Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Qupperneq 30
Vellíðan 10. maí 2019KYNNINGARBLAÐ
Nútímafólk sækist í auknum mæli eftir slökun og íhug-un til að draga úr streitu og
fá stundarfrið frá áreiti heimsins.
Sérstakir flottankar þar sem hægt
er að fljóta um í þyngdarleysi eru
áhugaverð nýjung sem veita fólki
magnaða upplifun og einstaka
kyrrðarstund.
Bandaríkjamaðurinn Ryan Kevin-
son hefur nú opnað heilsulindina
Hydra Flot Spa, að Rauðarárstíg
1, á Hlemmtorgi, og þar eru þrír
sérstakir flottankar. Vatnið í hverjum
tanki er blandað með 400 kílóum af
Epsom-salti og hitastig er það sama
og húðin, sem veitir þá upplifun að
svifið sé um í draumkenndu þyngdar-
leysi.
Tankarnir takmarka allt ytra áreiti
og maður er einn með skilningarvit-
unum. Tankar af þessu tagi hafa
verið notaðir af NASA og bandaríska
hernum til að rannsaka mannshug-
ann.
Þessi nýstárlega heilsurækt er
talin geta unnið gegn svefnleysi,
verkjum, kvíða, þunglyndi og jafnvel
fíkn. Þeir sem prófað hafa tankana
hjá Hydra Flot Spa eru afar ánægðir.
Á Facebook-síðu heilsulindarinnar,
Facebook.com/hydraflot, er að finna
afar jákvæðar umsagnir hrifinna við-
skiptavina. Meðal þeirra er Sylvía Rut
sem skrifar:
„Fór út fyrir þægindarammann
í dag og skellti mér í flot, var bæði
mjög spennt að prófa e-ð nýtt en
líka kvíðin og stressuð þar sem ég
fæ stundum innilokunarkennd. En
þetta var „out of this world“ upplifun!
Eigandinn fór vel yfir ferlið og gaf góð
ráð um hvernig væri best að venjast
og ná að slaka á sem þrælvirkaði.
Mér leið strax vel ofan í tanknum
(engin innilokunarkennd), meira að
segja þegar ljósin slokknuðu sem ég
var búin að vera smá stressuð fyrir.
Þetta var algjör unaður, bæði náði ég
betri slökun en ég hef áður upplifað
og saltið í vatninu gerði húð og hár
silkimjúkt. Ég mun að öllum líkindum
verða fastakúnni hér og get 100%
mælt með þessu.Takk fyrir mig.“
Aðrir viðskiptavinir greina meðal
annars frá því hve dvölin í tönkunum
hafi verið streitulosandi og vöðva-
slakandi.
Það er áhugaverð og heillandi
hugmynd að svipta mann um stund
öllu áreiti, að loka á skynfærin og
vera fullkomlega einn með sjálfum
sér um leið og líkaminn fær dásam-
lega hvíld. Þetta er eitthvað sem fólki
finnst spennandi að prófa og þeir
sem hafa gert það eru mjög hrifnir af
upplifuninni og áhrifunum á líkama
og sál.
Sjá nánar á vefsíðunni hydraflot.
is og Facebook-síðunni Facebook.
com/hydraflot.
Lokaðu á áreitið og njóttu þess
að fljóta um í þyngdarleysi
HYDRA FLOT SPA: