Fréttir - Eyjafréttir - 31.05.2012, Blaðsíða 35
ÍBV lagði Aftureldingu að velli í
Pepsídeild kvenna á þriðjudaginn
en leikur liðanna fór fram í
Mosfellsbæ. ÍBV hafði fyrir
leikinn tapað tveimur leikjum í
röð eftir að hafa byrjað
Íslandsmótið með góðum sigri á
Val. Sigurinn gegn Aftureldingu
var því kærkominn en lokatölur
urðu 0:3 fyrir ÍBV.
Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari ÍBV
sagði í samtali við Fréttir eftir
leikinn að Shaneka Gordon hafi
verið ÍBV liðinu mikilvæg. „Við
byrjuðum ekki alveg nógu vel og
vorum máttlitlar í byrjun. En eftir
svona tuttugu mínútna leik náðum
við tökum á leiknum. Samt fannst
mér vanta meiri kraft og áræðni,
ekki ólíkt og gegn Breiðabliki, til að
klára sóknirnar. Shaneka Gordon
var í fyrsta sinn í byrjunarliðinu og
bjargaði í raun og veru liðinu að
miklu leyti því hún skoraði tvö mörk
og lagði svo upp þriðja markið.
Þið hafið væntanlega verið með
varann á ykkur í þessum leik eftir að
hafa tapað fyrir hinum nýliðunum á
dögunum?
„Já, það er rétt. Það er alveg sama á
hvaða stað þú ert í töflunni, þú þarft
alltaf að passa þig gegn Aftur -
eldingu. Þær leika mjög agaðan og
skipulagðan varnarleik og erfitt að
koma fyrsta markinu á þær. Sem
betur fer sá Shaneka um það og
skoraði glæsilegt mark fyrir okkur
seint í fyrri hálfleik. Þetta snerist
um að ná þessu fyrsta marki, eftir
það verður þetta svolítið erfiðara.“
ÍBV mætir næst Fylki á Hásteins -
velli næstkomandi mánudag. Fylkir
gerði m.a. jafntefli við Breiðablik í
2. umferð og er í 5. sæti, stigi á eftir
ÍBV. „Þetta verður mjög erfiður
leikur því Fylkisliðið er gott.
Þjálfara þeirra hefur tekist að búa til
gott og vel skipulagt baráttulið með
vinnusemi að leiðarljósi.“
Á ÍBV mikið inni?
„Ég sakna þess svolítið að það
skuli ekki vera meiri bardagi í
liðinu. Ég saknaði þess gegn
Aftureldingu og ekki síst gegn
Breiðabliki, þar sem okkur skorti
áræðni til að klára færin sem við
fengum. Við höfðum alla burði til
að jafna og vinna leikinn en það
skorti áræðni og bardagahuginn til
að klára leikinn. Þetta var líka
vanda mál í fyrra og við hefðum
getað náð enn lengra með meiri
krafti og baráttu. Þannig að ég er
svolítið að kalla eftir því hjá mínum
leikmönnum,“ sagði Jón Ólafur að
lokum.
°
° °
35Fréttir / Fimmtudagur 31. maí 2012
2. flokkur:
Sigur hjá
strákum og
stelpum
Annar flokkur
karla lék annan
leik sinn í sumar
þegar liðið tók á
móti Val á Týs -
vellinum á mánu -
dag. Leikur inn
var mjög fjörugur,
sex mörk litu
dagsins ljós, níu
leikmenn fengu áminn ingu í
leiknum en í byrjun síðari
hálfleiks var Óskari Elíasi
Óskarssyni vísað af leikvelli. Þá
var staðan 3:0 fyrir ÍBV en það
kom ekki að sök, ÍBV skoraði
fjórða markið en Valsmenn náðu
að minnka muninn með tveimur
mörkum undir lokin. Lokatölur
urðu því 4:2 fyrir ÍBV, sem hefur
unnið einn leik og tapað einum í
upphafi Íslandsmótsins. Liðið
leikur í B-deild en mörk ÍBV
gerðu þeir Jón Ingason (2) og Jake
Gallagher (2).
Annar flokkur kvenna, sem
leikur í B-deild Íslandsmótsins,
lék sinn fyrsta leik í síðustu viku
þegar stelpurnar tóku á móti
Fjölni. ÍBV hafði betur, 3:0 en
þetta var fyrsti leikur beggja liða.
