Skagablaðið - 19.12.1989, Side 22
22
Skagablaðið
— Þú varst mjög virk í leiklist-
arstarfinu á meðan þú bjóst á
Skaganum?
„Já, ég var bæði með Skaga-
leikflokknum og Leikklúbbi
Fjölbrautaskólans, lék í mörgum
þeim sýningum sem settar voru
upp af þessum félögum. Ætli
þetta séu ekki á bilinu sjö til níu
verk sem ég hef tekið þátt í. Svo
flutti ég til Reykjavíkur en sagði
nú samt ekki alveg skilið við leik-
listina, lék með Stúdentaleikhús-
inu í Draumleik eftir August
Strindberg. Svo vann ég sem
búningavörður í Iðnó og sem
hvíslari hjá Alþýðuleikhúsinu,
þannig að ég hafði alveg nóg að
gera.“
— Þú sóttir um inngöngu í
Leiklistaskóla íslands, var það
ekki?
„Jú ég gerði það en komst ekki
inn. Þannig að nú var annað-
hvort að duga eða drepast varð-
andi leiklistarnám. Eg ákvað
þess vegna að reyna fyrir mér
með skóla í Englandi og fór
þangað í þeirri von að ég kæmist
í einn slíkan. Ég var búin að fá
umsóknir frá nokkrum skólum
og fór í sex inntökupróf í þeim á
þessum mánuði (okóber 1985,
innsk. G.H.Á) sem ég var úti.“
Nám í Englandi
Ferð Guðfinnu til Englands
var ferð til fjár því hún komst
ekki bara inn í einn skóla, heldur
fjóra. Og þá var bara að velja:
„Ég endaði í The Arts Edu-
cational Schools, sem var stað-
settur í Barbican hverfinu í
London, sem er frekar miðsvæð-
is í borginni. Ég segi var staðsett-
ur því minn árgangur var síðasti
árgangurinn sem stundaði námið
á þessum stað því skólinn flutti í
annað hverfi,“ segir Guðfinna.
Spjall okkar berst að sjálfu
náminu og ég bið Guðfinnu að
segja mér aðeins frá því: „Þetta
er þriggja ára nám og skiptist
hver önn í þrjá hluta. Alveg frá
byrjun setur hver árgangur upp
tvö leikrit á önninni. Fyrstu tvö
árin er samfelldur skóladagur frá
kl. 10 á morgnana til kl. 6 á
daginn, síðan er æft á kvöldin og
stundum um helgar. Þannig að
þetta er geysileg vinna. Þriðja
árið er svo það sem við köllum
nemendaleikhús, við æfðum frá
kl. 2 á daginn og vorum ýmist í
smáhópum eða í einkakennslu
með leikstjóra. Skólinn er grund-
vallaður á svokallaðri Stanis-
lavsky tækni, en hún gengur út á
það í mjög grófum dráttum að
vinna persónuna sem leikarinn er
að vinna með innan frá og upp-
lifa hana innra með sér eins og
hægt er. Skólinn kennir mismun-
andi tækni og reynir sem hann
getur til þess að fá sem mest út úr
hverjum nemanda."
— Hvernig var aðstaðan og
kennararnir?
„Kennararnir voru að mínu
mati alveg sérlega góðir, t.d
höfðum við þarna mann að nafni
John Blatchley, sem er nánast al-
vitur á Shakespeare og hefur m.a
leikstýrt hjá Royal Shakespeare
Company, og Ensku óperunni og
í Frakklandi. Hann var alveg ein-
stakur. Hvað varðar húsnæðið þá
var það mjög þröngt en það voru
samt ótrúlegustu hlutir sem voru
gerðir þar. Nú er verið að byggja
leikhús við skólann, sem tekur
400 manns í sæti, þannig að það
breytir aðstöðunni svo um
munar.“
Fjölbreytt Ieikhúslíf
— Nú hlýtur þú að hafa kynnst
enskri leikhúsmenningu töluvert
á meðan þú varst úti. Hvernig
kom hún þér fyrir sjónir?
