Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Síða 20
20 FÓKUS - VIÐTAL 10. maí 2019 „Það sást engin hjartsláttur. Líf- ið gjörsamlega hrundi og mér leið eins og ég hefði dáið líka. Þetta fal- lega og dásamlega líf sem átti að hefjast með komu Hinriks Leós hvarf og ég hvarf með því. Ég bara trúði þessu ekki. Þegar maður fer í sónar þá finnst hjartslátturinn tiltölulega snemma og í öll skipti sem ég hafði farið fannst hann alltaf strax. Ég sá því um leið og sérfræðingurinn var búinn að leita í tæpa mínútu að hann væri farinn. Versta augnablik lífs míns var þegar Sigurlaug, fæðingar- læknirinn, sagði mér að það væri enginn hjartsláttur lengur.“ Eftir skoðunina fékk Gréta töflu sem hjálpa átti legi hennar fyrir fæðingu og daginn eftir átti hún að koma og leggjast inn til þess að fæða andvana barn sitt. „Áður en Hinrik Leó dó, hugs- aði ég oft til þess hversu erfitt það hlyti að vera að fæða andvana barn. Þegar ég svo sjálf þurfti að gera það þá fannst mér það ekki það erfiðasta við þetta allt saman. Það erfiðasta var þegar ég heyrði ekki lengur hjartsláttinn. Auðvit- að var fæðingin erfið og þetta var algjör tilfinningarússíbani. Ég var spennt að sjá litla kútinn minn og að fá að halda á honum en samt var hjartað í molum vegna þess að hann var dáinn. Ég kveið fyrir því að fá að halda aðeins einu sinni á honum, eiga aðeins eina stund með honum. Ég upplifði sorg, reiði, gleði, tilhlökkun og svo margar aðrar tilfinningar.“ Súrrealískt og sárt að ganga tómhentur frá spítalanum Fæðingin sjálf gekk vel og hratt fyrir sig en búið var að undirbúa Grétu fyrir það að hún gæti tekið nokkra daga. „Ég man eftir fæðingunni eins og hún hafi gerst í gær, þrátt fyrir að ég hafi verið á sterkum lyfjum. Ég var með tvær yndislegar ljósmæður sem gerðu fæðinguna eins dásamlega og hægt var miðað við erfiðar að- stæður. Þetta gerðist gríðarlega hratt og þegar hann var að mæta var ég enn fullklædd. Ég dreif mig úr buxunum og litli kútur mætti í heiminn örfáum mínútum seinna. Það var besta tilfinning í heimi að fá hann í fangið. Ég er svo þakklát fyrir það hversu glöð og hamingju- söm ég var að fá hann í fangið, því ég hafði kviðið mikið fyrir því. Ég gleymdi öllu sem var að gerast, brosti og dáðist að því með Ragga hvað hann væri fallegur. Þetta er augnablik sem ég gleymi aldrei og ég hugsa oft á dag um það, þá líður mér vel í hjartanu.“ Um hádegisbil daginn eftir fæðinguna voru Gréta og Raggi sammála um það að bæði væru þau tilbúin til þess að kveðja son sinn. „Þetta var líka eitt af því erfið- asta sem ég hef gert. Að þurfa að skilja barnið sitt eftir á spítalan- um og ganga tómhentur út. Það var ótrúlega erfitt að ganga niður stigann af fæðingardeildinni og mæta þar kasóléttum konum sem hamingjan og gleðin skein af. Það var ótrúlega sárt. En svo veit mað- ur aldrei hvað aðrir eru að glíma við, þær geta alveg eins verið að upplifa erfiða meðgöngu, búnar að upplifa missi og svo framveg- is. Ég er mjög brosmild mann- eskja og hlæ gríðarlega mikið, mér finnst voða leiðinlegt að vera leið og sorgmædd, en ég réð ekkert við það á þessum tímapunkti. Það að ganga tómhentur frá spítalanum var súrrealískt og sárt og þeirri stund gleymi ég aldrei.