Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Blaðsíða 41
TÍMAVÉLIN 4110. maí 2019 hann Hannes að sækja Sigurð til að kveða niður þennan anda því hann væri kraftaskáld. Hannes fór og sótti Sigurð og voru þeir alllanga stund frammi. Þegar þeir komu til baka sögðust þeir hafa mætt hræðilegu skrímsli en náð að reka það burt. Ræddu þeir þrír nú saman um hvað skeð hefði og sögðu tvímenningarnir Pétri að hann mætti alls ekki skjóta drauginn, það gerði aðeins illt verra og myndi efla styrk hans. Heldur mætti Pétur ekki ráðast á drauginn og berja hann. Trúði Pétur þessu öllu saman og var svo smeykur að hann gat ekki sofið þá um nóttina. Skríðandi ófreskja Næsta dag gerðist ekkert en Pétur var var um sig. Þegar rökkvaði var hann orðinn mjög hræddur, sér- staklega eftir að Guðmundur böð- ull mætti honum og sagðist hafa séð vofu fyrir utan húsið. „Sagð- ist hún vera send til þín og eiga að drepa þig,“ sagði Guðmundur við Pétur. Varð Pétur svo hræddur við að heyra þetta að hann bað þá þrjá, Guðmund, Sigurð og Hannes, og einnig Kristján Jakobsson verslun- armann, að vera inni hjá honum um kvöldið. Kveikti hann á tveim- ur kertum, tók Passíusálmana sér í hönd og byrjaði að syngja. Krist- ján var þá úti að aðgæta í kringum húsið. En þá kom högg á hurðina. Pétur var brattur með svo marga inni hjá sér, tók byssuna og barði með skaftinu á móti. Hann hróp- aði á drauginn að hypja sig norður og niður. Skömmu síðar kom Krist- ján inn og sagðist hafa séð ófreskju skríða frá húsinu og í átt að ullar- stofu þar rétt hjá. En síðan byrj- aði hamagangurinn aftur og barði draugurinn bæði á hurð og glugga. Héldu barsmíðarnar áfram fram eftir kvöldi uns Sigurður steig upp og rak drauginn burtu. Svaf Pétur heldur ekki þá nóttina. Galdrastafir úr blóði Um morguninn komu þeir allir saman og sagði Sigurður að aug- ljóst væri að draugurinn ætlaði að drepa einhvern þeirra. Það kvöld héldu reimleikarnir áfram og var barið svo hart á hurðina að hún opnaðist hvað eftir annað, hlut- ir hrundu úr hillum og húsið allt skalf. Sigurður og Hannes voru stoð og stytta Péturs og voru inni hjá honum. Mitt á milli ásókn- anna sögðu þeir draugasögur sem gerðu Pétur enn þá hræddari. Grátbað hann Sigurð um að kveða niður drauginn. „Það má vera að ég reyni það, ef ég fæ einn pott af brennivíni,“ svaraði Sigurður. Var það gert og settust þeir við drykkju. Sigurður sagði að það væri ekki auðvelt að kveða niður drauga og að hann óttaðist afleiðingarnar. Hann myndi þó reyna að frelsa fé- laga sína því honum þætti vænt um þá. Skar hann í sig og notaði blóðið til að skrifa nokkra galdra- stafi. Síðan gengu hann og Hann- es fram í eldhús en Kristján var hjá Pétri. Heyrðust nú hljóð úr eldhúsinu líkt og flogist væri þar á. Þá heyra þeir Sigurð spyrja: „Hvaðan ertu?“ Og svarað: „Að austan.“ Sigurður spyr aftur: „Hvern ætlarðu að finna?“ Draugurinn svaraði þá: „Pétur beyki.“ Í þriðja skiptið spyr Sigurður: „Hvað viltu honum?“ Og draugur svarar: „Ég á að drepa hann.