Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Page 19
FÓKUS - VIÐTAL 1910. maí 2019
lega vel. Það var í þessari skoðun
sem heimur þeirra átti eftir að um-
turnast.
„Ég var ótrúlega slök yfir öllu og
leið svo vel. En þá hrundi heimur-
inn. Tvær yndislegar ljósmæður
skoðuðu mig og það sást greini-
lega að þetta var strákur. Þvílíka
typpasýningin sem hann bauð
upp á. Ég spurði þær hvort að það
væri ekki alveg eðlilegt hversu nett
ég var miðað við hversu langt ég
var gengin en þarna var ég kom-
in rúma 21 viku á leið. Þær urðu
eitthvað skrítnar og vildu láta sér-
fræðing kíkja á mig vegna þess
að þeim fannst Hinrik Leó vera
heldur smár. Það var enginn sér-
fræðingur laus svo við fengum
annan tíma daginn eftir.“
Óvissan tók frá þeim alla orku
Þrátt fyrir erfiða bið eftir komandi
degi ákvað Gréta þó að vera já-
kvæð og hugsaði hún sem svo að
fyrst henni hefði nú þegar liðið
svona vel alla meðgönguna að þá
hlyti allt að vera í lagi.
„Daginn eftir mættum við í
skoðunina og hittum sérfræðing.
Hún var alveg frábær og hélt vel
utan um okkur allt ferlið. Í þessari
skoðun kom í ljós að hann var með
alvarlega snemmkomna vaxtar-
skerðingu sem gat bent til þess
að hann væri með litningagalla
eða þá að það væri vanstarfsemi
í fylgjunni. Við fórum í kjölfarið
í flestallar rannsóknir sem hægt
var að fara í. Enginn litninga- eða
genagalli kom í ljós en síðar kom
í ljós að blóðflæðið frá fylgjunni
til hans var of lítið. Að bíða eft-
ir niðurstöðunum var algjör kvöl.
Óvissa er tilfinning sem getur ver-
ið svo nagandi en hún tók alla orku
frá okkur Ragga. Það var þvílík-
ur léttir að heyra að ekki væri um
gena- eða litningagalla að ræða en
það var samt enn þá þessi óvissa
um hvað væri að.“
Í kjölfarið var Gréta í vikulegu
eftirliti hjá sérfræðingi þar sem
blóðflæðið var mælt ásamt því
sem hún hitti ljósmóður í hefð-
bundinni skoðun einu sinni til
tvisvar í viku.
„Í hverri viku bað ég til Guðs um
að litli kútur væri búin að stækka.
Sem hann gerði með hverri vik-
unni sem leið, en það fór þó að
hægja á vextinum þegar lengra
leið á meðgönguna. Við Raggi fór-
um svo að skoða vökudeildina þar
sem okkur var tjáð að litli kútur
yrði tekinn með keisara ef hann
myndi ná ákveðinni þyngd á 28.
viku. Við skoðuðum vökudeildina
nokkrum dögum áður en hann
dó.“
Vissi að hann væri farinn
Þegar loksins kom að því að
Gréta var gengin 28 vikur fór hún
í skoðun hjá ljósmóður þar sem
mæla átti þyngd Hinriks.
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
Erfiðast að skilja barnið eftir á
spítalanum og ganga tómhent út
Mér leið
eins og ég
hefði dáið líka
„Fyrstu tólf vikurnar voru bara dásamlegar
og litli pjakkur hagaði sér þvílíkt vel
gagnvart mömmu sinni.“ / Gréta og Ragna
r / Mynd: Aðsend
Gréta var nett alla
meðgönguna og
það vakti eftirtekt
ljósmæðra /
Mynd: Aðsend
„Það var besta til-
finning í heimi að
fá hann í fangið.“ /
Mynd: Aðsend