“ Sá sem ræður öllu Parið nefndi drenginn sinn Hin- rik Leó Ragnarsson í höfuðið á frænda hans en nafnið Hinrik þýð- ir „Sá sem ræður öllu“ og fannst þeim sú lýsing eiga vel við. Leó bættist við því þau segja drenginn sinn hafa barist eins og ljón fyrir lífinu. „Þann 2. nóvember vorum við með kistulagningu og fal- lega athöfn þar sem allir fengu að kveðja Hinrik Leó. Það komu rúm- lega 40 manns að kveðja hann og hann snerti mörg líf, við Raggi erum svo rík. Eftir athöfnina var í fyrsta skiptið eftir fæðinguna þar sem mér leið vel. Mér fannst ég loksins geta andað og við Raggi vorum sammála um hversu gott það var fyrir okkur að fá að kveðja Hinna litla. Þetta var falleg og dýr- mæt stund.“ Um tveimur mánuðum eftir fæðingu Hinriks fengu Gréta og Raggi niðurstöður úr krufningu og í ljós kom að stór blóðsegi hafði myndast í fylgjunni, í afturhluta hennar sem ekki var hægt að sjá. „Þetta er eitthvað sem gerist gríðarlega sjaldan og við vorum bara virkilega óheppin. Heilbrigðis starfsfólkið var allt til mikillar fyrirmyndar og ég held í alvöru að það sé sérstakt fólk sem er valið í svona verkefni. Læknarn- ir og ljósmæðurnar sem við hittum í þessu ferli voru öll svo dásamleg að ég kem því varla í orð. Björk og Steinunn ljósmæður voru mest með okkur og ég held að án þeirra hefði fæðing Hinna litla ekki orðið svona ástrík og góð. Ég er þeim öll- um ævinlega þakklát fyrir það.“ Áfallið kenndi þeim mikið Í dag er Gréta í svokölluðum miss- ishóp á vegum Landspítalans ásamt öðrum foreldrum sem upp- lifað hafa það að missa barn og hún telur það virkilega gott. „Það er alltaf gott að tala við fólk sem hefur lent í sambærileg- um aðstæðum. Við Raggi erum líka svo ótrúlega heppin með vini og fjölskyldur og eftir fæðinguna var íbúðin okkar eins og lítil blómabúð. Fólk kom með mat og kökur handa okkur og stjanaði við okkur. Þetta áfall hefur kennt okkur svo margt en ég hugsa svo allt öðruvísi um líf- ið núna en ég gerði áður fyrr. Vinir og fjölskylda er það sem skiptir öllu máli og það að standa sig vel í skóla eða hlaupi er bara bónus og algjör forréttindi. Stóru vandamálin áður fyrr eru líka orðin að engum vanda- málum sem er ofboðslega gott.“ Eftir fæðinguna fór Gréta of fljótt af stað, en hún mætti í skólann um fimm dögum síðar. Hún fann þó eftir nokkur skipti að hún þurfti að byrja aftur í litlum skrefum og henni tókst fljótlega að hefja nám af fullum krafti. „Ég gerði þetta í litlum skrefum og notaði námið til þess að reyna að dreifa huganum, þótt hann væri alltaf hjá Hinna litla. Ég byrjaði að- eins of snemma að hreyfa mig af krafti sem leiddi til þess að sár eftir fylgjuna í leginu rifnaði og ég varð mjög veik. Þá tók ég mér tveggja vikna hvíld og hóf svo að hreyfa mig aftur í litlum skrefum í átt að venju- legu lífi. Ég finn það með hverjum mánuði sem líður að ég er að verða sterkari andlega og líkamlega og ég er alveg viss að um eftir nokkra mánuði þá verð ég sterkasta útgáf- an af sjálfri mér, af því að þetta hef- ur kennt mér svo mikið. Við Raggi vorum sterk heild áður en við lent- um í þessu og í dag erum við orðin enn sterkari saman. Hann hefur verið minn stærsti klettur í lífinu og ég hans. Ég er svo þakklát fyrir það.