Mosfellingur - 04.07.2019, Síða 22

Mosfellingur - 04.07.2019, Síða 22
 - Mosfellingurinn Bernhard Linn22 Myndir: Ruth Örnólfsdóttir, Jón K. Sæmundsson og úr einkasafni. Bernhard Linn eða Benni eins og hann er ávallt kallaður er með bíladellu á háu stigi og hefur ekið bílum svo lengi sem hann man eftir sér. Hann ætlaði sér alltaf að verða bifvéla- virki en fann fljótt út að það heillaði hann meira að sitja undir stýri og starfa sem atvinnubílstjóri. Benni hefur átt hátt í 50 fólks- og vöru- bíla um ævina, nokkur mótorhjól og fjór- hjól en fyrsta bílinn eignaðist hann 16 ára gamall, Renault „hagamús“ árgerð 1954. Bernhard er fæddur í Reykjavík 1. októ- ber 1942. Foreldrar hans voru þau Arndís G. Jakobsdóttir starfsmaður á Álafossi og símamær og Irving Linn hermaður í banda- ríska hernum. Faðir Benna var sendur frá Íslandi áður en Benni fæddist og hann hefur aldrei hitt föður sinn. Benni á þrjá bræður samfeðra, Kenneth, Edward og Eric og hefur hann hitt tvo af þeim en Edward lést árið 1996. Svínahirðir og sjoppustjóri Benni hefur búið hér alla sína ævi og er því rótgróinn Mosfellingur. Fyrstu fjögur ár ævi sinnar bjó hann í Tjaldanesi í Mos- fellsdal með móður sinni og afa sínum og ömmu en flutti síðan í bragga sem stóð efst í Ullarnesbrekkunni. „Ég byrjaði að vinna 12 ára gamall á Álafossi, var svínahirðir, vann á traktor og svo var ég sjoppustjóri í tvö ár,“ segir Benni þegar við rifjum upp æskuárin hans. „Ég gekk í Brúarlandsskóla og þar voru frábærir kennarar. Það var alltaf gaman í skólanum og mér gekk vel að læra.“ Dvergarnir sjö Benni hefur alltaf verið góður í sundi enda alinn upp í innisundlauginni á Ála- fossi. Þar tók hann líka afreksstig en Klara Klængsdóttir kenndi honum sundtökin. Krakkarnir úr sumarbústöðunum í Reykja- hverfinu komu oft í sund og þá var kátt á hjalla. „Ég æfði knattspyrnu og frjálsar yfir sumartímann á Tungubökkum og á ungl- ingsárunum æfði ég handbolta. Þá var skotið í mark í kjallara í Brúarlandi en Afturelding æfði líka í Hálogalandi í Reykjavík. Ég spilaði í tvö ár á Íslands- móti í handknattleik með Aftureldingu með liði sem gekk undir nafninu Dvergarnir sjö. Það nafn kom til því allir voru svo hávaxnir nema ég. Það gekk vel hjá okkur og einn veturinn fékk ég að taka öll vítaköstin. Ég skoraði úr þeim öllum nema einu sem ég fékk að taka aftur af því að dómarinn var ekki búinn að flauta og ég skoraði.“ Forljótur og erfiður í akstri „Ég er með bíladellu á háu stigi og eign- aðist mitt fyrsta mótorhjól 15 ára gamall og fyrsta bílinn 16 ára, Renault „hagamús“, segir Benni og brosir. „Ég fór í iðnskóla á Reykjalundi að læra bifvélavirkjun en áttaði mig fljótt á því að mér fannst meira spenn- andi að keyra bílana heldur en að gera við þá og fór þá að starfa sem atvinnubílstjóri. Fyrsti vörubíllinn sem ég starfaði á var forljótur og erfiður í akstri, grjóthastur og þungur í stýri. Á þessum tíma voru flestir vegir malarvegir, oftast holóttir og allt leiddi þetta upp í skrokkinn á manni. Bílarnir hafa breyst til hins betra og þró- unin er gífurleg, ekki síst fyrir bílstjórann. Flestir vörubílar eru nú með loftfjöðrun á hverju hjóli, stýrishúsið á loftpúðum og sætið á loftfjöðrum og langflestir eru sjálf- skiptir. Það er ekkert mál að keyra stóra bíla í dag, bara gaman.“ Kynntust í Dalnum Benni kynntist eiginkonu sinni, Dag- björtu Pálmeyju Pálmadóttur, eða Döggu eins og hún er ávallt kölluð, í partýi í Dalsgarði. Þau giftu sig 1970 og byrjuðu búskap sinn í Hlíð- artúni en byggðu sér svo hús við Merkja- teig. Í dag hafa þau komið sér vel fyrir á Eirhömrum. Benni og Dagga eiga fimm börn, Arndísi Guðríði f. 1970, Pálma f. 1972, Steinunni f. 1977, Ágúst f. 1979 og Hauk f. 1982. Barnabörnin eru tíu talsins. „Við Dagga höf- um verið dugleg að ferðast í gegnum tíðina, höfum átt húsbíla í yfir tuttugu ár, fyrsti hét Kátur svo kom Skútinn og svo Langintes. Við höfum farið víða með börnunum okkar og barna- börnum og eins með húsbíla- félaginu.