Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Blaðsíða 6
6 10. maí 2019FRÉTTIR
GRÆNA TUNNAN AUÐVELDAR FLOKKUNINA
Pappír, pappa, plast og minni málmhluti
má setja beint í tunnuna - Muna að skola
Pantaðu grænu tunnuna í síma
577-5757 eða www.igf.is/panta
Hugsum áður en við hendum!
577 5757
Guðmundur skorar á
kírópraktora að taka þátt
í söfnun fyrir Fanneyju
Kírópraktorstöð Reykjavíkur safnar fyrir Fanneyju á laugardaginn
L
augardaginn 11. maí stendur
Kírópraktorstöð Reykjavíkur fyr-
ir viðburði á frá klukkan 9 til 13
þar sem starfsmenn stöðvarinn-
ar ætla að taka á móti fólki í meðferðir
og mun allur ágóði renna til Fann eyjar
Eiríksdóttur og Ragga, eiginmanns
hennar.
Flestir Íslendingar ættu að vera
stöðu þeirra hjóna kunnugir en Fann-
ey hefur barist við krabbamein á fjórða
stigi í langan tíma. Parið á saman tvö
börn en það var á meðgöngu seinna
barns þeirra sem krabbameinið
fannst og þurfti að taka son þeirra með
keisara löngu fyrir settan fæðingardag.
„Bæði Raggi og Fanney hafa verið
í meðhöndlun hjá mér reglulega síð-
ustu árin þannig að mér þykir afskap-
lega vænt um þau bæði og vil gera allt
mitt til þess að geta hjálpað aðeins
til,“ segir Guðmundur Birkir Pálma-
son kírópraktor sem stendur fyrir við-
burðinum.
„Þetta fer þannig fram að allir eru
velkomnir í tíma hjá okkur, hvort sem
þeir eru kúnnar okkar eða í meðferð
annars staðar. Þeim sem vilja bóka
fastan tíma er velkomið að gera svo
eða bara að mæta á staðinn. Við verð-
um aðallega fjórir kíróptaktorar sem
vinnum hjá Kírópraktorstöð Reykja-
víkur og svo verður Mark Kislich að
nudda. Ég ákvað að bjóða öðrum
kírópraktorum að vera með svo að
fleiri kæmust að og til að ýta undir að
kírópraktorar á Íslandi myndu standa
saman fyrir gott málefni. Þeir sem vilja
koma eru velkomnir til að nota stof-
una okkar eins og hentar. Þetta verða
hefðbundnar meðferðir og ef við þurf-
um að taka röntgenmyndir þá ger-
um við slíkt. Verðið verður eftir verð-
skrá en frjáls framlög eru velkomin
og rennur allur ágóði að sjálfsögðu til
Fanneyjar og fjölskyldu.“
Guðmundur skorar á sem flesta
kírópraktora að koma og taka þátt og
styðja þannig Fanneyju og fjölskyldu
hennar í þeirri hetjulegu baráttu sem
þau heyja. n
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@dv.is
LOF & LAST
Hatari
Óhætt er að segja að Hatara
hópurinn hafi slegið í gegn í
Ísrael og er okkar framlag
það umtalaðasta af
öllum. Stórir fjölmiðlar
sem lesnir eru um allan
heim hafa sýnt þeim áhuga,
þar á meðal The Guardian og The
Economist. Hatari hefur verið í
áttunda sæti hjá veðbönkum en
nú eru sumir farnir að spá þeim
betra gengi, jafnvel sigrinum.
Íslendingar eru ein af þeim þjóðum
sem hafa keppt lengst án þess að
vinna. Ekkert framlag okkar hefur
komist upp úr undankeppni síðan
Pollapönk árið 2014. DV hefur
fulla trú á að Hatari fari langt í
keppninni.
Kópavogsbær og aðrir slóðar
Sveitarfélög hafa tekið NPA
reglugerðina um réttindi fatlaðs
fólks misföstum tökum.
Kópavogur er eitt af þeim
sveitarfélögum sem hafa
trassað að innleiða hana
og kemur það niður á fötluðu
fólki sem þar býr. Ásta Dís Ást
ráðsdóttir var í viðtali hjá RÚV um
málið, en hún er fjölfötluð og býr í
Kópavogi. Seinkunin kemur niður
á henni persónulega varðandi
greiðslur á launum og orlofsupp
bót. DV hvetur þau sveitarfélög
sem vita upp á sig skömmina til
að leiðrétta þetta óréttlæti sem
fyrst.
„Mér þykir
afskap-
lega vænt um þau
bæði og vil gera
allt mitt til þess
að geta hjálpað
aðeins til
Guðmundur og
Fanney / Mynd:
Aðsend