Morgunblaðið - 27.04.2019, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 27.04.2019, Qupperneq 50
50 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2019 Tilkynnt var á sumardaginn fyrsta hvaða bækur hlytu Bókaverðlaun barnanna 2019, þegar þau voru afhent í 18. sinn. „Árlega tilnefna börn þær bækur sem þeim þykja skemmtilegastar, áhuga- verðastar eða bestar. Börn af öllu landinu kusu og alls fengu 117 bækur kosningu. Af þeim 117 bókum voru það fimm íslenskar og fimm þýddar barnabækur sem stóðu upp úr hjá börnunum,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að bækurnar tíu keppa áfram í kosn- ingu Sagna – verðlaunahátíðar barnanna sem verður sýnd á RÚV 1. júní. Íslensku bækurnar er í stafrófsröð titla: Fíasól gefst aldrei upp eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur; Henri rænt í Rússlandi eftir Þorgrím Þráinsson; Orri óstöðvandi eftir Bjarna Fritzson; Siggi sítróna eftir Gunnar Helgason og Þitt eigið tímaferðalag eftir Ævar Þór Benediktsson. Þýddu bækurnar eru: Dagbók Kidda klaufa eftir Jeff Kinney, þýðandi Helgi Jónsson; Handbók fyrir ofurhetjur, annar hluti: Rauða gríman eftir Elias Våhlund, þýðandi Ingunn Snædal; Leyndarmál Lindu: sögur af ekki- svo gáfaðri sem veit-allt eftir Rachel Renée Russell, þýðandi Helgi Jónsson; Miðnæturgengið og Verstu börn í heimi 2 eftir David Walliams, þýðandi Guðni Kolbeinsson. Bókaverðlaun barnanna 2019 Síðasta sýningarhelgi sýningar- innar Hringur, ferhyrningur og lína á Kjarvalsstöðum verður nú um helgina. Sýningarstjórarnir Ingi- björg Sigurjónsdóttir og Heba Helgadóttir leiða gesti um sýn- inguna í dag, laugardag, kl. 15 og ræða m.a. um verkin á sýningunni og feril Eyborgar Guðmundsdóttur. „Eyborg Guðmundsdóttir (1924- 1977) var sérstæður listamaður í íslenskum listheimi. Verk hennar byggjast á fyrirmyndum geómetr- ískrar abstraktlistar þar sem sjón- ræn áhrif reglubundinna forma eru megináherslan, stíll sem kenndur er við op-list (e. optical). Þetta er fyrsta yfirlitssýning á verkum Ey- borgar. Ferill hennar spannaði fimmtán ár, en hún náði að þróa persónulegt myndmál sem ein- kenndist af einföldum formum og sjónarspili,“ segir í tilkynningu frá safninu. Samhliða sýningunni hefur verið gefin út bók um Eyborgu og myndlist hennar. Sýningarstjórar Ingibjörg Sigurjónsdóttir og Heba Helgadóttir. Fjalla um Eyborgu í dag Hanna Dóra Sturludóttir mezzó- sópran og Snorri Sigfús Birgisson píanóleikari halda tónleika í Frí- kirkjunni í Reykjavík á mánudag kl. 20. Þar flytja þau nýjar þjóð- lagaútsetningar eftir Snorra Sigfús og enn fremur tónverkið Lieder eines fahrenden Gesellen eftir Gustav Mahler. „Hanna og Snorri héldu tónleika á landsbyggðinni í fyrra (í Stykkishólmi, á Akureyri og á Ísafirði) og á sérhverjum þess- ara tónleika frumfluttu þau útsetn- ingar eftir Snorra á þjóðlögum sem tengjast með einhverjum hætti við- komandi tónleikastöðum. Þannig urðu til þrjár syrpur sem heyrast nú í fyrsta sinn á höfuðborgarsvæð- inu,“ segir í tilkynningu og bent á að lögin séu varðveitt hljóðrituð í þjóðfræðisafni Árnastofnunar. Að- gangur er ókeypis. Dúó Hanna Dóra og Snorri