Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Side 37
FÓKUS - VIÐTAL 3710. maí 2019 Ég hef bara áhuga á milljón hlutum ljósastofu. Það var alltaf skýrt að foreldrar mínir ætluðu að styðja við mig fjárhagslega ef ég héldi áfram í skóla, en það besta sem fósturfaðir minn gerði var að skrifa miða til mín,“ segir Kristín. Á ljósastofunni ætlaði hún að vinna vaktavinnu: „Ég átti að fá 78.940 krónur útborgaðar og mér fannst ég afskaplega rík.“ Á miðanum frá fósturföður hennar kom hins vegar fram að þar sem hún ætlaði sér að vera vinnandi manneskja þá myndi hún auðvitað greiða sinn hluta af tekjum sínum til heimilisins í af­ borganir, hita, rafmagn og annað slíkt og „það er ljóst að þú þarft að fá þér aukavinnu til að þú eigir einhvern afgang.“ Kristín var rosalega fúl með þessi skilaboð og hitti síðan skóla­ systur sína niðri í bæ á 17. júní, sú ætlaði í Menntaskólann á Laugarvatni og Kristín kom heim með þau skilaboð að þangað ætl­ aði hún líka, en samt bara í eina önn meðan hún ákvæði hvað hún sjálf ætlaði að gera. „Ég sá fyrir mér að þarna yrði fullt af sætum strák­ um og mikið frelsi á heimavist,“ segir Kristín, sem síðan var nöpp­ uð strax fyrsta kvöldið í tíkallasím­ anum á gangi skólans, þar sem hún tjáði móður sinni að hún gæti ekki verið þarna, „það eru rosalega ljótir strákir og allir rosalega hall­ ærislegir hérna.“ Þrátt fyrir að hafa fallið í stærð­ fræði á fyrstu önninni og grátið yfir örlögum sínum í fanginu á skóla­ meistaranum, þar sem hún sá ekki fram á að ná einu sinni fyrstu önn­ inni, útskrifaðist Kristín eftir fjög­ ur ár. „Ég grét líka á útskriftinni, mér fannst svo sorglegt að vera búin með þessi fjögur ár og skóla­ bræður mínir voru bara mjög sæt­ ir og eru enn í dag sætustu strák­ arnir sem ég hef kynnst.“ Ólöglegt vinnuafl og fann eiginmanninn á bar erlendis „Eftir útskriftina þá fór ég á ferð og flug, fór fyrst til Englands og það­ an til Lúxemborgar þar sem ég réð mig í vinnu á bar og var ólöglegt vinnuafl. Ég man að alltaf þegar löggan kom, þá þurfti ég að fela mig, þetta er rosalegt þegar ég hugsa um það í dag,“ segir Kristín. Þegar peningarnir voru búnir þá ætlaði Kristín aftur heim. „Ég sat á bar með ferðatöskuna mína, átti engan pening og ekkert heim­ ili. Þá spurði strákur sem ég hafði kynnst þarna og rak bar hvort ég vildi ekki bara vera áfram, bauð mér vinnu og húsnæði, þar til ég fyndi annað. Allavega endaði ég á að giftast þessum manni og eiga með honum eitt barn.“ Parið bjó saman í Lúxemborg í tvö ár, kom svo heim og þá sner­ ust málin við og kærastinn gat ekki unnið hér, þar sem hann var útlendingur. „Við giftum okkur því, fórum svo bæði til Englands í nám, ég að læra Evrópuviðskipti og hann viðskipti og fjármál. Þar áttum við líka son okkar, Stefán, sem er fæddur 1996. Ég fór í viðskipti af því það var skynsamlegt, ekkert annað, ég ætlaði alltaf í félagsfræði, sálfræði, eitthvað mannlegt,“ svarar Kristín aðspurð hvernig námið hafi nýst henni. „Ég hef þó unnið í markaðs­ málum og markaðstengdum störf­ um og ýmsu tengdu viðskiptum þótt ég sé ekki góð í bisness.“ Gagnrýnd fyrir að Disney-væða flóttabarn Eftir að Kristín kom heim starfaði hún í mörg ár í breska sendiráðinu sem upplýsingafulltrúi. Árið 2003, stuttu eftir að hún skildi við eigin­ mann sinn, bauð þáverandi sendi­ herra Breta, John Culver, henni að fara í námsleyfi í eitt ár. „Þá vor­ um við að vinna með Barnasátt­ málann í samvinnu við íslensk stjórnvöld. Ég fór til Lancaster á Englandi og lauk LLM í mannúð­ ar­ og mannréttindalögfræði, sem ég hef heldur aldrei notað,“ segir Kristín og brosir, „en þarna fékk ég mjög mikinn áhuga á málefn­ um flóttafólks og hælisleitenda og hef troðið mér í margar nefndir og samtök í kjölfarið.