Skagablaðið - 19.12.1989, Qupperneq 17
Skagablaðið
17
bæra árangri um helgina að
hafna í 5. sæti í 100 m bringu-
sundi í úrslitum Evrópumeistara-
mótsins. Frábær árangur og aðe-
ins 12/100 frá Islandsmeti
hennar.
Eg hef æft vel að undanförnu
og er í góðu formi núna en
ég stefni að því að verða í topp-
þjálfun næsta sumar og ætla þá
að taka þátt í hinni óopinberu
heimsmeistarakeppni í sundi,
The Open World Cup In Swimm-
ing og fer fram í Róm á Ítalíu í
ágúst á næsta ári,“ sagði Ragn-
heiður. Hún er nú stödd hér
heima í jólafríi, en hún stundar
nú nám í Bandaríkjunum. Ragn-
heiður lagði lykkju á leið sína frá
Barcelona og kom við á íslandi
að þessu sinni.
Háskólabær
í sumar fór Ragnheiður og
unnusti hennar Óskar Adólfsson
til náms í Tuscaloosa í Alabama.
Ragnheiður stundar nám í
íþróttafræðum en Óskar er í
næringarfræði.
„Námið hjá okkur, ef allt gengur
að óskum ætti að taka 3 - 4 ár.
Tuscaloosa er fyrst og fremst
háskólabær með um eitt hundrað
þúsund íbúa. Mér bauðst góður
námsstyrkur frá skólanum ef ég
æfði og keppti fyrir hans hönd á
meðan ég stunda námið þarna.
Skólinn er mjög virtur og hefur
ætíð verið eftirsóttur af íþrótta-
fólki alls staðar úf heiminum,
auk Bandaríkjamannanna
sjálfra. Það eru 3 sundmenn í
skólanum sem eru í bandaríska
landsliðinu í sundi, auk lands-
liðsmanna frá Svíþjóð og
Japan.“
Ragnheiður sagði að öll að-
staða til þjálfunar væri stórkost-
leg þarna og gæti vart verið betri.
„Það eru 12 þjálfarar sem sjá
um okkur og má segja að hver
þeirra sé sérfræðingur á sínu
sviði, t.d. einn sér um bringu-
sundið, annar skriðsundið og svo
framvegis. Þetta getur því oft
orðið erfiður og langur vinnu-
dagur hjá okkur og er því nauð-
synlegt að skipuleggja daginn vel
í sambandi við æfingar og nám.
Námið hefur að sjálfsögðu alltaf
forgang og við sem erum á
íþróttaæfingum höfum aðgang
að kennurunum í sér viðtalstím-
um utan hefðundins skólatíma til
þess að við drögumst ekkert aft-
ur úr. Þá verðum við að standast
ákveðnar lámarkskröfum í ein-
kunnum til þess að fá áframhald-
andi námsstyrk. Þannig að
íþróttafólkið hjá skólanum verð-
ur að standa sig eins og hver ann-
ar námsmaður þrátt fyrir íþrótta-
æfingarnar“.
Sterkt fótboltalið
Ragnheiður sagði að auk
sundsins væru margar aðrar
íþróttagreinar stundaðar í
skólanum. Væri fótboltaliðið
þeirra sem spilar „Ameríska fót-
boltann“ eitt besta skólaliðið í
Bandaríkjunum og ætti það góða
möguleika á því að sigra í skóla-
keppninni þetta tímabil. Með
sigri í mótinu fengju þeir átta
milljóna dollara verðlaunafé,
sem renna mun til íþróttastarf-
seminnar í skólanum, og má því
segja að þeir hafi haldið hinum
íþróttagreinunum uppi með ár-
angri sínum á síðustu árum.
„Ég hef æft í vetur um það bil
fimm til sex tíma á dag,“ sagði
Ragnheiður. „Ég fer á fyrri æf-
inguna klukkan hálf sex á morgn-
anna áður en ég fer í skólann og
svo er önnur æfing seinnipartinn.
Ég tek svo þátt í skólakeppnum
flestar helgar. Þá keppum við
ýmist í Tuscaloosa eða ferðumst
til keppni. Það eru oft löng og
erfið ferðalög. Þá er oft lagt að
stað á miðvikudögum og keppt
síðan um helgar og ferðin getur
því tekið um fimm daga. Þá höf-
um við námsbækurnar með og
lesum á leiðinni og tíminn er því
vel nýttur."
Sigursæl
Ragnheiði hefur gengið geysi-
lega vel í þessum keppnum og
hefur undantekningalaust sigrað
í öllum þeim greinum sem hún
hefur tekið þátt í fyrir skólann.
Næsta stóra verkefni hjá henni í
Bandaríkjunum verður alþjóð-
legt skólamót kvenna í Houston í
Texas fljótlega á næsta ári. Þá
sagði hún að hún ætlaði að reyna
að keppa með íslenska landslið-
inu í sundi á ferð þess til Evrópu
í janúar og febrúar á næsta ári,
en það væri enn óljóst hvort af
því gæti orðið vegna námsins.
Ragnheiður sagðist ætla að
njóta þess að vera hérna heima
um jólin og hvíla sig frá námi og
hita Suðurríkjanna um sinn og
að sjálfsögðu að viðhalda þjálf-
uninni hér heima í Jaðarsbakka-
lauginni. Hún heldur síðan aftur
til Alabama 6. janúar og tekur þá
aftur við ströng þjálfun hjá
henni.
Ragnheiður Runólfsdóttir: Fór nánast beint í sundið úr flugvélinni.
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla með þökk
fyrir samstarfið á
árinu sem er að líða.
NÝÁR5DAGUR:
Indiana Jones og síðasta krossferðin
hinar tvær myndirnar með „Indy", ^Ranið á týndu örkinni" og „Idiana Jones And The
Temple Of Doom" voru frábærar en þessi er enn betri.
Harrison Ford sem „Indy" er óborganlegur og Sean Connery sem pabbinn bregðast
ekki frekar en fyrri daginn.
Indiana Jones og síðasta krossferðin er alvöru ævintýramynd sem veldur þér örugg-
lega ekki vonbrigðum enda í leikstjórn 5teven Spielbergs.
Sýnd a nýársdag kl. 15 og 21. Miðaverð kr. 400,-.
ANMARt
JÓLUM:
Jólasveinninn
Jólamynd eins ogjólamyndir eiga að
vera. Frítt inn fyrír alla fjölskylduna.
Sýnd kl. 15.
Dead Calm
Hér kemur hinn fullkomni „thriller” frá
þeim sömu og gerðu myndirnar
„Witches of Eastwick" og „Mad Max".
Sýnd kl. 21.
A AKRANESI