Fréttablaðið - 01.08.2019, Qupperneq 16
Hlöðufell er einn tilkomumesti móbergsstapi á Íslandi en stapar eru eldfjöll sem myndast undir jökli eða íshellu. Stærstur þeirra er Eiríksjökull en frægastur án efa sjálf Drottningin Herðubreið, en Hlöðufelli svipar mjög
til hennar, ekki síst úr suðri. Hlöðufell er 1.188 metra
hátt og liggur milli Laugarvatns og Langjökuls. Það
er umkringt glæsilegum fjöllum eins og Skjaldbreið,
Högnhöfða, og Jarlhettum en af toppnum sést Þóris-
jökull og sunnanverður Langjökull einnig vel. Óhætt
er að mæla með göngu á Hlöðufell en á jeppa er auð-
velt að komast að rótum fjallsins. Er þá oftast ekinn
fjallvegur upp frá Laugarvatni eða fylgt línuvegi
norðan Skjaldbreiðs sem liggur út frá veginum norður
að Kaldadal og Húsafelli. Líkt og á Herðubreið er
aðeins ein örugg gönguleið upp Hlöðufell og hefst hún
sunnan við fjallið við Hlöðuvelli. Þarna er nýlegur
skáli Ferðafélags Íslands og fallegt tjaldstæði. Fylgt
er göngustíg skammt norðan við skálann en hærra á
sökkli fjallsins eykst brattinn og í klettabeltinu getur
verið laust undir fæti. Þarna er mikilvægt að fara var-
lega svo allir komist klakklaust í gegnum klettana.
Ofan þeirra tekur við aflíðandi stallur uns komið er
að snævi þakinni dalhvilft sem gengið er eftir, oftast
á snjó. Við enda hennar tekur við aflíðandi stórgrýtt
brekka upp að tindinum. Þar bíður reisuleg varða en
skammt frá er tvíhöfða stöðumælir sem einhverjir
húmoristar grófu kirfilega niður fyrir allmörgum
árum. Þarna er frábært útsýni til allra átta en stöðu-
mælirinn fær ávallt töluverða athygli líka. Fylgt er
sömu leið niður af fjallinu en ef skyggni versnar er
skynsamlegt að fylgja GPS-hnitum í gegnum kletta-
beltið, enda slóðinn oft ógreinilegur.
Göngu á Hlöðufell er auðvelt að skipuleggja sem
dagsferð úr Reykjavík en fyrir þá sem vilja staldra
lengur við á Hlöðuvöllum er óhætt er að mæla með
göngu á Högnhöfða. Einnig er tilvalið að kíkja á hell-
inn Jörund austan við Hlöðufell en hann var friðaður
1985. Loks er frábær gönguleið frá Rótarsandi þar sem
Brúará á upptök sín, en þar treður þessi vatns-
mikla á sér í gegnum stórfengleg gljúfur,
Brúarárskörð, að sumarbústaðabyggðinni í
Brekkuskógi sem flestir þekkja. Í Brúar-
árskörðum er fjöldi tilkomumikilla
fossa og sjást sumir þeirra spýtast
beint út úr bergstálinu.
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Stapi með
stöðumæli
Útsýni af Hlöðufelli er frábært. Hér er horft til norðurs að Langjökli en stöðumælirinn sést hægra megin við toppinn. MYND/ÓLAFUR MÁR BJÖRNSSON
Hlöðufell er stapi en úr suðri líkist það óneitanlega sjálfri Herðubreið. MYND/ÓLAFUR MÁR BJÖRNSSON
Ganga upp klettabeltið er nokkuð brött en útsýnið er frábært, m.a. að Skjaldbreið. MYND/ÓLAFUR MÁR BJÖRNSSON
TILVERAN
1 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
1
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:0
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
8
6
-2
3
2
4
2
3
8
6
-2
1
E
8
2
3
8
6
-2
0
A
C
2
3
8
6
-1
F
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
3
1
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K