“ Unnið alla daga vikunnar „Maður hefur komið víða við í akstr- inum í gegnum tíðina. Ég keyrði sendibíl fyrir Kaupfélag Kjalarnesþings og vörubíl hjá Haraldi Guðjónssyni og mági hans hjá Sandi og möl. Ég vann í námu fyrir Vinnuvélar, keyrði hjá Steypustöðinni, Vörubílastöðinni Þrótti og hjá bækistöð Reykjavíkurborgar í 17 ár. Vinnudagarnir voru oft ansi langir, allt frá hálfátta á morgnana til ellefu á kvöldin alla daga vikunnar, laugardaga og marga sunnudaga. Maður setti nú ekki fyrir sig að skreppa á ball á laugardagskvöldum þótt maður þyrfti að mæta til vinnu daginn eftir,“ segir Benni og glottir. Lærði mikið um mannleg samskipti Árið 1970 stofnaði Benni jarðverktaka- fyrirtækið Hengil ásamt félögum sínum Jóni Sverri í Varmadal og Níelsi Unnari á Helgafelli. Á þessum tíma var mikil upp- bygging í Mosfellsbæ og þeir félagar tóku að sér gatnagerð og húsgrunna og það var unnið myrkranna á milli. Benni var einn af stofnendum Litlu bíla- stöðvarinnar, leigubílastöðvar sem starf- rækt var í Mosfellsbæ í nokkur ár. Hann keypti sér leigubíl og ákvað að hvíla sig á vörubílaakstri. Í leigubílaakstrinum segist hann hafa lært mikið um mannleg samskipti og telur sig reynslunni ríkari. Litla bílastöðin sameinaðist síðan Hreyfli og þar keyrði Benni í nokkur ár. Samhliða leigubílaakstrinum starfaði hann í sveita- stjórnarmálum í átta ár, þar af tvö ár sem framkvæmdastjóri íþróttamannvirkja. Hefur unnið til margra verðlauna Benni hefur lengi haft áhuga á flugi og hefur flogið mikið á einkavélinni TF-SPA. Hann starfaði með Junior Chamber og Lions í tíu ár en bridds hefur spilað mjög stóran sess í lífi hans alveg frá því hann var unglingur og hann spilar enn. Hann byrjaði að spila með Mosfellingum í Hlégarði en síðan á hinum ýmsu stöðum eftir það. Hann fór í þrjár keppnisferðir erlendis og hefur unnið til margra verð- launa. Ég spyr Benna að lokum hvað sé skemmtilegast við að spila bridds? „Þetta reynir mikið á mann sem er gaman því þetta er hugaríþrótt og ekki skemmir svo félagsskapurinn fyrir,“ segir Benni er við kveðjumst. Fyrsti vörubíllinn sem ég starfaði á var forljótur og erfiður í akstri, grjóthastur og þungur í stýri. MOSFELLINGURINN Eftir Ruth Örnólfsdóttur ruth@mosfellingur.is Bernhard Linn atvinnubílstjóri er með bíladellu á háu stigi og hefur átt um 50 fólks- og vörubíla um ævina HIN HLIÐIN Áttu þér óuppfylltan draum? Já, að afkomendur mínir eigi farsæla framtíð. Hver kom þér síðast á óvart og hvernig? Stefán Ómar, hann vildi fá mig á framboðslista fyrir síðustu kosningar, það var mjög óvænt. Hvað keyptir þú síðast fyrir heimilið? Ryksugu. Hverju myndir þú breyta á íslandi ef þú ættir þess kost? Myndi vilja sjá nýja stjórnarskrá og að í henni væri að þingmenn þyrftu að standa við gefin loforð eða ella verði reknir af þingi. Eitt atriði um þig sem fólk veit ekki um? Ég er algjörlega laglaus en mig langar alltaf til að syngja. Uppáhaldsverslun? Bílanaust. Hvaða matur freistar þín? Hangikjöt með uppstúf, kartöflum, grænum baunum og rauðkáli. Hver myndi leika þig í Bíómynd? Georg Clooney. Dagga og Benni ásamt börnum, Ágúst, Arndís, Steinunn, Pálmi og Haukur. benni við tf-spa á tungubökkum á fermingardaginn bræðurnir benni og eric Bílarnir hafa breyst til hins betra

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.