“ Gleym-mér-ei gaf þeim dýrmætustu gjöfina Segir Gréta að enginn eigi að þurfa að undirbúa sig fyrir aðstæður sem þessar í lífinu og áður en hún missti Hinrik þá vissi hún varla hvað félagið Gleym-mér-ei var. „Ég hafði heyrt af því en vissi ekki nákvæmlega um hvað starf- semin snerist. En um klukkutíma eftir að Hinni litli fæddist kom Björk ljósmóðir með Gleym-mér-ei kassa til okkar. Í honum voru ýms- ir hlutir eins og minningabækur, bangsar, armbönd, leiðbeiningar fyrir sorgarferlið, kertastjaki og box fyrir hárið á krílinu ásamt fleiru. Þetta gerði svo mikið fyrir okkur og við gátum í raun hugsað aðeins út í það hvernig við ætluðum að halda utan um minningarnar um hann og stundirnar okkar með honum. Það dýrmætasta sem Gleym-mér- -ei gaf okkur var nóttin með Hinna litla. Þær höfðu útbúið kælivöggu og þökk sé henni þá gátum við haft Hinrik Leó hjá okkur í eina nótt. Það var ofboðslega dýrmætt og notalegt að fá að hafa hann í eina nótt. Ég gat hvílt mig með honum og fékk að hafa hann í ró og næði. Þetta eru hlutir sem hafa hjálpað okkur Ragga gríðarlega í þessu sorgarferli en án Gleym-mér-ei væri minning mín um þessa reynslu alveg örugg- lega ekki eins falleg og hlý og hún er. Þetta eru alveg ofboðslega dýr- mæt samtök sem veita syrgjandi foreldrum mikla hjálp.“ Gréta tók þá ákvörðun að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í sumar þar sem hún mun hlaupa fyrir hönd Gleym-mér-ei. „Ég ætla að hlaupa fyrir Hinrik og alla hina fallegu englana sem hafa kvatt þennan heim allt of snemma. Gleym-mér-ei hjálpaði okkur í gegnum aðstæður sem enginn á að þurfa að búa sig undir í lífinu og ég er þeim ævinlega þakk- lát fyrir það.“ n Réð ekki við sorgina / Mynd: Aðsend „Eftir athöfnina var í fyrsta skiptið eftir fæðinguna þar sem mér leið vel.“ / Mynd: Aðsend „Vinir og fjölskylda er það sem skiptir öllu máli.“ / Mynd: Aðsend Hinrik Leó kenndi foreldrum sínum margt. / Mynd: Aðsend Gréta og Ragnar héldu áfram að vera jákvæð þrátt fyrir erfiðleika / Mynd: Hanna Sofðu, sofðu ljúfurinn minn Englar vaki yfir þér Því ég minnist þín í dag Sem og á morgun Þú komst svo hljótt Tímabilið sem leið of fljótt Allt þitt er vel geymt Aldrei verður þér gleymt Hve sárt við söknum þín Ég fæ þig, fæ þig í fangið til mín Pínulítill svo nýr Svo fallegur, mjúkur og hlýr Þótt þú snemma kvaddir Þá mömmuhjartað gladdir Þú leggur litlar hendur yfir sárin Og þerrar burt öll tárin Birti mín sál er ég sá þig fyrst En mundu þú hefur engan misst Því við erum hér Mamma og pabbi eru hjá þér Þú brosandi gefur mér ráð Fótspor þín fylgja mér alla daga Eftir langar dimmar nætur Eftir erfiða morgna þú rífur mig á fætur Hve indælt það verður þig aftur að sjá Legg mitt litla ljónshjarta bringuna á Litlu tærnar þær gleðja mig Krafturinn er vafinn í kringum þig Fyrir allt sem okkur varstu Gleði og stolt okkur gafstu Sameinast seinna hópurinn Við hittumst að lokum aftur Öll saman litli minn Ég, þú og pabbi þinn Ljóð ort af vinkonu Grétu: Hinrik Leó

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.