Fréttir - Eyjafréttir - 31.05.2012, Blaðsíða 34
Fréttir / Fimmtudagur 31. maí 201234 °
°
Það er fátt skemmtilegra en að
fylgj ast með þegar ungt fólk, sama
hvort er í handbolta eða fótbolta,
kemur saman til að fagna uppskeru
tímabilsins sem eins og allir vita
getur verið misjöfn. Þarna mætir
fólk uppáklætt til að sýna sig og sjá
aðra og rifja upp það sem gerðist á
tímabilinu, oft í skoplegu ljósi.
Þannig var tilfinningin að mæta á
lokahóf handboltans í Höllinni á
dögunum. Þar var boðið upp á
veislumat og skemmtiatriði, öll
heimatilbúin, sum illskiljanleg fyrir
utanaðkomandi en það skiptir engu
máli. Veislustjóri var Sindri Ólafs -
son.
Hápunkturinn var afhending verð -
launa þar sem þau sem þóttu skara
fram úr fengu viðurkenning ar. Þeim
var gerð skil í síðustu Fréttum en
hér verður greint frá hinni hliðinni
þar sem Guðmundur Þórarinsson,
knattspyrnukappi, sýndi enn og
aftur að hann er flinkur á gítar og
syng ur jafnvel betur en Ingó bróðir.
Mátti greina blik í augum stúlkn -
anna meðan hann tróð upp. Þá
vöktu ekki síður athygli krakkar úr
Tónlistar skólanum, tíu strákar með
gítara sem tróðu upp ásamt fjórum
söngdísum og einni á harmónikku.
Fluttu þau nokkur lög sem féllu vel
að smekk unga fólksins sem þarna
var mætt.
Það hefur legið mikil vinna á bak
við myndbandið sem strákarnir í
handboltanum sýndu. Þar sannaðist
eins og stundum áður, að þegar
maður á vini eins og framleiðendur
myndbandsins þarftu ekki óvini.
Ekki skildi utanaðkomandi allt en
þegar salurinn veltist um af hlátri
vissi maður að skotið hafði hitt.
Já, þetta var notaleg kvöldstund
sem eykur bjartsýni þeirra eldri á
unga fólkið sem á að erfa landið.
Ómar Garðarsson -
omar@eyjafrettir.is
Kátt í Höllinni hjá
handboltanum
KRAKKARNIR úr Tónlistarskólanum stóðu sig frábærlega.
HANDBOLTAFJÖLSKYLDA Óskar Freyr Brynjarsson, fyrrum handboltakappi, hafði ástæðu til að fagna
á lokahófinu. Hér er hann með þremur börnum sínum, Davíð Þór, Ester og Brynjari Karli sem öll spiluðu
með ÍBV í vetur. Brynjar Karl fékk Fréttabikarinn í ár og Davíð Þór og Ester eru bæði Fréttabikarhafar.
VATN Á BARNUM Sandra Gísladóttir, Svavar Vignisson og Arnar Richardsson eru öll hluti af sögu hand-
boltans í Vestmannaeyjum, hafa leikið með ÍBV og undanfarin ár hefur Svavar þjálfað stelpurnar í
meistaraflokki. Komust þær úrslit í bikarnum og undanúrslit í Íslandsmótinu, ekki lélegur árangur það.
LUKKULEG Tryggvi Már Sæmundsson, framkvæmdastjóri ÍBV-
íþróttafélgs er hér með unnustunni, Arnbjörgu Harðardóttur. Þau
fylgdust vel með því sem fram fór á lokahófinu.
MARKMENN Vigdís Sigurðardóttir og Þórunn Jörgensdóttir stóðu á
árum áður í marki ÍBV í handboltanum og voru í hópi þeirra bestu.
Þær létu sig ekki vanta og eru hér með Erlingi Richardssyni sem lék
með og þjálfaði ÍBV. Hann er nú kominn aftur til starfa hjá félaginu.