Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Blaðsíða 10
10 10. maí 2019FRÉTTIR Varahlutaverslun og þjónusta TANGARHÖFÐA 4 110 REYKJAVÍK SÍMI 515 7200 www.osal.is osal@osal.is FAX 515 720 ÓSAL VARAHLUTAVERSLUN Sigþrúður Erla viðurkennir að vegurinn að Víðinesi sé óleyst mál og áhöld um hver eigi að sinna viðhaldinu. „Vegurinn er malarvegur sem Vegagerðin heldur utan um, sem skilaði honum einhliða til Reykja- víkurborgar skömmu eftir 2008 án samþykkis Reykjavíkurborgar.“ Takmörkun á fundarhöldum Athygli vekur að við inngang Víð- iness var hengdur upp miði þar sem stóð að fundarhöld félaga- samtaka í húsinu væru bönnuð nema með leyfi. Eins og sést á myndinni mætti skilja miðann sem svo að leyfið þyrfti að koma frá stýrihóp á vegum borgarinnar. Sigþrúður Erla segir hins vegar að leyfið þyrfti að koma frá öllum íbú- um staðarins. Einnig fór fyrir brjóstið á íbúum að á miðanum stæði „stýrihópur fyrir málefni utangarðsfólks“ og að allir væru settir undir sama hatt. Einn íbúinn, sem ekki vildi láta geta síns nafns, segir: „Utangarðsmenn? Þetta er orð sem var notað yfir þá sem voru jarðaðir utan garðs. Þeir voru að minnsta kosti dauðir en ég er lif- andi enn þá. Það er verið að sjúk- dómsgreina okkur alla með fíkni- sjúkdóm eða geðsjúkdóm. Ég hef ekki farið ég gegnum greiningu af neinum toga.“ Rottur og rafmagnsleysi Návígið við sorphaugana gerir það að verkum að nagdýr eru dagleg- ir gestir í Víðinesi. Mýsnar koma inn í húsið og komast auðveldlega inn í þröskuldalaus herbergin. Naga þær allt og éta það sem tönn á festir, mat og fatnað. Á svæðinu um kring halda til rottur, sumar á stærð við ketti að sögn íbúa. Annað sem er bagalegt fyrir íbúana er rafmagns- og eldvarna- kerfið. Rafmagnið dettur út og inn og eldvarnakerfið sömuleið- is. Í eitt skipti hefur komið upp eldur í ruslagámi fyrir utan hús- ið og gátu íbúar ekki slökkt eldinn með slökkvitæki því það var tómt. Hefur það ekki verið fyllt síðan. En eldvarnakerfið ýlir í tíma og ótíma. Sigþrúður Erla segir viðhald eignarinnar vera á höndum um- hverfis- og skipulagssviðs: „Rafmagni sló út tvívegis vegna eldingaveðurs og brann þá yfir tengibox á vegum Orku náttúr- unnar. Nú hefur verið skipt um það og ætti rafmagn því að vera í lagi.“ Rafmagnið datt stuttlega út á meðan blaðamaður DV heimsótti Víðines. Rannsókn án skýrslu Sigurlaug segir að í kringum jólin hafi Kærleikssamtökin óskað eft- ir neyðarfundi vegna ástands- ins í Víðinesi, og reyndar líka á tjaldsvæðinu í Laugardalnum. Þá hafi íbúum verið löngu farið að blöskra ástandið. Erindi var sent á velferðarsvið og fleiri innan borg- arinnar, borgarfulltrúa, félags- málaráðuneytið og heilbrigðis- ráðuneytið. „Sviðstjóri velferðarsviðs brást hratt við og sagði það alvarlegt sem hún var að lesa og málið yrði kannað. Sama dag eða degi seinna var okkur tilkynnt að rannsókn hefði farið fram og engin ástæða til neyðarfundar,“ segir Sigurlaug. „Ég bað um skýrsluna og þurfti að fara í gegnum úrskurðarnefnd upplýsingamála til að fá hana. Þá kom fram að rannsókn hefði farið fram en engin skýrsla gerð,“ segir hún. Hvað á að gera við Víðines? Í september síðastliðnum var stofnaður starfshópur til að svara þeirri spurningu hvað eigi að gera við Víðines. Sá hópur skilaði af sér skýrslu um mánaðamótin október-nóvember. Í febrúar var Kærleikssamtökunum og