Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Blaðsíða 28
Vellíðan KYNNINGARBLAÐ Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is10. maí 2019 Bjórböðin eru einstök heilsulind Bjórböðin á Árskógssandi voru opnuð 2017, en þau höfðu þá lengi verið draumur Agnesar Önnu Sigurðardóttur eftir að hún heimsótti slíkt bað í Tékklandi 2008 ásamt eiginmanni sínum, Ólafi Þresti Ólafssyni. Hugmyndin hafði verið lengi í huga Agnesar frá fyrsta baði og hún var staðráðin í að opna bjór- böð einn daginn á Árskógssandi. Undirbúningsvinna hófst 2014 og voru Bjórböðin opnuð árið 2017 en þar er einnig veitingastaður og útipottar sem hafa notið mikilla vinsælda vegna útsýnis yfir hafið. En hverjir eru kostir bjórbaðs fyrir líkamann? „Í bjórbaði baðar maður sig í ungum bjór, lifandi bjórgeri, humlum, vatni, bjórolíu og bjórsalti. Bjórinn sem við notum í baðið er ungur í gerjun og er á þeim stað í ferlinu að hann hefur lágt pH-gildi og hefur þar af leiðandi stinnandi og mýkjandi áhrif á húð og hár. Bjórgerið sem notað er í böðin er einstaklinga ríkt af nánast öllum B-vítamínskalanum, sem er einstaklega endurnærandi fyrir húð og hár. Einnig er gerið mjög ríkt af próteini, kalíum, járni, sinki og magnesíum. Humlarnir sem eru notaðir í böðin hafa mjög góð áhrif á líkamann þar sem þeir eru ríkir af andoxunarefnum og alfasýrum. Olíurnar og örefnin úr plöntunni hafa bólgueyðandi áhrif og eru einnig notuð til að minnka roða í húð og hafa góð áhrif á æða- kerfið. Það er sannað að humlar hafa slakandi áhrif á vöðva og líkama.“ Ekki er mælt með því að farið sé í sturtu næstu 3 til 5 klukkustundir eftir baðið, því baðið hefur mjög endurnærandi og mýkjandi áhrif á húðina. Hitastig baðanna er um 37 til 39°C og fyllt upp með nýrri blöndu fyrir hvern kúnna, ef fólk vill hafa baðið kaldara eða heitara, þá er hægt að óska eftir því. Innifalið í baðgjaldinu er sloppur og handklæði. Mælt er með að komið sé tímanlega og farið í útipottana áður en farið er í bjórbaðið. Sjö ker eru á staðnum og er hvert þeirra í einka- herbergi, þannig að gestir eru alveg í næði. Hvert ker er tveggja manna. „Síðan slakar þú á í 25 mín- útur. Svo er gestum fylgt upp á aðra hæð í slökunarherbergi og þar er viðkomandi í 25 mínútur. Slökunarherbergið er teppalagt og allt mjög notalegt. Við mælum með að sleppt sé sturtu í 3–4 klukkustundir eftir bað, þannig að bjórinn geri það sem hann á að gera, og húðin verður slétt og mjúk á eftir,“ segir Agnes. Baðið er fyrir alla, hins vegar er 20 ára aldurstakmark, eins og lög gera ráð fyrir, í að neyta bjórsins. Bjórinn í bjórböðunum er 3–5 daga gamall og því ekki orðinn áfengur og því öllum óhætt að fara ofan í. Bjórböðin hafa verið vel sótt bæði af heimamönnum og ferðamönnum, og eru viðbrögð gesta nær undan- tekningarlaust jákvæð og hafa farið fram úr öllum vonum og væntingum. Bjórböðin eru einstök heilsulind og sækja innblástur til Tékklands, en eru þau fyrstu sinnar tegundar á Norður- löndum. Allar upplýsingar má fá í síma 414-2828, á netfanginu bjorbodin@bjorbodin.is og heima- síðunni bjorbodin.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.