„Hún er geysilega fjölbreytt,
mikil breidd og ákaflega mis-
munandi með tilliti til hve miklir
peningar eru til staðar til þess að
framkvæma hlutina. Og það er
geysilega mikið af spennandi
hlutum að gerast. Það sama má
segja um íslenskt leikhúslíf, hér
er verið að framkvæma metnað-
arfulla hluti og ekki síst af
Ieikhópum sem eru litlir og hafa
yfir takmörkuðu fjármagni að
ráða.“
— Hvað finnst þér vera hlut-
verk leikhúss í nútíma samfélagi,
þurfum við leikhús nú á tímum
allrar þessarar fjölmiðlunar?
„Já, ég held að við þurfum
leikhús og við sjáum að í svo til
hverju einasta bæjarfélagi, sama
hversu lítið það er, er starfrækt
leikfélag eða einhvers konar
leikhópur. Þar þjónar leikhúsið
því hlutverki að vera skapandi
vinna fyrir þá sem standa að því,
ekki bara til þess að fá áhorfend-
ur, þó svo að leikhús sé ekkert án
áhorfenda. Ég held að leikhús
hljóti að þjóna tilgangi í nútíma
samfélagi og ég tel það ekki vera
í samkeppni við aðra fjölmiðla,
það stendur alltaf sér,“ segir
Guðfinna með ákveðni í rödd-
inni.
Verkið rifið niður
Lokaverkefni árgangs Guð-
finnu var leikritið The Shadow-
box eftir bandaríska leikrita-
skáldið Michael Christopher.
Þetta leikrit hefur verið þýtt á ís-
lensku og ber heitið Ofurefli.
Hefur það m.a verið flutt í Ríkis-
útvarpinu og sett upp af Leikfé-
lagi Húsavíkur.
Guðfinna segir að sér þyki á-
kaflega vænt um þetta stykki en í
því lék hún roskna bóndakonu
sem horfir í augu við dauðann,
en neitar þó að deyja fyrr en hún
sér dóttur sína, sem var þegar
látin á undan móður sinni. Eftir
að hafa lokið námi úti sneri hún
aftur til íslands í sumar og tók
hún þá þátt í uppsetningu leik-
ritsins í dauðadansi eftir ungan
höfund, Guðjón Sigvaldason.
Þetta verk var bókstaflega rifið
niður af gagnrýnendum og því
spurði ég Guðfinnu hvernig til-
finning það væri að vera þátttak-
andi í verki sem fengi slíka út-
reið: „Auðvitað er alltaf leiðin-
legt að taka þátt í sýningu sem
reynist mjög misheppnuð og
gengur ekki neitt. Hún fékk
slæma dóma þegar á heildina er
litið en við heyrðum þó samt fólk
tjá hrifningu sína á verkinu. Það
var aðallega gagnrýni Morgun-
blaðsins sem fór verst með sýn-
inguna, hún birtist fyrst, á föstu-
degi, og þá helgi voru 40 miðar
afpantaðir.“
— Átti verkið skilið þessa
slæmu gagnrýni að þínu mati?
„Mér fannst gagnrýni Morgun-
blaðsins ganga nokkuð út fyrir
það sem ég kalla gagnrýni. Höf-
undurinn var aðallega að lýsa
viðbrigðum sínum við viðtali við
höfund leikritsins sem hún hafði
lesið vikuna áður. Henni fannst
viðtalið gott en leikrtitð uppfyllti
ekki þær vonir sem hún hafði
gert sér. Sem dæmi um hina eig-
inlegu leikhúsgagnrýni í gagn-
rýninni má nefna sem dæmi að
leikararnir voru afgreiddir með
fjögurra orða setningu!!“
— En hvað ert þú að gera
núna?
„Núna er ég bara búðarkona,
vinn í íslenskum heimilisiðnaði,
sel þar jólasveina og allskonar
gjafavörur.“
— Ert þú hætt að leika?
