Morgunblaðið - 27.04.2019, Síða 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2019
DA CAPO
VIÐTALSTÓNLEIKAR GUNNAR GU BJÖRNSSON
NÁNAR Á
S A L U R I N N . I S
8.04.19 KL.16:
SIGRÚN
HJ LMTÝSDÓT IR
DIDDÚ
Ný sending –
frábært úrval
Flottir
í fötum
Laugavegi 77, 101 Reykjavík - Sími 551-3033
gallabuxur
Yuli er nýjasta myndspænska leikstjórans Icí-ar Bollaín. Hún hefurmeðal annars sent frá sér
hina stórgóðu También la Lluvia
(2010), sem fjallaði um kvikmynda-
gerðarfólk sem vinnur að mynd um
landnám Kristófers Kólumbusar í
Suður-Ameríku. Myndin velti vöng-
um yfir skelfilegum afleiðingum
nýlendustefnunnar og fléttaði per-
sónulegu drama saman við pólitík
Suður-Ameríku með mjög góðum
árangri. Bollaín endurtekur leikinn
að vissu leyti í Yuli, myndin fjallar
fyrst og fremst um einn mann, en
segja má að saga og menning Kúbu
sé mikilvægasta aukapersónan.
Yuli er ævisöguleg mynd um
ballettdansarann Carlos Acosta.
Acosta, sem er alltaf kallaður Yuli
af sínum nánustu, er fæddur og
uppalinn í Havana á Kúbu. Frá
unga aldri er ljóst að hann hefur
mikla danshæfileika. Hann er
skikkaður í dansnám af föður sín-
um, sem er gríðarlega kröfuharður,
svo mjög að hann verður ofbeldis-
fullur. Við fylgjumst með Yuli í lífi
og starfi, frá því hann er lítill fátæk-
ur strákur í Havana þar til hann er
heimsfrægur ballettdansari.
Ég hef heyrt Carlosar Acosta
getið en get ekki sagt að ég hafi vit-
að neitt um hann áður en ég sá
myndina, annað en hann væri ball-
ettdansari. Saga hans er svo sann-
arlega áhugaverð og það skiptir
engu máli þótt áhorfandinn hafi
enga þekkingu á Yuli eða klass-
ískum dansi, þetta er mannleg og
dramatísk saga sem á erindi til
hvers sem er.
Myndin byrjar í samtímanum, þar
sem Yuli er að setja upp dansverk
um ævi sína. Þetta dansverk er eins
konar kjarni myndarinnar, út frá
þessum kjarna ferðumst við fram og
aftur í tímann og við kynnumst Yuli
á mismunandi æviskeiðum. Þetta
virkar oftast nokkuð vel og myndin
er prýðilega byggð. Engu að síður
er stundum undarlegt hvaða hlutir
enda í kastljósinu, stundum er
skautað nokkuð hratt yfir atriði sem
manni finnst mikilvæg, eins og t.d.
veikindi systur Yulis, á meðan dvalið
er við hluti sem eru lítilvægir og
jafnvel endurtekningasamir.
Sem ævisögumynd um listamann
er Yuli að vissu leyti óvenjuleg. Í
slíkum myndum fylgist maður
gjarnan með listamanni, sem lifir við
fátækt eða býr á ómögulegu heimili,
leggja allt í sölurnar til að „meik-
aða“. Yuli býr vissulega við bæði fá-
tækt og slappar fjölskylduaðstæður
en hann hefur engan áhuga á að rísa
til metorða. Hann er neyddur í
danstíma, því faðir hans telur hann
hafa náðargáfu og að það séu örlög
hans að vera dansari. Yuli langar
hins vegar bara að spila fótbolta
með vinum sínum og hafa það náð-
ugt með fjölskyldunni. Hann sinnir
dansnáminu með hálfum hug og
skrópar í skólann, þótt honum sé
iðulega refsað fyrir trassaskapinn.
Þrátt fyrir linnulaus mótmæli kemst
hann ekki undan því að halda dans-
náminu áfram og að endingu verður
hann bestur í heimi, gegn vilja sín-
um. Þegar hann er orðinn stálpaður
og farinn að dansa með virtum dans-
flokkum erlendis eimir enn eftir af
mótþróanum.
