Morgunblaðið - 27.04.2019, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 27.04.2019, Qupperneq 38
Emil Geir Guðmundsson 38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2019 ✝ Árný Guðjóns-dóttir fæddist í Sandgerði 9. októ- ber 1945. Hún lést á Heilbrigðisstofn- un Vesturlands á Akranesi 19. apríl 2019. Foreldrar henn- ar voru hjónin Ás- dís Þorgilsdóttir f. 6.12. 1926, d. 21.4. 2007, og Guðjón Valdemarsson matreiðslumað- ur, f. 12.12. 1924, d. 3.9. 2009. Systkini Árnýjar eru Unnur f. 3.9. 1951, Óskar, f. 5.5. 1953, og Jóhanna, f. 1.12. 1959. Maki 21. nóvember 1964 Ing- Baldur Steinn og Karen Ösp. 2) Guðjón Ingólfsson, búsettur í Bolungarvík, f. 24.9. 1971, gift- ur J. Guðmundu Hreinsdóttur. Börn þeirra eru Hreinn, Arney Þyrí, Jónína Arndís og Sævar Örn. Barnabarnabörn Árnýjar og Ingólfs eru orðin fjögur. Árný ólst upp í Sandgerði, þar sem hún kynntist manni sínum. Hófu þau búskap í Sand- gerði og bjuggu þar til 1977 en fluttu þá að Bæ 1 í Kaldrana- neshreppi þar sem þau hófu fjárbúskap. Bjuggu þar til 2003. Eftir það hafa þau búið í Borgarnesi. Útför Árnýjar fer fram í Drangsneskapellu í dag, 27. apríl 2019, og hefst athöfnin klukkan 14. Jarðsett verður í Drangsneskirkjugarði. ólfur Andrésson, fyrrverandi bóndi, f. á Drangsnesi 21. maí 1944, búsettur í Borgarnesi. Foreldrar hans voru Andrés Guð- björn Magnússon, f. 8.9. 1906, d. 12.12. 1979, og Guðmund- ína Arndís Guð- mundsdóttir f. 20.9. 1911, d. 28.9. 1978. Börn Árnýjar og Ingólfs eru 1) Haraldur Vignir Ingólfsson, búsettur á Drangsnesi, f. 14.7. 1964, kvæntur Helgu Lovísu Arngrímsdóttur. Börn þeirra eru Þórdís Adda, Ingólfur Árni, Elsta systir mín, Árný, er fallin frá. Með trega og tárum langar mig að minnast hennar með fáeinum orðum. Hún lést 19. apríl, á föstu- daginn langa, á Heilbrigðisstofn- un Vesturlands eftir þriggja vikna legu. Er við Heddý heimsóttum hana daginn fyrir andlátið leit Árný mjög vel út og virtist ekki vera að kveðja þennan heim; meira að segja minntist hún á að gaman væri að geta komist heim um páskana. En það auðnaðist henni ekki, heldur hélt hún í ferða- lagið sem bíður okkar allra einn góðan veðurdag. Hún hafði lengi glímt við hjartasjúkdóm sem að lokum varð henni að aldurtila. Árný var ljúf og elskuleg mann- eskja að eðlisfari en hafði sterkar skoðanir á mönnum og málefnum og lét heyra í sér ef henni mislík- aði eitthvað í fari fólks sem og eitt- hvað í þjóðfélagsmálum. Hún fluttist ung með honum Golla sín- um á Strandirnar, nánar tiltekið að Bæ 1 við Drangsnes, en bærinn hafði staðið í eyði í þó nokkurn tíma. Fórum við norður með fulla bíla og kerrur af málningu, vegg- fóðri og verkfærum og bærinn tekinn í gegn í hólf og gólf. Ávallt var hún höfðingi heim að sækja, aldrei var komið til þeirra nema bakkelsi og lambakjöt væri á boð- stólum enda var það hennar mottó að enginn færi svangur frá henni. Kaflaskil urðu í lífi þeirra Ár- nýjar og Golla er þau fluttu suður í Borgarnes og festu einnig kaup á sumarhúsi í firðinum fagra, Borgarfirði. Ég hef það á tilfinn- ingunni að Árnýju hafi ekki liðið sem best svo langt frá sínum nán- ustu, en synirnir þeir Haraldur og Guðjón búa á Drangsnesi og í Bol- ungarvík. Það hefur ávallt verið töluverður samgangur á milli okk- ar, allt frá því þau hjón fluttu norður og til þess dags er Árný lést. Við höfum ýmislegt brallað á þessum tíma, sem ekki verður rakið hér en ég leit alltaf upp til minnar elstu systur