Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Page 23
Hjólablað
10. maí 2019
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
Frá árinu 2003 hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið myndarlega að því að efla hreyfingu og starfsanda á vinnustöðum með heilsu- og hvatningarverkefninu Hjólað í vinnuna sem hefur ver-
ið haldið árlega í maí og stendur yfir í þrjár vikur í senn. Undanfarinn áratug
hefur orðið gríðarleg vakning í þjóðfélaginu um hjólreiðar sem heilsusamlegan
samgönguvalkost. Starfsmenn vinnustaða hér á landi hafa aldeilis tekið vel við
sér því þátttakan hefur margfaldast á nokkrum árum. Þegar Hjólað í vinnuna
rúllaði af stað árið 2003 tóku 533 einstaklingar þátt en þátttakan óx ár frá
ári og náði hámarki árið 2012 þegar 11.381 einstaklingur tóku þátt. Ætla má
að margir þátttakendur hafi tekið hjólreiðar upp sem lífsstíl í framhaldi af
þátttöku sinni í verkefninu. ÍSÍ er stolt af því að hafa stuðlað að bættri hjóla-
menningu á Íslandi og orðið til þess að vinnustaðir og sveitarfélög hafi bætt til
muna aðstöðu fyrir hjólandi fólk. Hjólað í vinnuna er nú orðið hluti af menningu
margra vinnustaða í landinu í maí ár hvert.
Meginmarkmið verkefnisins er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem
heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Þátt-
takendur eru hvattir til þess að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta almennings-
samgöngur til og frá vinnu í þrjár vikur í maí ár hvert.
Í ár fer Hjólað í vinnuna fram frá 8.–28. maí og er það í 17. sinn sem Íþrótta-
og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir þessari heilbrigðu vinnustaðakeppni
um allt land. Verkefnið verður sett formlega í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum
miðvikudaginn 8. maí kl. 8.30 og er öllum sem vettlingi geta valdið boðið að
hjóla við og þiggja ljúffengt bakkesli, hlýða á hressileg hvatningarávörp og
hjóla svo verkefnið táknrænt af stað með okkur.
Keppnisgreinar í Hjólað í vinnuna eru tvær. Í fyrsta lagi er vinnustaða-
keppni þar sem keppt er um flesta þátttökudaga hlutfallslega miðað við
heildarfjölda starfsmanna á vinnustaðnum. Keppt er í átta keppnisflokkum út
frá stærð vinnustaða. Í öðru lagi er kílómetrakeppni þar sem keppt er á milli
liða um annars vegar heildarfjölda kílómetra og hins vegar hlutfall kílómetra
miðað við fjölda liðsmanna í liði.
Hverjir eru gjaldgengir þátttakendur? Allir geta tekið þátt í Hjólað í
vinnuna svo framarlega sem þeir nýta eigin orku til og frá vinnu þ.e. hjóla,
ganga, hlaupa, nota línuskauta o.s.frv. Þeir sem nýta almenningssamgöngur
geta einnig tekið þátt en þá er skráð sú vegalengd sem gengin eða hjóluð er til
og frá stoppistöð.
Meðan á átakinu stendur eru ýmsir leikir í gangi svo sem skráningar leikur
þar sem allir þátttakendur fara sjálfkrafa í pott og eiga möguleika á að vera
dregnir út í þættinum Morgunverkin á Rás 2 alla virka daga. Hjólreiða verslunin
Örninn gefur glæsilega vinninga og þann 28. maí er dregið út glæsilegt
reiðhjól að verðmæti 100.000 kr. Myndaleikur verður í gangi á Instagram,
Facebook og á vefsíðu Hjólað í vinnuna þar sem fólk er hvatt til að taka
skemmtilegar myndir af þátttöku sinni í verkefninu og merkja myndina með
#hjoladivinnuna. Með því gætu þátttakendur unnið veglega vinninga frá
Nutcase á Íslandi. Auðvelt er að skrá sig til leiks ásamt því að finna allar frekari
leiðbeiningar um verkefnið á www.hjoladivinnuna.is
Hjólað í
vinnuna
2019