Yuli fæðist með marga þunga
bagga á herðunum. Fyrir það fyrsta
er hann eini sonur foreldra sinna og
þau gera miklar kröfur til hans,
meiri en þau gera til systra hans að
minnsta kosti. Faðir hans minnir
hann líka viðstöðulaust á uppruna
sinn, að hann sé afkomandi þræla og
að sem svartur maður þurfi hann að
leggja tífalt meira á sig til að ná
árangri. Í þriðja lagi er hann frá
Kúbu, sem hefur óhjákvæmilega í
för með sér að hann á í flóknu sam-
bandi við land og þjóð. Í aðra rönd-
ina elskar hann Kúbu en á sama
tíma harmar hann fátæktina og ein-
angrunina. Þessar mótsagnir sjást
vel í sviðsmyndinni, Havana er svo
sannarlega litrík og falleg en hún er
líka niðurnídd og grá.
Yuli langar að tilheyra kúbönsku
samfélagi en hann glímir við eilífa
togstreitu því allir í kringum hann,
sérstaklega faðir hans og kennarar,
hvetja hann til að fjarlægjast því. Í
einu atriði snýr hann aftur til Kúbu
eftir langa dvöl erlendis og finnur
fyrir þessari togstreitu sem aldrei
fyrr. Hann er snyrtilega klæddur og
með fína ferðatösku, enda ekki leng-
ur slyppur og snauður. Þegar ungur
drengur kemur upp að honum og
betlar kemur fát á Yuli og hann út-
skýrir að hann sé ekki ferðamaður,
hann sé heimamaður og á endanum
þekkir drengurinn hann aftur. Yuli
stingur í stúf við samlanda sína á
Kúbu, af því hann er ekki að bugast
undan fátækt, og hann stingur líka í
stúf í London og Bandaríkjunum og
hvert sem hann fer til að dansa.
Hann á því einhvern veginn hvergi
heima.
Eðli málsins samkvæmt er dans-
inn leiðarstef í myndinni og hún er
full af frábærum dansatriðum.
Gjarnan er tilfinningaþrungnum
augnablikum úr lífi Yulis fylgt eftir
með dansatriði, þar sem við sjáum
undanfarandi senu túlkaða með
dansi. Yuli dansar meðal annars
hlutverk föður síns í feikilega sterku
dansatriði sem varpar ljósi á hið
mótsagnakennda samband grimmd-
ar og ástar sem ríkir á milli Yulis og
föður hans.
Yuli er heillandi mynd um lífið og
listina. Sagan er harmþrungin en
hún er jafnframt full af von og feg-
urð. Myndin höfðar að öllum lík-
indum sérstaklega til fólks sem hef-
ur áhuga á dansi en hún einskorðast
síður en svo við þann hóp, því sagan
er og merkileg og ætti að hreyfa við
öllum sem hafa unun af góðu drama.
Ég dansa ekki
Von „Yuli er heillandi mynd um lífið og listina. Sagan er harmþrungin en hún er jafnframt full af von og fegurð.“
Bíó Paradís
Yuli bbbmn
Leikstjórn: Icíar Bollaín. Handrit: Paul
Laverty og Carlos Acosta. Kvikmynda-
taka: Alex Catalán. Klipping: Nacho Ruiz
Capillas. Aðalhlutverk: Carlos Acosta,
Keyvin Martínez, Edlison Manuel Olbera
Núñez, Santiago Alfonso og Laura De la
Uz. 111 mín. Kúba, Bretland og Spánn,
2018.
BRYNJA
HJÁLMSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Mass Confusion nefnist danssýning
eftir Andrean Sigurgeirsson í sam-
vinnu við dansara FWD Youth
Company sem sýnd verður í Tjarn-
arbíói annað kvöld kl. 20. „Ótelj-
andi hliðar sjálfs þíns í stöðugri leit
að nýjum sjálfsmyndum. Þú skapar
heilt ríkidæmi af sjálfum en tjáning
þín er takmörkuð. Jafnvel ertu að
reyna að flýja fjarlægan heim með
því að tengja þig við veruleika þar
sem tjáningarfrelsið er ótakmark-
að, spegilmynd
hugsana þinna.
