Fréttir - Eyjafréttir - 31.05.2012, Blaðsíða 29
29Fréttir / Fimmtudagur 31. maí 2012°
°
Þær gera það ekki endasleppt við
okkur hér á Hraunbúðum, konurnar
í Slysavarnadeildinni Eykyndli. Eitt
árið enn færa þær okkur þessi for -
láta hjúkrunarrúm fyrir heimilis-
fólkið hér.
Fimmta árið í röð gefa þær
Hraunbúðum 2 hjúkrunarrúm af
fullkomnustu og bestu gerð, þannig
að samtals hafa Eykyndilskonur
gefið 10 rúm hingað. Verðgildi
þessara gjafa fer að nálgast 4
milljónir króna. Er alveg ótrúlegt
að ekki fjölmennari félagsskapur
skuli geta gefið svona rausnarlegar
gjafir. En með elju og útsjónarsemi
hafa þessar konur lyft grettistaki
fyrir okkur Eyjabúa. Nægir í því
sambandi að minna á öll þau
björgunartæki og tól sem þær hafa
gefið í flotann hér.
Við hér á Hraunbúðum viljum færa
Eykyndilskonum okkar bestu
þakkir fyrir þessar höfðinglegu
gjafir og biðjum þeim Guðs -
blessunar í þeirra göfuga starfi.
Fyrir tilstilli Eykyndilskvenna og
fleiri velviljaðra félagasamtaka hér
í Eyjum er nú að takast, að öll
rúmin hér á Hraunbúðum verði
rafknúin og af fullkomnustu gerð.
Er okkur þetta mikilvægt, bæði til
að betur fari um okkar heimilis-
menn og eins fyrir starfsfólkið að
vinna við aðhlynningu.
Fyrir allar þessar gjafir og ekki
síður þann hlýhug og velvilja sem
heimilið hefur notið frá bæjarbúum,
viljum við þakka af alhug.
Fréttatilkynning frá Hraunbúðum.
EYKYNDILSKONUR við eitt af rúmunum sem þær hafa fært
Hraunbúðum. Þetta rúm fékk María Pétursdóttir.
Eykyndilskonur
komu færandi hendi
Það voru virkilega duglegir og
áhugasamir nemendur í 5. og 6.
bekk Grunnskóla Vestmannaeyja
sem tóku þátt í verkefni UNICEF
hreyfing arinnar miðvikudaginn 23.
maí. Ákveðið var að nota verkefnið
sem samstarfsverkefni árganganna
til að styrkja samskiptin á milli
nemenda fyrir næsta vetur þegar
nemendur 5. bekkjar flytjast yfir í
Barnaskóla húsið.
Verkefnið er í samstarfi við
UNICEF á Íslandi þar sem mark-
miðin eru að fræða nemendur um
þurfandi börn um allan heim í
gegnum holla hreyfingu og safna fé
sem rennur til jafnaldra sem búa
við bág kjör og lakar aðstæður.
Þeir nemendur sem gátu eða vildu
söfnuðu áheitum (ekki skylda) úr
sínu nánasta umhverfi vegna
verkefnisins.
Með því aðeins að taka þátt í
hreyfingunni er verið að styrkja
börn um allan heim, því góður
hugur, samkennd og þátttaka er
mikil gjöf. Mikilvægast er að
börnin fræðist um jafnaldra sína í
þróunarlöndum, stundi hreyfingu
og hafi gaman af.
Verkefnið var þrautabraut á
Stakkó með 12 þrautum, fengu
nemendur einn límmiða í þar til
gert kver fyrir hvern hring, þannig
gátu þeir fylgst með framvindunni.
Nemendur fengu 60 mínútur til að
hreyfa sig, mest var hægt að fara 12
hringi. Í lokin var spurningin
hversu marga hringi viðkomandi
fór. Verkefnið gengur út á að margt
smátt gerir eitt stórt.
Nemendur fengu að sjá stutta
fræðslumynd um líf barna í löndum
þar sem UNICEF starfar. Einnig
komu fulltrúar frá fiskverkuninni
Löngu til að kynna hvernig
fyrirtækið styrkir börn í Nígeríu.
Sendum þeim bestu þakkir sem
styrktu verkefnið.
Frá GRV.
Hreyfing í þágu UNICEF
ÖFLUGIR NEMENDUR Verkefnið var þrautabraut á Stakkó með 12 þrautum, fengu nemendur einn lím-
miða í þar til gert kver fyrir hvern hring
Í spor Leifs
heppna
Krakkarnir í 5. bekk í GRV-
Hamarsskóla luku fyrir nokkru
vinnu sinni um landnámsmann -
inn Leif Eiríksson. Námsefnið er
byggt upp með þeim hætti að þau
fylgja lífi Leifs, setja sig í spor
hans og afla sér upplýsinga um
hvernig landnámsmenn komust
yfir hafið til Íslands, námu land
og aðlöguðust lífi í nýju landi.
Lokapunkturinn í verkefninu
var að sauma landnámsföt, smíða
nælur, vopn og verjur og halda
víkingaveislu inni í Herjólfsdal.
Þar sýndu krakkarnir listir sínar
með sverði og skildi, einnig buðu
þau gestum upp á harðfisk,
hafra kökur og mjöð. Þessir
krakkar hafa í vetur verið iðin
við nám sitt, verið fróðleiksfús og
vinnusöm.
Fréttatilkynning frá GRV
TVEIR í meira lagi vígalegir.
„Tales and Legends are on the
Way“ er Comeniusarverkefni sem
GRV- Hamarsskóli er þátttakandi í.
Undanfarna tvo mánuði hafa
krakkarnir í 1.-5. bekk unnið með
sögur frá Íslandi, Frakklandi,
Hollandi, Ítalíu og Portúgal.
Krakkarnir í 3. bekk fengu sög -
una frá Portúgal um Little Beetle
and John the Dormouse.
Í túlkun sinni á sögunni gerðu
þau sér lítið fyrir og settu upp
söngleik; þau sömdu tónlistina,
bæði lag og texta, og fluttu með
glæsibrag. Leikþáttinn sýndu þau
fyrir kennara og nem endur sem
voru hér í heimsókn í síðustu
viku, einnig buðu þau fjölskyldum
sínum að koma í skólann og sjá
sýninguna.
Fréttatilkynning frá GRV.
Comeniusarverkefnið:
Krakkarnir í þriðja bekk
settu upp söngleik
KRAKKARNIR gerðu sögunni
um Little Beetle and John the
Dormouse skil í söngleiknum.