og til hans Golla. Við minnumst heimsókn- anna til þeirra með söknuði, þar sem Árný bar fram sitt bakkelsi og aðrar kræsingar. Eftir að Árný fékk hjartaáfallið árið 2000 varð hún ekki sama manneskjan og áður og heilsu- farinu fór hrakandi. Við vitum að þjáningum hennar er nú lokið og við viljum trúa því að í dag hlaupi hún um í Sólskinslandinu með for- eldrum sínum, þeim Dísu og Gauja, og rifji upp gamla tíma. Ég get farið mörgum orðum um samskipti okkar Heddýjar við þau Árnýju og Golla en læt hér staðar numið. Golli stóð þétt við bakið á Árnýju í gegnum öll henn- ar veikindi og þökkum við honum fyrir það. Við vottum Golla, Hadda, Gauja og fjölskyldum okkar dýpstu samúð. Óskar og Hervör (Heddý). Mig langar að minnast hennar Árnýjar frænku minnar með fá- einum orðum. Að búa í sveit eru forréttindi. Þar eru dýrin, fjöllin, heiðarnar, mannauðurinn og falleg náttúran. Ég minnist Árnýjar frænku sem ekta sveitakonu; hún var sko ekki að eltast við nýtískulegt glingur né hönnun. Allt var nýtt til hins ýtrasta; húsgögn sem og klæðnað- ur. Árný var glaðvær, hávær, stríðin og skemmtileg skellibjalla. Hún hafði líka afar sterkar skoð- anir á mönnum og málefnum sem gaman var að ræða við hana um. Hún sagði margt sem við hin hugs- uðum og þorðum ekki að nefna. Ekki skemmdi fyrir að hún var sérlega góður bakari og er ég þess fullviss að hún gerði heimsins bestu marenstertu (með púður- sykri). Kökunum hennar og matn- um hennar kynntist ég þegar ég lítil skotta af Suðurnesjunum fékk að fara í sveitina til Árnýjar og Golla. Þar var ávallt glatt á hjalla því auk sonanna, þeirra Hadda og Gauja, voru yfirleitt einhverjir frændur eða frænkur í sveit hjá þeim sem hjálpuðu til við búskap- inn. Það kom því í hlut Árnýjar að elda ofan í mannskapinn og þar kom nýtni hennar svo bersýnilega í ljós. Það var morgunmatur, kaffi, hádegismatur, kaffi, kvöldmatur og kvöldkaffi. Vinnandi fólk varð að fá að borða; góðan íslenskan kjarngóðan mat. Ég talaði um að Árný hefði ver- ið stríðin. Já, hún má eiga það að henni tókst það ómögulega með mig; að fá mig til að borða blóð- graut, sem hún sagði vera kakó- súpu (eða uxahalasúpu) sem ég, matargikkurinn, trúði og tók því upp skeiðina og borðaði með bestu lyst. Ég meina; hver borðar ekki kakósúpu. Alveg er ég viss um að Árný hefur hlegið sig í svefn eftir þennan kvöldverð. Ég hef hins vegar ekki borðað blóðgraut síðan! Elsku Golli. Takk kærlega fyrir mig og þær stundir sem við áttum öll saman. Það var alltaf gaman að koma í bústaðinn ykkar í Borgar- firðinum og yndislegt að fylgjast með huggulegum framkvæmdum ykkar þar. Þar sem ég verð ekki á landinu við útför Árnýjar langar mig að senda Golla, Hadda og fjölskyldu og Gauja og fjölskyldu mínar dýpstu samúðarkveðjur. Hugur minn verður með ykkur í dag. María Kristín (Maja Stína). Kær vinkona mín Árný hefur kvatt, það er komið að kveðju- stund og hugurinn leitar til liðinna samverustunda. Margar kalla ósjálfrátt fram bros og fylla mann þakklæti yfir að hafa orðið henni samferða. Árný var yndisleg kona, fjörleg í fasi, hreinskiptin og harðdugleg. Við urðum vinkonur þegar hún bjó í Sandgerði, en mennirnir okk- ar voru samstafsfélagar. Þegar við vorum ung fórum við saman til London, þar örkuðum við vinkonurnar í búðir og versluð- um á börnin okkar, er heim kom þá var nú ekki allt sem passaði. En mín kona sagði það bót að ekkert var of lítið, bara heldur stórt … Svo flutti fjölskyldan