“ Kristín sat meðal annars í stjórn Solaris – hjálparsamtaka fyrir hælis leitendur og flóttafólk á Ís­ landi, sem Sema Erla Serdar stofn­ aði í byrjun árs árið 2017. „Ég er hætt í stjórninni, en er með nokkr­ ar flóttafjölskyldur sem vini, sem ég aðstoða sem einstaklingur og þau geta leitað til mín þegar þau vantar aðstoð. Ég á líka eina ská­ dóttur, hana Hanye, sem er 14 ára. Henni kynntist ég þegar átti að vísa henni og föður hennar úr landi árið 2017. Ég hitti hana fyrst á Biskupsstofu sem fulltrúi Solaris og þana sat þetta litla barn sem bara grét og grét í fanginu á mér. Það var búið að reyna allt til að halda þeim feðginum hér heima … nema að Disney­væða barnið, sem er orð úr miður fallegum skilaboðum sem ég fékk. Henn­ ar eina ósk var að verða 12 ára á Íslandi og mig langaði að halda afmæli fyrir hana sem var rosa­ lega erfið ákvörðun, og ég fékk á mig gagnrýni og mörg ekki fal­ leg skilaboð um hvað ég væri að gera barninu. Að Disney­væða hana með því að klæða hana í kjól, mynda og setja hana í blöðin og halda veglegt afmæli með gestum og gjöfum til þess eins að senda hana svo í flóttamannabúðir. Ég skil auðvitað bæði sjónar­ mið, þarna á að henda henni úr landi og hún er komin í fallegan kjól og í blöðin og kannski var ég að vekja falskar vonir hjá henni. En ég ræddi þetta mjög vel við pabba hennar, að þetta væri bæði til að uppfylla ósk hennar og vekja athygli á málstaðnum. Í kjölfarið var samþykkt frumvarp um mál­ efni flóttafólks og þau feðgin eru hér enn og fleiri börn sem hafa notið góðs af.“ Einstæð móðir á Bifröst og í hótelbransa Eftir að Kristín lauk störfum hjá breska sendiráðinu árið 2006 fór hún að kenna ensku við Bifröst og eftir að hafa starfað þar í eitt ár bauð Runólfur Ágústsson, þá­ verandi rektor, henni að sjá um alþjóðamálin. Hún flutti því með Stefán son sinn þangað. „Árin á Bifröst voru æðisleg ár. Ég kynnt­ ist frábæru fólki og eru nemendur frumgreinadeildar sem og skipti­ nemar mitt uppáhaldsfólk. Þegar við fluttum aftur til Reykjavíkur nokkrum árum seinna, varð ég fljótlega ófrísk að Jakobi Frið­ riki, sem er sjö ára í dag. Þegar hann var eins árs bauðst mér að vera með í skemmtilegu verkefni. Vin vinar míns langaði að búa til hostel og vissi ekkert hvar átti að byrja frekar en ég, en við hittumst nú samt og þetta var upphafið að Bus Hostel í Skógarhlíð, sem var dásamlega fallegt verkefni og mér þykir eiginlega vænst um af öllu því sem ég hef gert,“ segir Kristín. „Verkefnið var „low budget“ og allt var með sál þar inni, sem dæmi má nefna að myndir á veggjum voru eftir vini og ættingja og gaml­ ir munir héðan og þaðan. Hostel­ ið var byggt og rekið á trausti og heiðarleika, engin verðmæti, eins og tölvur og plötuspilarar, voru læst inni og fyrir matinn sem boð­ inn var til sölu þurfti fólk bara að skilja eftir pening, það var enginn sem afgreiddi. Hostelið gekk al­ gjörlega á heiðarleikanum.“ Næst tók Kristín þátt í upp­ byggingu Oddsson í JL húsinu og segir að þar hafi verið öfga­ heimar á milli, en eigi að síður einnig skemmtilegt verkefni með áhugaverðu fólki. „Síðan fór ég á Guldsmeden Hótel Eyja, sem er fjölskyldurekið af dásamlegu pari sem brennur fyrir hótelbransann. Ég hef bara kynnst æðislegu fólki í öllum þessum verkefnum.“ Aðspurð hverju hún hafi sinnt í þessum verkefnum segir Kristín að hún geri bara það sem gera þarf. „Ég er alltaf drottningin, sama hvert ég fer,“ segir hún og hlær. „Mér gengur rosavel að vinna með fólki og ég hef eignast marga af mínum bestu vinum í gegnum vinnu og samstarf. En ég er mjög léleg í mörgu, ég er til dæmis rosalega óskipulögð bæði í vinnu og einkalífi, en þannig er ég bara. Ég hef alltaf átt erfitt með að ramma sjálfa mig inn, ég heyrði einhvern tíma viðtal við Röggu Gísla sem sagði að hún hefði bara áhuga á svo mörgu og ég hef alltaf spilað þessa setningu í hausnum á mér; „ég hef bara áhuga á milljón hlutum“.