Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2019, Síða 25
Páskablaðið 18. apríl 2019 KYNNINGARBLAÐ
Krakkaklúbburinn Krummi hóf göngu sína á Listasafni Íslands haustið 2018. Krakka klúbburinn
stendur fyrir fjölbreyttri dagskrá í
hverjum mánuði þar sem börnum og
fjölskyldum er boðið að fræðast um
listaverkin í safneign Listasafns Ís-
lands, skapa list og leika sér í nærandi
umhverfi. Starfið er fyrir börn á
öllum aldri og er þátttakendum að
kostnaðarlausu. Markmiðið er meðal
annars að fólk gangi að fjölbreyttri
og vandaðri starfsemi fyrir börn og
fjölskyldur þeirra í Listasafni Íslands.
Metnaðarfull dagskrá
Tenging við sýningar og starfsemi
safnsins er ávallt höfð að leiðarljósi
við dagskrárgerð Krakkaklúbbsins
Krumma. Dagskráin er metnaðarfull
og við leggjum mikið upp úr
fjölbreytileika og viðburðum þar sem
allir geta tekið þátt, börn og fullorðnir.
Viðbrögðin hafa ekki látið á sér
standa og Krakkaklúbburinn Krummi
fer sífellt stækkandi. „Við höfum
fundið fyrir mikilli eftirspurn eftir
vönduðu barnastarfi á safninu okkar.
Dagskráin er gefin út nokkra mánuði
fram í tímann þannig að fjölskyldur
geti skipulagt tíma sinn með góðum
fyrirvara. Viðburðirnir eru endurteknir
tvisvar í mánuði þannig að sem flestir
geti notið góðs af,“ segir Ragnheiður
Vignisdóttir, verkefnastjóri viðburða
og fræðslu.
„Tvisvar sinnum í mánuði fyllist
Listasafn Íslands af lífi þar sem
börnin koma með foreldrum sínum,
systkinum, ömmum og öfum í
heimsókn og njóta samverunnar við
hvert annað og skemmtilega starfs-
ins sem hér er skipulagt í Krakka-
klúbbnum Krumma. Listaverkin koma
nefnilega á óvart og við erum alltaf
að uppgötva eitthvað nýtt!“
Silkiþrykksmiðja
Dæmi um viðburði sem Krakka-
klúbburinn hefur staðið fyrir síðasta
árið eru tónleikar, grafíksmiðjur,
ritsmiðjur, fræðsla um miðalda-
handrit, jólakortagerð, galdrasýning,
landakortasmiðja, teiknismiðja með
teiknikennurum og núna í apríl er
silkiþrykksmiðja á dagskrá í tengslum
við sýninguna Fjársjóður þjóðar.
Hægt verður að koma með bol að
heiman til að fá prentaða mynd á eða
fá pappír á safninu og skapa sitt eigið
silkiþrykk.
Næsta silkiþrykksmiðja verður á
dagskrá laugardaginn 27. apríl kl.
14–16 í Listasafni Íslands.
Nánari upplýsingar um viðburði
safnsins má nálgast á listasafn.is
Listasafn Íslands er staðsett að
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík.
Sími: 515-9600
Fylgstu með á Facebook:
Listasafn Íslands
og Instagram: Listasafn Íslands
Listaverkin koma á óvart
og við erum alltaf að
uppgötva eitthvað nýtt!
KRAKKAKLÚBBURINN KRUMMI: