Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Page 44
44 PRESSAN 10. maí 2019
hugsaði Bjarne bara um að nú
myndu þau missa drenginn. Þegar
hann var nýkominn á sjúkrahúsið
kom yfirlæknirinn og færði þeim
hin hörmulegu tíðindi að And
reas væri látinn. Heimur Bjarne
hrundi saman. Læknarnir vildu
kryfja Andreas en hjónin vildu það
ekki, það átti ekki að leggja meira
á þennan litla líkama. Í dánarvott
orðið var því skrifað að Andreas
hefði látist af völdum hjartastopps.
Annar sonur fæðist
Á gamlárskvöld 1987, níu mánuð
um eftir að Andreas lést, eign
uðust Bjarne og kona hans ann
an son, Jesper. Þriggja, fjögurra
mánaða að aldri fór hann að fá
svipuð köst og Andreas hafði feng
ið. Þrautagangan byrjaði því upp
á nýtt, endalausar læknarann
sóknir og sjúkrahúsdvöl en það
skilaði engu þar til nýr yfirlæknir,
Søren Pedersen, tók við á barna
deild sjúkrahússins í Kolding.
Hann var ráðinn til sumarafleys
inga. Hann var með 11 ára starfs
reynslu og hafði heyrt af Andreas
en hafði ekki komið að hans mál
um því hann starfaði á annarri
deild sjúkrahússins. Hann ákvað
að prófa eitthvað annað en það
sem læknarnir höfðu gert fram
að þessu. Hann fór gaumgæfi
lega í gegnum sjúkraskýrslur
Andreas og sá svolítið sem vakti
athygli hans. Enginn læknir hafði
séð þegar kast byrjaði hjá Andre
as eða Jesper. Þetta byrjaði alltaf
þegar móðirin var ein með þá. Á
ráðstefnu í Lundúnum hafði séð
dæmi um móður sem hafði reynt
að kæfa barn sitt af því að hún var
með Münchausen by Proxy. Søren
datt í hug hvort hér gæti verið við
móður að glíma sem hefði þann
sjúkdóm.
Eftirlit
Søren sneri sér til lögreglunnar
vegna málsins. Hún var mjög ef
ins til að byrja með en féllst á að
fá úrskurð hjá dómara til að setja
eftirlitsmyndavél upp á sjúkrahús
inu til að kanna hvort grunur yfir
læknisins væri á rökum reistur.
Dómari féllst á kröfu lögreglunnar
og eftirlitsmyndavél var sett upp
í skiptiherberginu en þar höfðu
mörg kastanna einmitt hafist. Það
var mikilvægt að móðirin vissi ekki
neitt um þetta og því sagði Søren
vinnufélögum sínum að leggja
þyrfti snúrur í gegnum skiptiher
bergið vegna rannsóknar á loft
gæðum.
Í 100 metra fjarlægð var komið
upp aðstöðu fyrir lögregluna
og þar sat Richard Andersen og
fylgdist með án þess að starfsfólk
sjúkrahússins vissi af því. Lög
reglan gaf sér fjóra daga til að fylgj
ast með, að því loknu yrði rann
sókninni hætt ef ekkert gerðist.
Søren hafði lesið að Jesper fengi
oft kast þegar rætt var um að hann
færi heim. Á síðasta stofugangi
sínum þessa vikuna sagði hann
því við móður hans að stefnt væri
að því að Jesper færi heim á mánu
deginum. Hann reyndi á meðvit
aðan hátt að ögra henni til að sjá
hvort það væri hún sem stóð á bak
við veikindi drengjanna.
Símtalið
Hjúkrunarfræðingurinn, sem
svaraði í símann þegar Richard
hringdi og sagði að eitthvað hrylli
legt væri að gerast í skiptiher
berginu, vissi ekki hvaðan á sig
stóð veðrið. Hún gekk samt sem
áður að skiptiherberginu ásamt
afleysingalækni, svona til örygg
is. Um leið og þau gengu inn lyfti
móðirin Jesper upp, hann var
blár í framan og taldi hjúkrunar
fræðingurinn að hann hefði fengið
enn eitt kastið.
„Af hverju hringdirðu ekki
í okkur?“ spurði hjúkrunar
fræðingurinn. Móðirin náði ekki
að svara áður en lafmóður mað
ur í mikilli geðshræringu ruddist
inn í herbergið. Það var Richard.
Hann fékk lækninn með sér fram
og fór með hann inn í eftirlitsher
bergið. Þar sýndi hann honum
upptökuna af móðurinni þar sem
hún náði í pokarúllu. Síðan sást
hún leggja poka á maga drengs
ins og færa hann upp eftir líkam
anum og yfir andlit hans. Áður tók
hún snuðið út úr honum. Um leið
og Richard sá hana gera þetta vissi
hann að þarna var komin fullkom
in sönnun fyrir að það var móðirin
sem hafði valdið veikindum sona
sinna.
Skömmu eftir klukkan 19 var
móðirin handtekin af Richard,
grunuð um morð og misþyrm
ingar á Jesper.
Skildi þetta ekki
Þegar Bjarne hringdi á sjúkrahús
ið til að ræða við eiginkonu sína
um kvöldmatarleytið var honum
sagt að hafa samband við rann
sóknarlögregluna. Þá fékk hann
að vita sannleikann, að eiginkona
hans væri grunuð um að hafa myrt
Andreas og að hafa reynt að kæfa
Jesper með plastpoka.
Bjarne átti erfitt með að skilja
þetta og spurði af hverju hún hefði
gert þetta. Lögreglumaðurinn
sagði að það væri vegna þess að
eitthvað væri að henni. Bjarne átti
samt sem áður erfitt með að skilja
þetta. Hvernig gat móðir gert barni
sínu þetta? Honum hafði aldrei
dottið í hug að eiginkona hans ætti
hlut að máli, hún hugsaði svo vel
um drengina, var svo umhyggju
söm og hugrökk.
Í júní 1990 var eiginkona
Bjarne dæmd í sex ára fangelsi fyr
ir ofbeldi og ofbeldi sem leiddi til
dauða. Í kjölfarið skildu hún og
Bjarne og hann flutti á nýjan stað
með börn sín tvö.
Bjarne segir að það hafi alla tíð
nagað hann að hugsanlega hefði
verið hægt að komast fyrr að hinu
sanna. Hvort hægt hefði verið að
hlífa Jesper við ofbeldinu ef And
reas hefði verið krufinn. n
Ejstrupholm Vettvangur
eins óhugnanlegasta sakamáls
Danmerkur.„Þetta
er
lögreglan,
hlaupið inn
í skiptiher-
bergið, það
er svolítið
hryllilegt að
gerast þar.