öðrum félagasamtökum sem málin varða kynnt sú hugmynd að opna áfangaheimili í einu húsi á Víði- nesi og föst búseta yrði í hinu. Við hlið hússins í Víðinesi stendur annað, mun stærra, autt. Síðan þá hafa málin verið í biðstöðu en níu manns leigja herbergi eins og er. Staðan í Víðinesi er mjög óljós eins og er og eitt helsta vanda- málið er vöntun á skilgreiningu staðarins. Frá borginni hafa heyrst skilgreiningar eins og áfanga- heimili, leiguherbergi, skamm- tíma búsetuúrræði, neyðarúrræði og „hálfgert neyðarúrræði.“ Lagð- ur var fram dvalarsamningur við íbúa sem var sagður sams konar samningur og væri notaður fyrir áfangaheimili. Voru samningarn- ir kærðir þar sem áfangaheimili eru starfsleyfisskyld starfsemi en almenn leiga er það ekki. Engin endurhæfing eða meðferð fer þar fram. Aðspurð segir Sigþrúður Erla að Víðines sé skilgreint sem bráða- birgðahúsnæði fyrir einstaklinga sem eru húsnæðislausir, færir um að koma sér sjálfir til og frá staðn- um og eru ekki með skilgreindan vímuefnavanda. Þær forsendur hafi verið settar í upphafi þar sem Víðinesið var hugsað sem neyðar- úrræði til að bjóða þeim sem voru á tjaldsvæðinu í Laugardal húsa- skjól. Hún segir: „Lögð hefur verið áhersla á að allir íbúar hafi málstjóra, félags- ráðgjafa sem vinnur með íbúanum að langtíma lausn í húsnæðismál- um. Einnig hefur Reykjavíkurborg boðið einstaklingum upp á stuðn- ing Vettvangs og ráðgjafateymis- ins (VOR teymisins) sem mætir í Víðines að lágmarki einu sinni í viku. Með því er verið að bjóða upp á aukinn stuðning við að finna framtíðarlausn og auðvelda íbúum tengingu við þjónustumið- stöðvar, óski þeir eftir því.“ Nýlega var haldinn fundur með íbúunum þar sem þeir áttu að fá fréttir af framtíðarskipulaginu en engin endanleg niðurstaða kom fram. Þó fannst þeim eins og líklegt væri að starfsemin yrði þarna lengur og verið væri að leita að rekstraraðila til að taka þetta að sér. Sigþrúð- ur Erla segir að tillögur þess efnis hafi verið lagðar fram á fundi vel- ferðarráðs 25. apríl. „Tillögurnar hafa verið send- ar til umsagnar. Reykjavíkurborg hefur lagt mikið upp úr því að bjóða íbúum aðstoð við að finna framtíðarlausn og fara starfsmenn reglubundið upp í Víðines síðan ljóst var að breytingar væru vænt- anlegar á framtíðarrekstri hússins. Starfsmenn munu halda því áfram á meðan þörf krefur og íbúar óska eftir því.“ Eins og DV greindi frá í síðustu viku standa herbergi auð í Víði- nesi og borgin ekki viljað taka við fleirum þar inn síðan í september. Margir heimilislausir, sem ganga um götur Reykjavíkurborgar, eru búnir að fá sig fullsadda af gisti- skýlinu við Lindargötu, enda mik- ið um sprautufíkla og ofbeldi dag- legt brauð. Að sögn Sigurlaugar væru sumir þeirra fegnir að kom- ast í herbergi í Víðinesi. Hún segir: „Við skiljum ekki forgangsröð- unina. Þau segjast ætla að ein- beita sér að því að hjálpa þeim sem eru hérna fyrir, en hér er allt í biðstöðu og ekkert að frétta. Það er ekki verið að hjálpa fólkinu hér. Á meðan er fólk á götunni í Reykja- vík eða býr í bílunum sínum. Hér hafa allan tímann staðið auð her- bergi.“ n Stærri gangurinn Nag- dýr komast auðveldlega inn í herbergin. Sigurlaug Guðný Ingólfs- dóttir Hjá Kærleikssamtök- unum. Sigþrúður Erla Arnardóttir Fram- kvæmdastjóri þjónustumiðstöðvar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.