessi fjölbreyttu fyrirbæri tengj- ast og mynda dýnamískt samspil. Að koma auga á tengingarnar er oftast það sem á endanum gerir gæfumuninn. Í því felst hin frjóa hugsun, frumleikinn sem færir okkur fetinu framar. Ágúst Þór Árnason var mikill meistari tenginganna. Hann hafði sér- stakt lag á því að sjá hugsanleg tengsl, tengsl sem ekki endilega lágu í augum uppi, og velta upp áhugaverðum spurningum í framhaldinu. Hann byggði þetta innsæi sitt raunar á fjölþættri þekkingu á þjóðlífinu, stjórn- málasögu, heimspeki og alþjóða- samskiptum, enda hafði hann komið víða við á viðburðaríkri ævi. Eðli málsins samkvæmt gat samhengi hlutanna stundum ver- ið annað en Ágúst hafði upphaf- lega séð fyrir sér, en oftar en ekki urðu úr skemmtilegar rök- ræður og fáir ánægðari með um- ræðuna en Ágúst sjálfur. Rök- ræður af þessu tagi tóku ýmis form. Stundum tveggja manna tal þar sem Ágúst prófaði hug- myndir á einhverjum kollega, og stundum birtust þær í formi ráð- stefna eða málþinga þar sem leidd voru saman ólík sjónarmið undir yfirskrift, sem líkleg var til að draga fram nýjar hliðar mála. Slíkt er einmitt eitt mikilvægasta hlutverk háskólaumhverfisins, og því er mikill missir fyrir okkur félaga hans, Háskólann og sam- félagið allt að svo frjóum máls- hefjanda sem Ágúst var. Að sjá tengsl þar sem aðrir sjá engin er til marks um hug- myndaauðgi og Ágúst hafði alltaf hugmyndir. Það gerði hann að eftirsóknarverðum samstarfs- aðila þegar brydda þurfti upp á nýmælum af einhverju tagi. Enda var hann í hópi frumherja á mörgum sviðum, hvort sem það voru mannréttindamál, erlendar fréttir á RÚV, blaðamennska á Tímanum, stofnun lagadeildar við HA eða Heimspekikaffi á Bláu könnunni. Í öllum þessum hlutverkum tengdi hann ekki að- eins saman hugmyndir heldur líka fólk því hann hafði sérstakt lag á að nýta og búa til tengsla- net til að virkja fólk til þátttöku og samræðu. Í persónulegum samskiptum var Ágúst hlýr og traustur vinur, húmorískur, gamaldags og nú- tímalegur í senn og hæfileg blanda af íhaldsmanni og róttækl- ingi. Hann hafði ætíð marga bolta á lofti, bæði vinnutengda og per- sónulega og segja má að síminn hafi verið hans miðill. Það er t.d. erfitt að ímynda sér spjall við hann sem ekki var á einhverum punkti truflað af símhringingu þar sem einhver hinna fjölmörgu bolta kallaði á athygli! Slíkum fundum manns með honum lauk þá yfirleitt með léttri hand- asveiflu og setningunni „heyrðu, við verðum í bandi!“ Enda var hann bóngóður og sem nágranni og samstarfsmaður var hann ætíð reiðubúinn að rétta hjálparhönd, við að mála, flytja, eða aðstoða vð einhver viðvik. Það var auðvelt og notalegt að vera í návist hans, og við munum sakna sárt góðs vinar. Kæra Margrét Elísabet, Ágústsbörn og aðrir ættingjar, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð, Birgir Guðmundsson og Ingibjörg Elíasdóttir. Fyrir u.þ.b. tíu árum var þungt yfir Hug- og félagsvísindasviði Háskólans á Akureyri þar sem mikill niðurskurður vofði yfir skólanum. En á deildaráðsfund- um sviðsins sat maður sem sætti sig ekki við neitt volæði heldur tók ekki annað í mál en að við horfðum fram á við, ræddum hvernig hægt væri að byggja upp, breyta og bæta og móta sýn sviðs- ins til framtíðar. Allt til þess að gera góðan skóla betri. Þessi maður var Ágúst Þór Árnason. Þarna urðum við Gústi vinir og ég hlakkaði til hvers einasta deilda- ráðsfundar þann vetur. Næstu árin varð Gústi ómiss- andi hluti af „Akureyrarfjölskyld- unni“ minni sem studdi svo vel við mig í doktorsnáminu mínu, eldaði ofan í mig og stappaði í mig stál- inu á lokametrunum. Og að sjálf- sögðu lét hann sig ekki vanta í doktorsvörnina né veisluna í desember síðastliðnum. Það sem ég var búin að hlakka til að geta setið óstressuð með honum og Möggu Betu ásamt fleiri vinum okkar í Hrafnagilsstrætinu eða á Sniðgötunni og spjallað um heima og geima í endalausum árbítum og kvöldverðum. En í stað þess snérist lífið svona óskaplega hratt strax í byrjun árs. Mikil þögn hefur ríkt