Morgunblaðið - 27.04.2019, Side 39
ATVINNA
Tækifæri á Akureyri
Nettó Glerártorgi leitar að jákvæðum, ábyrgðarfullum og kraftmiklum
verslunarstjóra sem hefur gaman af mannlegum samskiptum.
Allar nánari upplýsingar veitir Hallur Heiðarsson rekstrarstjóri Nettó - hallur@samkaup.is
Umsóknir skulu berast í gegnum heimasíðu Samkaupa – www.samkaup.is (Mannauður – Atvinnuumsóknir)
Umsóknarfrestur er til 12. maí 2019.
Starfssvið:
Ábyrgð á rekstri verslunar.
Samskipti við viðskiptavini og birgja.
Umsjón með ráðningu starfsmanna og
almennri starfsmannastjórnun í verslun.
Ábyrgð á vöruframsetningu og áfyllingum.
Ábyrgð á birgðahaldi í verslun.
Önnur tilfallandi störf.
Hæfniskröfur:
Marktæk reynsla af stjórnun og
starfsmannahaldi hjá verslunar- og/eða
þjónustufyrirtækjum.
Styrkleiki í mannlegum samskiptum,
sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni,
reglusemi og árvekni í hvívetna.
Verkefnastjóri Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2020
Evrópsku kvikmyndaverðlaunin (EFA) verða veitt í Hörpu í desember 2020. Verkefnið
er viðamikið samstarfsverkefni ríkis og borgar og er hátíðin haldin í nánu samstarfi og
samráði við Evrópsku kvikmyndaakademíuna.
Verkefnastjóri Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna heldur utan um alla þræði verkefnisins
í samráði við stjórn verkefnisins og Evrópsku kvikmyndaakademíuna.
Ráðgert er að í aðdraganda hátíðarinnar fari fram fjölmargir hliðarviðburðir tengdir
evrópskum kvikmyndum og kvikmyndagerð. Markmiðið er einnig að markaðssetja
Ísland og Reykjavík sem áfangastað fyrir ferðamenn og tökustað fyrir kvikmyndir, kynna
íslenska kvikmyndagerð og menningu og síðast en ekki síst að beina athyglinni að
Hörpu sem glæsilegu viðburðahúsi á heimsmælikvarða.
Um fullt starf er að ræða frá 1. ágúst 2019 út janúar 2021 en möguleiki á því að byrja í
hálfu starfi fyrr.
Helstu verkefni og ábyrgð
Verkefnastjóri hefur heildarumsjón með undirbúningi Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna
árið 2020. Verkefnastjóri vinnur samkvæmt fyrirliggjandi verkefna- og fjárhagsáætlun og
ber faglega og rekstrarlega ábyrgð gagnvart stjórn verkefnisins.
Verkefnastjóri leiðir saman samstarfsaðila, heldur utan um samningagerð, aflar styrkja
og gætir að því að ímynd verkefnisins sé í samræmi við þær áherslur sem fram hafa
verið settar um markmið og tilgang verkefnisins
Hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi.
• Reynsla af því að skipuleggja og stýra viðamiklum verkefnum eða viðburðum.
• Þekking og reynsla af menningarstarfi og markaðs- og kynningarmálum.
• Reynsla af alþjóðlegu samstarfi.
• Góð reynsla af rekstri og samninga- og áætlanagerð.
• Leiðtogahæfileikar, frumkvæði og skipulagsfærni.
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
• Hæfni til að vinna undir álagi og geta til að sinna mörgum verkefnum í einu.
• Góð íslenskukunnátta er kostur og hæfni til þess að tjá sig á ensku í ræðu og riti skilyrði
Umsóknarfrestur er til og með 12. maí. Umsóknir skulu sendar í gegnum vef
Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf.
Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjendur gera grein
fyrir hæfni sinni í starfið.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags
Nánari upplýsingar um starfið veitir Arna Schram sviðsstjóri menningar- og
ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar í tölvupósti arna.schram@reykjavik.is eða
Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar, í tölvupósti
laufey@kvikmyndamidstod.is.