Fréttablaðið - 15.06.2019, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 15.06.2019, Blaðsíða 6
GRILLJÓN ástæður til að grilla www.kronan.is ... því það er svo fljótlegt LYFJALAUS VERKJASTILLING! LÁTA LÍKAMANN LINA VERKINA! • ENGAR AUKAVERKANIR • VATNSHELDIR • DUGA Í ALLT AÐ 5 DAGA ALLT HÁLS HNÉ BAK AXLIR FÁST Í APÓTEKUM UM LAND ALLT! FIT VERKJAPLÁSTRAR Stendur undir nafni ALÞINGI Ragna Árnadóttir, aðstoð- arforstjóri Landsvirkjunar og fyrr- verandi dómsmálaráðherra, mun taka við embætti skrifstofustjóra Alþingis 1. september næstkom- andi. Hún verður fyrsta konan til að gegna embættinu. Frá þessu greindi Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, við upphaf þingfundar í gærmorgun. Ragna tekur við embættinu af Helga Bernódussyni en hann hefur gegnt starfi skrifstofustjóra þings- ins frá 2005. Þr ig g ja manna hæf isnef nd fór yfir þær tólf umsóknir sem bárust og gerði tillögu um hvaða umsækjendur kæmu til greina. Sérstök undirnefnd forsætis- nefndar þingsins tók viðtöl við þá umsækjendur og lagði til við for- sætisnefnd að Ragna yrði skipuð. Sú tillaga var samþykkt í forsætis- nefnd. R ag na er lög f ræðing u r að mennt, með embættispróf í lög- fræði frá Háskóla Íslands, auk þess að vera með LL.M. gráðu í Evrópu- rétti frá Háskólanum í Lundi. Hún hefur starfað á skrifstofu Alþingis, skrifstofu Norðurlandaráðs, í heil- brigðis- og tryggingamálaráðu- neyti, dóms- og kirkjumálaráðu- neyti og forsætisráðuneyti. Þá hefur hún gegnt embætti dóms- og kirkjumálaráðherra og síðar embætti dómsmála- og mannréttindaráðherra og er nú aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar. Samhliða þessum störfum hefur Ragna gegnt margs konar ábyrgð- ar- og trúnaðarstörfum. – dfb Ragna verður skrifstofustjóri Alþingis Ragna tekur við starfinu í byrjun september. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR KJARAMÁL Orlofssjóður BHM hyggst ekki endurgreiða ónotuð gjafabréf frá WOW air. Er þeim sjóðfélögum sem eiga ónotað gjafabréf bent á að gera almenna kröfu í þrotabú flug- félagsins. Líkt og fjölmörg stéttarfélög bauð BHM félagsmönnum sínum að kaupa gjafabréf hjá flugfélögum. Hjá BHM var hægt að kaupa gjafabréf hjá WOW air frá 2016 þangað til í mars síðastliðnum þegar flugfélagið fór í þrot. Var þá hægt að kaupa 30 þús- und króna gjafabréf fyrir rúmar 20 þúsund krónur. VR, SFR og Sameyki hafa öll heitið því að endurgreiða ónotuð gjafabréf sem sjóðfélagar hafa keypt í gegnum þau. Öll þessi stéttarfélög miða við ár aftur í tímann, eða við gildistímann fram að gjaldþroti f lugfélagsins. Athygli vekur að þegar VR kynnti gjafabréfið á sínum tíma var sjóð- félögum bent á að lesa skilmálana vel. Lilja Grétarsdóttir, formaður orlofssjóðs BHM, segir að stjórnin hafi farið gaumgæfilega yfir málið. Leitað hafi verið ráðgjafar hjá Neyt- endasamtökunum, lögmönnum og skiptastjóra þrotabús WOW air. Nið- urstaðan var að ekki séu forsendur fyrir því að sjóðurinn endurgreiði gjafabréfin. „Það var farið yfir það hjá sjóðn- um að á árinu fyrir gjaldþrot WOW var veltan í gjafabréfum hjá sjóðnum rúmlega 38 milljónir. Það er ekki líklegt að ekkert af þeim hafi verið notað,“ segir Lilja. Ef miðað er við að gjafabréfið kosti 20 þúsund krónur má gera ráð fyrir að sjóðfélagar hafi keypt tæplega 1.900 gjafabréf hjá WOW air í gengum BHM á árinu fyrir fall flugfélagsins. Stjórnin veit ekki hversu mörg gjafabréf hafa verið nýtt. „Það getum við aldrei vitað. WOW air skuldaði fyrirtækinu sem sá um bókunar- kerfið þeirra umtalsverðar fjár- hæðir, þannig að því var lokað. Það hefði orðið að bera traust til þess að þeir sem kæmu fram gerðu það með heiðarlegum hætti. Það hefði verið mikil óvissa með þessi bréf.“ Samkvæmt ársreikningi BHM var eigið fé orlofssjóðsins 1,1 milljarður, þar af er stór hluti bundinn í fast- eignum. Rekstrarhagnaður síðasta árs nam 97,7 milljónum króna.  Á sjóðurinn 91,2 milljónir króna í haldbæru fé. Þó svo að stjórnin harmi ákvörð- un um slíkt myndi, að mati stjórnar, endurgreiðsla skapa varhugavert for- dæmi. Lilja segir það mismunandi eftir sjóðum hversu mikið sé undir, orlofssjóður BHM hafi verið með mikil viðskipti með gjafabréfin. Það hafi verið samdóma álit allra sem stjórnin leitaði til að sjóðnum bæri ekki skylda til að taka þetta á sig. „Þegar þú kaupir þessi bréf þá blasa við skilmálar um að í engu tilviki séu þau endurgreidd,“ segir Lilja. Það má segja að það hefði verið af brigðilegra að ákveða, af svona sjóði sem er að sýsla um fé stórs hóps, að setja svona mikla peninga til handa litlum hópi. Það færi í raun gegn þeim reglum sem um þetta gilda. Eftir að hafa velt þessu máli fyrir okkur þá komumst við að þess- ari niðurstöðu.“ arib@frettabladid.is BHM endurgreiðir ekki ónotuð gjafabréf Orlofssjóður Bandalags háskólamanna mun ekki endurgreiða ónotuð gjafa- bréf hjá WOW air sem sjóðfélagar keyptu í gegnum sjóðinn. Þurfa þeir sem eiga slíkt að gera kröfu í þrotabúið. VR og SFR bjóða upp á endurgreiðslu. Orlofssjóður BHM, líkt og sjóðir fjölda annarra stéttarfélaga, seldi gjafabréf í flug með WOW air allt þar til flug- félagið fór í þrot. Alls keyptu félagsmenn í BHM gjafabréf fyrir rúmlega 38 milljónir árið áður. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 1 5 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 5 -0 6 -2 0 1 9 0 4 :5 1 F B 0 8 0 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 3 A -F 9 B 4 2 3 3 A -F 8 7 8 2 3 3 A -F 7 3 C 2 3 3 A -F 6 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 8 0 s _ 1 4 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.