Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2019, Page 27
Páskablaðið 18. apríl 2019 KYNNINGARBLAÐ
Fyrir mér er þetta fullveldismál. Ég vil að Íslendingar eigi orkuna og ég get ekki hugsað
mér að við markaðsvæðum orku
kerfið okkar ef við samþykkjum
þings ályktunartillögur og frumvarp
sem tengjast Orkupakka 3. Þá erum
við þar með að tapa völdum yfir til
stofnana í Evrópu og það vil ég ekki,“
segir Elínóra Inga Sigurðardóttir,
stofnandi samtakanna Orkan okkar.
Um er að ræða samtök
þeirra sem vilja standa vörð um
sjálfsákvörðunarrétt Íslands í orku
málum. Samtökin voru stofnuð í
október 2018 til þess að vekja athygli
á mikilvægi orkuauðlindarinnar fyrir
lífskjörin í landinu og kynna rök gegn
frekari innleiðingu orkulöggjafar ESB
hér á landi. Samtökin eru opin öllum
sem vilja styðja málstaðinn.
Sigmar Vilhjálmsson athafna
maður er í hópi þeirra sem eru alfarið
á móti innleiðingu þriðja orkupakk
ans. Segir hann það einnig vera
leiðinlegt að sjá hvað það eru margir
þarna úti sem nenna ekki að kynna
sér þetta. „Hvernig getum við setið
hjá og leyft þessu að gerast?“ spyr
Sigmar. „Orkupakki 3 er stærra skref
í þá átt að einkavæða orkuauðlindir
okkar, við erum með 10 ára reynslu
af Orkupakka 2 og reynslan er hærra
orkuverð á öll heimili og fyrirtæki í
landinu. Með Orkupakka 3 er verið
að fara enn lengra í þeim málum. Á
Íslandi er eitt lægsta orkuverð í heimi,
orku fyrirtækin í landinu, sem eru í
okkar eigu, eru að skila hagnaði til rík
isins sem fer í innviðauppbyggingu og
orkukerfið okkar er mjög stöðugt. Því
í ósköpunum á að breyta því? Hvað
er hægt að biðja um meira fyrir okkur
sem þjóð? “
Ögmundur Jónasson, fyrrverandi
ráðherra og alþingismaður, tekur í
sama streng og er á móti vegferðinni
allri. „Hún endar með því eftir að búið
er að markaðsvæða orkuna, að þessi
fyrirtæki verða sett á markað og seld.
Þau hafna í höndum á fjár festum,
innlendum eða erlendum, og það
er að gerast núna. Það er þegar
að gerast með vatnsréttindi víða
um landið og það mun gerast með
allan þennan geira. Þegar hvati er
kominn inn í kerfið að virkja sem mest
fyrir arðsemi, þá fer ég að biðja fyrir
íslenskri náttúru.“
Þúsundir hafa þegar gengið í
hópinn Orkan okkar á Facebook en í
þann hóp eru allir velkomnir sem eru
sammála því að Íslendingar eigi sjálfir
að stýra eigin orkumálum og því beri
að hafna innleiðingu þriðja orkupakka
ESB hér á landi.
Kynntu þér málið nánar á
orkanokkar.is
ORKAN OKKAR:
„Hvernig getum við setið hjá
og leyft þessu að gerast?“