Fréttir - Eyjafréttir - 08.06.2016, Blaðsíða 14
14 Eyjafréttir / Miðvikudagur 8. júní 2016
Nú líður að sumarfríum í
skólum bæjarins og eru þar
með nemendur og kennarar
skólanna að fara yfir uppskeru
vetrarins. Tíundu bekkir í
Grunnskóla Vestmannaeyja
gerðu öll glæsilegt lokaverkefni
þar sem hver hópur tók fyrir
ákveðið mál og fóru hóparnir
mismunandi leiðir til þess að
svara spurningu sem varpað var
fram. Kynntu krakkarnir
niðurstöður sínar á fimmtudag-
inn þar sem foreldrar og aðrir
aðstandendur fengu að fylgjast
með.
Blaðamaður mætti á kynn-
inguna og hafði í raun ekki
miklar væntingar enda vissi
hann ekkert um hvað þau
höfðu verið að gera. Ekki náði
blaðamaður að sjá næstum
allar kynningarnar en þær sem
hann náði að sjá kölluðu fram í
hugann; Vá hvað þau eru flott.
Viðfangsefnin voru jafn fjölbreyti-
leg og hóparnir voru margir og þau
voru ekki léttvæg sum hver en þau
létu það ekki aftra sér. Framsetning
og frágangur var almennt glæsilegur
og krakkarnir áhugasamir og stoltir
af sínum verkefnum. Þessir krakkar
eru greinilega vel undirbúnir fyrir
næsta skólastig miðað við hvernig
þau leystu þessi verkefni.
„Krakkarnir voru í verkefnavinnu
frá 20. maí til 2. júní og frá og með
20. maí unnu þau einungis í þessum
verkefnum. Á undan voru bæði
nemendur og foreldrar búnir að fá
kynningu á verkefninu og um-
sjónarkennarar undirbjuggu
nemendur vel fyrir verkefni.
Nemendur fengu einnig fyrirlestur
um hvernig á „að setja fram
rannsóknarspurningu hjá Thelmu
Gísladóttur. Einnig stóð til að
nemendur fengju fyrirlestur um
viðtalstækni en því miður gekk það
ekki upp,“ sagði Anna Rós
Hallgrímsdóttir deildarstjóri.
Lokaverkefnið var lagt upp sem
rannsóknarverkefni og var ætlað að
endurspegla þá kunnáttu, þekkingu
og færni sem nemendur búa yfir við
lok grunnskólans. „Verkefnið
byggðist á öflun upplýsinga,
úrvinnslu og skilum í fjölbreyttu og
mismunandi formi. Nemendur
völdu sér sjálfir það form sem þeir
töldu henta sínu verkefni. Einnig
var ætlast til að nemendur viði að
sér heimildum úr ólíkum áttum.
Sem sagt krefjandi verkefni á ferð.
Í verkefnavinnunni var lögð áhersla
á lykilhæfni nemenda eins og
tjáning og miðlun, skapandi og
gagnrýna hugsun, sjálfstæði og
samvinna, nýting miðla og
upplýsinga og ábyrgð og mat á
eigin námi,“ sagði Anna Rós.
Glæsileg kynning á lokaverkefnum 10. bekkjar í GRV:
Vel undirbúin fyrir næsta
skólastig miðað við hvernig
þau leystu þessi verkefni
Sara SjöFn grEttiSdóttir
sarasjofn@eyjafrettir.is