Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Blaðsíða 48
48 10. maí 2019
F
ranska útlendingahersveitin
hefur löngum verið sveip-
uð óútskýranlegum
dýrðarljóma og draumur
margra ungra karla hefur snúist
um að ganga í hana. Eitt er að
dreyma um eitthvað og annað að
gera það að veruleika.
Englendingurinn Tony Banni-
ster var einn af þeim sem létu slag
standa og 21 árs að aldri sleppti
hann heimdraganum og hélt til
Frakklands.
Inngangan í Frönsku
útlendingahersveitina reyndist
þó aðeins verða fyrsta skrefið í leit
þessa athyglissjúka manns að til-
veru sem væri öðruvísi og myndi
skapa honum sérstöðu.
Nælir í auðuga konu
Lífið í Frönsku útlendinga-
hersveitinni stóð ekki und-
ir væntingum Tonys og því fór
hann til Bandaríkjanna og gerðist
hundaatferlissinni, það er engin
lygi, og opnaði umönnunarstofu
fyrir gæludýr.
Á þeirri stofu hitti hann verð-
andi eiginkonu sína, Díönu. Hún
var endurskoðandi og tólf árum
eldri en Tony, en hann setti það
ekki fyrir sig því hún var ágætlega
efnuð.
Um skeið virtist Tony sáttur við
ráðahaginn og lífið, en Adam var
ekki lengi í Paradís eins og oft er
haft á orði.
Íshokkístjarna og rithöfundur
Nú voru góð ráð dýr, en Tony dó
ekki ráðalaus. Í stað þess að krydda
tilveruna skapaði hann einfald-
lega nýja. Hann breytti nafni sínu
úr Bannister í Lindstrom og fullyrti
að hann væri kanadískur, fyrrver-
andi íshokkístjarna og, til að bæta
um betur, farsæll rithöfundur í of-
análag.
Tony gekk svo langt að hann
halaði niður fjölskyldumyndum af
internetinu og breytti þeim. Síðan
sendi hann, til dæmis, föður sín-
um myndirnar og sagði þar um
að ræða eiginkonu sína og þrjú
börn. Reyndin var sú að hann og
Díana áttu engin börn, og reyndar
fer ekki mörgum sögum af hjóna-
bandinu þegar þarna var komið
sögu.
Vísað frá Bandaríkjunum
Tony gekk of langt í svikum og
prettum og að lokum var hon-
um vísað úr landi. Hann og Díana
fluttu þá til Englands og eitt af
hans fyrstu verkum þar var að
kaupa sér Porsche-bifreið, enda
mátti það ekki minna vera. Hann
opnaði nýja umönnunarstöð fyr-
ir hunda, en fjárhagurinn stóð á
brauðfótum.
Brátt stefndi umönnunarstöðin
í gjaldþrot og því sauð Tony saman
áætlun sem mundi leysa vanda-
málið.
Líftrygging í „afmælisgjöf“
Á þessum tímapunkti, í byrjun árs
2010, höfðu Tony og Díana verið
gift í tíu ár. Tony ákvað að kaupa
líftryggingu handa Díönu, sem þá
var 56 ára. Hann fékk nágranna-
konu sína til að þykjast vera Díana
og þau fóru saman í trygginga-
félagið. Þar sagði Tony að líf-
tryggingin væri eins konar afmæl-
isgjöf.
Varla hafði blekið þornað á
tryggingarsamningnum þegar
Tony hóf leit á internetinu að upp-
lýsingum um insúlín, virkni þess
og hvort það kæmi fram við krufn-
ingu.
Að því loknu gerði hann tilraun
á hundinum sínum sem drapst
nógu vandræðalaust.
Mislukkuð morðtilraun
Áform Tonys fóru handaskolum,
um það verður sennilega ekki
deilt. Klukkan hálf fjögur um eft-
irmiðdaginn 4. febrúar, 2010, fann
lögreglan bíl Tonys sem hafði ver-
ið lagt í um níu kílómetra fjarlægð
25. júlí, 1998, reyndi franska hjúkrunarkonan Christine Malevre að svipta sig lífi. Í kjölfar þessarar mis-heppnuðu tilraunar játaði hún að hafa hjálpað um 30
sjúklingum yfir móðuna miklu á Francois Quesnay-sjúkrahúsinu í
Mantes-la-Jolie, í útjaðri Parísar.
Christine var eðli málsins handtekin og fullyrti að umræddir sjúk-
lingar hefðu leitað til hennar enda haldnir banvænum sjúkdómum
og jafnvel við dauðans dyr.
„Rétturinn til að deyja“ er ekki viðurkenndur í Frakklandi og því ekki
að undra að á Christine rynnu tvær grímur og hún drægi játningu
sína til baka.
SAKAMÁL
MANITOU MLT 625-75 H
Nett
fjölnotatæki
Pétur O. Nikulásson ehf. • Melabraut 23, Hafnarfjörður • Símar: 552 2650 / 552 0110 • pon@pon.is
6.800.000 kr. + VSK
FLÁRÁÐI LYGAMÖRÐURINN
n Tony Lindstrom vildi skera sig úr fjöldanum n Spann upp lygasögur um eigið ágæti nLíftryggði eiginkonu sína og skipulagði morð
„Að því loknu
gerði hann til-
raun á hundinum sín-
um sem drapst nógu
vandræðalaust
Á brúðkaupsdaginn Díana var tólf
árum eldri en Tony, en ágætlega efnuð.