Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2019, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2019, Page 18
18 18. apríl 2019FRÉTTIR E nn hefur ekkert spurst til Henrys Alejandros Jimenez, tvítugs pilts sem yfirgaf heimili sitt í í Torrevieja í Alicante-héraði á nýársnótt eftir að hafa rifist við íslenskan meðleigj- anda sinn. DV greindi frá hvarfi Henrys á dögunum. Móðir Henrys furðar sig á því að Íslendingurinn, sem bjó með Henry, hafi ekki ver- ið handtekinn og fjölskyldan telur fullvíst að Henry hafi ekki yfirgefið íbúðina sjálfviljugur. Árásin tilkynnt Fram kom í frétt DV á dögunum að þrír Íslendingar koma við sögu í dularfullu mannshvarfsmáli sem upp kom á Spáni í byrjun ársins. Uppi eru getgátur um að málið tengist andláti annars þeirra. Fram kemur í spænskum miðlum að í lok seinasta árs hafi íslenskur piltur fundist látinn á sófa í íbúð sem er í sama fjölbýlishúsi og þar sem Henry býr. Fram kemur að dánar- orsök piltsins hafi verið ofneysla. Umræddur piltur leigði á þeim tíma íbúð með tveimur öðrum Ís- lendingum. Annar þeirra flutti til Íslands eftir þetta en hinn varð eft- ir á Spáni. Henry flutti inn til hans eftir þennan hörmungaratburð. Á gamlárskvöld var partí í íbúð þeirra félaga, Henrys og Ís- lendingsins. Samkvæmt frásögn- um spænskra miðla kom til átaka á milli þeirra tveggja seint um kvöldið, sem endaði með því að Íslendingurinn réðst á Henry. Henry yfirgaf íbúðina í kjölfarið og hefur ekki sést síðan. Ítrekuð leit hefur engan árangur borið. Fram kemur í spænskum miðl- um að Guardia Civil-lögreglan hafi yfirheyrt íslenska meðleigjandann, sem og gestina sem staddir voru í íbúðinni á gamlárskvöld. Hefur Ís- lendingurinn staðfest að til átaka hafi komið á milli þeirra tveggja sem enduðu með því að hann réðst á Henry. Þá kemur fram að samkvæmt vitnis burði Íslendings- ins var Henry „ekki í góðu ástandi“ þegar hann yfirgaf íbúðina. Fram kemur að frásagnir þeirra sem staddir voru í íbúðinni þetta kvöld séu misvísandi. Á vef spænska miðilsins Cope kemur fram að hin meinta árás Íslendingsins hafi verið til- kynnt til lögreglu. Móðir Henrys, Gina, segir að samkvæmt vin- um sonar hennar hafi árásin ver- ið harkaleg. Furðar hún sig á því að árásarmaðurinn hafi ekki ver- ið handtekinn. Hún segir son hennar alltaf hafa treyst fólki í blindni. „Hann er svo góðhjartað- ur og ákvað þess vegna að fara að búa með vini sínum, sem seinna átti eftir að ráðast á hann,“ segir hún og bætir við að sonur henn- ar hafi kennt í brjósti um vininn, sem hafi verið aleinn í útlöndum, þar sem hann talaði ekki tungu- málið. „Ég reyndi að fá hann til að hætta við, vegna þess að ég treysti ekki þessum vini hans,“ segir Gina jafnframt. Líkt og kom fram í frétt DV á dögunum þá fannst ann- ar Íslendingur látinn í íbúðinni á seinasta ári. Aðstandendur að gefast upp Spænski fréttamiðillinn Diario Información fjallar einnig um mál- ið. Andrés Jimenez, bróðir Henrys, segir óskiljanlegt að hægt sé að koma fram með svona margar mismunandi frásagnir af því sem átti sér stað í íbúðinni þetta kvöld. Þá bætir hann við að fjölskyld- an telji augljóst að Henry hafi ekki yfirgefið íbúðina sjálfviljugur. Hann hafi hvorki verið með síma né skilríki á sér. Að sögn Andrésar var bróðir hans með stóra drauma varðandi framtíðina sem hann var afar spenntur fyrir. Hann lýs- ir Henry sem „harðduglegum og með hjarta úr gulli.“ Andrés segir „harmleikinn“ hafa hafist daginn sem fjölskyldan komst í kynni við „28 ára íslensk- an karlmann“ sem seinna átti eftir að gerast meðleigjandi Henrys. Andrés segir að hann og Henry hafi upphaflega komist í kynni við íslenska manninn á bar þar sem þeir fóru reglulega til að horfa á fótbolta. Í kjölfarið hafi myndast vinskapur á milli þeirra sem end- aði með því að Henry flutti inn. Andrés segir jafnframt að margir af aðstandendum Henrys séu búnir að gefast upp á leitinni, þar á meðal vinir og kunningj- ar Henrys sem voru með honum seinustu klukkustundirnar áður en hann hvarf. Henry hefur nú verið týndur í meira en 100 daga. „Það sem er verst af öllu er að horfa upp á áhugaleysið hjá þeim sem voru með honum þetta kvöld og töldust til vina hans.“ n NÆSTI KAFLI HEFST HJÁ OKKUR KVÍSLARTUNGA 9, 270 MOSFELLSBÆR 86.900.000 kr. Tegund Stærð Herbergi Parhús á 2 hæðum 286 M2 7 SKYGGNISBRAUT 26 - 28, 113REYKJAVÍK 64.800.000 kr. Tegund Stærð Herbergi Fjölbýli 135 M2 5 LANGHOLTSVEGUR 85, 104 REYKJAVÍK 39.900.000 kr. Tegund Stærð Herbergi Fjölbýli 76 M2 3 Grensásvegi 13 / 108 Reykjavík / S. 570 4800 www.gimli.is BJÓÐUM UPPÁ FRÍTT SÖLUVERÐMAT Vilja Íslendinginn handtekinn Ekkert hefur spurst til Henrys Jimenez„Ég reyndi að fá hann til að hætta við, vegna þess að ég treysti ekki þessum vini hans. Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Henry Alejandro Jiménez Hvarf í byrjun árs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.