„Nei, nei, vonandi ekki. Þetta
verður bara að hafa sinn gang.“
„Fram, fram fylking“
— En í þeim sýningum sem þú
hefur tekið þátt í þá hljóta nú að
hafa komið upp einhver skondin
atvik. Geturðu sagt mér frá ein-
hverju slíku?
„Eg held að ég gleymi því
aldrei þegar við settum upp fars-
ann Élsku Rut í Fjölbrauta-
skólanum. Ég átti að koma labb-
andi niður stiga ásamt tveimur
öðrum og söngla brúðarmarsinn
því „dóttir“ mín var um það bil
að gifta sig. En ég sönglaði vit-
lausan mars, sönglaði „Fram,
fram fylking,“ en mér tókst nú að
leiðrétta þetta. Svo lék ég í söng-
leik úti í vetur þar sem mótleik-
kona mín og ég lékum tvær
Hollywood-stjörnur. Við vorum
með kindabrúður framan á
höndunum og áttum að túlka
ýmislegt í gegnum þær bakvið
tjald, þannig að við sáumst nátt-
úrlega ekki. En þar sem mótleik-
kona mín var svo lítil þá þurfti ég
að hafa hana á herðunum og í
atriðinu þegar „kindurnar“ áttu
að koma syndandi að eyju þá féll
tjaldið niður þannig að þarna
stóðum við, eins og illa gerðir
hlutir, hún þarna uppi á mér. En
þetta reddaðist fyrir horn og ekki
sakaði að öll sýningin var í svona
„absúrd“ stíl.“
— En hver er eftirminnilegasti
leikstjóri sem þú hefur unnið
með?
„Ætli það sé ekki einn af leik-
stjórunum við skólann minn,
Andrew Visnevsky. Vinnubrögð
hans einkennast af geysilegum
aga, hann veit nákvæmlega eftir
hverju hann sækist og hann
þekkir takmörk hvers leikara
mjög vel. En hann fer aldrei yfir
mörkin og vinna hans er geysi-
lega skipulögð, en húmorinn er
aldrei langt undan heldur. Það
var mjög gott og lærdómsríkt að
vinna með honum, því hann tók
vinnuna aldrei of alvarlega".
— Að lokum, Guðfinna.
Margir leikarar segjast eiga upp-
áhaldshlutverk eða hlutverk sem
þá langi mikið til þess að takast á
við. Átt þú slíkt draumahlut-
verk?
Guðfinna hugsar sig um góða
stund en segir svo: „Eg veit það
nú ekki, ég reyni nú bara að gera
sem best úr hverju því hlutverki
sem ég tek mér á hendur. Jú, ég
get kannski nefnt það hlutverk
sem mig langar hvað mest til að
leika en það er Lafði Macbeth,
úr leikriti Shakepeare. Það verð-
ur kannski þegar ég verð orðin
„stór stelpa,“ sagði Guðfinna
Rúnarsdóttir að lokum.
HÝR FISKUR Nýkomnar stórar rækjur, harðfiskur og selspik. ■HððHBÍ í m* 1 TRÉSNÍÐI Get bætt við mig verkefnum. Hjörlcifur Jóusson 0 12299
V/S4 E | - - | ^ EUROCABD J Fiskbúð Sólveigar Háholti 35 — Sími 13236 (Gengið inn frá Stillholti) Spónaplötur, allar þykktir ■ Krossviður, þakjárn og stál ■ Margskonar byggingavörur ■ Alhliða byggingaþjónusta TRÉSMIÐJA SIGURJÓNS & ÞORBERGS ÞJÓDBRAUT 13 — SÍMI 11722
Eftirtalin fyrirtæki óska starfsfólki og viðskiptavinum sínum Tgleðilegrajóla meðþökk fyriráriðsem eraðlíða:
Tré5imiðja Sigurjóns og Þorbergs Nárstofan Stillholti Z Verslunin Einar Ólafsson
Lögmann55tofan Kirkjubraut 11 Qlerslípun Akraness Barbró
hf. 5kallagrímur Trico hf. Brautin hf.