Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Page 28
Vellíðan
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is10. maí 2019
Bjórböðin eru einstök heilsulind
Bjórböðin á Árskógssandi voru opnuð 2017, en þau höfðu þá lengi verið draumur Agnesar
Önnu Sigurðardóttur eftir að hún
heimsótti slíkt bað í Tékklandi 2008
ásamt eiginmanni sínum, Ólafi Þresti
Ólafssyni.
Hugmyndin hafði verið lengi í
huga Agnesar frá fyrsta baði og
hún var staðráðin í að opna bjór-
böð einn daginn á Árskógssandi.
Undirbúningsvinna hófst 2014 og
voru Bjórböðin opnuð árið 2017
en þar er einnig veitingastaður og
útipottar sem hafa notið mikilla
vinsælda vegna útsýnis yfir hafið.
En hverjir eru kostir bjórbaðs fyrir
líkamann?
„Í bjórbaði baðar maður sig í
ungum bjór, lifandi bjórgeri, humlum,
vatni, bjórolíu og bjórsalti.
Bjórinn sem við notum í baðið er
ungur í gerjun og er á þeim stað í
ferlinu að hann hefur lágt pH-gildi
og hefur þar af leiðandi stinnandi og
mýkjandi áhrif á húð og hár.
Bjórgerið sem notað er í böðin
er einstaklinga ríkt af nánast
öllum B-vítamínskalanum, sem er
einstaklega endurnærandi fyrir
húð og hár. Einnig er gerið mjög
ríkt af próteini, kalíum, járni, sinki og
magnesíum.
Humlarnir sem eru notaðir í böðin
hafa mjög góð áhrif á líkamann þar
sem þeir eru ríkir af andoxunarefnum
og alfasýrum. Olíurnar og örefnin úr
plöntunni hafa bólgueyðandi áhrif
og eru einnig notuð til að minnka
roða í húð og hafa góð áhrif á æða-
kerfið. Það er sannað að humlar hafa
slakandi áhrif á vöðva og líkama.“
Ekki er mælt með því að farið sé
í sturtu næstu 3 til 5 klukkustundir
eftir baðið, því baðið hefur mjög
endurnærandi og mýkjandi áhrif á
húðina.
Hitastig baðanna er um 37 til 39°C
og fyllt upp með nýrri blöndu fyrir
hvern kúnna, ef fólk vill hafa baðið
kaldara eða heitara, þá er hægt að
óska eftir því.
Innifalið í baðgjaldinu er sloppur og
handklæði. Mælt er með að komið sé
tímanlega og farið í útipottana áður
en farið er í bjórbaðið. Sjö ker eru á
staðnum og er hvert þeirra í einka-
herbergi, þannig að gestir eru alveg í
næði. Hvert ker er tveggja manna.
„Síðan slakar þú á í 25 mín-
útur. Svo er gestum fylgt upp á
aðra hæð í slökunarherbergi og
þar er viðkomandi í 25 mínútur.
Slökunarherbergið er teppalagt og
allt mjög notalegt. Við mælum með
að sleppt sé sturtu í 3–4 klukkustundir
eftir bað, þannig að bjórinn geri það
sem hann á að gera, og húðin verður
slétt og mjúk á eftir,“ segir Agnes.
Baðið er fyrir alla, hins vegar er 20
ára aldurstakmark, eins og lög gera
ráð fyrir, í að neyta bjórsins. Bjórinn í
bjórböðunum er 3–5 daga gamall og
því ekki orðinn áfengur og því öllum
óhætt að fara ofan í.
Bjórböðin hafa verið vel sótt bæði
af heimamönnum og ferðamönnum,
og eru viðbrögð gesta nær undan-
tekningarlaust jákvæð og hafa farið
fram úr öllum vonum og væntingum.
Bjórböðin eru einstök heilsulind og
sækja innblástur til Tékklands, en eru
þau fyrstu sinnar tegundar á Norður-
löndum.
Allar upplýsingar má fá í síma
414-2828, á netfanginu
bjorbodin@bjorbodin.is og heima-
síðunni bjorbodin.is.