Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Blaðsíða 20
20 FÓKUS - VIÐTAL 10. maí 2019
„Það sást engin hjartsláttur. Líf-
ið gjörsamlega hrundi og mér leið
eins og ég hefði dáið líka. Þetta fal-
lega og dásamlega líf sem átti að
hefjast með komu Hinriks Leós
hvarf og ég hvarf með því. Ég bara
trúði þessu ekki. Þegar maður fer
í sónar þá finnst hjartslátturinn
tiltölulega snemma og í öll skipti
sem ég hafði farið fannst hann
alltaf strax. Ég sá því um leið og
sérfræðingurinn var búinn að
leita í tæpa mínútu að hann væri
farinn. Versta augnablik lífs míns
var þegar Sigurlaug, fæðingar-
læknirinn, sagði mér að það væri
enginn hjartsláttur lengur.“
Eftir skoðunina fékk Gréta töflu
sem hjálpa átti legi hennar fyrir
fæðingu og daginn eftir átti hún
að koma og leggjast inn til þess að
fæða andvana barn sitt.
„Áður en Hinrik Leó dó, hugs-
aði ég oft til þess hversu erfitt það
hlyti að vera að fæða andvana
barn. Þegar ég svo sjálf þurfti að
gera það þá fannst mér það ekki
það erfiðasta við þetta allt saman.
Það erfiðasta var þegar ég heyrði
ekki lengur hjartsláttinn. Auðvit-
að var fæðingin erfið og þetta var
algjör tilfinningarússíbani. Ég var
spennt að sjá litla kútinn minn og
að fá að halda á honum en samt
var hjartað í molum vegna þess
að hann var dáinn. Ég kveið fyrir
því að fá að halda aðeins einu
sinni á honum, eiga aðeins eina
stund með honum. Ég upplifði
sorg, reiði, gleði, tilhlökkun og svo
margar aðrar tilfinningar.“
Súrrealískt og sárt að ganga
tómhentur frá spítalanum
Fæðingin sjálf gekk vel og hratt
fyrir sig en búið var að undirbúa
Grétu fyrir það að hún gæti tekið
nokkra daga.
„Ég man eftir fæðingunni eins
og hún hafi gerst í gær, þrátt fyrir
að ég hafi verið á sterkum
lyfjum. Ég var með tvær
yndislegar ljósmæður sem
gerðu fæðinguna eins dásamlega
og hægt var miðað við erfiðar að-
stæður. Þetta gerðist gríðarlega
hratt og þegar hann var að mæta
var ég enn fullklædd. Ég dreif mig
úr buxunum og litli kútur mætti í
heiminn örfáum mínútum seinna.
Það var besta tilfinning í heimi að
fá hann í fangið. Ég er svo þakklát
fyrir það hversu glöð og hamingju-
söm ég var að fá hann í fangið, því
ég hafði kviðið mikið fyrir því. Ég
gleymdi öllu sem var að gerast,
brosti og dáðist að því með Ragga
hvað hann væri fallegur. Þetta er
augnablik sem ég gleymi aldrei og
ég hugsa oft á dag um það, þá líður
mér vel í hjartanu.“
Um hádegisbil daginn eftir
fæðinguna voru Gréta og Raggi
sammála um það að bæði væru
þau tilbúin til þess að kveðja son
sinn.
„Þetta var líka eitt af því erfið-
asta sem ég hef gert. Að þurfa að
skilja barnið sitt eftir á spítalan-
um og ganga tómhentur út. Það
var ótrúlega erfitt að ganga niður
stigann af fæðingardeildinni og
mæta þar kasóléttum konum sem
hamingjan og gleðin skein af. Það
var ótrúlega sárt. En svo veit mað-
ur aldrei hvað aðrir eru að glíma
við, þær geta alveg eins verið að
upplifa erfiða meðgöngu, búnar
að upplifa missi og svo framveg-
is. Ég er mjög brosmild mann-
eskja og hlæ gríðarlega mikið, mér
finnst voða leiðinlegt að vera leið
og sorgmædd, en ég réð ekkert við
það á þessum tímapunkti. Það að
ganga tómhentur frá spítalanum
var súrrealískt og sárt og þeirri
stund gleymi ég aldrei.“
Sá sem ræður öllu
Parið nefndi drenginn sinn Hin-
rik Leó Ragnarsson í höfuðið á
frænda hans en nafnið Hinrik þýð-
ir „Sá sem ræður öllu“ og fannst
þeim sú lýsing eiga vel við. Leó
bættist við því þau segja drenginn
sinn hafa barist eins og ljón fyrir
lífinu.