norður á Drangsnes, þar sem þau gerðust bændur, samverustundirnar urðu færri um nokkurt skeið. En eftir að þau keyptu sér bústaðinn í Borgarfirðinum og fluttu í Borgarnes endurnýjaðist vinskap- urinn sem aldrei hefur borið skugga á. Það hefur alltaf verið gott að koma við í Hamravíkinni eða í Hábæ og þiggja veitingar, hlaðin borð af bakkelsi og krásum og þau hjón einstaklega gestrisin og skemmtileg. Árný var stolt af sínu fólki, strákunum sínum þeim Haraldi og Guðjóni og þeirra fjölskyldum, allt frábært dugnaðarfólk eins og for- eldrarnir, og gaman að fá fréttir af þeim í dagsins önn. Elsku Árný mín. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Árný mín var einstök, hún lét sig varða allt mitt fólk, spurði frétta og bað fyrir kveðjur. Þannig gera góðir vinir, hún var mér ein- stakur vinur. Elsku Ingólfur, Haraldur, Guð- jón og fjölskyldur. Innilegar sam- úðarkveðjur. Guð blessi minningu Árnýjar Guðjónsdóttur. Anna Jóns. Árný Guðjónsdóttir Haraldur Árna- son var áhugasamur félagi í Rótarý- klúbbi Sauðárkróks í 65 ár, frá 1954, lengur en nokkur annar, forseti 1966-1967, Paul Harris-félagi 1992 og heiðurs- félagi klúbbsins. Engu breytti um áhugann fyrir rótarýstarfinu eða sókn hans á rótarýfundi að hann þurfti að sækja þá langan veg eins og á skólastjóraárum hans á Hólum í Hjaltadal 1971- 1981. Eftir að árin færðust yfir og yfirferðin minnkaði mætti hann á viðburði sem Rótarýklúbbur Sauðárkróks stóð fyrir og lagði sitt af mörkum. Hann var glað- lyndur og góður félagi sem gott var að hafa og vinna með og hafði mikil áhrif á klúbbstarfið á með- an hann var virkastur. Til hans Haraldur Árnason ✝ HaraldurÁrnason fædd- ist 6. mars 1925. Hann lést 13. apríl 2019. Útför hans fór fram 26. apríl 2019. má t.d. rekja þau verkefni klúbbsins að græða upp brekkurnar ofan við Sauðárkrók með góðum húsdýra- áburði frá Sjávar- borg. Munu aðrar einstakar aðgerðir varla hafa sett meiri svip á bæinn og sú að safna melfræi á Borgarsandi og sá þar aftur til að hefta sandinn. Haraldur varð félagi í rótarý- klúbbnum okkar nokkrum árum eftir stofnfund klúbbsins, þekkti sögu hans vel frá upphafi og rakti hana í riti sem gefið var út í tilefni af 50 ára starfi Rótarýhreyf- ingarinnar á Íslandi 1984. Að leiðarlokum vil ég þakka Haraldi Árnasyni góðan félags- skap og félagsstarf í Rótarý- klúbbi Sauðárkróks með samúð- arkveðjum til fjölskyldu hans. Fyrir hönd Rótarýklúbbs Sauðárkróks, Gunnar Björn Rögnvaldsson forseti. Elsku góði og duglegi afi minn er búinn að kveðja okkur. Hann er kominn til ömmu og pabba. Mikið á ég eftir að sakna hans. Hann var mér ómetanlegur stuðningur sérstaklega eftir að pabbi lést. Alla mína ævi hefur afi verið minn fasti punktur, öryggið mitt. Var oft hjá ömmu og afa á vík- inni fallegu. Á margar skemmti- legar og góðar minningar þaðan. Óteljandi fjöruferðir, bíltúrar og spilakvöld. Besta minningin er þó þegar hann kom til okkar í Svíþjóð og eyddi 80 ára afmælinu sínu með okkur. Afi var vakinn mjög snemma með söng og gjöfum. Hann pantaði fisk í matinn og eyddum við deginum á stóru bíla- ✝ Emil Geir Guð-mundsson fæddist 3. október 1934. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands 20. apríl 2019. Hann verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju í dag, 27. apríl 2019, klukkan 14. safni. Í marga tíma fór hann um safnið og skoðaði alla bíl- ana og vinnuvélar sem þar voru. Man sérstaklega eftir einni gröfu, þegar hann sá hana varð hann ungur maður á ný. Hann áttræði maðurinn hoppaði upp í hana og gleði- svipurinn á honum minnti mig á börnin mín á jólum. Hann hafði unnið á eins gröfu í mörg ár. Eigandi safnsins sá afa hoppa upp í gröfuna og þó að þeir töluðu ekki sama tungumál skildu þeir hvor annan mjög vel á þess- ari stundu. Á sama tíma tóku þeir báðir um bæði hnén og skelltu upp úr. Þessi tiltekna grafa var ástæðan fyrir því að báðir menn- irnir voru núna með ónýt hné. Einu sinni í viku töluðum við saman í síma og hafði hann sér- staklega gaman af því að heyra hvað langafabörnin hans voru að gera. Við eigum eftir að sakna langafa mikið. Afi var minn helsti stuðnings- aðili og það er með mikilli sorg sem ég kveð hann. Elna Ósk. Við andlát frænda míns og vin- ar er margs að minnast. Stefán var einkabarn móður sinnar, en vegna veikinda hennar var hann að mestu alinn upp hjá ömmu sinni og afa, Steinunni og Stef- áni. Þar fékk hann þá umhyggju og kærleik, sem hann bjó að alla ævi. Á þessum árum var það al- gengt að unglingar gengju til al- mennra starfa á sumrin. Þannig hófst okkar samstarf og vinátta, þegar við réðumst til starfa hjá Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar, ásamt Gunnari Sigvaldasyni, og unnum í frystitækjadeild undir stjórn Áka Þorsteinssonar. Það var gáski og léttleiki yfir okkur og þegar sá gállinn var á tóku þeir Stefán og Áki lagið, en Áki hafði einstaka tenórrödd, háa og tæra. Við vorum svo heppnir að Sigvaldi, pabbi Gunna, leyfði okkur að hafa aðgang að sjóhús- inu hans. Þar gátum við beitt okkar línu og gert að aflanum. Við vorum auðvitað í fullri vinnu á frysti- húsinu, en notuðum kvöldin til beitningar og lögðum línuna fyr- ir nóttina. Við þurftum að taka daginn snemma, draga þessi bjóð sem við lögðum kvöldið áður og mæta á réttum tíma í vinnuna. Þegar þeim vinnudegi lauk á frystihúsinu gátum við farið að gera að aflanum, sem við flöttum og söltuðum. Í lok sumars feng- um við matsmann til að meta af- rakstur sumarsins og gátum þannig flutt út í okkar nafni og okkar reikningi. Enginn milliliður og allt var fært til bókar, kostnaður og tekjur. Kannski höfðu þessi ung- lingsár áhrif á það sem síðar varð, en það er önnur saga. Stefán var nokkrum árum eldri en við Gunni og hann kunni til allra verka. Við unglingarnir reyndum eft- ir bestu getu að hlýða skipstjór- anum. Sem dæmi um hagleik hans, þá tók hann eftir sumarið litlu vélina úr Geir og fór með hana upp á efri hæð í litla timb- urhúsinu ömmu hans og afa, yf- irfór vélina og vildi sannreyna að allt væri í lagi, startaði henni, með þeim afleiðingum að húsið hristist eins og stór jarðskjálfti hefði skollið á því, en sem betur fór varð enginn skaði af. Þegar ég nú lít til baka til þessara dýrlegu daga unglings- áranna sé ég fyrir mér þegar við sigldum snemma morguns út fjörðinn okkar, sólin rétt vöknuð, tignarleg fjöllin speglast í slétt- um haffletinum, og Stefán stend- ur í stafni og syngur hárri röddu Suður um höfin … Tíminn líður og alvara lífsins tekur við. Stefán gerðist verk- taki hjá Ólafsfjarðarbæ, sá um sorphirðu við frumstæðar að- stæður, vann það verk af kost- gæfni og mæltist það vel fyrir hjá bæjarbúum. Síðar gerðist Stefán bóndi á Þóroddsstöðum, en varð að bregða búi eftir bruna bæjarins. Þá flutti hann aftur í bæinn og vann almenn fiskvinnslustörf. Síðustu árin reyndust erfið. Hann gat þó nýtt sér hæfileika sína og tálgaði úr tré marga fallega hluti