Fréttablaðið - 06.07.2019, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 06.07.2019, Blaðsíða 68
Lífið í vikunni 30.06.19- 06.07.19 SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is Sumar útsala ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði Freistandi útsölutilboð Afgreiðslutími Rvk Mánud. til föstud. kl. 11.00–18.30 Laugard. kl. 11.00–17.00 Sunnud. kl. 13.00–17.00 (Smáratorgi) Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði www.dorma.is V E F V E R S LU N ALLTAF OPIN PITSU FREKAR EN GJAFASTURTU Fjöllistakonan Margrét Erla Maack og Tómas Steindórsson eiga von á barni í haust og í vikunni lét hún þau boð út ganga á Facebook að parið vilji ekki að þeim verði komið á óvart með sængur- gjafateiti, eða „baby shower“. Þau skorti fátt og vilji frekar fá heimsóknir og flatbökur þegar barnið er komið í heiminn. BÁRA Í BÚRI Bára Halldórsdóttir, upptakari, öryrki og helsti hrellir ölkærra klaustursriddara, gaf fólki óvenju- lega innsýn í daglegt líf öryrkja þegar hún lokaði sig í búri á RVK- Fringe Festival og þar mátti fylgjast með daglegu amstri öryrkjans. FORN FRÆGÐ SEINFELDS Í gær voru 30 ár frá því gaman- þættirnir um Seinfeld hófu göngu sína í bandarísku sjónvarpi. Þætt- irnir nutu gríðarlegara vinsælda en sá fyrsti fór í loftið 5. júlí 1989 en gríninu lauk með ósköpum í lokaþættinum 14. maí 1998. SÓNARMYND Á FACEBOOK Salka Sól Eyfeld, leik- og söngkona, og unnusti hennar, Arnar Freyr Frostason, komu þeim gleðitíðind- um til skila á Facebook að þau eigi von á sínu fyrsta barni. Salka birti mynd af þeim Arnari með sónarmynd af erfingjanum á milli sín. Þetta er fyrst og fremst smá djók, eða þetta hófst þa nnig. Við tökum okkur ekki sér-staklega alvarlega sem einhverja listamenn, eða í það minnsta gerðum það ekki. Það er samt alveg geggjað hvað fólk er búið að taka vel í tónlistina okkar,“ segir Alvar Nói, einn liðs- manna hljómsveitarinnar Séra Bjössi. Hann segir meðlimi hljómsveit- arinnar engan veginn hafa búist við svona góðum viðtökum þegar þeir byrjuðu að gera tónlistina. „Við erum sem sagt vinahópur úr Hafnarfirði. Þetta byrjaði sem smá spaug. Benjamín Snær býr til alla taktana. Hann hefur verið að fikta í taktagerð mjög lengi, alveg frá því að ég kynntist honum í það minnsta. Það var þegar við vorum í 8. bekk í grunnskóla. Í gegnum hann kynnist ég þessum vinahóp, sem ég kalla mína bestu vini í dag.“ Alvar segir að fyrst hafi þeir mest verið að hittast heima hjá Benjamín og að semja texta við taktana hans, mest upp á grínið. „Það stóð upphaflega ekkert sér- staklega til að gefa lögin út. Þetta þróaðist í raun þannig að við vild- um geta hlustað á lögin en bara hjá Benjamín, svo við settum nokkur lög á SoundCloud. Það var samt mest bara fyrir okkar vinahóp, svo við gætum hlustað á og spilað lögin hvar og hvenær sem er,“ segir Alvar. Þegar á leið tóku þeir svo eftir því að hlustanafjöldinn hækkaði furðu- lega mikið. „Þannig að við áttuðum okkur á því að það er greinilega annað fólk en bara okkar vinahópur að hlusta á, sem okkur fannst náttúrulega geðveikt. En samt auðvitað skrýtið líka því við upplifðum þetta sem svo mikinn einkahúmor.“ Hann segir að upphaf lega hafi hlustendur þeirra mestmegnis verið fólk á svipuðum aldri og þeir sjálfir og úr Hafnarfirði. „Svo mánuði eftir að við tökum eftir þessum aukna hlustenda- fjölda erum við beðnir um að spila á balli hjá menntaskólanum Flens- borg. Það var frábært en auðvitað stressandi, því þetta var komið á allt annað stig en við höfðum eitt- hvað sérstaklega stefnt á. En við gerðum okkar besta og keyptum okkur prestakuf la til að gera þetta sem flottast.“ Hann segir að ekki hafi mikil pæling legið að baki nafni hljóm- sveitarinnar. „Bjartur kom með nafnið og þar með var það bara ákveð- ið. Þetta var fyrst allt gert í mikilli f ljótfærni en við erum þó byrjaðir að taka þessu alvarlegar núna. Fyrst gerðum við bara lög á einum degi og negldum þeim út. Það kannski lýsir svolítið hljómsveitinni hvað við spáðum lítið í þessu fyrst.“ Eitt vinsælasta lag hljómsveitar- innar er lagið Dicks sem hljóm- sveitin vann með Inga Bauer. „Þetta er auðvitað þannig séð satíra. Við gerum mikið grín að okkur sjálfum en í laginu erum við að taka smá ádeilu á þessa „toxic“ karlmennskuímynd. Við erum samt ekki að taka okkur það alvarlega að líta svo á að við séum að taka ein- hverja almenna samfélagsádeilu. Svo leyfum við bara hlustendum að túlka frekar lögin eins og þeir vilja,“ segir Alvar að lokum. Séra Bjössi spilar á Þjóðhátíð um verslunarmannahelgina. Miða á hátíðina er hægt að nálgast á dalur- inn.is. steingerdur@frettabladid.is Taka sig ekki of alvarlega Hljómsveitin Séra Bjössi spilar í Vestmannaeyjum á Þjóðhátíð. Vinsældirnar komu flatt upp á meðlimina, en hljómsveitin var upphaflega stofnuð í kringum þeirra einkahúmor. Ingi Bauer vann meðal annars lagið Dicks með hljóm- sveitinni. Á myndinni eru þeir Ingi Bauer, Benja- mín Snær, Alvar Nói og Bjartur Freyr. MYND/KETCHUP CREATIVE Lagið Dicks með hljómsveit- inni hefur verið einstaklega vinsælt á streymisveitum. 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R44 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 6 -0 7 -2 0 1 9 0 4 :3 7 F B 0 7 2 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 6 0 -8 3 5 0 2 3 6 0 -8 2 1 4 2 3 6 0 -8 0 D 8 2 3 6 0 -7 F 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 7 2 s _ 5 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.