„Þann 2. nóvember vorum
við með kistulagningu og fal-
lega athöfn þar sem allir fengu að
kveðja Hinrik Leó. Það komu rúm-
lega 40 manns að kveðja hann og
hann snerti mörg líf, við Raggi
erum svo rík. Eftir athöfnina var í
fyrsta skiptið eftir fæðinguna þar
sem mér leið vel. Mér fannst ég
loksins geta andað og við Raggi
vorum sammála um hversu gott
það var fyrir okkur að fá að kveðja
Hinna litla. Þetta var falleg og dýr-
mæt stund.“
Um tveimur mánuðum eftir
fæðingu Hinriks fengu Gréta og
Raggi niðurstöður úr krufningu
og í ljós kom að stór blóðsegi hafði
myndast í fylgjunni, í afturhluta
hennar sem ekki var hægt að sjá.
„Þetta er eitthvað sem
gerist gríðarlega sjaldan og við
vorum bara virkilega óheppin.
Heilbrigðis starfsfólkið var allt til
mikillar fyrirmyndar og ég held í
alvöru að það sé sérstakt fólk sem
er valið í svona verkefni. Læknarn-
ir og ljósmæðurnar sem við hittum
í þessu ferli voru öll svo dásamleg
að ég kem því varla í orð. Björk og
Steinunn ljósmæður voru mest
með okkur og ég held að án þeirra
hefði fæðing Hinna litla ekki orðið
svona ástrík og góð. Ég er þeim öll-
um ævinlega þakklát fyrir það.“
Áfallið kenndi þeim mikið
Í dag er Gréta í svokölluðum miss-
ishóp á vegum Landspítalans
ásamt öðrum foreldrum sem upp-
lifað hafa það að missa barn og hún
telur það virkilega gott.
„Það er alltaf gott að tala við
fólk sem hefur lent í sambærileg-
um aðstæðum. Við Raggi erum líka
svo ótrúlega heppin með vini og
fjölskyldur og eftir fæðinguna var
íbúðin okkar eins og lítil blómabúð.
Fólk kom með mat og kökur handa
okkur og stjanaði við okkur. Þetta
áfall hefur kennt okkur svo margt
en ég hugsa svo allt öðruvísi um líf-
ið núna en ég gerði áður fyrr. Vinir
og fjölskylda er það sem skiptir öllu
máli og það að standa sig vel í skóla
eða hlaupi er bara bónus og algjör
forréttindi. Stóru vandamálin áður
fyrr eru líka orðin að engum vanda-
málum sem er ofboðslega gott.“
Eftir fæðinguna fór Gréta of fljótt
af stað, en hún mætti í skólann um
fimm dögum síðar. Hún fann þó
eftir nokkur skipti að hún þurfti
að byrja aftur í litlum skrefum og
henni tókst fljótlega að hefja nám
af fullum krafti.
„Ég gerði þetta í litlum skrefum
og notaði námið til þess að reyna
að dreifa huganum, þótt hann væri
alltaf hjá Hinna litla. Ég byrjaði að-
eins of snemma að hreyfa mig af
krafti sem leiddi til þess að sár eftir
fylgjuna í leginu rifnaði og ég varð
mjög veik. Þá tók ég mér tveggja
vikna hvíld og hóf svo að hreyfa mig
aftur í litlum skrefum í átt að venju-
legu lífi. Ég finn það með hverjum
mánuði sem líður að ég er að verða
sterkari andlega og líkamlega og
ég er alveg viss að um eftir nokkra
mánuði þá verð ég sterkasta útgáf-
an af sjálfri mér, af því að þetta hef-
ur kennt mér svo mikið. Við Raggi
vorum sterk heild áður en við lent-
um í þessu og í dag erum við orðin
enn sterkari saman. Hann hefur
verið minn stærsti klettur í lífinu og
ég hans. Ég er svo þakklát fyrir það.“
Gleym-mér-ei gaf þeim
dýrmætustu gjöfina
Segir Gréta að enginn eigi að þurfa
að undirbúa sig fyrir aðstæður sem
þessar í lífinu og áður en hún missti
Hinrik þá vissi hún varla hvað
félagið Gleym-mér-ei var.
