Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Blaðsíða 4
4 10. maí 2019FRÉTTIR Mamma og pabbi banna plastpoka N ú á að fara að banna plast- pokana. Fólkið góða og réttsýna treystir ekki grút- skítugum almúganum til þess að taka „réttar“ ákvarðanir og því ber að banna. Ráðherrar og þingmenn líta ekki á sig sem þjóna almennings, kosna til að framfylgja vilja fólksins gegn pen- ingaumbun, heldur sem foreldra. Við erum börn sem þarf að halda ströngum aga á og skamma ef svo ber undir. Ef við erum óþæg för- um við í straff og dótið okkar er tekið af okkur. Mamma og pabbi vita hvað okkur er fyrir bestu. Þeir plastpokar sem við fáum við afgreiðslukassana í stórmörk- uðunum eru ekki einnota, oft- ast eru þeir notaðir í að minnsta kosti í tvö skipti af hverjum not- anda, eða að minnsta kosti hjá Svarthöfða og öllum sem hann þekkir. Fyrst við kassann sjálf- an, stundum sem geymslupoki fyrir matvæli, enda auka þeir geymsluþolið, og loks sem rusla- poki á heimilinu. Þaðan fara þeir í rennuna og ofan í tunnu. Rusla- karlanir, eða hvað sem á að titla þá núna, tæma svo tunnuna og fara með innihald hennar á haug- ana. Eftir að plastpokar voru þynnt- ir hefur notkunin aukist, í sumum löndum um tugi prósenta. Sér- staklega eftir að þessir óþolandi maíspokar komu á markaðinn, sem rifna auðveldlega og halda engri þyngd. Samfara því hefur verð á pokunum hækkað stöðugt. Svarthöfði getur alveg tekið undir þau sjónarmið að plast- mengun geti verið vandamál. Sí- fellt bætist örplast í sjóinn og grey sjófuglarnir festa hausinn í bjór- kippuplasti. Svarthöfði keypti einu sinni vatnsmelónufjórðung sem var vafinn í plastfilmu, lá á frauðplastbakka og það síðan allt vafið í aðra plastfilmu. Plaströr og plastlok á drykkjarmálum eru líka algjör óþarfi, það drepst enginn þó hann sulli pínulítið á sig. Nei, í staðinn á að banna kjörbúðar- pokana sem eru með þeim nytsam- legustu plastafurð- um sem koma inn á hvert heimili. Mamma og pabbi eru búinn að skipa okkur það og við verðum að hlýða. Hvað banna þau næst? Við bíðum spennt. Verður það veip? Gos- drykkir? Eða kannski kjöt? n Svarthöfði Það er staðreynd að… Faxtækið er eldra en síminn. Að springa á limminu þýðir að missa stjórnina í drykkjusöng. Perlur leysast upp í ediki. Rokkarinn Gene Simmons úr Kiss er Ísraeli og heitir Chaim Witz. Nærri helmingur spóa heimsins verpir á Íslandi. Hver er hann n Er hálfbanda- rískur, kvartfæreyskur og kvartíslenskur að uppruna. n Æfði fótbolta sem barn en skipti yfir í körfuboltann á unglingsárum. n Margfaldur Íslandsmeistari með KR. n Hefur greint frá kynþáttafor- dómum í sinn garð. n Stundaði háskólanám í Suður- -Karólínu í Bandaríkjunum. SVAR: KRISTÓFER ACOX. YFIRHEYRSLAN Þráinn Árni Baldvinsson er gítarleikari í þungarokks- sveitinni Skálmöld sem slegið hefur í gegn, bæði hérlendis og utan landsteinanna. Hann er 42 ára Þingeyingur og tón- listarkennari og rekur nú sinn eigin tónlistarskóla, Tónholt, í Norðlingaholti. DV tók Þráin Árna í yfirheyrslu. Hjúskaparstaða og börn? Giftur, tveggja barna faðir í úthverfi. Fyrsta atvinnan? Ég var handlangari hjá Stebba á Rein, það var góður skóli. Ég er reyndar alinn upp í sveit og var byrjaður að vinna almenn sveitastörf frekar ungur, þannig að kannski má segja að það hafi verið fyrsta atvinnan. Skemmtilegasta giggið? Skálmöld og Sinfó var allt í lagi gigg, en hesta- mannaballið með Sigurði Hallmars er ofarlega í huga. Ég vissi ekkert hvað ég var að gera og Sigurður vildi ekkert æfa fyrir giggið. Hann bara sótti mig og við spiluðum. Safnar þú einhverju? Já. Ég hendi helst engu en veikleikinn er tónlist, ég er vínylnörd, safna vínylplötum, já og gíturum. Það vantar alltaf einn gítar í viðbót. Mannkostir þínir? Ég er frekar seinþreyttur til vandræða og þolinmóður. En lestir? Er ögn athyglisbrostinn og segi mjög sjaldan nei við fólk og er þar af leiðandi oft kominn með of mörg járn í eldinn. Þetta reddast, er það ekki? Áttu gæludýr? Nei. Fyrsti stjórnmálaflokkurinn sem þú kaust? Fyrst kaus ég Framsókn en svo þroskaðist ég. Áfram Kata Jak. Ertu góður dansari? Afleitur dansari. Afleitur. Hefur þú farið á matarkúr? Það held ég ekki, en ég hef lesið mikið um alls konar matarkúra og orðið mjög þreyttur og síðan svangur. Svona lagað á líklega ekki við mig. Áttu einhverja sakbitna sælu? Ég er stoltur af öllum mínum sælum. Bók eða bíómynd? Elska bæði bækur og bíómyndir, annað er ekki hægt. Ég les alls konar nördadót, sagnfræði og tónlistarsögu. Svo horfi ég endalaust á stríðs- myndir og heimildamyndir um stríð. Tekur þú þátt í lottói? Stundum. Hvað er mikilvægast í lífinu? Að hafa gaman er mikilvægast, í fjölskyldulífi, áhugamálum og vinnu. Ertu hjátrúarfullur? Það minnkar nú eftir því sem ég eldist, ég var voðalegur en nú er allt á réttri leið. En jinxum það ekki með því að tala um það. Hefur þú farið á sjó? Ég var leiðsögumaður á hvalaskoðunarskip- inu Eldingu í eitt sumar, telst það með? Ef ekki, þá nei, hef líklega aldrei gert gagn á sjó. Leiðinlegasta húsverkið? Allt verður betra með tónlist. Þess vegna er best að hlusta bara á góða tónlist á meðan maður þrífur og tekur til. Star Wars eða Stark Trek? Star Wars, alltaf Star Wars. Star Trek er fínt en Star Wars er best. Langbest. Eitthvað að lokum? Verum góð hvert við annað, þá líður okkur öllum betur. „Hvað banna þau næst? Þráinn Árni Baldvinsson 564167 MYND: HANNA/DV
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.