Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2019, Síða 14
14 FÓKUS - VIÐTAL 18. apríl 2019
E
inar Egilsson stefnir á inn-
komu í íslenska kvikmynda-
og þáttagerð. Hann skrifaði,
ásamt Elíasi K. Hansen, ný-
verið undir stóran samning við
Pegasus um gerð sjónvarpsþátta
en einnig sitja þeir við skriftir að
bíómynd. Einar, sem áður starfaði
í hljómsveitinni Steed Lord, ræddi
við DV um þessi verkefni, æskuna,
tónlistina og bílslysið sem breytti
lífsviðhorfinu.
Ólst upp á RÚV settinu
Einar er Vesturbæingur að upp-
runa, alinn upp við Ægissíðuna.
Segja má að Ægissíða 64 hafi verið
hjarta stórfjölskyldunnar. Þar bjó
Einar með bróður sínum, for-
eldrum, ömmu og afa til sex ára
aldurs. Einar segir:
„Amma mín dó þegar ég var
orðinn ungur maður og afi flutti
úr húsinu. Þá flosnaði upp úr
þessu og ég áttaði mig á hversu
stór hluti þetta var af okkur. Allt í
einu var þessi kafli búinn og þessi
klettur sem við gátum alltaf leit-
að til á Ægissíðunni ekki lengur
til staðar. Ég sakna þessa staðar
mikið.
Ég hef alltaf haft mjög sterk
tengsl við sjóinn. Það voru örfá
skref niður í fjöru. Þar lékum við
okkur og horfðum á trillukarlana
koma að og hengja fiskinn upp til
þurrkunar. Flest sumur ferðuðu-
mst við til Bandaríkjanna og
á Flórída vorum við mikið á
ströndinni. Ég tók mín fyrstu skref
þar.“
Faðir Einars er Egill Eðvarðs-
son, leikstjóri og dagskrárgerðar-
maður til áratuga og hefur starfað
við tónlist og myndlist svo eitt-
hvað sé nefnt. Lengst af hefur Eg-
ill starfað hjá Ríkissjónvarpinu og
má segja að Einar hafi alist upp
þar innandyra.
„Ég var mikið „á setti“ eins
og sagt er, hvort sem það var við
upptökur hjá Hemma Gunn, gerð
sjónvarpsmynda eða hvað það nú
var. Ómeðvitað tók ég þetta allt
saman inn. Mér var ekki kennt
með beinum hætti, en ég sat og
fylgdist með öllu sem fram fór.
Seinna meir, þegar ég var farinn
að leikstýra tónlistarmyndbönum
og fleira, áttaði ég mig á því að ég
bjó að þessari reynslu. Til dæmis
við klippingar.“
Var menningunni haldið að
þér?
„Já, ég ólst upp á menningar-
heimili. Margir af helstu lista-
mönnum þjóðarinnar komu sem
gestir. Þetta smitar auðvitað út
frá sér, en við vorum samt ósköp
venjuleg fjölskylda.“
Móðir Einars, Guðrún Val-
gerður Bjarnadóttir, starfaði sem
flugfreyja og fjölskyldan ferðaðist
mikið. Einar segist einnig búa
að þeirri reynslu, sérstaklega í
ferðunum til Bandaríkjanna.
Hugsaði ekki um að „meika það“
Einar hefur alla tíð haft mikinn
áhuga á tónlist. Í fermingargjöf
fékk hann hljómborð og fór strax
að feta sig áfram í hipphoppi og
raftónlist. Hann gekk í Kvenna-
skólann og var þar plötusnúður
á skólaböllum og seinna, eftir
skólagönguna, stofnaði hann
hljómsveitina Steed Lord, með
bræðrum sínum, Ella og Eðvarði,
og unnustu sinni, Svölu Björgvins-
dóttur, árið 2006.
Þið spiluðuð mikið erlendis?
„Já, aðallega. Þetta var á
MySpace-tímabilinu. Þetta var
svolítið sérstakur tími. Við vorum
með hljómsveit og heimasíðu þar
sem við vorum bókuð til að spila
víðs vegar úti í heimi. Við vor-
um hluti af ákveðinni hreyfingu.
Danstónlistin var þarna að koma
til baka úr dvala.“
Meðlimir Steed Lord ferðuð-
ust út um allan heim og spiluðu
á klúbbum og tónlistarhátíðum.
Einar segir að eftirminnilegast
hafi verið að spila í Mexíkó og við
Svartahafið. Að heyra fólk syngja
með lögunum hafi alltaf verið
ómetanleg, sama hvort það voru
fimm manns eða fimm þúsund.
Var takmarkið að „meika
það“?
„Nei, aldrei. Auðvitað var gam-
an að sjá að fólk vildi hlusta á það
sem við vorum að skapa. En ég
hef aldrei haft áhuga frægðinni
sem slíkri eða „meika það“, ég veit
ekki einu sinni hvað það þýðir í
sjálfu sér. Ég held að þetta sé eitt-
hvað gamaldags hugarfar í okkur
Íslendingum þar sem við höfum
verið lítil og einangruð svo lengi.
Tónlist er aðeins starfsgrein eins
og hver önnur.“
Var flókið að starfa með maka
og bræðrum í hljómsveit?
„Já, mjög flókið,“ segir Einar.
„En á sama tíma mjög gefandi.
GERlf> GJEf>A- OG VERf>SAMANBURf>
Nattsloppar og saengurfot
MikiO urval - Flottar fermingargjafir
� .... �--...... - -
' �.: ' . ., J • .;-
Baldursnesi 6 - Akureyri
Listhusinu Laugardal- Simi 581 2233
Baldursnesi 6, Akureyri - Simi 461 1150
OpiO virka daga kl. 10:00 - 18:00
Laugardaga 12:00 - 16:00
Umboclsallilar: I Husgagnaval - Hiifn f Hornafirlli I Bara snilld ehf. - Egilsstoclum Umboðsaðilar: Húsgagnaval - Höfn / B ra s illd ehf. - Egi sstöðum
GJÖF
FYLGIR
FERMINGAR-
RÚMUM
Einar snýr aftur frá
Hollywood til að búa til bíó
Ólst upp á RÚV - Bílslysið jákvæð lífsreynsla
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
M
Y
N
D
: H
A
N
N
A
/D
V