sem hann seldi eða gaf vinum og ætt- ingjum. Ekki má gleyma tónlistar- áhuga Stefáns. Hann var alla tíð virkur í sönglífi bæjarins og tón- list var hans hjartans mál. Ég sendi hans góðu eigin- konu, Sigurbjörgu, börnum Stefán G. Ásberg ✝ Stefán G. Ás-berg fæddist 13. ágúst 1932. Hann lést 14. apríl 2019. Stefán var jarð- sunginn 26. apríl 2019. þeirra og öðrum ættingjum samúðarkveðjur úr fjarlægð. Jón Þorvaldsson. Í ágúst 1932 fæddust tveir kok- hraustir Ólafsfirð- ingar með þriggja sólarhringa milli- bili. Strax og þeir stóðu á fótum urðu þeir perluvinir og hafa ver- ið það síðan. Þetta voru Stefán Ásberg og Anton Sigurðsson. Ólafsfjörður var ævintýra- staður fyrir djarfa drengi; fjar- an, sjórinn, gríðarhá fjöll allt í kring og kafsnjór milli fjalls- tinda og fjöru. Ólafsfjörður var gjöfull sínu fólki en ferðaleiðir að og frá voru oftar en ekki ófærar fólki og varningi nema sjóleiðis. Sjórinn og Múlinn voru harðir húsbændur. Þá voru engin Múla- göng, Héðinsfjarðargöng eða vegur yfir Lágheiði. Drengirnir urðu að mönnum. Stefán gerðist bóndi á Þórodds- stöðum, eignaðist yndislega konu og fimm mannvænleg börn. Þótt leiðir skildi var vinátta þeirra Antons alla tíð bjargföst. Anton fór að vetrum suður til mennta í Kennaraskóla Íslands, eignaðist líka ljómandi konu og tvær dætur. Þau komu sér upp fallegri íbúð fyrir norðan þar sem fjölskyldan dvaldi hvert sumar og oft skruppu þau á vet- urna líka. Fjölskyldur þessara vina og jafnaldra nutu þessara heim- sókna áratugum saman, öllum til gleði, og tryggðabönd styrktust. Heimili Stefáns og Sigurbjargar geislaði af gestrisni og angaði af fágætum góðgerðum. Stefán átti áhugamál fleiri en búskapinn. Hann lagði fyrir sig útskurð og eiga margir vandaða muni eftir hann svo sem klukk- ur, barómet o.fl. En alstærsta ástríða hans var söngur og hljómfögur tónlist. Fyrir mörgum árum keypti hann píanó í þeirri von að eitthvert barna hans myndi læra að spila, en annað lá fyrir þeim svo píanó- ið beið þögult eftir að einhvern bæri að garði, þó ekki væri nema til að spyrja til vegar. Stefán bauð fólki inn, leiddi það að hljóðfærinu og innti það eftir hvort það vildi ekki spila, en það gekk nú ekki alltaf eftir. Anton hafði nefnt það við vin sinn að í Skóla Ísaks Jónssonar, þar sem Anton var skólastjóri, kenndi kona sem spilaði á píanó. Stefán lyftist allur upp: Þú verð- ur að koma með hana hingað! Upp úr aldamótum 2000 var ég undirrituð komin til skjal- anna, gift Antoni og farin að venja komur mínar til Ólafs- fjarðar og farin að elska staðinn sem minnti mig á æsku mína á Húsavík. Þar hófst hjartanleg vinátta mín við þau Stebba og Lillu. Ég var undireins föðmuð og boðin velkomin, leidd að hljóðfærinu á meðan Lilla bar allt það besta á borð. Nú var tekið til við að syngja, upp úr ljósrituðum söngheftum, Stebbi hringdi í söngglaða vini. Þeir stóðu umhverfis píanóið og svo var sungið við raust tímunum saman! Minningar mínar um þennan hjartahreina söngelska vin okk- ar eru samofnar ógleymanlegri og nærandi vináttu þessara heiðurshjóna. Aldrei hef ég séð fullorðinn mann eins ljómandi af hamingju eins og Stebba, þegar þolinmóða píanóið hans fékk loks útrás og hljómur þess rann sam- an við hans eigin söng! Við Ant- on þökkum Stefáni að leiðarlok- um allt það bjarta sem við nutum með þeim Sigurbjörgu og biðjum afkomendum þeirra allr- ar blessunar! Herdís og Anton.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.