“ „Á erfitt með óréttlæti sama í hvaða mynd það birtist“ Kristín var byrjuð í sjálfboða­ liðastörfum löngu áður en það var orðin jafn algengt og það er í dag. „Mamma hefur alltaf sagt að ég sé rosalega aumingjagóð, henn­ ar orð,“ segir Kristin. „Ég ætlaði til dæmis aldrei að eignast börn, ég ætlaði bara að búa í Afríku og hugsa um fullt af börnum og svo ætlaði ég að ættleiða allan heim­ inn. Þótt ég hafi verið einhver Garðabæjarpía þá var ég í Am­ nesty International og æddi um allan miðbæinn í „second­hand“ rúskinnsjakka og hermannakloss­ um að biðja fólk um að skrifa und­ ir lista gegn dauðarefsingum.“ Aðspurð hvaðan sjálfboðaliða­ áhuginn sé sprottinn svarar Krist­ ín að það sé líklega bara hjá henni sjálfri. „Þegar ég er að alast upp sem barn og unglingur, þá var Hjálparstarf kirkjunnar að byrja með pappírsbauka með myndum af sveltandi börnum í Afríku, Sam­ einuðu þjóðirnar með ár barns­ ins, Live Aid­tónleikarnir voru og maður þroskaðist með þessu. Ég hef átt erfitt með óréttlæti frá því að ég var mjög lítil, sama í hvaða mynd það birtist. Ég er með bráða­ ofnæmi fyrir óréttlæti.“ Hjá Píeta eru allir með hjartað á réttum stað Í lok síðasta árs tengdi vinkona Kristínar hana saman við stjórn Píeta samtakanna og átti Kristín nokkra fundi með Björk Jóns­ dóttur, formanni stjórnar, og Benedikt Guðmundssyni, varafor­ manni og einum stofnenda. „Við áttum falleg og heiðarleg sam­ skipti frá fyrsta degi og fórum vel yfir tilgang og eðli Píeta. Þau vildu velja einhvern í starfið sem myndi passa vel við það og ég var óviss um hvað mig langaði að gera. Ég féll hins vegar alveg fyrir starfinu og Píeta samtökin eru eitt það fal­ legasta sem ég hef kynnst. Þetta eru samtök í eigu þjóðarinnar, all­ ur peningur sem kemur hérna inn er framlög frá einstaklingum og félagasamtökum, styrktarsamfé­ lagið er ótrúlegt. Og þetta er mjög jákvæður vinnustaður og hér eru allir með hjartað á réttum stað og að vinna að sama markmiði.“ Kristín segist vera með ólíkan bakgrunn miðað við samstarfs­ fólk sitt, en segir það engu að síður gott, fjölbreytileikinn sé góður, en allir mætist sem jafningjar. „Áður en ég hóf störf hér, þá hélt ég að ég tengdi lítið við grundvöll Píeta, en þetta er málefni sem snertir svo marga. Það eiga allir sögu, sem tengist málefninu og það finnst mér mjög mikilvægt í umræðunni; að þetta snertir alla á einhvern hátt, það virðist enginn sleppa, en það er mjög mikilvægt að fólk viti að það er hægt að leita sér hjálpar. Við þurfum öll að tilheyra, við þurfum að vera með tilgang og við þurfum að geta séð fyrir okkur, þetta eru grunnatriðin og ef eitt­ hvert af þeim klikkar eða brotn­ ar, þá getur ýmislegt farið af stað í höfðinu á manni eða taugakerf­ inu. Einnig geta sjálfsvígshugsan­ ir verið afleiðing vissrar neyslu og einkenni vissra geðsjúkdóma en það má ekki gleyma því að þessar hugsanir eru eðlilegar; eru bara hugsanir, en hvernig bregstu síð­ an við þeim það er annað mál. Þú þarft ekki að glíma við sjúkdóm til að fá sjálfsvígshugsanir, það eru óþægilega margir sem hafa sagt við mig: „Já ég pældi nú í því 2007 að enda þetta bara“.“ Þörfin fyrir starfsemi Píeta er mikil Hjá Píeta er boðið upp á gjald­ frjálsa meðferð hjá fagfólki til Brosmild á Baldurs- götu Kristín fyrir utan Baldursgötu 7, þar sem tekið er á móti öllum sem á aðstoð þurfa að halda, án endurgjalds.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.