Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Qupperneq 18
18 FÓKUS - VIÐTAL 10. maí 2019 Þ að er ótrúlegt hvernig hug­ urinn nær að umturnast hratt. Ég upplifði skrítna til­ finningu um von. Von um að hann myndi allt í einu byrja að anda, von um að hann myndi lifa. En sú tilfinning dvínaði þó þegar fór að líða að kvöldi.“ Þann 25. október á síðasta ári breyttist líf Grétu Rutar Bjarna­ dóttur og kærasta hennar Ragga á einu augnabliki þegar sonur þeirra Hinrik Leó fæddist andvana eftir tuttugu og átta vikna með­ göngu. Óvænt en velkomin þungun Gréta Rut, sem er tuttugu og fjögurra ára gömul, komst að því um miðjan maí á síðasta ári að hún gengi með sitt fyrsta barn. „Þetta var nokkuð óvænt en á þessum tíma var ég í fullum undir­ búningi fyrir Laugavegur Ultra­ hlaupið, en auðvitað vorum við al­ veg byrjuð að spá í barneignir og þetta var sko heldur betur velkom­ ið í líf okkar Ragga,“ segir Gréta í viðtali við DV. Gréta er mikil útivistarmann­ eskja sem tekur reglulega þátt í utanvegarhlaupum. Þegar hún komst að óléttunni var hún skráð í 42 kílómetra utanvegarhlaup á Tenerife og ákvað vegna góðrar heilsu á meðgöngunni að halda áfram þátttöku sinni í hlaupinu, en hún breytti þó vegalengdinni í 22 kílómetra. „Ég hljóp það að sjálfsögðu með vellíðan sem fyrsta markmið. Mér leið mjög vel fyrstu vikurnar og einu einkennin sem ég fann fyrir voru endalaust hungur og þreyta. Ég slapp alveg við ógleði og lík­ amlega verki þannig að fyrstu tólf vikurnar voru bara dásamlegar og litli pjakkur hagaði sér þvílíkt vel gagnvart mömmu sinni.“ Allt leit vel út í skoðunum þar til heimurinn hrundi Þann 4. júlí fór Gréta í tólf vikna sónar og kom þar í ljós að litli strákurinn þeirra var í réttri stærð og hnakkaþykktarmælingin kom einnig vel út, það leit því allt út fyr­ ir að vera í góðu lagi. „Ég var svo ótrúlega þakklát fyrir það hvað þessar fyrstu vikur, sem eru mjög erfiðar hjá mörg­ um, voru ótrúlega góðar og mig grunaði ekkert hvað var í vænd­ um. Ég var mjög dugleg að hreyfa mig og naut þess í botn að geta verið svona aktíf ólétt. Ég fann aldrei fyrir einkennum sem bentu til þess að eitthvað væri að. Engin blæðing, engir verkir, ekki neitt. Ég byrjaði að finna litlar fiðrilda­ hreyfingar í kringum 18 viku.“ Í byrjun september fór Gréta svo í tuttugu vikna sónar og þá voru þau alveg róleg og leið virki­ FEGURÐ ENDING MÝKT Kostirnir eru ótvíræðir: • Fallegra hús • Ekkert viðhald Ál er okkar mál • Fossaleyni 8 • 112 Reykjavík • Sími: 577 4100 • altak.is VEGGKLÆÐNINGAR Fyrir allar gerðir húsa, ný jafnt sem gömul, fjöldi lita og gerða Erfiðast að skilja barnið eftir á spítalanum og ganga tómhent út Hinrik Leó fæddist andvana eftir 28 vikna meðgöngu M Y N D : H A N N A /D V Aníta Estíva Harðardóttir anita@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.