Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Blaðsíða 32
Vellíðan 10. maí 2019KYNNINGARBLAÐ S tefán Michaelsson og Pálína Pálsdóttir eru eigendur True Viking Fitness, heimasíðu sem býður upp á fjarþjálfun fyrir alla á hagstæðu verði. Þau starfa bæði sem einka þjálfarar hjá WorldClass og kenna þar hóptíma. Stefán kennir HIIT Tabata og hefur gaman að styrk- og liðleikaþjálfun. Pálína kennir þrek- og þoltíma ásamt heitum jóga tímum o.fl. „Við höfum bæði alltaf haft mikinn áhuga á mannslíkamanum og hvað hann er stórkostleg vél, og enn fremur listaverk. Máltækið heilbrigð sál í hraustum líkama hefur aldrei átt eins vel við og einmitt í dag,“ segir Stefán. Vefjagigt og tenging hennar við nútímann „Fjöldi fólks í heiminum þjáist af vefjagigt og margir halda að það sé ekkert hægt að gera. En það er rangt. Búið er að gera fáeinar rannsóknir á sjúkdómnum, ekki nóg að mínu mati, en það bendir allt til þess að vefjagigt tengist nútímalifnaðar- háttum. Áhrifavaldar séu þá ýmist streita, kvíði, líkamlegt og andlegt álag, áföll og svo er klárt mál að fólk er almennt ekki að drekka nógu mikið vatn. Á Íslandi eigum við hreinasta vatn í heimi en samt drekka fæstir nóg af því. Þetta er út í hött. Ef við líkjum bandvefnum við chia-fræ. Þegar þau eru þurr, eru þau grjóthörð. Um leið og þau koma í vatn, seyta þau frá sér slímkenndu efni sem gerir þau mjúk og sleip. Það er umhverfið sem við viljum hafa kringum bandvefinn. Sé bandvefurinn stífur í kringum liðamótin verður sárt að hreyfa sig og fólk verður ofurnæmt fyrir snertingu. Ef einhver klípur laust í það þá æjar það. Það á ekki að vera vont að láta klípa sig. Þetta er dæmigert fyrir marga sem eru að þróa með sér vefjagigt og mikið varúðarmerki. Lyf virka auðvitað upp að vissu marki, en þau eru ekki eina leiðin. Það er hægt að gera ótrúlega mikið með úthugsaðri hreyfingu og lífsstílsbreytingu. Margir vefjagigtarsjúklingar fara til sálfræðings. Líkami og hugur eru svo samtengd að sálræn vandamál geta auðveldlega valdið líkamlegum einkennum. Því betur sem þér líður andlega því betri verður líkam- leg líðan. Svo tala margir um núvitund. Núvitund er ekki eitthvað sem þú þarft endilega að gefa þér rosalegan tíma í. Þú getur stundað núvitund á meðan þú ert að tyggja matinn þinn, eða ert að hlusta á flott lag í útvarpinu. Sjálf stunda ég núvitund þegar ég fer ein í göngutúra í Heiðmörk. Ég er algerlega í núinu, gangandi á milli himinhárra trjáa. Ég hengi vandamálin mín á trén og fer svo heim, þúsund kílóum létt- ari. Þetta virkar best á grónu landsvæði,“ segir Pálína. Bæting er alltaf skref í rétta átt Pálína hefur lært sálfræði og er með einkaþjálfararéttindi frá WorldClass. Stefán eru með gráðu í íþróttafræði og bæði eru þau með alþjóðlega ISSA vottun. „True Viking Fitness snýst um ástríðu okkar. Við viljum hjálpa fólki að breyta lífsstílnum til hins betra. Sama hversu stórt skrefið er sem fólk tekur. Þegar fólk breytir lífsstíl sínum, fer að æfa meira, borða hollari mat og fara betur með sig, öðlast það meiri orku til þess að gera hluti sem það hafði ekki orku í áður. Fólk eyðir t.a.m. meiri tíma með fjölskyldunni í fjallgöngum og sumir hafa skyndilega orku til að leika meira við börnin sín. Hreyfing hefur ótrúleg áhrif á dópa mínframleiðslu heilans sem gerir það að verkum að einstaklingurinn verður almennt hamingjusamari. Það er þetta sem við viljum sjá og ekki bara hjá viðskipta- vinum okkar heldur allri þjóðinni. Sumir viðskiptavinir okkar taka prógrammið með trompi og aðrir fara hægt í sakirnar. En langflestir gera að minnsta kosti einhverjar smábreytingar á lífsstílnum og fræðast um hvað mætti betur fara. Bæting er alltaf skref í rétta átt,“ segir Stefán. Fjölbreytni er lykilatriði „Á Íslandi hefur æði myndast í kringum crossfit. Það er aðdáunarvert hvað fólk kemur sér í gott form í íþróttinni. En crossfit er krefjandi og því miður eru margir að slasa sig því þeir eru ekki meðvitaðir um rétt form og líkamsstöðu. Margir gera sér ekki grein fyrir að þessi íþrótt hentar alls ekki öllum. Ef þú ert með minnsta vott af vefjagigt þá er crossfit ekki fyrir þig. Cross- fit snýst um að keyra sig út, sem leiðir allt of oft til meiðsla og stífra vöðva, en það er algert eitur fyrir þá sem eru með vefjagigt. True