Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Page 2
2 10. maí 2019FRÉTTIR
orð sem ætti að banna
Réttindabarátta nútímans snýst
að miklu leyti um orðnotkun
fremur en efnislega þætti og DV
styður þá baráttu heilshugar.
Gamaldags og gildishlaðin orð
ber að taka út úr orðabókum og
íslenskukennslu og ný mildari orð
ættu að koma í staðinn. Svo dæmi
sé tekið hafa sérfræðingar tekið
orðið skróp út úr málinu og sett
í staðinn orðið skólaforðun. DV
fagnar slíkri breytingu enda getur
nemandi ekkert að því gert að
hann mæti ekki í skólann. Hér eru
fimm orð sem þurfa að hverfa úr
tungumálinu.
Heimska
Heimska og lýsingar
orðin heimskur og
heimsk eru gömul og úr
sér gengin. Uppruna
lega merkingin er sú
að sá sem er heimskur
hafi ekki farið víða og
þekki ekkert nema
eigið heimili.
DV leggur til: Óver
aldarvanur/vön.
Þjófnaður
Þjófnaður er gildis
hlaðið orð sem vísar til
þess að einstaklingur
gæti hafa brotið af
sér með því að taka
eigur annarra ófrjálsri
hendi. Við megum
alls ekki stimpla fólk
á þann hátt árið 2019
og það hlýtur alltaf að
vera góð ástæða fyrir
hegðuninni.
DV leggur til: Tæknileg
mistök.
Ljótur/ljót
Það er tímaskekkja
að segja að einhver
geti verið ljótur eða
ljót. Útlitsdýrkunin er
orðin mjög hamlandi,
sérstaklega fyrir ungt
fólk. Það sama á við
hluti og staði og þess
vegna verður að taka
þessi orð út. Það
segir sig sjálft að taka
verður orðin fallegur
og falleg út líka því að
það hangir saman.
DV leggur til: Ekki
neitt. Aldrei ætti að
ræða útlit á neinu.
Dýr
Að vera dýr hefur mjög
neikvæða merkingu
í nútímanum, sam
anber orðin dýrslegur
og villidýr. Þessi
afmennskun dýra gerir
það að verkum að við
leggjum okkur þau
frekar til munns sem er
villimennska af verstu
sort.
DV leggur til: Einstak
lingur sem er ekki
Homo Sapiens.
Leti
Leti felur í sér að
einstaklingur sinni ekki
einhverju, hvort sem
það er vinna, heimilis
störf, félagslíf eða
annað. Leti er gildis
hlaðið orð og mjög letj
andi fyrir viðkomandi
einstakling sem er
haldin henni. Gera
ætti læknisfræðilega
greiningu á ástandinu
því slík hegðun getur
einungis verið túlkuð
sem sjúkdómur.
DV leggur til: Drif
kraftsröskun.
Á þessum degi,
10. maí
1774 – Loðvík XVI. og María Antoinette
verða konungur og drottning Frakk
lands.
1837 – Bankar í New Yorkborg falla
með hörmulegum afleiðingum, meðal
annars mesta atvinnuleysi sem þekkst
hafði í Bandaríkjunum.
1954 – Bill Haley & His Comets senda
frá sér smáskífuna Rock Around the
Clock, fyrstu rokkplötuna sem nær 1.
sæti á Billboardvinsældalistanum.
1975 – Sony kynnir til sögunnar Beta
maxvídeóupptökutækið í Japan.
Síðustu orðin
„Guð mun fyrirgefa mér,
það heyrir til hans starfa.“
– Þýska ljóðskáldið Heinrich Heine
(1797–1856)
Þór fagnar nýrri gráðu – „Nú er bara að
fá sér jakka með vínarbrauði á öxlunum“
Þ
ór Saari, hagfræðingur og fyrrver
andi þingmaður, er nú kominn
með nýja gráðu í hús, en hann
lauk pungaprófinu í apríl. Þór er
vanur sjómennskunni, en hann var í tíu
til sjós áður en hann varð þingmaður
árið 2009, en þá settist hann á þing eitt
kjörtímabil fyrir Borgarahreyfinguna,
síðar Hreyfinguna.
Þór, sem varð þjóðþekktur í
búsáhaldabyltingunni, starfaði
einnig sem hagfræðingur í New
York, hjá Seðlabanka Íslands
og Lánasýslu ríkisins, vann
hjá Sameinuðu þjóðunum
og kenndi í framhaldsskóla.
Eftir að þingmennskunni
lauk, stóð Þór á
krossgötum, atvinnulaus, og sagði í við
tölum að það væri ekki auðvelt fyrir fyrr
verandi þingmenn að fá vinnu.
Hann gekk til liðs við Pírata árið 2016
og gaf kost á sér í prófkjöri, en fékk ekki
brautargengi. Yfirgaf hann flokkinn síð
an árið 2018 þar sem hann taldi gengið
framhjá sér við skipun fulltrúa í banka
ráð Seðlabanka Íslands.
En nú eru Þóri allir vegir
færir á láði og fagnar hann
á Facebook með orðun
um: „Þá er Punga
prófið komið. Skipp
er Þór, það er nú
eitthvað. Nú er bara
að fá sér viðeigandi
kaskeiti og jakka
með vínarbrauði á
öxlunum.“ n
Skipper Þór Próf
skírteinið góða.Þór Saari
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
Framboðsstelling Bryndísar
B
ryndís Har
aldsdóttir
hefur setið á
Alþingi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn
síðan árið 2016.
Áður sat hún í bæj
arstjórn Mosfells
bæjar og var með
al annars formaður
bæjarráðs árin 2014
til 2017. Eins og
flestir stjórnmála
menn er Bryndís
þaulvön kosninga
baráttu, kynningu
á sjálfri sér og sín
um baráttumálum.
Myndatökur skipa
þar vitaskuld stóran
sess og Bryndís er
búin að fullkomna
sína framboðsstell
ingu sem er nokk
uð á skjön við aðra
frambjóðendur.
Sjón er sögu ríkari.
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is