yfir Akureyri og háskólanum síðast- liðna daga. Gústa verður sárt saknað. Hvað verður um heim- spekikaffið á Bláu könnunni sem hann stýrði svo frábærlega? Þar sem fólkið í bænum sat eins og við eldhúsborðið heima hjá sér og velti vöngum yfir lífinu. Hvern á maður að hringja í sem maður treystir til að flytja eitt stykki pí- anó og erfðagrip í þokkabót? Og hvern á maður að hringja í til að bjarga sviða- og sláturveislu fyrir ameríska vini? Til hvers á maður að kíkja í heimsókn eða grípa á Bláu könnunni til að láta stjórn- ast aðeins í sér varðandi hvaða stefnu maður á að taka í lífinu? Gústi var einstaklega bóngóð- ur, hreinn og beinn og gerði allt hratt. Yfir og allt um kring en á svo jákvæðan hátt. Og hann verð- ur það áfram í samtölum og verk- um okkar vina hans og kollega um ókomna tíð. Ég votta Möggu Betu og fjöl- skyldu Gústa mína dýpstu samúð. Kristín Guðmundsdóttir. Við kynntumst smápjakkar í Langholtsskóla. Árin þar voru fá þegar á heildina er litið, en það urðu einmitt þessi seigu og sól- ríku sem knýta bönd. Við urðum vinir ævilangt. Af Moggagrein 1964 – þegar 10-ára bekkjum var fyrst stefnt í skóla í september – sést að Gústi litli á fyrsta borði í 4. GK horfði til framtíðar. Hann lýsti þar áformum um æðri menntun og at- hafnasemi í landbúnaði og orðaði svo kröfu bekkjarins í september- málinu: „Við viljum fá nýtt frí sem heitir réttafrí!“ Þetta gaf tóninn. Aldrei sat Gústi hugmyndalaus, alltaf hafði hann einhver áform, einhverju að miðla, alltaf að stilla strengi, tendra loga, finna fólk, alltaf að koma eða að fara eitthvað. Hann var sá gæfumaður að vinna um þrítugt fullan sigur á þeim arma þrjóti Bakkusi þannig að hans æskubjörtu eðliskostir blómstr- uðu alla tíð síðan. Hann kynntist flestum sem hann hitti og hélt sambandi við ótrúlega marga. Hann kom heim frá námi eins og Fjölnis- og ungmennafélags- maður með hugsjónir um betra samfélag: Frá mannréttindum og stjórnarskrá að stofnun akademía og háskóladeildar, frá ódýrum smáauglýsingum að samtali um lýðræði, frá EES og húsavernd að fræðimennsku um norðurslóð- ir. Ekkert framfaramál var hon- um óviðkomandi og vel heppnuð verkefni hans ótrúlega mörg. Og þó að einhverjar hugmyndir hans gerðu sig ekki, hægði það ekki á honum. Áfram núna. Hann var frábær náungi og vinur. Við mótmælum þeirri fá- ránlegu ráðstöfun að kalla hann svo sprækan af sviði mannlífsins. En þökkum líka forsjóninni fyrir að hafa mátt eiga þennan góða dreng að vini í tæp sextíu ár. Gísli Sveinn Loftsson, Lúðvík Haraldsson, Sigurður J. Grétarsson. Það var hreinlega stórkostlegt að alast upp í Álfheimum 8-14 á sjöunda áratug síðustu aldar. Auðvitað átti maður ekki heima í öllum raðhúsunum en slík var samstaða og vinskapurinn að stundum var eins og hér væri um að ræða eina fjölskyldu. Þetta sambýli hófst á ótrúlegri tilviljun en níu kennarar við Langholts- skóla stofnuðu byggingasam- vinnufélag, fengu lóð fyrir níu raðhús í tveimur röðum efst í Álf- heimum, fjögur hús fjær götunni en fimm nær. Fjórir kennaranna voru konur og drógust þær allar saman í röðina fjær götunni og þar með hófst þetta skemmtilega sambýli. Þarna var oft mikið fjör, bæði innan- og utandyra á bíla- planinu framan við húsin sem var sameiginlegur leikvöllur þegar bílar voru ekki að flækjast fyrir enda var þar nóg pláss þótt við krakkarnir í raðhúsunum værum 15 talsins. Í Álfheimum 8 voru þau Árni og Ólöf og þeirra börn, Ágúst þeirra elstur sem við kveðjum í dag frá Langholts- kirkju en hann lést eftir harða baráttu við illvígan sjúkdóm en sýndi ótrúlegt æðruleysi allt til loka. Ég hleypti heimdraganum fyrr en Gústi enda nokkrum árum eldri. Ég varð fljótt var við að hugur Gústa beindist fljótt að ým- iss konar fræðimennsku, ekki síst heimspeki enda fór hann til Þýskalands að nema þau fræði auk stjórnmálafræði. Á árunum þar var hann m.a. fréttaritari RÚV. Ágúst var afar vel að sér í stjórnskipunarrétti enda var oft leitað til hans þegar fjölmiðlar vildu fá fróðan mann á því sviði til