Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2019, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2019, Qupperneq 6
6 18. apríl 2019FRÉTTIR Íslenskur smáborgaraháttur S krautlegt var að fylgjast með handtöku Julians Assange úr fjarlægð. Ná- unginn búinn að safna skeggi í óbærilega leiðin- legri margra ára vist í sendiráði Ekvador í London. Svo leiðinlegri að hann á víst að hafa kúkað upp um alla veggi til að hafa ofan af sér. Við Íslendingar tökum þetta mál inn á okkur. Assange er okk- ar maður, vinur Birgittu Jóns og Kristins Hrafnssonar, Íslandsvin- ur. Við horfum bara fram hjá því að hann var ákærður fyrir nauðg- un í Svíþjóð. Svarthöfði fellir enga dóma um hvað sé satt og rétt í máli Assange. Svarthöfða finnst aftur á móti athyglisvert hvernig Íslendingar bregðast við þegar útlendingar sýna landinu minnsta áhuga. Eva Joly bauð fram aðstoð sína við að taka til eftir hrunið og var hún ekki fyrr búin að sleppa orðinu en Íslendingar réðu hana á svimandi háum launum og titluðu þjóðardýrling. Þjóðinni til afsök- unar þá var hún á sínum lægsta punkti og hefði þegið jákvæða athygli frá hvaða útlendingi sem var. Sumir útlendingar þurfa ekki annað en að stíga hér niður fæti til þess að verða titlaðir Íslandsvin- ir og hljóta aðdáun okkar. Nefnir Svarthöfði Georges Pompidou, landa Evu Joly, í því samhengi. Pompidou var einn ómerkilegasti forseti Frakklands eftir stríð, en hann hitti Nixon á Kjarvalsstöð- um og þar með var hann kominn í góðu bókina. Ríkir karlar sem veiða hér lax þykir okkur vera einstaklega flott- ir. Við montum okkur meira af þeim en þeir gera af löxunum sem þeir veiða. Karl Bretaprins, golfarinn Jack Nicklaus og Cream-stjarnan Eric Clapton eru meðal þeirra helstu. Flestum Ís- lendingum væri nokk sama um danska stjórnmálamanninn Uffe Ellemann Jensen. En af því að hann er meðal duglegustu er- lendu laxveiðimannanna þá elsk- um við hann og dáum. Sögusagn- ir voru uppi um að Horst Tappert, sem lék þýsku lögguna Derrick, renndi fyrir lax í Aðaldal en því miður fékkst það aldrei staðfest. Það hefði verið upplyfting fyrir þjóðarsálina. Kórónan á íslenska smá- borgarahættinum er og verður sennilega alltaf Bobby Fischer. Snarruglaður gyðingahatari sem fyrir slysni fæddist með hæfileika í skák og kom hingað til að tefla í einvígi um heimsmeistaratitil- inn. Eftir á að hyggja var senni- lega ekki gott fyrir andlega heilsu Íslendinga að fá þennan viðburð hingað, því að við fórum yfir um. Löngu seinna, þegar Bobby var búinn að mála sig út í horn í hin- um siðaða heimi, var honum boðið hingað með pomp og prakt og íslenskt vegabréf gefið út með frygðarstunu landsmanna. Ekki nóg með það því einnig sam- þykkti þingheimur, nánast ein- róma, að opna sérstakt safn til heiðurs honum. Við Íslendingar verðum að fara að átta okkur á að útlendingar eru fólk af holdi og blóði eins og við hér heima og við megum ekki missa alla rökhugsun þegar ein- hver lítur í áttina til okkar. n Svarthöfði Það er staðreynd að… Skjaldbökur geta andað með afturend- anum. Á Íslandi er bannað að reisa grafhýsi í kirkjugörðum. Keila var fundin upp í Egyptalandi til forna, fyrir um 5.000 árum. Stalín var með samvaxnar tær. Fyrstu reiðhjólin sáust á Íslandi árið 1890. YFIRHEYRSLAN Hjúskaparstaða og börn? Kvæntur og á tvær stúlkur, Kiru (9) og Natalíu (4). Fyrsta atvinnan? Fréttamaður á Aðalstöðinni, þá fimmtán ára gamall, hjá Ólafi heitnum Þórðarsyni. Skemmtilegast að gera? Ég nýt þess mjög að lesa bækur og hlusta á góða tónlist, en skemmtilegast er að vera með fjölskyldunni. En leiðinlegast? Að gera bókhaldið. Býrðu yfir einhverjum leyndum hæfileikum? Efast um það. Vildi samt að ég gæti talað frönsku og spilað betur á píanó. Besta ráð sem þú hefur fengið? Að vera ég sjálfur, ráð frá mömmu. Hvaða bók hefðir þú viljað skrifa? The Murder of Roger Ackroyd eftir Agöthu Christie. Leiðinlegasta bók sem þú hefur lesið? Ég klára aldrei leiðinlegar bækur, ef mér líst ekki á þær, þá legg ég þær bara frá mér. Lífið er of stutt. Fyrsti stjórnmálaflokkurinn sem þú kaust? Sjálfstæðisflokkurinn. Hver myndi skrifa ævisögu þína? Þorvaldur Davíð, vinur minn, ég myndi treysta honum til þess. Hefur þú fallið á prófi? Man ekki til þess. Hvað er það sem heillar mest við lögmennskuna? Lögmennskan er fjölbreytt og getur opnað á ýmiss konar tækifæri. Hvaða ráð ertu með fyrir rithöfunda sem eru að stíga sín fyrstu skref? Byrja að skrifa og skrifa helst eitthvað á hverjum degi. Ertu trúaður eða trúir þú á æðri mátt? Ég trúi að minnsta kosti á mátt orðsins. Mannkostir þínir? Ég sit aldrei auðum höndum. En lestir? Lestir eru bestir í bókum, án þeirra væru engar glæpasögur. Best að vera lögfræðing- ur, rithöf- undur eða kennari? Rithöfundur, því ég er einmitt að klára nýja bók fyrir jólin þessa dagana. Eitthvað að lokum? Pössum upp á íslenskuna, hún er svo dýrmætt tungumál. Ragnar Jónasson hefur verið viðriðinn glæpi frá unglingsaldri sem þýðandi spennusagna Agöthu Christie, og sem einn vinsælasti rithöfundur landsins, en bækur hans rata ítrekað á vinsældalista erlendis. Ragnar starfar sem lögfræðingur á fjár fest ing ar­ banka sviði Arion banka og er stundakennari við lagadeild Háskólans í Reykjavík. DV tók Ragnar í yfirheyrslu. Hver er hann n Lék Jesús Krist n Rekur veitingastað- inn Veganæs n Er úr mikilli tónlistar- fjölskyldu n Söng með hljómsveitinni Mínus n Greindi nýlega frá ofbeldi í Landakotsskóla ODDUR HRAFN STEFÁN BJÖRGVINSSON (KRUMMI) 13698 Ragnar Jónasson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.