Fréttablaðið - 06.07.2019, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 06.07.2019, Blaðsíða 62
Hvað? Hvenær? Hvar? Laugardagur hvar@frettabladid.is  6. JÚLÍ 2019 Sýning Hvað? Búkalú um lönd og lendar Hvenær? 21.00-23.59 Hvar? Havarí, Karlsstöðum, Beru- fjarðarströnd Fullorðins fjölbragðasýning með fjölda innlendra og erlendra kabarettlistamanna. Fjöllista- konan Margrét Erla Maack er prímus mótor. Tónleikar Hvað? Alþjóðlegt orgelsumar Hvenær? 12.00-12.30 Hvar? Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti Johannes Skoog, ung orgelstjarna frá Svíþjóð, f lytur verk eftir Mar- cel Dupré, Jehan Alain og Maurice Duruflé. Miðaverð 2.500 kr. Hvað? Marína & Mikael – sumar- djass Hvenær? 15.00-17.00 Hvar? Jómfrúin, Lækjargötu 4 – utandyra Marína Ósk Þórólfsdóttir söngur, Mikael Máni Ásmundsson gítar, Þorgrímur Jónsson kontrabassi, Matthías Hemstock trommur. Á efnisskrá eru meðal annars númer sem þekkt eru í f lutningi Billie Holiday og Lester Young, Ellu Fitz- gerald og Louis Armstrong. Jónasi og Jóni Múla Árnasonum verða gerð verðug skil. Aðgangur er ókeypis. Hvað? Jazz undir Fjöllum Hvenær? 14-17 Hvar? Byggðasafnið í Skógum – Samgöngusafn / Skógakaffi Sigurður Flosason: saxófónn, Vignir Þór Stefánsson: píanó, Leifur Gunnarsson: kontrabassi, Erik Qvick: trommur. Sérstakur gestur: Paulo Malaguti: söngur og píanó. Hvað? Eyþór Ingi – tónleikar Hvenær? 21.00 Hvar? Fishhouse Bar&Grill, Grinda- vík Hvað? Aðaltónleikar Jazz undir Fjöllum Hvenær? 21.00 Hvar? Félagsheimilið Fossbúð undir Eyjafjöllum Fram kemur tríó gítarleikarans Björns Thoroddsen ásamt söng- konunni og fiðluleikaranum Unni Birnu Bassadóttur. Sigurgeir Skafti Flosason leikur á bassa og Skúli Gíslason á trommur. Þau flytja fjölbreytta dagskrá uppáhalds- laga úr ólíkum áttum á sinn hátt, spjalla og grínast. Hvað? Hvenær? Hvar? Sunnudagur hvar@frettabladid.is 7. JÚLÍ 2019 Fjölskyldustund Hvað? Horfið aftur í tímann Hvenær? 13.00-16.00 Hvar? Árbæjarsafn Starfsfólk safnsins er í fatnaði frá 5. og 6. áratugnum. Háskóla- dansinn sýnir dansstíla. Spá- kona býður í stutt spjall. Í Hábæ vinnur húsfreyjan við að greiða nágrannakonum. Félagar í Forn- bílaklúbbnum kíkja í heimsókn. Ilmur af nýbökuðum lummum leikur um svæðið og á baðstofu- loftinu er tóskapur. Ókeypis aðgangur fyrir börn, öryrkja og handhafa Menningarkorts. Tónleikar Hvað? Syngið þið fuglar Hvenær? 14.00 Hvar? Strandarkirkja, Selvogi Lilja Guðmundsdóttir sópran, Kristín Sveinsdóttir mezzósópran og Helga Bryndís Magnúsdóttir, harmóníum og píanó, koma fram á tónlistarhátíð Strandarkirkju, Englar og menn. Aðgangseyrir 2.900 krónur. Hvað? Alþjóðlegt orgelsumar Hvenær? 17.00-18.00 Hvar? Hallgrímskirkja, Skólavörðu- holti Johannes Skoog, ung orgelstjarna frá Svíþjóð, leikur. Á efnisskrá eru verk eftir Claude Debussy, Jean- Louise Florentz, Marcel Dupré, Jehan Alain og Maurice Duruflé. Miðaverð 3.000 krónur. Hvað? Íslensk tónlist í nýjum búningi Hvenær? 20.30 Hvar? Listasafn Sigurjóns, Laugar- nestanga Tríóið Máninn líður sem er skipað Önnu Jónsdóttur sópran og Þjóð- verjunum Ursel Schlicht píanó- leikara og Ute Völker harmoníku- leikara flytur íslensk þjóðlög og lög eftir Jón Leifs á nýstárlegan hátt. Miðaverð er 2.500 og 1.500 krónur. Strandarkirkja í Selvogi er vettvangur tónlistarhátíðarinnar Englar og menn. Tríó Björns Thor ásamt Unni Birnu kemur fram á Jazzi undir Fjöllum. TÓNLIST HHHH Kórtónleikar Verk eftir Pál Guðmundsson og fleiri Flytjendur: Kammerkór Suður- lands, Páll Guðmundsson, Andri Freyr Hilmarsson, Frank Aarnink og Hjörtur B. Hjartarson. Hafnarborg laugardagur 29. júní Á tónleikum í Hafnarborg laugar- daginn 29. júní  