spjalls. Ekki voru honum síður hugleikin réttindi heimskauta- landanna í alþjóðlegu samstarfi og mér er minnisstætt þegar hann var hjá Mannréttindaskrif- stofu Íslands, ekki síst vegna yf- irburðaþekkingar hans á mann- réttindamálum. Ári eftir að ég og mín fjöl- skylda fluttum frá Akureyri sett- ist Ágúst að þar og var skipaður aðjúnkt við Háskólann á Akur- eyri. Engu að síður lágu leiðir okkar stundum saman, nú síðast fyrir nokkrum vikum þegar há- skóladagurinn var haldinn í Reykjavík og hann var þar að kynna ágæti náms við Háskólann á Akureyri. En nú liggja leiðir okkar ekki frekar saman á þessu jarðríki. Ég og systkini mín í Álfheimum 12 á sjötta áratugnum sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldu Ágústar. Hvíl í friði, blessuð sé minning góðs drengs. Geir A. Guðsteinsson. Dánir vinir vaxa í vitundinni, og stækka í þögninni. Því færra sem sagt er um þá, þeim mun meira vaxa þeir. Dánir vinir láta eitt og annað út úr sér. En það er yfirleitt eitthvað svipað og þeir sögðu meðan þeir lifðu. Þetta kemur mörgum á óvart, eða þeir sætta sig ekki við það. Halda áfram að búast við krafta- verkinu: Segðu eitthvað nýtt, gerðu það. Sann- aðu að þú sért til, einhvers staðar. Með þessu ljóði Steinunnar Sig- urðardóttur kveð ég vin minn Ágúst Þór. Blessuð sé minning hans. Sigrún Björk Jakobsdóttir. Hann Ágúst Þór er allur, minn góði vinur til áratuga, langt fyrir aldur fram. Sú hugsun ein er harmi gegn að hann lifði meira á sínum 65 árum en margur eldri. Og nú er að þakka allt sem hann hefur fyrir okkur gert, allar hans góðu hugmyndir og störf, greina- skrif og fyrirlestra, hlýjuna, birt- una og gleðina sem hann gaf okk- ur svo mörgum, þakka þá hæfileika hans að sjá viðfangsefni og tækifæri þar sem öðrum leyndust, þakka fyrir að hafa stundum átt hlutdeild í framtíðar- sýn hans, þakka áralöng sam- skipti og vináttu, hvatningu hans og stuðning, meiri en ég hafði nokkru sinni áður kynnst. Leiðir okkar lágu saman í að- draganda stofnunar Mannrétt- indaskrifstofu Íslands með aðild félagasamtaka sem unnu að rétt- indum ýmissa hópa, m.a. Hjálpar- stofnunar kirkjunnar. Kom í minn hlut sem stjórnarformanns að vera fulltrúi hennar í stjórn MRSÍ. Mannréttindi voru áhugamál sem ég hafði sinnt á yngri árum en af ýmsum ástæðum legið í lág- inni síðan. Nú dróst ég inn á þetta svið á ný og við tók andleg ævin- týrareisa í samvinnu við gott og gáfað fólk, brennandi í anda með Ágúst í broddi fylkingar. Það var ekki hægt annað en hrífast af og með þeim sem stóðu að stofnun MRSÍ, þeim Ágústi, Ragnari Aðalsteins, Guðmundi Alfreðs og öðru því góða fólki sem hendur lagði á plóginn. Þessir hæglátu menn áttu sér innri glóð sem frá stafaði geislum sem aðra snertu. Þetta voru húmanistar af bestu gerð og ég fæ aldrei fullþakkað örlögunum fyrir að leiða mig til starfa með þeim. Stofnfundurinn í Almannagjá 17. júní 1994, í sömu andrá sem Alþingi hét því á Lög- bergi að endurskoða mannrétt- indakafla stjórnarskrárinnar, er stund sem aldrei gleymist né starfið sem í hönd fór í tengslum við hana. Að auki mörkuðu þessi kynni þáttaskil í lífi mínu, því fyrir til- stilli Ágústs og Guðmundar rætt- ist gamall draumur um fram- haldsnám erlendis, sem leiddi til áhugaverðra verkefna. Traust þeirra, stuðning og hvatningu fæ ég aldrei fullþakkað. Að frum- kvæði þeirra Ágústs fluttist ég til Akureyrar til að kenna við ný- stofnaða lagadeild HA og eignað- ist hreiðrið mitt í Vaðlaheiðinni þar sem ég nýt ellinnar eins og best verður á kosið. Og þangað hefur Ágúst sótt mig heim, oft með góða gesti víða að. Þá hefur margt borið á góma, ekki síst við- fangsefni norðurslóða og heim- skautaréttar. Hann hafði mikinn metnað fyrir hönd Akureyrar og HA og vildi sjá þar miðstöð þess- ara brýnu mála. Hér hefur Ágúst svo haldið áfram að fá gott fólk til liðs við sig til að auðga líf mitt og annarra, m.a. með frábærum fyrirlestrum fræðimanna á Laga- torgi HA, fyrirlestraröðum á

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.