Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Side 32
Vellíðan 10. maí 2019KYNNINGARBLAÐ
S tefán Michaelsson og Pálína Pálsdóttir eru eigendur True Viking Fitness, heimasíðu sem býður upp á fjarþjálfun fyrir alla á hagstæðu
verði. Þau starfa bæði sem einka þjálfarar
hjá WorldClass og kenna þar hóptíma.
Stefán kennir HIIT Tabata og hefur gaman
að styrk- og liðleikaþjálfun. Pálína kennir
þrek- og þoltíma ásamt heitum jóga tímum
o.fl. „Við höfum bæði alltaf haft mikinn
áhuga á mannslíkamanum og hvað hann
er stórkostleg vél, og enn fremur listaverk.
Máltækið heilbrigð sál í hraustum líkama
hefur aldrei átt eins vel við og einmitt í dag,“
segir Stefán.
Vefjagigt og tenging hennar við nútímann
„Fjöldi fólks í heiminum þjáist af vefjagigt
og margir halda að það sé ekkert hægt
að gera. En það er rangt. Búið er að gera
fáeinar rannsóknir á sjúkdómnum, ekki
nóg að mínu mati, en það bendir allt til
þess að vefjagigt tengist nútímalifnaðar-
háttum. Áhrifavaldar séu þá ýmist streita,
kvíði, líkamlegt og andlegt álag, áföll og
svo er klárt mál að fólk er almennt ekki að
drekka nógu mikið vatn. Á Íslandi eigum
við hreinasta vatn í heimi en samt drekka
fæstir nóg af því. Þetta er út í hött. Ef við
líkjum bandvefnum við chia-fræ. Þegar þau
eru þurr, eru þau grjóthörð. Um leið og þau
koma í vatn, seyta þau frá sér slímkenndu
efni sem gerir þau mjúk og sleip. Það er
umhverfið sem við viljum hafa kringum
bandvefinn. Sé bandvefurinn stífur í
kringum liðamótin verður sárt að hreyfa sig
og fólk verður ofurnæmt fyrir snertingu. Ef
einhver klípur laust í það þá æjar það. Það
á ekki að vera vont að láta klípa sig. Þetta
er dæmigert fyrir marga sem eru að þróa
með sér vefjagigt og mikið varúðarmerki.
Lyf virka auðvitað upp að vissu marki,
en þau eru ekki eina leiðin. Það er hægt
að gera ótrúlega mikið með úthugsaðri
hreyfingu og lífsstílsbreytingu. Margir
vefjagigtarsjúklingar fara til sálfræðings.
Líkami og hugur eru svo samtengd að
sálræn vandamál geta auðveldlega valdið
líkamlegum einkennum. Því betur sem
þér líður andlega því betri verður líkam-
leg líðan. Svo tala margir um núvitund.
Núvitund er ekki eitthvað sem þú þarft
endilega að gefa þér rosalegan tíma í. Þú
getur stundað núvitund á meðan þú ert að
tyggja matinn þinn, eða ert að hlusta á flott
lag í útvarpinu. Sjálf stunda ég núvitund
þegar ég fer ein í göngutúra í Heiðmörk.
Ég er algerlega í núinu, gangandi á milli
himinhárra trjáa. Ég hengi vandamálin mín
á trén og fer svo heim, þúsund kílóum létt-
ari. Þetta virkar best á grónu landsvæði,“
segir Pálína.
Bæting er alltaf skref í rétta átt
Pálína hefur lært sálfræði og er með
einkaþjálfararéttindi frá WorldClass. Stefán
eru með gráðu í íþróttafræði og bæði eru
þau með alþjóðlega ISSA vottun. „True
Viking Fitness snýst um ástríðu okkar. Við
viljum hjálpa fólki að breyta lífsstílnum til
hins betra. Sama hversu stórt skrefið er
sem fólk tekur. Þegar fólk breytir lífsstíl
sínum, fer að æfa meira, borða hollari mat
og fara betur með sig, öðlast það meiri
orku til þess að gera hluti sem það hafði
ekki orku í áður. Fólk eyðir t.a.m. meiri tíma
með fjölskyldunni í fjallgöngum og sumir
hafa skyndilega orku til að leika meira við
börnin sín. Hreyfing hefur ótrúleg áhrif
á dópa mínframleiðslu heilans sem gerir
það að verkum að einstaklingurinn verður
almennt hamingjusamari. Það er þetta sem
við viljum sjá og ekki bara hjá viðskipta-
vinum okkar heldur allri þjóðinni. Sumir
viðskiptavinir okkar taka prógrammið með
trompi og aðrir fara hægt í sakirnar. En
langflestir gera að minnsta kosti einhverjar
smábreytingar á lífsstílnum og fræðast
um hvað mætti betur fara. Bæting er alltaf
skref í rétta átt,“ segir Stefán.
Fjölbreytni er lykilatriði
„Á Íslandi hefur æði myndast í kringum
crossfit. Það er aðdáunarvert hvað fólk
kemur sér í gott form í íþróttinni. En crossfit
er krefjandi og því miður eru margir að
slasa sig því þeir eru ekki meðvitaðir um
rétt form og líkamsstöðu. Margir gera sér
ekki grein fyrir að þessi íþrótt hentar alls
ekki öllum. Ef þú ert með minnsta vott af
vefjagigt þá er crossfit ekki fyrir þig. Cross-
fit snýst um að keyra sig út, sem leiðir allt
of oft til meiðsla og stífra vöðva, en það er
algert eitur fyrir þá sem eru með vefjagigt.
True Viking Fitness snýst að miklu leyti um
endurheimt eða recovery. Við fáum marga
til okkar sem eru stífir í skrokknum því þeir
hafa farið illa með sig í íþróttum. Okkar
verkefni er að endurheimta vöðva, liðleika,
hreyfigetu o.fl. hjá kúnnum okkar, með
fjölbreyttri hreyfingu, teygjum og notkun
innrauðra klefa eða sala.
Svo er eitt sem mig langar að benda á;
margir foreldrar setja börnin sín í íþróttir,
sem er auðvitað frábært. En það er ekki
síður mikilvægt að börn undir 14 ára stundi
fjölbreytta hreyfingu. Það hafa allir heyrt
af stelpunni sem var í fimleikum frá því
hún var fimm ára, en þurfti að hætta á
unglingsaldri vegna meiðsla. Þetta hlýst
af því að stunda of einhæfa hreyfingu í of
langan tíma og stuðlar að stífum bandvef
sem byggist upp vegna þess að líkaminn
er að verja sig fyrir álagi. Fjölbreytni er því
algert lykilatriði á öllum aldri,“ segir Pálína.
Það þurfa ekki allir að teygja eins og Jane
Fonda
„Kúnnahópur okkar er fjölbreyttur. Við
fáum til okkar ýmist fólk sem hefur verið
mikið í íþóttum áður, sem er jákvætt því þá
höfum við vöðvaminni til þess að byggja
æfingaplan á. Sumir af þeim hafa kannski
farið illa með líkamann af ofreynslu. Þá
þarf oft að brjóta upp gamlar venjur og
setja fókus á teygjur, bandvefslosun og
slíkt. Einnig höfum við unnið með fólki sem
hefur aldrei hreyft sig almennilega. Þá þarf
að hafa aðra hluti í huga þegar kemur að
æfingaplani. Í öllum tilfellum leggjum við
ríka áherslu á að lausnin snúist aldrei um
að æfa bara og æfa og keyra sig út. Það
er þvert á móti enn mikilvægara að taka
sér hvíldardaga á milli strangra æfinga. Þá
mælum við með því að fólk geri hluti eins og
að fara í göngutúra, stundi jóga, fari í heit
og köld böð, innrauða sánu o.þ.h. Ég er ekki
að segja að það þurfi allir að teygja eins
og Jane Fonda, en teygjur eru ómissandi
þáttur af heilbrigðum lífsstíl,“ segir Stefán.
„Jóga er á hverju einasta prógrammi sem
við gefum út hjá True Viking Fitness. Þeir
sem þjást af vefjagigt hafa sérstaklega gott
af því að fara í heita tíma, hvort sem það
eru jógatímar, Foam Flex eða hvaðeina,“
segir Pálína.
Hvert prógramm er einstaklingsbundið.
Viðskiptavinurinn velur milli fyrirfram-
gefinna æfingaleiða út frá markmiðum
sínum, en svo er hvert prógramm sniðið
frekar að hverjum og einum. „Það eru ekki
allir eins og því er ekki hægt að láta alla
fá sama prógrammið. Þetta þarf að vera
sniðið að markmiðum, líkama og heilsu-
ástandi hvers og eins,“ segir Stefán.
Omega og andoxunarefni er það sem við
þurfum
„Við gerum matarprógrömm fyrir viðskipta-
vini okkar. Við höfum séð að dæmigert
vestrænt mataræði er að drepa okkur.
Margir viðskiptavina okkar halda t.d. að
þeir séu með glúteinóþol en svo kemur í ljós
að þeir þjást af heilkenni sem hrjáir mjög
marga í vestrænu þjóðfélagi, svokölluðu
„leaky bowel syndrome“. Þá þarf að taka
mataræðið í gegn og stuðla að heilbrigðri
magaflóru og ensímum,“ segir Stefán. „Það
er sérlega mikilvægt að taka Omega3 fitu-
sýrur. Í vestrænu mataræði fáum við mjög
mikið af Omega6 en ekki nóg af Omega3
sem eru nauðsynlegar fyrir hjartað, heilann
og efnaskiptin. Ég tek Omega Asta Lýsi
frá KeyNatura og mæli eindregið með því.
Ég nudda marga af þeim sem eru í einka-
þjálfun hjá mér, en nenni því eiginlega ekki
ef þeir taka ekki Omega3. Þeir eru allt of
stífir og það er ekki séns að gera nokkuð
gagn með nuddi. Ég get svo ekki mælt
meira með Fit Line-vörunum sem fást í
Heilsu og útliti. Þetta eru dúndurvörur
og innhalda hreint andoxunarefni. En við
þurfum andoxunarefni sem hjálpa band-
vefnum að taka upp vökva,“ segir Pálína og
bætir við: „Hægt er að fá afslátt á vörum
hjá ýmsum aðilum með afsláttarkóðum frá
okkur.“
Keynatura.com: tvf gefur 15% afslátt af
vörum frá KeyNatura.
Perform.is: viking á netinu og nefna okkur í
búðinni. Þá fáið þið 15% afslátt.
Heilsa og útlit: Nefnið True Viking Fitness í
búðinni og þá fáið þið afslátt.
Heimasíða: truevikingfitness.com
Instagram: truevikingfitness
Pálína og Stefán eru bæði virk á samfé-
lagsmiðlum og má fylgjast með þeim þar.
Snapchat Pálínu: pollieanna777 og
Instagram: alpha_valkyrie.
Instagram Stefáns: v1k1ng13.
Það þurfa ekki allir að teygja eins og
Jane Fonda, en taktu samt Omega3