Sigfús. Flytja nýjar þjóðlagaútsetningar Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is „Þetta eru myndir sem eru teknar í fátækrahverfum í borgunum Ríga og Daugvapils í Lettlandi á árunum 2014 og 2015,“ segir Spessi um sýn- ingu sína Módernísk arfleifð, sem hann opnar í Ramskram á Njálsgötu í dag kl. 17. Hann segir myndirnar hafa verið innblástur að myndum sem hann tók í Breiðholtinu og urðu að bókinni 111 og samnefndri sýn- ingu sem var haldin á síðasta ári. „Þessar myndir voru teknar áður en myndirnar úr Breiðholtinu voru teknar, en hafa aldrei verið birtar,“ útskýrir Spessi. Hann er fyrst og fremst portrett- ljósmyndari og hefur í ferðalögum sínum tekið portrettmyndir af fólki á stöðum sem flestir myndu forðast, að sögn hans. Sýningin að þessu sínni snýr að ungu fólki sem þarf að búa í módernísku umhverfi sem er ekki þeirra eigin sköpun, heldur fyrri kynslóða. Ósanngjarnar aðstæður Spessi segir hugmyndina um þetta viðfangsefni fyrst hafa vaknað eftir að hann sótti Ríga heim í tengslum við sýningu þar. „Ég fór að skoða þessi fátækrahverfi af áhuga og fékk ljósmyndara til þess að leið- segja mér um. Þá fór ég að taka myndir af þessum unglingum sem við hittum, við eyddum nokkrum dögum í þetta. Svo kom ég aftur árið eftir og fór bæði til Ríga og líka borgarinnar Daugavpils, þar tók ég líka myndir af þessum unglingum. Mér fannst þeir vera eins og leik- soppar örlaganna; í einhverjum að- stæðum sem kannski eru ekki sann- gjarnar af hálfu samfélagsins,“ útskýrir hann. Portrettljósmyndarinn segist lengi hafa haft áhuga á þessum byggingarstíl. Það má merkja í bók hans Location frá árinu 2007, en þar eru myndir af íslenskum byggingum frá sjöunda og áttunda áratugnum. Þá tók hann sérstaklega eftir stórum blokkum í fátækrahverf- unum í Lettlandi og tengdi það við byggingarstíl sem hann einnig hafði séð á Íslandi. „Mér fannst svolítið áhugavert þetta byggingartímabil og fór síðan að skoða hvaðan þessar blokkir komu,“ segir Spessi og bend- ir á að við nánari skoðun hafi komið í ljós að stíllinn er módernismi. Alltaf mistekist Segir hann stílinn hafa orðið vin- sælan sérstaklega eftir seinni heims- styrjöld, en eitthvað hafi farið úr- skeiðis þegar aðferðafræði módern- isma var beitt við byggingu íbúða fyrir fátækt fólk. Var það gert með því að mörgum var komið fyrir í einni byggingu, oft í úthverfi, og markmiðið að öll þjónusta yrði að- gengileg á svæðinu. „Þetta er kannski sósíalísk pæling að koma þaki yfir fátækt fólk og þessi upp- bygging var gerð í kringum 1950 og 1960, bæði í Rússlandi og í Ameríku. Þetta hefur samt alltaf mistekist einhvern veginn. Skorti jarðtengingu Það eru þarna allir með sama vandamálið; það eru allir fátækir og allir fátækir settir á sama stað. Það leysir ekki neinn vanda. Svo er þetta svolítið tvíbent þar sem þetta snertir kapítalismann. Þessir ríku vilja ekki hafa þessa fátæku neitt nálægt sér og setja þá út í jaðarinn,“ segir Spessi en tekur fram að það hafi ver- ið útópísk hugsjón í módernism- anum að baki því að þessi hverfi væru ekki miðsvæðis. Talið var að meiri lífsgæði væru í úthverfunum. Í slíkum stórum íbúðabyggingum missir fólk ákveðna jarðtengingu og ekki síður mannlega tengingu við nærumhverfi sitt, þar sem í blokkum með yfir þúsund íbúa eru litlar líkur á að fólk þekki nágranna sína, að sögn Spessa. Leiksoppar örlaga Ljósmynd/Spessi Myndefnið Spessi hefur lagt áherslu á unga fólkið í fátækrahverfunum.  