Sumir upplifa
frelsi, aðrir inni-
lokun og allt þar á
milli. Tengir þú þig
betur við þitt ein-
faldasta form eða
hið íburðamikla?
Hvort þeirra er hið
náttúrulega, hið
ósvikna? Er það
firring að leita eftir svari um hver
þú ert í þessari yfirþyrmandi ring-
ulreið samfélagsins,“ segir í til-
kynningu frá hópnum um verkið.
Dansarar eru Aþena Örk Ómars-
dóttir, Birna Karlsdóttir, Bjartey
Elín Hauksdóttir, Emilie Anne Jó-
hannsdóttir Salvesen, Eyrún Andr-
ésdóttir, Guðrún Mist Hafsteins-
dóttir, Katie Hitchcock, Kristný
Eiríksdóttir, Lena Margrét Jóns-
dóttir og Lísandra Týra Jónsdóttir.
Í stöðugri leit að nýjum sjálfsmyndum í Tjarnarbíói
Andrean
Sigurgeirsson
15.15-tónleikasyrpan hefur göngu
sína á ný í Breiðholtskirkju í dag,
laugardag, kl. 15.15 eftir um árs hlé
með tónleikum blásaraoktettsins
Hnúkaþeys.
„Eins og oft áður frumflytur
Hnúkaþeyr ný íslensk tónverk fyrir
blásaraoktett. Að þessu sinni eru
það Haraldur Vignir Sveinbjörns-
son, sem hefur samið tónverkið
„Punktar, kommur, strik“, og Stein-
grímur Þórhallsson, sem hefur sam-
ið „Grátt gaman fyrir Hnúkaþey“.
Eitt af burðarverkum tónleikanna
verður Partíta í Es-dúr eftir tékk-
neska óbóleikarann og tónskáldið
Josef Triebensee. Þá verður leikinn
stuttur einþáttungur, Rondino, eftir
Ludwig van Beethoven þar sem
hornin gegna óvenju mikilvægu
hlutverki. Ungverskir dansar eða
Contrafacta Hungarica eftir ung-
verska tónskáldið Ferenc Farkas
verða einnig á dagskrá,“ segir í til-
kynningu frá skipuleggjendum.
Flytjendur á tónleikunum eru Pet-
er Tompkins og Eydís Franzdóttir á
óbó, Ármann Helgason og Rúnar
Óskarsson á klarinett, Frank
Hammarin og Guðmundur Andri
Ólafsson á horn og Snorri Heimisson
og Kristín Mjöll Jakobsdóttir á fa-
gott. Blásaraoktettinn Hnúkaþeyr
var stofnaður árið 2003. Hann leikur
klassíska oktetta frá 18. og 19. öld í
bland við ný íslensk verk.
Hnúkaþeyr í Breiðholtskirkju kl. 15.15
Hlý fjallagola úr suðri Blásara-
oktettinn Hnúkaþeyr kemur fram.
Saga Sigurðardóttir, dansari og
danshöfundur, leiðir danssmiðju á
fjölskyldustund í Gerðarsafni í dag,
laugardag, milli kl. 13 og 15 þar
sem listakrákan Iða verður höfð til
fyrirmyndar. „Gerðarsafn, í sam-
starfi við myndlistarkonuna Eddu
Mac, skapaði listakrákur til að auð-
velda miðlun myndlistar til barna
og gegnir hver þeirra sínu hlut-
verki. Listakrákan Iða skoðar til að
mynda myndlist út frá hreyfingum
sem finna má í listaverkum. Saga
kennir hvernig dans og dansspuni
getur orðið til út frá myndum, lit-
um, tilfinningum og hljóðum,“ segir
í tilkynningu. Þar kemur fram að
Saga lauk danshöfundanámi frá
ArtEZ Dansakademie í Hollandi og
Meistaragráðu í sviðslistum frá
LHÍ. Hún hefur um árabil starfað
sjálfstætt sem dansari og höfundur
með ýmsum listamönnum bæði hér-
lendis og víðar um Evrópu. Að-
gangur á viðburðinn er ókeypis.
Danssmiðja í Gerðarsafni í dag
Danshöfundur Saga Sigurðardóttir.