„Ég hafði heyrt af því en vissi
ekki nákvæmlega um hvað starf-
semin snerist. En um klukkutíma
eftir að Hinni litli fæddist kom
Björk ljósmóðir með Gleym-mér-ei
kassa til okkar. Í honum voru ýms-
ir hlutir eins og minningabækur,
bangsar, armbönd, leiðbeiningar
fyrir sorgarferlið, kertastjaki og box
fyrir hárið á krílinu ásamt fleiru.
Þetta gerði svo mikið fyrir okkur og
við gátum í raun hugsað aðeins út í
það hvernig við ætluðum að halda
utan um minningarnar um hann
og stundirnar okkar með honum.
Það dýrmætasta sem Gleym-mér-
-ei gaf okkur var nóttin með Hinna
litla. Þær höfðu útbúið kælivöggu
og þökk sé henni þá gátum við haft
Hinrik Leó hjá okkur í eina nótt. Það
var ofboðslega dýrmætt og notalegt
að fá að hafa hann í eina nótt. Ég
gat hvílt mig með honum og fékk
að hafa hann í ró og næði. Þetta
eru hlutir sem hafa hjálpað okkur
Ragga gríðarlega í þessu sorgarferli
en án Gleym-mér-ei væri minning
mín um þessa reynslu alveg örugg-
lega ekki eins falleg og hlý og hún
er. Þetta eru alveg ofboðslega dýr-
mæt samtök sem veita syrgjandi
foreldrum mikla hjálp.“
Gréta tók þá ákvörðun að taka
þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í
sumar þar sem hún mun hlaupa
fyrir hönd Gleym-mér-ei.
„Ég ætla að hlaupa fyrir Hinrik
og alla hina fallegu englana sem
hafa kvatt þennan heim allt of
snemma. Gleym-mér-ei hjálpaði
okkur í gegnum aðstæður sem
enginn á að þurfa að búa sig undir í
lífinu og ég er þeim ævinlega þakk-
lát fyrir það.“ n
Réð ekki við sorgina / Mynd: Aðsend
„Eftir athöfnina var
í fyrsta skiptið eftir
fæðinguna þar sem
mér leið vel.“ / Mynd:
Aðsend
„Vinir og
fjölskylda
er það sem
skiptir
öllu máli.“
/ Mynd:
Aðsend
Hinrik Leó kenndi foreldrum
sínum margt. / Mynd: Aðsend
Gréta og Ragnar héldu áfram að vera
jákvæð þrátt fyrir erfiðleika / Mynd: Hanna
Sofðu, sofðu ljúfurinn minn
Englar vaki yfir þér
Því ég minnist þín í dag
Sem og á morgun
Þú komst svo hljótt
Tímabilið sem leið of fljótt
Allt þitt er vel geymt
Aldrei verður þér gleymt
Hve sárt við söknum þín
Ég fæ þig, fæ þig í fangið til mín
Pínulítill svo nýr
Svo fallegur, mjúkur og hlýr
Þótt þú snemma kvaddir
Þá mömmuhjartað gladdir
Þú leggur litlar hendur yfir sárin
Og þerrar burt öll tárin
Birti mín sál er ég sá þig fyrst
En mundu þú hefur engan misst
Því við erum hér
Mamma og pabbi eru hjá þér
Þú brosandi gefur mér ráð
Fótspor þín fylgja mér alla daga
Eftir langar dimmar nætur
Eftir erfiða morgna þú rífur mig á
fætur
Hve indælt það verður þig aftur að sjá
Legg mitt litla ljónshjarta bringuna á
Litlu tærnar þær gleðja mig
Krafturinn er vafinn í kringum þig
Fyrir allt sem okkur varstu
Gleði og stolt okkur gafstu
Sameinast seinna hópurinn
Við hittumst að lokum aftur
Öll saman litli minn
Ég, þú og pabbi þinn
Ljóð ort af vinkonu Grétu:
Hinrik Leó