Knattspyrna:
Margrét Lára
Þýskalands-
meist ari
Margrét Lára
Viðars dóttir varð
um helgina
Þ ý s k a l a n d s -
meist ari í knatt -
spyrnu þegar lið
hennar, Pots dam,
fagnaði sigri í
síðasta leik
sínum í þýsku
keppninni. Liðið lagði botnlið
Leipzig að velli 8:0 á heimavelli
sínum en Margrét Lára skoraði
sjöunda mark leiksins eftir að hafa
komið inn á sem varamaður. Þetta
er í sjötta sinn sem Potsdam
verður meistari en liðið vann
deild ina fyrst árið 2004. Félagið
sagði hins vegar upp samningi við
Margréti Láru, sem er því
samnings laus.
Framundan
Fimmtudagur 31. maí
Kl. 16:40 ÍBV-Þróttur V.
5. flokkur kvenna, B-lið.
Laugardagur 2. júní
Kl. 14:00 Ísbjörninn-KFS
3. deild karla.
Kl. 14:00 ÍBV-Stjarnan
2. flokkur kvenna.
Mánudagur 4. júní
Kl. 18:00 ÍBV-Fylkir
Pepsídeild kvenna.
Kl. 18:00 Fylkir-ÍBV
2. flokkur karla.
Kl. 18:00 ÍBV-HK/Víkingur
3. flokkur kvenna.
Þriðjudagur 5. júní
Kl. 17:00 ÍBV-Breiðablik
4. flokkur kvenna, B-lið.
Kl. 17:00 Keflavík-ÍBV
5. flokkur kvenna, AB.
Miðvikudagur 6. júní
Kl. 19:15 Víkingur Ó. - ÍBV
Bikarkeppni KSÍ karla.
Kl. 15:00 ÍBV-Keflavík
5. flokkur karla, ABCD.
Kl. 16:00 ÍBV-Grindavík
4. flokkur kvenna, A-lið.
Íþróttir
Pepsídeild karla
ÍA 5 4 1 0 9:5 13
KR 5 3 1 1 10:7 10
FH 5 3 1 1 6:3 10
Stjarnan 6 2 3 1 11:10 9
Keflavík 5 2 1 2 8:5 7
Selfoss 5 2 1 2 8:8 7
Fylkir 5 1 3 1 7:6 6
Fram 5 2 0 3 6:7 6
Valur 5 2 0 3 5:6 6
ÍBV 6 1 2 3 8:8 5
Breiðablik 5 1 1 3 1:6 4
Grindavík 5 0 2 3 8:16 2
Handbolti:
Þrjár úr ÍBV í
U-18 lands -
liÝiÝ
Þrjár Eyjastúlkur, þær Berglind
Dúna Sigurðardóttir, Drífa
Þorvaldsdóttir og Svava Tara
Ólafsdóttir hafa allar verið valdar
í æfingahóp U-18 ára landsliðs
Íslands í handbolta. Íslenska liðið
undirbýr sig undir opna Evrópu -
mótið sem fer fram í Gautaborg 2.
til 6. júlí en æfingar liðsins fara
fram nú um helgina í Reykjavík.
Svava Tara er mikil íþrótta-
mann eskja því hún hefur einnig
leikið með öllum yngri lands -
liðum Íslands í fótbolta og lék
m.a. með U-17 ára landsliðinu í
úrslitakeppni Evrópumótsins
síðasta sumar.
Líkamsrækt:
5x5 fært upp
á Akranes
Undanfarin tvö ár hefur eitt af
mótum EAS þrekmótaraðarinnar
verið haldið í Vestmannaeyjum,
svokallað 5x5 Áskorunin. Nú
bregður svo við að búið er að færa
mótið frá Eyjum og upp á
Akranes. Eyjamaðurinn Leifur
Geir Hafsteinsson er hættur í
stjórn mótaraðarinnar en hann
barðist engu að síður fyrir því að
mótið yrði áfram í Eyjum. Ekki
náðist í fulltrúa mótaraðarinnar.