Viking Fitness snýst að miklu leyti um endurheimt eða recovery. Við fáum marga til okkar sem eru stífir í skrokknum því þeir hafa farið illa með sig í íþróttum. Okkar verkefni er að endurheimta vöðva, liðleika, hreyfigetu o.fl. hjá kúnnum okkar, með fjölbreyttri hreyfingu, teygjum og notkun innrauðra klefa eða sala. Svo er eitt sem mig langar að benda á; margir foreldrar setja börnin sín í íþróttir, sem er auðvitað frábært. En það er ekki síður mikilvægt að börn undir 14 ára stundi fjölbreytta hreyfingu. Það hafa allir heyrt af stelpunni sem var í fimleikum frá því hún var fimm ára, en þurfti að hætta á unglingsaldri vegna meiðsla. Þetta hlýst af því að stunda of einhæfa hreyfingu í of langan tíma og stuðlar að stífum bandvef sem byggist upp vegna þess að líkaminn er að verja sig fyrir álagi. Fjölbreytni er því algert lykilatriði á öllum aldri,“ segir Pálína. Það þurfa ekki allir að teygja eins og Jane Fonda „Kúnnahópur okkar er fjölbreyttur. Við fáum til okkar ýmist fólk sem hefur verið mikið í íþóttum áður, sem er jákvætt því þá höfum við vöðvaminni til þess að byggja æfingaplan á. Sumir af þeim hafa kannski farið illa með líkamann af ofreynslu. Þá þarf oft að brjóta upp gamlar venjur og setja fókus á teygjur, bandvefslosun og slíkt. Einnig höfum við unnið með fólki sem hefur aldrei hreyft sig almennilega. Þá þarf að hafa aðra hluti í huga þegar kemur að æfingaplani. Í öllum tilfellum leggjum við ríka áherslu á að lausnin snúist aldrei um að æfa bara og æfa og keyra sig út. Það er þvert á móti enn mikilvægara að taka sér hvíldardaga á milli strangra æfinga. Þá mælum við með því að fólk geri hluti eins og að fara í göngutúra, stundi jóga, fari í heit og köld böð, innrauða sánu o.þ.h. Ég er ekki að segja að það þurfi allir að teygja eins og Jane Fonda, en teygjur eru ómissandi þáttur af heilbrigðum lífsstíl,“ segir Stefán. „Jóga er á hverju einasta prógrammi sem við gefum út hjá True Viking Fitness. Þeir sem þjást af vefjagigt hafa sérstaklega gott af því að fara í heita tíma, hvort sem það eru jógatímar, Foam Flex eða hvaðeina,“ segir Pálína. Hvert prógramm er einstaklingsbundið. Viðskiptavinurinn velur milli fyrirfram- gefinna æfingaleiða út frá markmiðum sínum, en svo er hvert prógramm sniðið frekar að hverjum og einum. „Það eru ekki allir eins og því er ekki hægt að láta alla fá sama prógrammið. Þetta þarf að vera sniðið að markmiðum, líkama og heilsu- ástandi hvers og eins,“ segir Stefán. Omega og andoxunarefni er það sem við þurfum „Við gerum matarprógrömm fyrir viðskipta- vini okkar. Við höfum séð að dæmigert vestrænt mataræði er að drepa okkur. Margir viðskiptavina okkar halda t.d. að þeir séu með glúteinóþol en svo kemur í ljós að þeir þjást af heilkenni sem hrjáir mjög marga í vestrænu þjóðfélagi, svokölluðu „leaky bowel syndrome“. Þá þarf að taka mataræðið í gegn og stuðla að heilbrigðri magaflóru og ensímum,“ segir Stefán. „Það er sérlega mikilvægt að taka Omega3 fitu- sýrur. Í vestrænu mataræði fáum við mjög mikið af Omega6 en ekki nóg af Omega3 sem eru nauðsynlegar fyrir hjartað, heilann og efnaskiptin. Ég tek Omega Asta Lýsi frá KeyNatura og mæli eindregið með því. Ég nudda marga af þeim sem eru í einka- þjálfun hjá mér, en nenni því eiginlega ekki ef þeir taka ekki Omega3. Þeir eru allt of stífir og það er ekki séns að gera nokkuð gagn með nuddi. Ég get svo ekki mælt meira með Fit Line-vörunum sem fást í Heilsu og útliti. Þetta eru dúndurvörur og innhalda hreint andoxunarefni. En við þurfum andoxunarefni sem hjálpa band- vefnum að taka upp vökva,“ segir Pálína og bætir við: „Hægt er að fá afslátt á vörum hjá ýmsum aðilum með afsláttarkóðum frá okkur.“ Keynatura.com: tvf gefur 15% afslátt af vörum frá KeyNatura. Perform.is: viking á netinu og nefna okkur í búðinni. Þá fáið þið 15% afslátt. Heilsa og útlit: Nefnið True Viking Fitness í búðinni og þá fáið þið afslátt. Heimasíða: truevikingfitness.com Instagram: truevikingfitness Pálína og Stefán eru bæði virk á samfé- lagsmiðlum og má fylgjast með þeim þar. Snapchat Pálínu: pollieanna777 og Instagram: alpha_valkyrie. Instagram Stefáns: v1k1ng13. Það þurfa ekki allir að teygja eins og Jane Fonda, en taktu samt Omega3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.