“ Fór Sigurður þá með þulu og skipaði draugnum að mæta sér klukkan ellefu. Másandi og blásandi komu Sigurður og Hann- es aftur inn í svefnherbergið. Sögðu þeir að draugurinn hefði verið magnaður upp úr hrafns- hjarta og hræfuglaskinnum en hefði vit á við mann. Settust þeir aftur við drykkju. Fimm ríkisdalir Klukkan tíu var hurðinni hrundið upp en enginn sjáanlegur. Sigurð- ur og Hannes fóru út og komu aft- ur með Guðmund með sér. Voru þeir skrýtnir og leið yfir þá alla. Pétur hljóp til að sækja vatn handa þeim og hresstust þeir þá við. Klukkan hálf ellefu kom aftur högg á hurðina, en Guðmundur var þá farinn úr herberginu. Pétur gólaði blótsyrði og spýtti í áttina að hurðinni. Þá greip hann Passíu- sálmana með annarri hendinni og byssuna með hinni. Báðu þeir hann að róa sig en Pétur æpti: „Haldið þið að ég viti ekki allt um þennan draug og hvernig hann er gerður? Ég heyrði allt sem ykkur fór á milli frammi í eldhús- inu. Ég heyrði sjálfur að draugur- inn sagðist vera að austan og ætla að drepa mig. Og hann er frá Jóni í Belgsholti, því honum er illa við mig. Og svo haldið þig að manni standi á sama. Ég skal borga þér fimm ríkisdali, Sigurður, ef þú kveður hann niður fljótt, og áttu ekki skilið að heita kraftaskáld ef þú getur það ekki.“ Þá var hurðinni hrundið upp og inn fleygt staurum, stokkum og öðrum húsmunum. Sigurður og Hannes óðu út í myrkrið en Pétur sat einn eftir, trylltur af angist og ósofinn. Pétur flúði þá inn í svefn- herbergi hjá fjölskyldunni sem bjó í Brúnshúsi. Fjölskylduföðurnum, er Sigmundur hét, brá við þetta og stökk á fætur. Skammaði hann Pétur sem hrökklaðist þaðan út. Þá var barið á gluggana, svo fast að tvær rúður brotnuðu. Fyrir utan heyrðust stimpingar og læti. Pétur leit út og sá Sigurð í áflogum við dökka ófreskju. Sigurður náði að reka hana á brott, síðan komu hann, Guðmundur og Hannes aft- ur inn í húsið. Var Sigurður ör- magna og orðfár. Þakkaði Pétur honum fyrir og Guðmundi sagðist vera illt á að hlusta á „mergjaðar“ vísur Sig- urðar til að kveða drauginn nið- ur. Voru þeir allir svo glaðir að þeir sungu sálma, drukku og Pétur las bæn. Fyrir dóm Draugurinn kom ekki aftur í Brúnshús en næstu daga tók Pétur eftir því að fólk var að hæðast að honum vegna draugagangsins. Kom loks til hans maður og sagði honum að þetta hefðu allt verið brögð „vina“ hans og hann hefði verið hafður að fífli og féþúfu. Var Pétur eggjaður til þess að láta þetta ekki viðgangast og kæra mál- ið sem hann og gerði. Þann 3. janúar árið 1824 fór Pétur á fund Sigurðar Thorgrím- sen bæjarfógeta og kærði félaga sína fyrir samantekin ráð um að leika á sig og hafa af sér fé og vín. Sagði hann að draugurinn hefði verið Guðmundur böðull. Fógeta fannst málið spaugi- legt en tók það engu að síður til rannsóknar og stefndi aðilum málsins fyrir lögreglurétt þann 12. janúar. Þar talaði Pétur digur- barkalega en hafði engar sannanir fyrir máli sínu. Leysti fógeti málið á þann hátt að Pétur myndi aftur- kalla kæru sína gegn því að félagar hans legðu til fjögur ríkisbanka- mörk til fátækrasjóðsins í Reykja- vík. Pétur sat hins vegar uppi með málskostnaðinn. Eftir þetta buðu félagar Péturs honum til drykkju „og drekti hann þar minkunn sinni og gremju svo rækilega að hann var miður sín lengi á eftir.“ n aðrir útsölustaðir Epal - Laugavegi 70 EPAL - Harpa Airport fashion - Leifsstöð Reykjavik Raincoats LAUGAVEGUR 62, 101 RVK www.reykjavikraincoats.com Sími: 5711177 - info@reykjavikraincoats.com „Það má vera að ég reyni það, ef ég fæ einn pott af brennivíni. „Ég á að drepa hann Tjarnargata 4 Þar sem Brúnshús stóð til 1830. Reykjavík Tíminn 6. janúar 1990.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.