Spessi opnar sýningu í dag  Ungt fólk sem burðast með móderníska arfleifð  Efnið innblástur af fyrri verkum Seinni tónleikar Stirnis Ensemble á yfirstandandi starfsári tónleika- raðarinnar Hljóðana í Hafnarborg fara fram í listasafninu á morgun, sunnudag, kl. 20. „Stirni Ensemble hefur verið staðarlistahópur tón- leikaraðarinnar starfsárið 2018- 2019. Hópinn skipa Björk Níels- dóttir sópran, Grímur Helgason klarínettuleikari, Hafdís Vigfús- dóttir flautuleikari og Svanur Vil- bergsson gítarleikari. Efnisskrá tónleikanna er rapsódísk, þar sem flakkað verður frjálslega á milli ólíkra hljóð- og hugmyndaheima úr öllum áttum. Frumflutt verður nýtt verk eftir Þórunni Grétu Sig- urðardóttur, sem samið er sér- staklega í tilefni tónleikanna. Ásamt flutningi nýlegra verka Sól- eyjar Stefánsdóttur, Steinunnar Arnbjargar Stefánsdóttur og Arn- gerðar Maríu Árnadóttur, sem út- færð hafa verið sérstaklega fyrir hópinn í tilefni tónleikanna,“ segir í tilkynningu. Rapsódískir tónleikar Stirnis Ensemble „Undurfalleg trúartónlist hljóm- ar á vortónleikum tónlistardeildar LHÍ og Listvina- félags Hallgríms- kirkju,“ segir í til- kynningu um tónleika sem haldnir verða í Hallgrímskirkju í dag kl. 14. „Tón- listin spannar margar aldir, allt frá endurreisn til okkar tíma en á efnis- skrá er kórtónlist, hljóðfæra- og ein- söngstónlist eftir Tallis, Byrd, Benn- ett, de Victoria, Buxtehude, Bach, Mozart, Schubert, Dubois, Bruckner og nemendur tónsmíðadeildar LHÍ.“ Flytjendur eru Matthías Harðar- son á orgel, Sigurlaug Björnsdóttir á þverflautu, Olea Jónsdóttir Flø á básúnu, Fredrik Schjerve tenór, Símon Karl Sigurðarson á klarínett, Íris Björk Gunnarsdóttir sópran, Hjalti Þór Davíðsson á píanó, Eirik Waldeland barítón, Guðný Charlotta Harðardóttir á píanó og orgel, Anna Þórhildur Gunnarsdóttir á píanó, Steinunn Björg Ólafsdóttir sópran og kór LHÍ. Hallgrímskirkja Vortónleikar tónlistardeildar LHÍ Haldið verður málþing um deilur í list í almannarými í dag, laugardag, kl. 13 á Kjarvalsstöðum. Fram kem- ur í tilkynningu skipuleggjenda að málþingið er hluti sérstakrar áherslu Listasafns Reykjavíkur fyr- ir árið 2019 sem snýr að list í al- mannarými og er þetta annað mál- þingið af þremur sem hafa verið skipulögð í vor. Þá segir að „þegar listaverk eru sett upp í almannarými má búast við að fólk hafi sterkar skoðanir á þeim. Skoðanaskiptin geta jafnvel orðið að heitum deilumálum þar sem tekist er á um fagurfræði verk- anna, staðsetningu, öryggi almenn- ings og jafnvel tilfinningar eru til umræðu“. Frummælendur verða Guðni Tómasson listfræðingur, Brynhild- ur Þorgeirsdóttir listamaður og Ólöf Kristín Sigurðardóttir safn- stjóri. Markús Þór Andrésson fer með fundarstjórn. Ræða deilur um list í almannarými PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.