Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Blaðsíða 9
10. maí 2019 FRÉTTIR 9 ur að málað hafi verið yfir mygluna áður en núverandi íbúar komu þangað. Íbú- arnir hafa nú dvalið þarna í um það bil ár og hafa sumir þeirra fundið fyrir einkenn- um; öndunarfæravandamál- um, lungnabólgu, svima, húðvandamálum og slapp- leika sem þeir kannast ekki við að hafa haft áður. Ekki er þó hægt að fullyrða að svo stöddu að það sé vegna myglunnar, en mygla getur haft mjög slæm áhrif á heilsu fólks. Hafa ber í huga að flestir íbúanna eru ekki í fastri vinnu og Víðines mjög afskekkt. Verja íbúarnir því jafnan mjög miklum tíma innandyra þar. Mikill munur á göngum Reykjavíkurborg réð verktaka sem umsjónarmann og býr hann á staðnum. Hann á að sjá um þrif í húsinu en augljóst er að skyldur hans hafa ekki verið uppfylltar. Athygli vekur að langtum þrifa- legra er á þeim gangi sem hann dvelur á en stærri ganginum þar sem fleiri leigja. Tveir húsfund- ir voru haldnir fyrir áramót og var þá falast eftir, af hálfu borgarinn- ar, að leigjendur tækju sjálfir að sér þrifin. Einstaklingur sem var með verktakasamning umsjónar- mannsins undir höndum benti á að umsjónarmaðurinn ætti að sinna þessu og engin niðurstaða varð af fundinum. Ekki hafa verið haldnir húsfundir eftir þetta. Sigurlaug segir: „Þegar staðurinn var opnaður sendu Kærleikssamtökin inn er- indi og óskuðu eftir því að verða umsjónaraðili hérna, því við viss- um að það þyrfti að vera utan- umhald. Það var afþakkað af vel- ferðarsviði og núverandi verktaki ráðinn. Okkur vitandandi var ekki auglýst í starfið. Þú sérð hvernig þetta er, það væri alveg eins hægt að sleppa þessu miðað við hvernig þetta hefur gengið.“ Sigþrúður Erla Arnardóttir, framkvæmdastjóri þjónustumið- stöðvar Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða, segir: „Varðandi þrif þá er umsjónar- maður á staðnum sem sér um þrif á sameign. Svo er það á höndum íbúa að sjá um sín rými. Rétt fyr- ir jól voru keypt alþrif og allt al- menna rýmið þrifið hátt og lágt.“ Blaðamaður DV leit ekki nema rétt svo inn í herbergin sjálf. Óþrifnaðurinn í almenna rýminu er gríðarlegur eins og myndirnar sýna. Banaslys á veginum Staðsetningin hefur mikið að segja fyrir íbúana í Víðinesi. Hús- ið er staðsett á Kjalarnesi, handan sorphauganna í Álfsnesi. Langan tíma tekur að keyra í bæinn og aðeins fáir íbúar með bíl til um- ráða. Á veturna er vegurinn veru- lega slæmur vegna hálku og oft er hvassviðri á þessum stað. Leigu- bílar keyra í Mjóddina klukkan 11 og svo aftur til baka klukkan 17. Lítið er um að vera og íbúarn- ir kvarta yfir leiðindum. Einn hef- ur tekið upp á því að setja upp verkstæði í sameiginlegu rými á ganginum og gerir þar við vél- hjól. Þrír eru færir skákmenn með fjölda ELO-stiga en ekkert skák- borð er á staðnum. Þegar DV bar að garði voru margir inni í her- bergjum sínum. Hvað varðar sam- band íbúanna segja þeir það vera ágætt og lítið um alvarlegt ósætti. Þegar hefur orðið eitt banaslys á veginum sem er mjög holóttur og bugðóttur. Ingi- mundur Valur Hilmars- son, sem kallaði sig Tind Gabríel, bjó í Víðinesi en hann var þekktur maður úr miðborg Reykjavíkur. Í september var hann á leið frá Víðinesi en keyrði út af, velti bílnum og lést á Landspítal- anum af áverkunum. Annar íbúi stórskemmdi bílinn sinn í einni af ótal holum í inn- keyrslunni og á veginum sjálfum. Höfðu íbúar tilkynnt um þessa holu en þær tilkynningar virðast hafa „glatast.“ Miklu máli skiptir að hafa bíl til umráða á svæðinu og missti sá íbúi og fleiri því mikla virkni því hann skutlaði mönnum og fór í bíltúra. Málið var kært en útlit er fyrir að íbúinn muni sitja uppi með tjónið. „ÞETTA ER EINS OG GEYMSLA SEM ENGINN NENNIR AÐ TAKA TIL Í“ n Mikil óvissa fyrir íbúa Víðiness n Úrgangur úr rotþró fastur í dúknum n Banaslys á slæmum vegi n Mygla og nagdýr „Við skiljum ekki forgangsröðunina Eldhúsið Saur fastur í gólfdúknum. Sturtan Mygla kom í gegnum málningu. Tindur Gabríel Íbúi í Víðinesi sem lést í bílslysi á veginum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.