Mosfellingur - 04.07.2019, Page 18

Mosfellingur - 04.07.2019, Page 18
Fjallahjólamót Fimmtudaginn 29. ágúst kl. 19:0030 KM 16 KM Hjólað um stíga innan Mosfellsbæjar Nánar á Facebook Hjóladeild AftureldingAr - Fréttir úr bæjarlífinu18 Nemendur í FMOS ferðuðust til Cuenca á Spáni í vor. Þar sóttu þeir spænskuskóla og gistu hjá spænskum fjölskyldum. Ferðin var hluti af valáfanganum SPÆN1ES05 - Spænskuskóli í Cuenca. Cuenca er um 60 þúsund manna bær í um klukkustundarfjarlægð frá Madrid og gefur sig út fyrir að vera náms- og útivist- arbær. Fáir enskumælandi íbúar Skólinn heitir True Spanish Experience og sérhæfir sig í spænskukennslu fyrir útlendinga. Cuenca er tilvalinn staður til að læra spænsku því þar eru fáir ensku- mælandi íbúar og þurfa nemendur að vera mjög fljótir að læra að bjarga sér á tungu- málinu. Kennslustundir byrjuðu klukkan 9:30 á morgnana en eftir hádegi, í siestu, komu fjölskyldurnar að sækja nemendur til að fara heim að borða. Seinnipartinn var kennslan með öðru sniði en þá var spænska kennd meðfram mismunandi viðfangsefn- um utan kennslustofunnar. Til dæmis fóru nemendur á matreiðslunámskeið, í göngu- ferðir og á kanó. Björguðu sér frá fyrsta degi Nemendur og kennarar voru sammála um að ferðin hafi verið frábær í alla staði. Það var ótrúlega skemmtilegt að sjá nem- endur bjarga sér strax frá fyrsta degi með því að tala við fjölskyldurnar sínar og kennara á spænsku, panta sér leigubíla og mat. Nemendur töluðu um að dvölin hjá fjölskyldunum hafi verið mikil lífsreynsla, lærdómsrík og gefið þeim góða innsýn í spænska menningu. Síðasta deginum eyddu nemendur og kennarar í Madrid þar sem hópurinn skoð- aði öll helstu kennileiti og naut lífsins. Frábær ferð nemenda úr Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ • Gistu heima hjá spænskum fjölskyldum í Cuenca Nemendur FMOS í spænskuskóla til Spánar Mosfellingurinn Aníta Hulda Sigurðardóttir útskrifaðist á dögunum sem stúdent frá Menntaskólanum við Sund. Hún fékk hæstu meðaleinkunn stúdenta á Félagsfræði- og sögulínu MS í vor. Áður gekk hún í Varmárskóla. Í framhaldi af því var hún valin sem kransaberi á 17. júní sem fulltrúi nýstúdenta í bóknámi. Hún bar krans- inn fyrir forseta Íslands að styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli. Eftir þá athöfn þá bar hún kransinn að leiði Jóns Sigurðssonar í Hólavallakirkjugarði við Suðurgötu, með borgarstjórn.M yn d/ H ra fn hi ld ur H ra fn ke ls dó tt ir Bar kransinn á þjóðhátíðardaginn Aníta Huld nýstúdent frá MS hátíðleg stund á 17. júní Næsta blað eftir sumarfrí kemur út 27. ágúst Þarft þú að koma einhverju á framfæri? Mosfellingur er borinn út í hvert hús og fyrirtæki í Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Skilafrestur efnis/auglýsinga er föstudaginn 23. ágúst. mosfellingur@mosfellingur.is

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.