mátti sjá gasfyllta nótnahausa svífa upp og niður fyrir ofan sviðið. Kórmeðlimir allt í kring reyndu að syngja í takt við tónhæðina. Nótnahausarnir voru fjórir. Þetta voru svartar blöðrur sem höfundar gerningsins, Haraldur Jónsson og Ásta Fanney Sigurðardóttir, létu ferðast um ímyndaðan tónstiga í loftinu, fram og til baka. Hugmyndin að láta söngvara eða hljóðfæraleikara fylgja sjónrænum bendingum án þess að vita hvað kemur næst er ekki ný. Þetta var t.d. fastur liður á tónleikum tilrauna- hópsins SLÁTUR fyrir nokkru síðan. Þar voru bendingarnar þó yfirleitt á tölvuskjá, en á tónleikunum nú voru nóturnar lifandi. Útkoman var kómísk; kórinn, Kammerkór Suðurlands, hefði kannski mátt fylgja bendingum betur, tónarunur upp og niður voru á köflum stirðar, en maður gat alla vegana f lissað. Skrifuð tónlist er í eðli sínu dauð, bara nótur og nótna- strengir, bogar, þagnir og áherslur. Það þarf flytjendur í einhverri mynd til að hún öðlist líf. Nýstárlegt var því að sjá sjálfar nóturnar á hreyfingu og fullar af anda. Í heild voru þetta óvanalegir tón- leikar. Þeir skiptust í tvennt. Fyrir hlé voru fjölmörg, mjög stutt verk eftir Atla Ingólfsson, Huga Guðmundsson, Benna Hemm Hemm, Elínu Gunn- laugsdóttur og fleiri. Textinn var úr ólíkum áttum, en öll tónlistin hafði á sér framandi blæ, bauð stöðugt upp á nýjar víddir. Eitt skemmtilegasta lagið var eftir fyrrnefndan Atla, tvíeggjað sverð þar sem annars vegar var falskur tónn, hins vegar hreinn. Þetta tvennt rann saman svo úr varð sérkennileg hljóðmynd, undarlega heillandi. Skemmtilegt var hve sterkur heild- arsvipur var á dagskránni fyrir hlé, þrátt fyrir að tónskáldin væru ólík. Kórstjórinn, Hilmar Örn Agnarsson, hafði auðheyrilega valið og raðað lög- unum af smekkvísi. Flæði í söngnum var lýtalaust og óheft, líkt og um eitt heilsteypt verk væri að ræða. Dagskráin eftir hlé var ekki síður spennandi. Þá voru flutt allmörg lög eftir Pál Guðmundsson á Húsafelli í útsetningum ýmissa tónlistarmanna. Lögin voru við ljóð mismunandi skálda og voru ávallt grípandi og fal- leg. Við kórsönginn var leikið á hljóð- færi sem Páll hefur smíðað, steina- hörpur og flautur úr rabarbara. Páll sjálfur spilaði með nokkrum öðrum músíköntum og þeir gerðu það allir vel. Útkoman var kliður sem auðveld- lega mátti ímynda sér að kæmi úr ein- hverjum álfaheimi, hann var töfrandi og ómótstæðilegur. Söngurinn var líka prýðilegur, kór- meðlimir voru ágætlega samstilltir, mismunandi raddir í góðu jafnvægi sín á milli. Saman voru þær þéttar og safaríkar. Kórstjórn Hilmars var kraft- mikil og nákvæm, líf leg og innileg; maður naut hvers tóns. Meira svona, takk. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Frumleg efnisskrá, flottur flutningur. Steinaharpa og gasfylltir nótnahausar STEYPUBLANDA Steypa í poka Steypublanda hentar fyrir ýmis smærri verk: • Til að steypa í hólka • Til að steypa meðfram hellum • Til viðgerða á veggjum, köntum, þrepum, stéttum o.fl. • Fyrir undirstöður undir palla • Má nota í mót fyrir kanta, smáveggi og slíkt • Og margt fleira Steypublandan kemur í rykfríum pokum og steypustyrkur er C-30 Fæst í múrverslun BM Vallá, Breiðhöfða 3 og hjá helstu endursöluaðilum. Þarf bara að bæta við vatni Ný steypublanda með möl í sem auðveldar alla verkframkvæmd. 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R38 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 0 6 -0 7 -2 0 1 9 0 4 :3 7 F B 0 7 2 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 6 0 -6 0 C 0 2 3 6 0 -5 F 8 4 2 3 6 0 -5 E 4 8 2 3 6 0 -5 D 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 5 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.