Morgunblaðið - 27.04.2019, Síða 45

Morgunblaðið - 27.04.2019, Síða 45
Hálfmaraþon Guðrún í Reykja- víkurmaraþoninu í fyrra. dóttir, f. 5. apríl 1992, nemi í land- fræði við Háskóla Íslands, búsett í Reykjavík. Maki: Bjarki Geirdal Guðfinnsson. Barn: Viðja Geirdal Hólmfríðardóttir, f. 19. desember 2017; 2) Ísak Helgi Einarsson, f. 13. mars 2007. Systkini: Erla, f. 17. febrúar 1972, heimspekingur og kennari, búsett í Kópavogi; Jarþrúður, f. 19. mars 1979, tónlistarkona og jóga- kennari, búsett í Reykjavík, og Einar, f. 5. nóvember 1981, d. 20. ágúst 2001. Foreldrar Guðrúnar eru hjónin Karl Magnús Kristjánsson, f. 30. apríl 1948, viðskiptafræðingur, odd- viti og sveitarstjóri og fyrrverandi aðstoðarskrifstofustjóri Alþingis, og Helga Einarsdóttir, f. 1. apríl 1949, fyrrverandi leikskólakennari. Þau eru búin að vera gift síðan 1968 og eru búsett í Kópavogi og Fossá í Kjós. Guðrún Karls Helgudóttir Helga Gísladóttir ljósmóðir í Kjós og húsfreyja í Hafnarfirði Guðmundur Guðmundsson Breiðdal innheimtumaður í Hafnarfirði Jarþrúður Guðmundsdóttir kjólameistari og kaupmaður í Hafnarfirði og síðar í Reykjavík, lengst af bús. í Kópavogi Helga Einarsdóttir leikskólakennari Einar Árnason kaupmaður og skrifstofumaður í Hafnarfirði og síðar í Reykjavík, kaupfélagsstjóri í Vestmannaeyjum, lengst af bús. í Kópavogi Arnbjörg Sigurðardóttir húsfreyja í Vík í Mýrdal og á Minniborg Árni Einarsson kaupmaður í Vík í Mýrdal, Hafnarfirði og á Minniborg í Grímsnesi Elín Guðmundsdóttir verkakona í Rvík og brautryðjandi í jafnréttismálum Arna Einarsdóttir viðskiptafræðingur og kennari í Borgarnesi Guðlaug Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík Guðmundur Guðmundsson sjómaður í Reykjavík Guðrún Guðmundsdóttir prestsfrú og húsfreyja í Kjós Kristján Bjarnason múrari, viðskiptafræðingur og prestur á Raufarhöfn og í Kjós Ólafía Kristrún Magnúsdóttir húsfreyja í Reykjavík Bjarni Benediktsson bóndi og verkamaður í Reykjavík Úr frændgarði Guðrúnar Karls Helgudóttur Karl Magnús Kristjánsson viðskiptafræðingur, oddviti og sveitarstjóri og fyrrv. aðstoðarskrifstofustjóri Alþingis DAGBÓK 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2019 Borgartúni 22 og Skútuvogi 2, Reykjavík • Dalshrauni 11, Hafnarfirði • Hafnargötu 54, Reykjanesbæ • Gleráreyrum 2, Akureyri Sími 588 8000 • Opið 8.00–18.00 alla virka daga og 10.00–14.00 laugardaga • slippfelagid.is DÖGG „Dögg – Hinn fullkomni hlýi grái litur í alrýmið. Hentar vel fyrir björt og opin rými og er mjög kósý í svefnherbergi. Þó svo að hann sé hlýr þá er samt þessi fallegi reykur í honum. Hann faðmar mann auðveldlega og jarðtengir rýmið. Fallegur með öllum hlutlausum litum og muskuðum dökkum litum. – Sara Dögg Guðjónsdóttir, innanhúshönnuður. GÆÐIN Ein af ástæðum þess að íslenskir hönnuðir velja Slippfélagið. „ÞÚ ERT SVEI MÉR HEPPINN. ÉG MÁ EKKI DÆMA FÓLK EFTIR ÞVÍ HVERN ÞAÐ KAUS.” „ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ KOMA EKKI MEÐ NESTI!” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að verða hugfangin. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG LAS SHAKESPEARE Í DAG ÉG LAS ÞVOTTA LEIÐ- BEININGARNAR Á NÝJU SKYRTUNNI MINNI Í DAG! LÍSA OG ÉG HÖFUM VERIÐ AÐ RÆÐA BÓKMENNTIR SKYRTAN ÞÍN HEFUR HLAUPIÐ ÞETTA ER BARA SIGLING Í MYRKRI! ÞAÐ ER EKKERT AÐ SJÁ! ÞÚ ÞARFT AÐ RÆÐA VIÐ HANN! Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Tímamótin merk um ræðir. Mishæð hér á landi er. Mararbáran ólm, sem æðir. Auðarlín það heiti ber. Harpa á Hjarðarfelli svarar: Eru liðin aldamót. Alda sands við jökulfljót. Leikur alda létt við fót. Líka Alda heitir snót. Hér kemur svar Sigmundar Inga- sonar: Aldamót sem örskot framhjá þjóta Öldótt er foldin mjög á landi Jóta Við öldunnar nið er undur gott að hrjóta Alda frænka leirinn kann að móta. Eysteinn Pétursson á þessa lausn: Dýrð sé Guði um aldir alda. Öldur víða um landið ber. Úti á sjónum aldan kalda. Öldu fleytir lágt á sker. Guðrún Bjarnadóttir leysir gát- una þannig: Alllöng tíð frá aldamótum. Á öldu situr, – minnist þess að alda sleikti for af fótum –, fröken Alda, býsna hress. Helgi Seljan svarar: Víst teljast aldamótin merk, mishæðir gatna öldum valda. Alda á sjó er stormasterk, stöðugt og ágætt nafnið Alda. Helgi R. Einarsson á þessa lausn: Nú skal hugmyndum halda til haga og gáfunum tjalda, e.t.v. vonbrigðum valda, en vitaskuld er þetta alda. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Aldahvörfin um hér ræðir. Alda mishæð kölluð er. Vítt um sæinn aldan æðir. Alda er nafn, sem kona ber. Þá er limra: Svo mælti hún Oddfríður Alda, sem orðin var konan hans Valda: Ég þarf ekki’ á yður, Ólafur smiður, né öðrum, sem stendur, að halda. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Hjá mér allt í lyndi leikur, lífsins nýt á gönguför. Gátuvísu kveð ég keikur, kannski fæ við henni svör: Gáfaður og merkur maður. Meginþáttur allra laga. Heilagleiki hálofaður. Hann menn löngum að sér draga. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Nær ein alda rís

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.