Íþróttir
Mikilvægur sigur í Mosó
Pepsídeild kvenna: Afturelding - ÍBV 0:3
Pepsídeild kvenna
Breiðablik 4 3 1 0 12:2 10
Þór/KA 4 3 1 0 9:3 10
Stjarnan 4 3 0 1 8:5 9
ÍBV 4 2 0 2 8:7 6
Fylkir 4 1 2 1 3:4 5
Valur 4 1 1 2 8:8 4
FH 4 1 1 2 7:8 4
Selfoss 4 1 1 2 7:15 4
KR 4 0 2 2 5:8 2
Afturelding 4 0 1 3 1:8 1
Margrét Lára
Pepsídeild karla: ÍBV - Stjarnan 4:1
- Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari vill meiri bardaga og áræÝni í liÝiÝ
Tryggvi markakóngur Íslands
- Bætti markametiÝ þegar ÍBV vann sinn fyrsta sigur í sumar - LögÝu Stjörnuna 4-1
Tryggvi Guðmundsson er mesti
markakóngur íslenskrar knatt -
spyrnu frá upphafi. Það undir -
strikaði hann þegar hann skoraði
sitt 127. mark í efstu deild og
bætti þar með metið yfir flest
mörk skoruð frá upphafi. Metinu
deildi hann með Inga Birni
Albertssyni en báðir höfðu þeir
skorað 126 mörk. Markið skoraði
Tryggvi þegar ÍBV lagði
Stjörnuna að velli á Hásteinsvelli
en ÍBV vann þar með sinn fyrsta
sigur í sumar.
Tryggvi var að spila sinn fyrsta leik
fyrir ÍBV í sumar en hann hafði
verið frá vegna blóðtappa í fæti þar
til á þriðjudaginn þegar ÍBV tók á
móti Stjörnunni. Tryggvi var í byrj -
unarliðinu og augljóst að hann hafði
mikil og góð áhrif á leik ÍBV
liðsins, sem hefur verið á uppleið
undanfarið.
Leikurinn sem slíkur var ágætlega
leikinn af hálfu ÍBV. Eyjamenn
voru sterkari og réðu gangi leiksins
en náðu ekki að skora í fyrri
hálfleik. Besta færið fékk einmitt
Tryggvi á 18. mínútu eftir góðan
undirbúning Víðis Þorvarðarsonar
en Tryggva brást bogalistin í það
skiptið. Staðan í hálfleik var 0-0 en
eftir tuttugu mínútna leik í síðari
hálfleik kom upp draugur sem hefur
verið viðloðandi við ÍBV það sem af
er sumars. Varnarmistök eftir horn-
spyrnu Stjörnunnar urðu til þess að
boltinn datt fyrir fætur Alexanders
Scholz, varnarmanns Stjörnunnar
sem skoraði af stuttu færi. Stjarnan
komin yfir, algjörlega gegn gangi
leiksins og stuðningsmenn ÍBV
fengu hroll af tilhugsuninni um
fleiri töpuð stig á heimavelli.
En leikmenn ÍBV svöruðu með
fimm mínútna markaveislu sem
Brynjar Gauti Guðjónsson opnaði
með þvílíku þrumuskoti af rúmlega
30 metra færi, að annað eins hefur
varla sést á Hásteinsvelli. Christian
Olsen fylgdi í kjölfarið, sólaði í
gegn um vörn Stjörnunnar og lagði
boltann laglega í netið. Þá var
komið að þætti Tryggva „marka -
hróks“ Guðmundssonar. Hann tók
aukaspyrnu rétt utan við vítateigs -
línuna, lyfti boltanum fagmannlega
yfir varnarvegg Stjörnunnar og í
hægra hornið. Glæsilegur leikkafli
hjá ÍBV og þrjú gullfalleg mörk.
Ian Jeffs nýtti sér svo varnarmistök
Garðbæinga og tryggði ÍBV sinn
fyrsta sigur í sumar, 4-1 fyrir ÍBV.
Lið ÍBV 4-5-1
Mark: Abel Dhaira. Vörn: Arnór
Eyvar Ólafsson, Brynjar Gauti Guð -
jóns son, Rasmus Christiansen, Matt
Garner. Miðja: Víðir Þorvarð ar son
(Ian Jeffs 66.), Guðmundur Þór -
arinsson, George Baldock, Tryggvi
Guðmundsson (Ragnar Leósson
83.), Tonny Mawejje. Sókn: Christ -
ian Olsen (Gunnar Már Guð -
mundsson 90.).
Mörk ÍBV: Brynjar Gauti Guð -
jónsson, Tryggvi Guðmunds son,
Christian Olsen og Ian Jeffs.
Jón Ingason
MARKAHRÓKURINN Tryggvi Guðmundsson fagnar áfanganum en
hann er nú markahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi.
SHANEKA Gordon var öflug fyrir ÍBV gegn Aftureldingu. Mynd:
Reynir Pálsson.