Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 31.05.2012, Blaðsíða 10

Fréttir - Eyjafréttir - 31.05.2012, Blaðsíða 10
Fréttir / Fimmtudagur 31. maí 201210 ° ° Tónleikar helgaðir Guðna í Landlyst Laugardaginn 2. júní verða Bústaðakórinn og Kammerkór unglinga úr Bústaðakirkju með stutta tónleika í Safnaðarheimili Landakirkju. Uppistaðan í efnisskrá tón- leikana eru útsetningar Guðna frá Landlyst en hann var organ- isti Bústaðakirkju til margra ára. Hann útsetti mörg af lögum Oddgeirs Kristjánssonar og mun kórinn flytja þau ásamt ein- söngvurunum Jóhanni Friðgeiri Valdimarssyni tenór, Grétu Hergils sópran, Önnu Sigríði Helgadóttur alt og Sæbergi Sigurðssyni baritón. Stjórnandi og organisti Bústaðakirkju er Jónas Þórir, sonur Jónasar Þóris fiðluleikara frá Jaðri í Vestmannaeyjum. Stjórnandi Kammerkórs ung - linga er Svava Kristín Ingólfs - dóttir. Tónleikarnir hefjast kl. 17 og standa í um eina klukkustund. Fréttatilkynning. Lögreglan: Engin alvarleg mál Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og engin alvarleg mál sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram en þó var eitthvað um útköll vegna mála sem tengdust ölvun ar - ástandi fólks. Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar í vik - unni sem leið og var í báðum tilvikum um minni háttar óhöpp að ræða og engin slys á fólki. Sekta vegna nagla dekkja Lögreglan vill minna ökumenn og eigendur ökutækja á að lög - reglan er byrjuð að sekta vegna aksturs á nagladekkjum en sekt fyrir hvert neglt dekk er kr. 5.000,- Þegar hafa nokkrir ökumenn verið sektaðir á undanförnum dögum vegna aksturs á negldum hjólbörðum. Hvetur lögreglan eigendur ökutækja til að skipta yfir á sumardekkin og komast þannig hjá óþarfa útgjöldum. Eins og sagt var frá í síðasta tölu - blaði Frétta, var tónlistarmaðurinn Halldór Gunnar Pálsson, kórstjóri Fjallabræðra, í Eyjum um helgina við upptökur. Hann fékk til liðs við sig Lúðrasveit Vestmannaeyja til að leika undir í tveimur lögum eftir sig, Þjóðlaginu svokallaða og þjóðhátíðarlaginu í ár. Halldór Gunnar hefur undanfarið ferðast um landið og fengið lands- menn til að syngja undir í Þjóð - laginu. Upptökur í Eyjum fóru fram í Höllinni á sunnudaginn og mættu rúmlega 60 manns til að syngja í laginu. Þá er hlutur Lúðrasveitar Vest - mannaeyja stór, bæði í Þjóðlaginu og ekki síður í þjóðhátíðarlaginu en Jarl Sigurgeirsson, stjórnandi Lúðrasveitarinnar, sagði í samtali við Fréttir að upptökur hafi gengið vel. „Þetta tókst í raun og veru framar öllum vonum. Auðvitað á eftir að hljóðblanda og vinna lagið betur en hlutur Lúðrasveitarinnar er stór í þessu lagi. Halldór Gunnar var alltaf með sveitina í huga þegar hann samdi lagið, þannig að þetta er engin viðbót eða uppfylling. Þetta er risastórt og mikið lag. Hann spilaði þetta fyrir okkur, algjörlega hráa upptöku en engu að síður fékk ég gæsahúð við að hlusta á þetta. Ég get rétt ímyndað mér hvernig þetta verður þegar búið er að bæta við 30 þúsund röddum sem hann er að safna saman núna.“ Jarl segir það virðingarvert hjá Halldóri Gunnari að endurvekja þann gamla og góða sið að útsetja þjóðhátíðarlagið fyrir Lúðrasveit Vestmannaeyja. „Þjóðhátíðarlagið er samið að miklu leyti fyrir Lúðra - sveit Vestmannaeyja og í fyrsta sinn í langan tíma er þjóðhátíðarlagið útsett af höfundi fyrir lúðrasveit. Það hefur ekki gerst í áraraðir og á Halldór Gunnar mikið hrós skilið fyrir þetta framtak. Upptökur á þjóðhátíðarlaginu gengu ekki síður vel en upp- tökurnar voru unnar samhliða í Island Studios. Alls voru þetta 38 spilarar en einhverjir spiluðu á fleiri en eitt hljóðfæri. En fyrst og fremst erum við ánægð með þá virðingu og vinsemd sem Halldór Gunnar sýnir Lúðrasveitinni með því að leita til okkar, varðandi upp- tökur á þessum tveimur lögum,“ sagði Jarl og bætti því við að frum- flutningur á þjóðhátíðarlaginu í ár verði stór uppákoma. „Þetta verður væntanlega einhver viðamesti frumflutningur á þjóð - hátíðarlagi frá upphafi. Það er spurning hvort það þurfi ekki stærra svið,“ sagði Jarl hlæjandi að lokum. FRÁ UPPTÖKUM í Höllinni þar sem um 60 Eyjamenn mættu til að taka undir í Þjóðlaginu. Virðingarvert að leita til sveitarinnar - segir Jarl, stjórnandi Lúðrasveitarinnar, eftir upptökuhelgi með stjórn - anda Fjallabræðra og höfundi Þjóðlags og þjóðhátíðarlags Skólaslit Tónlistar skólans: Alls 192 nemendur á vorönn Tónlistarskólanum var slitið 25. maí eftir lokatónleika vorsins sem höfðu staðið dagana á undan. Boð ið var upp á tónleika söng - nema, þverflautu- og klarinettu - tónleika auk vortónleika annarra nemenda sem voru alls fimm. Alls voru 192 nemendur við skólann á vorönn 2012. Flestir lærðu á gítar, eða 41, á píanó 39, 23 námu söng, 20 lærðu á tromm ur, 20 á trompet, 20 á þver flautu, tíu á klarinett, sjö á saxófón, tíu á horn og fjórir á básúnu. Alls starfa tíu kennarar við skólann í níu stöðugildum. Þrjá - tíu nemendur luku stigs prófum í ár sem er svipaður fjöldi og undanfarin ár. Rótarýklúbbur Vestmannaeyja veitti viðurkenningu fyrir bestu ástundun á árinu. Hana hlaut Ásta María Harðardóttir sem var fulltrúi skólans á Nótunni sem er samkeppni tónlistarskóla. Skólastjóri Tónlisarskólans er Stefán Sigurjónsson. GÍSLINA SÓL með einum nemenda sinna á píanó á út skriftartónleikunum. ÆTTINGJAR fjölmenntu til að fylgjast með sínum. RÓTARÝKLÚBBUR VESTMANNAEYJA veitti viðurkenningu fyrir bestu ástundun á árinu. Hana hlaut Ásta María Harðardóttir og hér er Bragi Ólafsson frá Rotary að afhenda henni viðurkenninguna.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.